Tíminn - 22.10.1982, Síða 12
mtmm
FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1982
(ÉzqZ
hljómplöhjklúbburinn
1ÓN-UST
Hljómplötuklúbburinn TÓN-LIST býður þig velkominn í hópinn. Hjá
okkur snýst allt um hljómplötur. Klúbburinn er nýjung hér á landi, en
erlendis hafa hliðstæðir klúbbar starfað árum saman. Markmið TÓN-
LISTAR er að bjóða félagsmönnum sínum allar markverðar og
vinsælar hljómplötur og snældur með allt að 20% afslætti!
Inntökuskilyrði í TÓN-LIST eru þau ein að kaupa 1 hljómplötu með
10% afslætti og síðan eins og þér hentar best. Klipptu nú út miðann
hér fyrir neðan, skrifaðu á hann nafnið þitt og heimilisfang og sendu
hann i Hljómplötuverslunina LIST Miðbæjarmarkaði (eða littu inn).
Þá færðu sendan um hæl bækling með nánari upplýsingum og
plötulista yfir allar tegundir af tónlist: Ný-bylgja — jass— pönk —
klassik — country — þjóðlög — disco — islenskar og erlendar.
Ath.: Vertu snar því við verðum að takmarka fjölda klúbbfélaga—
svo þeir fyrstu verða fyrstir, en þeir síðustu komast ekki að.
r
Heimilisfang:
Hljómplötuverslunin LIST
Miðbæjarmarkaðnum Aðalstræti 9 101 Reykjavík Sími 22977
Hljómplötuklúbburinn TÓN-LIST
Miðbæjarmarkaðnum — Aðalstræti 9
101 Reykjavík — sími 22977
Helgarpakkinnl
Leikhús
Nýr söngvafarsi frumsýndur á
Skaganum:
„Okkar maður“
eftir Jónas Árnason.
■ Undanfarnar vikur hafa staðið yfir
æfingar hjá Skagaleikflokknum á Akra-
nesi á nýju íslensku verki eftir Jónas
Árnason rithöfund. Pað er söngva-
farsinn ..Okkar maður“ og er frum-
sýning laugardagskvöldið 23. október
nk. kl. 20.30.
Söngtextarnir í leikritinu eru samdir
við gömul bresk og bandarísk lög í
djassútsetningu Bjarka Sveinbjörns-
sonar.
Þetta er 17. verkefni Skagaleikflokksins
og eitt hið viðamesta sem hann hefur
ráðist í. í leiknum koma fram 20
leikendur auk þriggja manna hljóm-
sveitar. Að tjaldabaki vinnur annar eins
hópur að gerð leikmyndar, búninga,
' leikhljóða o.fl.
Með aðalhlutverk fara: Valgeir Skag-
i fjörð, Sveinn Kristinsson, Þorsteinn
1 Ragnarsson, Ingunn ívarsdóttir, Auður
Sigurðardóttir, Ingimar Garðarsson,
Hrönn Eggertsdóttir, Guðfinna Rúnars-
dóttir, Jón Páll Björnsson, Björgvin
Leifsson, Guðjon Þ. Kristjánsson.
Bergmann Þorleifsson og Ásta Ingi-
bjartsdóttir, auk 7 manna dans- og
sönghóps. Hljomsveitarstjóri er Bjarki
Sveinbjrönsson, en dansana hefur samið
Kristinn Reimarsson. Leikmynd er eftir
Bjarna Þór Bjarnason. Leikstjóri er
Sigrún Valbergsdóttir.
Önnur sýning verður í Bíóhöllinni á
Akranesi mánudagskvöldið 25. október
kl. 20.30.
Leikfélag Reykjavíkur
írlandskortið,
Skilnaður, Hassið
og Jói
■ í kvöld (föstudagskvöld) er önnur
sýning á nýjasta leikriti Leikfélags
Reykjavíkur {RLANDSKORTINU
eftir Brian Friel. Þetta er nýtt leikrit sem
vakið hefur mikla athvgli og var kosið
besta nýja leikritið í Bretlandi á síðasta
leikári. Það gerist í írskri sveit á síðustu
öld og lýsir samskiptum sveitafólksins
við breska hermenn. Inn í þetta fléttast
ástarsaga írskrar stúlku og bresks
hermanns. Kari Guðmundsson hefur
þýtt verkið og leikur hann jafnframt eitt
aðalhlutverkið. Steinþór Sigurðsson ger-
ir leikmynd og búninga, Daníel
Williamsson sér um lýsingu og leikstjóri
er Eyvindur Erlendsson. í öðrum
stærstu hlutverkum eru Ása Svavars-
dóttir og Pálmi Gunnarsson, sem bæði
þreyta hér frumraun sína, Steindór
Hjörleifsson, Karl Ágúst Úlfsson, Emil
G. Guðmundsson, Ragnheiður Stein-
dórsdóttir, Harald G. Haraldsson,
Hanna María Karlsdóttir og Kjartan
Ragnarsson.
