Tíminn - 04.11.1982, Blaðsíða 13

Tíminn - 04.11.1982, Blaðsíða 13
Lifiarkæfa Kjötiðnaðarstöð KEA Liverpool áfram ■ Það vakti mikla athygli þegar finnsku meistararnir sigruðu Liver- pooi í Evrópukeppni meistaraliða í Helsinki fyrir tveimur vikum. Liver- pool tókst að hefna ófaranna í fyrrakvöld, en þá sigruðu þeir Finn- ana á Anfield með fimm mörkum gegn engu. Það var Skotinn Ken Dalghlish sem skoraði fyrsta mark leiksins og síðan bætti Craig John- stone viðöðru. Þriðja markið skoraði svo Phil Neal, en tvö sfðustu mörkin skoraði Alan Kennedy. Þar með sló. Liverpool Finnana út úr Evrópukeppninni og er komið í 3. umferðina. Hugur f Grind- víkingum ■ MikiU hugur er í forráðamönnum knattspynumáia í Grindavík um þess- ar mundir og hyggjast þeir koma liði Ungmennaféiagsins þar í 2. deild á næsta keppnistímabUi. Margir góðir leikmenn frá þeim hafa ekki leikið með liði staðarins t.d. í fyrrasumar og er unnið að því að endurheimta þá hið allra fyrsta. Má þar nefna Siguijgeir Guðjónsson, sem lék raeð Fram sumarið 1981 og lagði áherslu á golflð í fyrrasumar, Ragnar Eð- valdsson, sem æfði ekki á síðasta keppnistimabili og Kristinn Jónsson sem lék með Keflvtkingum. AUir þessir leikmenn eru staðráðnir í að snúa aftur heim nxsta sumar og æfa undir stjóm þjálfarans Kjartans Más- sonar, sem náð hefur góðum árangri sera þjálfari suður með sjó og í Vestmannaeyjum. ■ Páll Kolbeinsson fer hér á fullri ferð framhjá einum leikmanni UMFN í leiknum í gærkvöldi. Tímamynd: Róbert Simonsení Barcelona ■ Enda þótt allt benti til þess að það væri eingöngu formsatriði að. Alan Simonsen færi að leika með Charlton í Englandi þá hefur orðið breyting á. Simonsen er aftur kominn til Barcelona, þar sem forráðamenn félagsins telja enska félagið ekki hafa staðið við að greiða umsamið kaupverð. Þess vegna var Simonsen kallaður aftur til Barcelona og látinn æfa með liði félagsins. Þar getur hann ekki leikið með, vegna þess að samkvæmt reglum á Spáni má ekki hafa nema tvo útlendinga í hverju liði á keppnistímabilinu og fyrir eru þeir Bemd Schusterog Diego Maradonna hjá Barcelona, þannig að ekki er alltof mikið pláss fyrir Danann snjalla hjá þessu fræga félagi. Eins og kunnugt er var Simonsen vqlinn besti knattspyrnumaður Evrópu árið 1977. Allan Simonsen. Bayern sló Tottenham ut ■ Síðari leikimir í 2. umferð Evrópumótanna í knattspyrnu vom háðir í gærkvöldi. í keppni meistara- liða vekur athygli góðursigur Juvetus á Standard Liege, en liðin léku á Ítalíu og sigraði Juventus 2-0 og var þaðmarkakóngurinn frá HM Paolo Rossi sem skoraði bæði mörk Juvcnt- us. Þá sigraði Glasgow Celtic spænsku meistarana Real Sociedad með tveimur mörkum gegn einu, en stærri sigur Spánverja á Spáni varð þess valdandi að þeir komast í 3. umferðina. Evrópumeistarar Aston Villa unnu Dynamo Búkarest í Birmingham með fjórum mörkum gegn tveimur og Gary Shavv skoraði þrjú mörk fyrir Aston Villá. í keppni bikarhafa sigraði Bayern Munchen Tottenham með fjórum mörkum gegn einu og eru leikmenn Tottenham þar með úr keppninni að þessu sinni. Mikið hefur verið um meiðsli hjá leikmönnum Tottenham að undanfömu. í keppninni lék Waterschei gegn B93 frá Danmörku og sigraði Wat- erschei meðfjorum mörkum gegn engu og skoraði Lárus Guðmundsson eitt marka Waterschei. í UEFA-keppninni léku Lokeren og Benflca og var leikið i Belgíu. Portúgalirir sigruðu með tveimur mörkum gegn einu og er Lokeren þar með úr leik að þessu sinni. Þá má nefna að lokumað Köln sigraði Glasgow Rangers í Köln með flmm mörkum gegn engu. Stórt tap hjá Skotunum að þessu smni. Richards með aftur ■ John Richards var aUtaf einn aðalmarkaskorari Úlfanna í 1. deild- inni í Englandi meðan þeir léku þar. Hann hefur ekkert getað leikið með á þessu keppnistímabili vegna meið- sla, sem virtust um skeið geta orsakað það, að Richards yrði að leggja skóna á hilluna. Hann meiddist á hægra hné á æflngu fyrir keppnistimabilið, en það hefur löngum valdið honum vandræðum. En nú þegar meiðslin eru úr sögunni er staðan hjá Wolves sú, að þeir ungu sóknarleikmenn sem tóku stöðu hans hafa staðið sig mjög vel, svo vel að litlar líkur eru á að hann endurheimti stöðu sína alveg á næstunni. En því má ekki gleyma að Richards er mjög drjúgur upp við mörkin hjá andstæðingunum og þess vegan má ætla