Tíminn - 04.11.1982, Blaðsíða 11

Tíminn - 04.11.1982, Blaðsíða 11
— segir Bragi Guðmundsson, forstöðumaður Landmælinga íslands þeim arfi byggja Landmælingarnar og þó að Geodætisk institut í Kóngsins Kaupinhafn hafi átt einkaréttinn á þessum kortum og mælingum, var landmælingum íslands falið að fara með þann rétt og vernda hann eftir föngum. Landmælingarnar heyrðu fyrst undir Landsverkfræðing, en síðar á öldinni þegar embætti Landsverkfræðings var skipt, lentu Landmælingarnar undir Vegamálastjóra og heyra því til Sam- gönguráðuneytinu í dag. - Það má með vissum sanni segja að Landmælingar íslands séu ein af gleymdu stofnununum, segir Bragi Guðmundsson og bendir á að ákaflega erfitt sé að reka stofnunina á meðan engin lög eða reglur séu til um hvernig hún á að starfa. Ákaflega þröngt er um Landmælingar íslands og segir Bragi að starfsfólkið hafi barist fyrir stærra og betra húsnæði allt frá því að hann kom til starfa árið 1976. - Þessi þröngi húsakostur rýrir starfsgetu okkar ákaflega og m.a. getum við ekki tekið hér inn tæki sem teljast verða nauðsynleg vegna þess hve hús- næðið er lítið. Við erum hér m.a. að reyna að varðveita heimildir um sögu landsins, en allt geymslurými er illa til þess fallið að geyma þessa hluti s.s. kort og filmur þannig að vel fari, segir Bragi Guðmundsson. Nákvæmt kort af athafnasvæði hersins En það er ekki einungis að húsnæðið sé lítið. Fjárveitingar til Landmælinga hafa farið minnkandi að verðgildi og nú erstofnuninnit.a.m. ætlaðar2.1.milljón á fjárlögum fyrir 1983, en útgjöld eru áætluð um 7.1 milljón. - Þarna er okkur ætlað að hafa um 5 milljónir króna í sértekjur og ég fæ alls ekki skilið hvernig okkur á að takast að afla þeirra, segir Bragi og bendir á að ■ Bragi Guðmundsson, forstöðumaður Landmælinga íslands virðir hér fyrir sér filmu sem unnin hefur verið hjá stofnuninni í tengslum við kortagerðina. Tímamyndir Ella helstu tekjumar fáist fyrir korta- og mælinga er af og frá, segir Bragi og vönduð kort af íslandi í samvinnu við myndasölu. - Nú verðum við fyrst og fremst að hugsa um að halda við kortum og huga að endurskipulagningu, en að við getum sent fólk um landið vítt og breitt til bendir enn einu sinni á hve erfitt er að hafa engin lög til að starfa eftir. Landmælingar íslands vinna reyndar að tveim stórum verkefnum um þessar mundir. Verið er að gera ákaflega Bandaríkjamenn og eru fyrstu kortin í þeirri kortaröð þegar komin út. Vekur það mikla athygli að á kortinu yfir Reykjanesskagann og þar með talið athafnasvæði hersins, þá eru skot- vita að þar er ríkisstofnunin Landmæl- ingar íslands til húsa? Örugglega innan við eitt eða tvö prósent landsmanna og undirritaður var þar á meðal þangað til honum var falið að fara í húsið við Laugaveginn og kynna landslýð þá merku starfsemi sem fram fer undir merki Landmælinga íslands. Hjá Landmælingunum starfa um 20 manns, en stofnunin skiptist í skrifstofu, afgreiðslu, kortadeild, fjarkönnunar- deild og myndmælingadeild. Þar getur fólk fengið keypt kort og ýmis konar loftmyndir og verðið - það verður að teljast bara hagstætt. -ESE ■ Bragi Guðmundsson og Ágúst Guðmundsson virða fyrir sér loftmynd frá Suðuriandi. Mynd af þessari stærð er seld á ca. 500 krónur. ■ Ásgeir Sveinsson, deildarstjóri í Myndmælingadeild við eitt fullkomnasta tæki stofnunarinnar. Tæki þetta tekur út dýptina í loftmyndum og landið virðist því allt vera í sömu hæð. ■ - Þessi stofnun er eiginlega ekki íslensk að uppruna. Það voru Danir sem lögðu allan grunn að því starfi sem hér hefur farið fram og það voru m.a.s. Danir sem sjálfir áttu frumkvæðið að því að landmælingar hófust á íslandi, segir Bragi Guðmundsson, forstöðu- maður Landmælinga íslands í viðtali við Tímann. Að sögn Braga þá hófust skipulegar landmælingar á íslandi eiginlega fyrir tilviljun. -Það voru danskirsjókapteinar sem veittu því athygli að það sem sagt var um Faxaflóann á gömlum kortum stemmdi ekki alls kostar. Snæfellsnesið rímaði sem sagt ekki alveg við Reykja- nesið og því var það að þessir menn lögðu til að gerð yrði betri kort af landinu. Það var svo ákveðið í Riksdag- en, danska þinginu árið 1902 að gera skipulega kortaröð af íslandi og að þessu verki var unnið að meira eða minna leyti allt fram að stríðsbyrjun. Bragi Guðmundsson segir að korta- gerð Dananna hafi að mörgu leyti verið hið mesta þrekvirki. Engir vegir voru til í fyrstu og landið var erfitt yfirferðar. Mælingamennirnir þurftu alfarið að ferðast á hestum í misjöfnum veðrum og margir þurftu að híma einir uppi á öræfum vikum saman og þótti víst mesta mildi að menn skyldu sleppa óbrjálaðir frá þessum raunum. Gleymd stofnun? Það er greinilegt að forstöðumaður Landmælinga íslands hefur gefið sér góðan tíma til að kynnast sögu land- mælinganná og segja má að hann þekki þá sögu allt frá því að „spekingurinn með barnshjartað", Björn Gunnlaugs- son tók sig til, ferðaðist um landið og gerði uppdrætti. Þá ber Bragi Guð- mundsson Dönum söguna mjög vel og minnir á að Danirnir hafi skilað árið 1957 öllum kortum og útreikningum sem gerðir höfðu verið aftur til íslands. Á ■ Laugavegur 178 er hátt og mikið hús. Flestir landsmenn kannast e.t.v. við það sem húsið við hliðina á Sjónvarpinu og enn aðrir vita að þar er veitingahúsið með því skringilega nafni, Halti haninn, til húsa. Þar eru einnig verslanir með ágæta búðarglugga og þeir eru margir sem hafa stytt sér stundirnar á gangstétt- inni við að góna í gluggana, á meðan beðið hefur verið eftir strætisvagninum. En þetta á aðeins við um fyrstu hæðina. Ofar í húsinu eru stofnanir og fyrirtæki sem fáir kunna nokkur skil á, nema e.t.v. þeir sem þeim eru tengdir eða þangað hafa álpast inn fyrir einhverja tilviljun. Hvað eru þeir t.d. margir sem i BÞessi filma hafði að geyma eina fvrstu loftmyndimar sem teknar voru af Reykjavík. Nú er filman óýt og er það m.a. að : kenna slæmum geymsluskilyrðum. — segir Ágúst Guðmundsson, deildarstj. Fjarkönnunardeildar ■ - Hér geymum við vel á annað þúsund myndir og það verður að segjast eins og er að hér eru engin þau skilyrði sem nauðsynleg eru til að geyma filmur og myndir, segir Ágúst Guðmundsson, deildarstjóri Fjarkönnunardeildar landmælinga íslands. Að sögn Ágústs verður að geyma filmurnar við rétt raka- og hitastig, en því er ekki að heilsa í geymslunum á Laugaveg 178. Filmur liggja undir skemmdum og sérstaklega eru eldri filmur illa famar og margar ónýtar. Þær hugmyndir eru einnig uppi meðal yfir - manna Landmælinga að láta gera auka- eintök af öllum myndum í safninu og koma þeim fyrir í geymslu úti í bæ. Er þetta eðlileg ráðstöfun þegar á það er litið að brunahættan er alltaf til staðar og margar af þeim myndum sem Land- mælingar hafa yfir að ráða eru ómetan- legar. Ágúst Guðmundsson, segir að á síð, ta ári hafi rúmlega 5000 loftmyndir af landinu verið teknar á vegum