Tíminn - 04.11.1982, Blaðsíða 2

Tíminn - 04.11.1982, Blaðsíða 2
■1A A H !l “ 11 i: 2 FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1982 f spegli tfmansj LUmsjón: B.St. og K.L. ftWPY GIBB KOMIWN AFTUR Á RÉTTAN KJÖL ■ Loksins er svo að sjá, sem Andy Gibb sé búinn að vinna bug á ástarsorginni, sem hann var haldinn eftir að samband hans og Victoriu Principal rofnaði. Nýlega lék hann á als oddi í afmælisveislu, sem hald- in var til heiðurs Broadway- stjörnunni Maureen McGovem. Hann vék ekki frá afmælisbaminu og notaði hvert tækifæri sem gafst til að haldast í hendur við hana. Það var ekki vanþörf á fyrir Andy að taka sig saman. Eftir að Victoria gerði honum Ijóst, að hún væri orðin leið á félagsskap hans og óskaði eftir að halda sig að eldri mönnum, sem væra betur við hennar hæfi, varð Andy örvilnaður. Eftir því sem hann segir sjálfur, lagði hann ekki stund á annað eftir það en áfengisþamb og piUuát. En þegar horfumar vora orðnar virkilega dökkar, varð hann fyrir því láni að kynnast Maureen. Henni tókst það, sem hvorki foreldram hans né bræðrum hafði heppnast, að Hfa hann upp úr eymdinni. En Maureen lét ekki þar við sitja. Hún ráðlagði Andy að semja frið við þá, sem hann hefði troðið um tær á lífsleið- inni. Andy lét ekki segja sér það tvisvar og byrjaði á blaða- mönnum og fréttaljósmyndur- um, sem hann hafði áður eldað við grátt silfur. Það leið því ekki á löngu áður en Andy fór að fá hjá þeim sömu einkunn og áður en hann lenti í Victoriu-ævintýrinu, að hann væri besti strákur. Kunnugir segja, að Andy sé þó ekki alveg búinn að gleyma Victoriu. Hann nefni nafn hennar varla sjaldnar en í annarri hverri setningu. En hann er þó aUur annar maður og batnandi manni er best að lifa. ■ - Það er Maureen að þakka, að mér tókst að rífa mig upp úr skítnum, segir Andy Gibb um vinkonu sína Maureen McGovem ■ Andy á bágt mað að gleyma Victoriu, en hann hefur þó jafnað sig eftir versta áfaUið, þegar hún vildi ekki lengur hafa neitt með hann að gera. ENN ER LOPINN TEYGÐ- UR I DALLAS-ÞÁTTUNUM — þó að komnir séu á hann ýmsir bláþræðir ■ Nú eru hafnar tökur á nýjum DaUasþáttaflokki í Bandaríkjunum, og þó að það hljóti að vera erfitt, er reynt að ganga enn lengra en hingað tU í alls kyns skepnuskap, sem er aðaleinkenni þáttanna. Fegurðardísiraar Pam, Lucy og Sue-EUen geta unað glaðar við sitt hlutskipti, en þær fá glænýjan fatnað til að skarta í og einu fyrirmælin, sem fatahönnuðurinn fékk, voru þau, að nú skyldu hálsmálin enn flegnari en fyrr og pilsfald- arair ná enn styttra niður á lærin en áður! Þá hefur sú stefna verið tekin, að hætta að beina kvikmyndavélunum frá, þegar hæst hóar í bólförum, nú skal nákvæmlega fylgst með hvcrnig þær fara fram í Ewing-fjölskyldunni! En þetta eru ekki einu umskiptin. Bobby, sem tU þessa hefur verið nokkurn veginn eins og fólk er flest, verður nú skyndUega gripinn valdagræðgi. Hann er hættur að láta J.R. ráðskast með sig og beitir nú hnúum og hnefum tU að koma sínum málum fram. Hann sýnir jafnvel á sér nýjar hliðar í eiginmannshlut- verkinu og gefur nú bróður sínum h'tið eftir í alls konar framhjáhaldi, en Pam hefur krafta og vit tU að hefna sín rækUega. Og nú er komið að J.R. að ■ Bobby hefúr tU þessa verið þægur og Ijúfur sonur, en nú verður breyting á. Hann stendur í stöðugu þrasi við móður sína, sem virðist nú helst hafa hug á að yfirgefa fjölskyldu sína og hefja nýtt líf. ■ Það virðist