að á hann verði kallað ef Ula gengur að skora. ■ John Richards er gamall jaxl í ensku knattspymunni. Nú er hann laus við meiðsli sem komið hafa í veg fyrir að hann léki í vetur. VflLUR NAÐI AS SKORA sigurkörfuna og tryggja Njarðvfk sigur gegn KR ■ Það var mikil spenna í íþróttahúsi Hagaskóla rétt fyrir lok leiks KR og UMFN í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í gærkvöldi. KR-ingar sem verið höfðu undir allan hálfleikinn, en náðu að jafna rétt undir leikslok náðu síðan knettinum og hófu sókn þegar tæplega hálf mínúta var til loka leiksins. En þeim tókst ekki að hitta í körfuna, en misstu hins vegar knöttinn og Valur Ingimund- arsson, langbesti maður Njarðvíkinga náði að skora og tryggja Njarðvík sigurinn í leiknum. Lokatölumar urðu 81-79 Njarðvík í hag, í leik þar sem bæði liðin hefðu vel getað unnið. Fyrri hálfleikurinn var mjög jafn og mestur munur varð 6 stig, en yfirleitt ■ Valur Ingimundarson var bestur hjá Njarðvík í gær. munaði þetta tveimur til fjórum stigum á liðinum. Það voru þó KR-ingar sem yfirleitt höfðu forystu, en rétt fyrir leikhléð náðu Njarðvíkingar að jafna og komast síðan yfir og voru einu stigi yfir í leikhléi. KR-ingar byrjuðu mjög illa í síðari hálfleikum og hittu bókstaflega ekkert fyrstu mínúturnar. Var sem Stewart Johnson, sem skoraði 23 stig í fyrri hálfleik væri búinn með kvóta sinn í leiknum og átti mörg skot að körfunni hjá Njarðvík en þau vildu ekki rata rétta leið. Þá tók Jón Sigurðsson við sér og segja má að hann hafi haldið KR-ingun- um á floti allan hálfleikinn, en þeir voru alltaf aðeins á eftir Njarðvíkingum. Hjá þeim var Valur Ingimundarson bestur, en þó var með hann eins og Johnson, að hittnin var í betra lagi í fyrri hálfleiknum. Síðustu mínútur leiksins var eins og mikill taugaóstyrkleiki hefði gripið um sig meðal leikmanna beggja liða og mistökin voru mörg sem gerð voru á báða bóga. Það var svo Valur Ingimundarson sem tryggði Njarðvíkingum sigurinn og þar með tvö dýrmæt stig, sem gætu reynst Njarðvíkingum drjúg f baráttunni um fslandsmeistaratitilinn. Þeir eru með 8 stig, eða jafn mörg og Valsmenn og tveimur stigum færra en Keflvíkingar sem tróna á toppi úrvalsdeildarinnar. KR-ingar hafa hins vegar sex stig og sýndu í gærkvöldi að þeir geta velgt hvaða liði sem er í úrvalsdeildinni undir uggum. En þeim tókst ekki að sigra í gær og geta sjálfum sér um kennt hvernig fór í lokin. Bestu menn KR-inga voru Johnson í fyrri hálfleik, en þá skoraði hann 23 stig, en honum brást bogalistin ' illilega í þeim síðari og skoraði 8 stig. Þá var Jón Sigurðsson góður, einkum í síðari hálf- leik, en þá var hann hreint óstöðvandi á tímabili. Þá má nefna Pál Kolbeinsson og Kristján Rafnsson, sem báðir léku vel. Gunnar Þorvarðarsson er einn þeirra leikmanna sem alltaf standa fyrir sínu og það gerði hann í gærkvöldi. Valur Ingimundarson er hreint frábær leik- maður og bar höfuð og herðar yfir félaga sína í Njarðvíkurliðinu. Þá lék hinn brottrekni Bandaríkjamaður Alex Gil- bert nokkuð vel og hirti mikinn fjölda frákasta bæði í sókn og vörn. Stigin: Njarðvík: Valur Ingimundar- son 32, Alex Gilbert 18, Gunnar Þorvarðarsson 10, Ingimar 8 og aðrir færri. KR: Stewart Johnson 31, Jón Sigurðs- son 25, Páll Kolbeinsson 8 og aðrir færri. Slæm mistök ■ Svo virtist sem illa gengi hjá tímavörðum og skrifurum á leik KR og UMFN í Hagaskóla í gærkvöldi að hafa rétt yfirlit yfir skor liðanna. Þannig kom í Ijós við skoðun, að ritarar höfðu tekið tvö stig af KR, sem Jón Sigurðsson skoraði í fyrri hálfleik. Þetta var Ijóst í hálfleik, en á því fékkst ekki leiðrétting. Það var samhljóða skráning hjá tveimur blaðamönnum, bæði um skorið í leiknum og stigafjölda Jóns og samkæmt því voru tvö stig tekin af KR. I síðari hálfleik átti síðan að taka önnur tvö stig af KR. I þetta sinn körfu sem Páll Kolbeinsson skoraði. Því var breytt er gerð var athuga- semd, en það er Ijóst, að þessi tvö stig sem tekin voru af KR hefðu getað reynst þeim dýrmæt hefðu þau staðið. Svona lagað þarf að bæta sem allra fyrst. Hlaörúm úr furu í viöarlit -A og brúnbæsuöu. Áhersla er lögö á vandaöa lökkun. Stærðir: 65x161 cm og 75x190 cm. Sendum gegn póstkröfu. Furuhúsið hf., Suðurlandsbraut 30, sími 86605. molar...

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.