deildar- innar, cn myndir þessar eru notaðar til grundvallar við kortagerðina. Þá má nefna að hægt er að fá keyptar myndir hjá stofnuninni og sagði Ágúst að venjuleg loftmynd, t.a.m. af bæjarstæði eða álíka kostaði um 400 til 500 krónur. Ekki verður annað sagt en að þeir hjá Fjarkönnunardeildinni séu nýtnir, því að þar er enn í notkun stækkari sem fannst á árum áður á rauslahaugum hersins. Var stækkarinn gerður upp og er hann svo forn að ekki er lengur hægt að fá í hann varahluti. Þá verður að smíða sérstaklega, en stækkarinn er að öðru leyti hið vænsta tæki. Hjá fjarkönnunardeild hittum við einnig Þorvald Bragason, en hann vinnur nú að flokkun og skráningu á myndum sem teknar hafa verið á vegum stofnunarinnar. Þá gerir Þorvaldur yfirlit yfir þær flugferðir sem farnar hafa verið og verður myndunum og gögnunum komið fyrir á mikrófilmum. Er það stóri draumurinn að hægt verði að koma þannig fyrir mikrófilmu söfnun á sýslu,- skrifstofunum víðs vegar um land, þannig að hægt verði að auka þessa þjón- ustu Landmælinganna verulega frá því sem nú er. - ESE Ýmis sérverkefni ■ Þessum stækkara var bjargað af haugum hersins og gerir það gott þratt fyrir háan aldur. færabúr, eldsneytisgeymar og önnur hemaðarmannvirki rækilega tíunduð. - Þessi kort eru gerð eftir nýjustu tækni og höfum við yfirumsjón með verkinu, þó að Bandaríkjamenn leggi okkur til aðstoð. Varðandi kortið af Reykjanesi er það að segja að þeir vildu sjálfir hafa þetta svona og ekki ætlum við að fara að blanda okkur inn í það. Við viljum aðeins hafa kortin sem nákvæmust og það er því ekki verra að allt skuli koma fram. ■ Svavar Berg Pálsson, deildarstjóri í kortadeild isýnir blaðamönnum eitt af nýjustu kortunum sem unnin hafa verið hjá Landmælingum íslands Tímamyndir Ella Bragi Guðmundsson segir að þó að kortin séu gerð í samvinnu við Banda- ríkjamenn, þá megi þeir ekki selja eða láta eitt einasta kort án leyfis frá Landmælingum íslands. Öll endur- skoðun er jafnframt í höndum íslend- inga og segir Bragi að það sé nauðsynlegt að endurskoða kort, t.a.m. af Reykjavík þar sem byggð breytist mjög ört, á fimm ára fresti. Kortaröðin á að vera tilbúin eftir u.þ.b. sex ár. Hitt stóra verkefnið sem Landmæling- ar íslands vinna að er réttmyndakort af íslandi, en það verkefni hefur ekki gengið mjög greiðlega þar sem naumar fjárveitingar hafa tafið nokkuð fyrir framkvæmdum. Bragi segir þó að Land- mælingamar eigi orðið stóran hluta Suðurlands á siíkum kortum, en aðrir landshlutar verði að bíða betri tíma og hærri fjárveitinga. Auk þessa sem á undan hefur verið nefnt, fer töluverður tími í að halda við kortum þ.e. gefa út önnur ný sem byggð eru á eldri kortum. Meðal sérverkefna Landmælinga íslands eru kortagerð fyrir Flugmálastjórn, Skógrækt ríkisins og meira að segja íslenska hestamenn. - Verkefnin eru óþrjótandi, segir Bragi Guðmundsson, forstöðumaður og óhætt ætti að vera að taka undir þau orð eftir að hafa gengið um húsakynni stofnunarinnar og fylgst með því starfi sem þar fer fram. - ESE ■ Agúst Guðmundsson, deildarstjóri í Fjarkönnunardeild í safni Landmæling- anna. ■ Gyða Ingvadóttir og Hjördís Jónsdóttir, kortateiknarar. ■Axel G. Einarsson, mælingamaður situr hér við visi að tölvudeild Landmælinga Islands. UVOMÆUNGAR VHI LAUGAVEG Litið við hjá Landmælingum íslands að Laugavegi 178 „Filmurnar liggja undir skemmdum”

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.