hafa orðið hugarfarsbreyting hjá J.R. Hann er a.m.k. ekki eins andstyggUegur og við eigum að venjast. En hér liggur fiskur undir steini. ■ Lucy og Pam hlakka tU að klæðast enn minni og glæsUegri fötum en fyrr. ■ AUt gengur á afturfótunum hjá Ciiff Barnes og hann fyUist örvilnun. sýna að hann á betri hliðar en hingað til hafa sést. Hann reynir að koma sér í mjúkinn hjá Sue-EUen aftur, en þau eru nú skUin. Reyndar vakir aðeins fyrir honum að komast yfir arf þann, sem tUheyrir syni þeirra, en er á meðan er. Lucy og CUff Bames verða fyrir hverju áfallinu á fætur öðru. Aumingja Lucy verður nauðgað af Ijósmyndara nokkrum og hún verður með bami. Reyndar segja Ulgjaraar tungur, að það atriðið hafi verið samið með það í huga, að Charlene TUton, sem leikur Lucy, geti þannig komið ný- fæddri dóttur sinni, Cherish Lee, strax ■ hlutverk í hinum arðbæru DaUasþáttum! En af Cliff Barnes er það að frétta, að hann verður svo lífsleiður, að hann reynir að svipta sig lífi. Jafnvel hin sauðtrygga og umburðarlynda Miss EUie tekur breytingum. Hún hefur ekki úthald í að syrgja mann sinn Jock nema sem svarar tveim þáttum. Þá er hún óðar orðin ástfangin upp fyrir haus. Og sá útvaldi er - eins og vera ber - veUríkur olíuauðkýfingur og helsti keppinautur Ewing- anna í ofanálag! Það er kannski ekki furða, þó að áhorfendur velti því fyrir sér, hvort þessar breytingar boði endalok DaUasþáttanna. En þeir, sem gerst fylgjast með málum, segja það útilokað. Á meðan DaUasþættirair skili eins miklum ágóða og raun ber vitni, verði haldið áfram að framleiða þá, og skipti þá ekki máU, þó að söguþráðurinn sé kominn út í algerar ógöngur, segja þeir. Sophia teiknar frímerki ■ Safnarar um viðan heim bíða nú í ofvæni cftir útgáfu nýs góðgerðafrímerkis, sem Sameinuðu þjóðiraar hyggjast gefa út. Höfundur merkisins er nefnUega enginn annar en sjálf Sophia Loren! I Ijós hefur komið að leikkonan er dágóður teiknari og þegar hún var beðin um að~ skUa inn uppástungu að nýju góðgerðafrímerki, lét hún ekki lengi á sér standa. Myndin sýnir tvær hendur, sem teygja sig í átt að Ijósi. Nú þegar er farið að selja á svörtum mark- aði í New York eftirmyndir að merkinu í stærðinni 20x27 cm. Gangverð er um 1200 kr. Kann Caroline Kennedy enga manna- siði? ■ Aumingja Jackic Onassis varð fyrir hálfgerðu áfalli dag einn ekki ails fyrir löngu, þegar hún opnaði dagblaðið sitt. Þar stóð það svart á hvítu, að dóttir hennar, Caroline Kennedy, kynni alls enga mannasiði! Þar stóð nákvæmlega tiltek- ið, að Caroline hefði skömmu áður komið inn á fínan veit- ingastað í New York í fylgd þriggja aðdáenda af hinu kyn- inu. Var tU þess tekið, hvað hún var drusluleg tU fara, en þó tók fyrst steininn úr, þegar hún tók greiðu upp úr pússi sínu á meðan á máltíðinni stóð og fór að greiða sitt fagra, mikla hár. Varð þá öðrum gestum staðarins nóg boðið, að sögn blaðsins! En það var líka tekið fram, að svo virtist sem fylgdarsvein- arair þrír hefðu ekki kippt sér upp við framkomu forsetadótt- urinnar fyrrverandi. Hesta- brúð- kaup f Florida ■ Átta skeifur voru viðstaddar „brúðkaupið“ í Florida, en skeifur eiga sem kunnugt er að vera gæfumerki. Og skeifurnar allar báru brúðurin og brúðguminn, sem nánar tiltekið voru meri og hestur! Eig- andi þeirra sagði þau hafa verið samvist- um svo lengi, að tími væri kominn til að leggja blessun yfír sambandið!

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.