Tíminn - 14.10.1982, Side 15
FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1982
H
bridge
Það borgar sig ekki alltaf að flýta sér
að henda niður tapslögum í trompsamn-
ing, sérstaklega ef trompið er ekki af
sterkara taginu. Tveir spilarar komust
að þessu í fyrstu umferð hausttvímenn-
ings BR.
Norður. S. AK754
H. G83 S/NS
T. DG6
L. 107
Vestur.
S. DG983
H. K7
T. 105
L. ADG5
Austur.
S. 102
H. 10642
T. 74
L. K9642
Suður.
S. 6
H. AD95
T. AK9832
L. 83
Við öll borðin spiluðu NS eitthvað
geim, allt frá 3 gröndum uppí 5 tígla.
Bæði þessi geim unnust þar sem þau
voru spiluð: vestur spilaði út spaða. En
við 2 borð spilaði suður 4 hjarta, við
annað borðið eftir þessar sagnir:
Vestur. Norður. Austur. Suður.
I L
1 S dobl 3 L 3 T
4 L dobl pass 4 H
4 lauf dobluð hefðu verið best fyrir NS
þó það hefði ekki gefið mikið miðað við
úrspil á öðrum borðum. Vestur spilaði
út laufás en þar sem hann bjóst við að
austur ætti 6-lit fyrir 3jalaufa sögninni
skipti hann í lítinn spaða.
Suður tók á ásinn í borði og henti
laufinu heima niðrí spaðakóng. Síðan
spilaði hann hjarta á drottningu og
vestur tók á kóng og spilaði spaða.
Suður varð að trompa heima og þar sem
eini möguleikinn til að vinna spilið var
að hjartað lægi 3-3 þá tók hann tvisvar
tromp. En hjartað lá 4-2 og suður fékk
aðeins einn slag enn á tígulkóng. 5 niður
og það voru líka úrslitin á hinu borðinu
þar sem 4 hjörtu voru spiluð.
Þetta spil er auðvitað ekki auðvelt til
vinnings en það er ljóst að suður má ekki
taka spaðakónginn og henda laufi. Eftir
að hafa tekið á spaðaás spilar suður
hjartagosa og hleypir honum. Vestur fær
á kóng og það besta sem hann gerir er
að taka laufdrottningu og spila laufi í
tvöfalda eyðu. En þá trompar suður í
borði, spilar hjarta á níuna og þegar hún
heldur er spilið unnið.
k rossgá ta
3936.
Lárétt
I) Krókur. 5) Leiði. 7) Hleypt. 9) svik.
II) Líta. 12) Númer. 13) Haf. 15) Fæðu.
16) Ómarga. 18) Hrópar.
Lóðrétt
1) Trygging. 2) Op. 3) Varðandi. 4)
Farða. 6) Hlákur. 8) Andi. 10) Kindina.
14) Iðka. 15) Poka. 17) Fund.
myndasögur
Rádning
á síðustu
krossgátu
Ráðning á gátu no. 3935
Lárétt
1) Æðurin. 5) Lón. 7) III. 9) Nýr. 11)
Ná. 12) Kú. 13) Gný. 15) Bik. 16) Sóa.
18) Vaskra.
Lóðrétt
1) Æringi 2) UU. 3) Ró. 4) Inn. 6)
Þrúkka. 8) Lán. 10) Ýki. 14) Ýsa. 15)
Bak. 17) Ós.
með morgunkaffinu
- CV.\
- Jú, þetta er hálfrosalegt hverfi,.
góðan daginn, séra Jónatan.
- Jú, ég málaði stólinn bláan, eins og þú
baðst um, en þá slettist á gólfið og
svo...og svo...
( Verzlun & Pjónusta
J
Skjót viðbrögð
Það er hvimleitt að þurfa að biða lengi með bilað rafkerfi, leiðslui
eða tæki.
Eða ny heimilistæki sem þarf að leggja fyrir
Þess vegna settum við upp neytendaþjónustuna - með
harðsnunu liði sem bregður skjótt við.
•RAFAFL
Smiðshöfða 6
símanumer: 85955
Ný traktorsgrafa
til leigu, vinnum líka á kvöldin og um helgar.
Getum útvegað vörubil.
Magnús Andrésson. s.miesroí.
Þakpappalagnir s/f
Nú eru síðustu forvöð að leggja á bílskurinn eða
húsþakið fyrir veturinn! Leggjum pappa I heitt asfalt og
önnumst viðgerðir á pappaþökum. Þéttum einnig
steyptar þakrennur.
Látið fagmenn vinna verkið - Góð þjónusta.
Upplýsingar í síma 23280 og 20808,
millikl. 16.00-20.00
Er miðstöðin í ólagi?
Auk nýlagna tökum viö aö okkur kerfaskiptingar
og setjum Danfosskrana á ofna. Einnig meirihátt-
ar breytingar og viögeröir á vatns- og miðstöðva-
kerfum.
Kristján Pálmar
& Sveinn Frímann Jóhannssynir,
Lóggiltir pipulagningameistarar
Uppl. i sima 43859 & 44204 a kvoldin.
Er stíflað?
Fjarlægi stíflur
Úrvöskum, WC rörum, baðkerum og niðurföllum
Ný tæki. Vanir menn. Geymið auglýsinguna.
Valur Helgason,
sími16037
23611 Húsaviðgerðir 23611
Tökum að okkur allar viðgerðir a húseignum, storum sem
smaum, s.s. murverk, trésmíðar, jarnklæðningar, sprunguþétt-
ingar. málningarvinnu og glugga-og hurðaþéttingar. Nýsmiði-
innrettingar-haþrystiþvottur
Hringið í síma 23611
Körfubílaleigan,
háþrýstiþvottur,
og húsaviðgerðir
Leigjum út körfubil, lyftigeta allt að 12'm. Tökum
einnig aö okkur gluggaþvotta, sprunguviðgerðir,
hreinsun á rennum og fl,
Guðmundur Karlsson
simar 51925 og 33046
i Þorvaldur Ari Arason
4 hrl 'é
Lögmanns-og Þjónustustofa
Eigna-óg féumsýsla
Innheimtur og skuldaskil
Smiðjuvegi D-9, Kópavogi
| ........................... ,
2 Smiðjuvegi D-9, Kópavogi í
Sími 40170. Box 321 - Rvík. t
%'/æs*sæ/æ/æ/æ/æ/æ/æ/æsæ/æ/æ/æ/æ/æ/A