Annað kvöld (laugardagskvöld) er
SKILNAÐUR Kjartans Ragnarssonar
sýndur í Iðnó og er uppselt á þá sýningu.
aðalhlutverk leika Guðrún Ásmunds-
dóttir, Jón Hjartarson, Valgerður Dan,
Soffía Jakobsdóttir, Aðalsteinn Bergdal
og Sigrún Edda Björnsdóttir.
Annað kvöld er einnig miðnætur-
sýning í Austurbæjarbíó á HASSINU
HENNAR MÖMMU eftir Dario Fo, en
þetta verk hefur verið sýnt fyrir troðfullu
húsi til þessa. Þar fara með stærstu
hlutverk Margrét Ólafsdóttir, Gísli
Halldórsson, Kjartan Ragnarsson, Emil
G. Guðmundsson og Aðalsteinn Berg-
dal. Miðasala á HASSIÐ er í bíóinu.
Á sunnudagskvöldið er svo JÓI
Kjartans Ragnarssonar og eru nú aðeins
fáar sýningar eftir á því verki. Leikritið
var sýnt fyrir fullu húsi í allan fyrravetur
og eru sýningar að nálgast hundrað.
aðalhlutverk leika Jóhann Sigurðarson,
Hanna María Karlsdóttir og Sigurður
Karlsson.
Þjóðleikhúsið um helgina
■ GARÐVEISLA eftir Guðmund
Steinsson verður sýnd í kvöld (föstud.)
í 12. sinn og á sunnudagskvöldið í 13.
sinn. Þetta nýjasta leikrit Guðmundar
hefur komið miklu róti á hug leikhús-
gesta og jafnvel valdið deilum og það
meira að segja áður en til frumsýningar
kom. Inntak leiksins er nátengt fyrri
verkum höfundar og hér er á ferðinni
siðbótarverk og alvarleg áminning til
nútímafólks María Kristjánsdóttir er
leikstjóri þessarar sýningar, Þórunn S.
Þorgrímsdóttir gerði leikmynd og bún-
inga, tónlist og leikhljóð eru eftir Gunnar
Reyni Sveinsson, en Ásmundur Karlsson
sér um lýsinguna. Með aðalhlutverkin
fara Kristbjörg Kjeld og Erlingur
Gíslason, en með önnur stór hlutverk
fara Jórunn Sigurðardóttir, Guðjón P.
Petersen og Ragnheiður Arnardóttir.
Á laugardagskvöldið verður 37. sýn-
ing á verðlaunaleikriti Peter Shaffer,
AMADEUS, og fer sýningum á því
verki nú fækkandi. Þegar þetta verk var
frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í fyrravetur
hlaut sýningin einróma og hástemmt lof.
Helgi Skúlason leikstýrði, Björn G.
Björnsson sá um leikmynd og búninga,
lýsinguna gerði Árni Baldvinsson, tón-
listin er eftir Mozart og Salieri,
aðalpersónur leiksins, en Valgarður
Egilsson og Katrín Fjeldsted þýddu
leikritið. Með aðalhlutverkin fara Róbert
Arnfinnsson, Sigurður Sigurjónsson og
Guðlaug María Bjarnadóttir.
Á sunnudag ki. 14.00 verður 44.
sýning á barnaleikritinu GOSA, sem
Brynja Benediktsdóttir samdi og leik-
stýrir eftir sögunni víðfrægu um spýtu-
strákinn sem lærir að verða maður. Bent
er á að fáar sýningar eru nú eftir á þessu
vinsæla verki. Birgir Engilberts sá um
leikmynd og búninga, söngtexta gerði
Þórarinn Eldjárn, en tónlistin er eftir
Sigurð Rúnar Jónsson. í aðalhlutverk-
unum eru Árni Tryggvason og Árni
Blandon.
Á sunnudagskvöldið kl. 20.30 verður
13. sýningin á vcrðlaunaleikritinu TVÍ-
‘ LEIKUR, eftir Tom Kempinski. Sýning
þessi hlaut afar lofsamlega dóma og
hefur fengið verðskuldaða athygli.
Þama er á nærfærinn, manneskjulegan og
fyndinn hátt fjallað um mannveru í
kreppu og baráttu hennar við að losna
úr henni. Jill Brooke Árnason er
leikstjóri, þýðingin er eftir Úlf Hjörvar,
en í hlutverkunum eru Þórunn Magnea
Magnúsdóttir og Gunnar Eyjólfsson.
□AIHATSU CHARf C DAIHATSU Ll r0l(l*6ttu1* VðlkOStUI* Armula23ReykjavikSimar:81733 - 85870
&.EI ■■■■a ma alhliða flugþjónusta, áætlunar, leigu, fragt, og sjúkraflug \N!K F ÍSAFIRÐI SÍMI 94 3698
Skoðið rúmin í rúmgóðri verzlun
»> Rúm ’ ’-bez ta verzlun landsins
Góðir skilmálar (\ J—^ INGVAR OG GYLFI I
Betri svefn
GRENSASVEGI 3 108 REYKJAVIK, SIMI 81iaa OG 33530
Sérverzlun meðrúm
(m tl^ Ævintýraheimurinn
Erum með: VHS - og 2000 með ogántexta
VIDEO SPORT
Miðbæ Háaleitisbraut 58-60 Sími 33460.
Opiðalladaga
kl. 13.00-23.00