Tíminn - 04.11.1982, Blaðsíða 6

Tíminn - 04.11.1982, Blaðsíða 6
FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1982 stuttar fréttir ísafjörður Fjölbreytt kennsla í H úsmæðraskólan- um á ísafirði ísafjörður: I Húsmæðraskólanum Ósk á Isafirði er nú verið að koma fyrir leirbrennsluofni sem skólinn hefur fengið. Að því loknu verða auglýst námskejð í leirmunagerð og postulínsmálningu. Einnigerætlunin að halda námskeið í leðurvinnu seinna í vetur. Húsntæðraskólinn Ósk hóf starf- semi sína í september s.l. með löngum námskeiðum í verklegum greinum, fatasaumi, vefnaði og mat- reiðslu, munu þau námskeið standa til jóla. Auk þesseru styttri námskeið í bótasaumi, hnýtingum og mynd- vefnaði. Kennsla á þessum nám- skeiðum fer fram á kvöldin og eru þau öll fullsetin. Eftir áramót byrja síðan fimm mánaða hússtjórnarnámskeið með heimavist. Þar verða kenndar allar hefðbundnar hússtjórnargreinar og lýkur því með prófum. Námskeið þetta sækja nemendur víðs vegar að af landinu, enda góður undirbúning- ur fyrir störf á hótelum og mötu- neytum auk þess að vera hagkvæm menntun fyrir hússtjórn eigin heimil- is. Skólastjóri húsmæðraskólans á ísafirði er Þorbjörg Bjarnadóttir. - HEI Utanlandsferð í boði fyrir góða spilamenn í Árnessýslu Árnessýsla: Alls um 18.000 kr. vinningar - þar af 12.000 kr. ferðavinningur fyrir 2 - verða í boði í 3ja kvölda keppni í Framsóknarvist sem Framsóknarfélag Árnessýslu gengst fyrir nú í nóvember. Fyrsta kvöldið - föstudagskvöldið 5. nóvember - verður spilað í Aratungu í Biskupstungum, 2. kvöldið - föstudaginn 12. nóv. - í Félagsheimili Gnúpverjahrepps og 3. kvöldið - föstudaginn 26. nóv. - að Flúðum í Hrunamannahreppi. Gert er ráð fyrir að sest verði að spilum kl. 21.00 öll kvöldin. Á hverju þessara kvölda er áætlað að stjórnmálamaður rabbi við fólk um stjórnmálaástandið í hléi. Fyrstur verður Davíð Aðalsteinsson, alþm. 2. kvöldið verður það Þórarinn Sigurjónsson, alþm. og 3. kvöldið er gert ráð fyrir Hauki Ingibergssyni sem ræðumanni. Um 2.000 kr. kvöld- verðlaun verða hverju sinni, en heildarvinningur verður utanlands- ferð fyrir tvo með Arnarflugi, sem fyrr segir. Síðasta spilakvöldið er áætlað að fá diskótek til að leika að Flúðum á meðan talning fer fram. „Og að sjálfsögðu lengur ef stemmn- ing verður góð“, sagði Leifur Eiríks- son' á Hlemmiskeiði - einn stjórn- armanna í Framsóknarfélagi Árnes- sýslu í samtali við Tímann. Leifur tók fram að allir séu velkomnir á þessi spilakvöld. í leiðinni má geta þess að aðalfund- ur Framsóknarfélags Árnessýslu var haldinn á Selfossi sunnudaginn 24. október s.l. fundurinn var málefna- legur og góður að venju, en Leifi þótti einna mestum tíðindum sæta að kona var nú kosin í stjórn félagsins í fyrsta sinn, „og fögnum við því mjög“, sagði Leifur. Það er Sigur- björg Geirsdóttir, húsm. á Stóru- Reykjum, sem kosin var í stað Garðars Hannessonar, símstöðvar- stjóra í Hveragerði, sem ekki gaf kost á sér til endurkjörs. Aðrir í stjórn voru endurkjörnir. - HEI Réttindakenn. urum fjölgar og ráðningar ganga betur Vesturland: Kennararáðningar nú í haust hafa gengið mun betur en áður og svo virðist sem kennurum með réttindi fjölgi auk þess sem sálfræði- þjónusta hafi aukist, að því er fram kom í ávarpi Snorra Þorsteinssonar, fræðslustjóra á 11. ársþingi Kenn- arasambands Vesturlands sem haldið var í Munaðarnesi nýlega. Á þinginu urðu m.a. umræður um húsnæðismál grunnskóla á Vestur- landi. í ályktun sem þingið sam- þykkti var skorað á alþingismenn Vesturlands að vinna ötullega að því að viðhaldskostnaður skólamann- virkja verði greiddur af ríkinu á móti sveitarfélögunum, svo sem áður var, svo kleift verði að halda þeim í góðu lagi. í annarri samþykkt þingsins er vakin athygli á því neyðarástandi sem enn ríki í húsnæðismálum margra skóla á Vesturlandi. Sérstak- lega er bent á að stórt grunn- skólahúsnæði hafi verið tekið undir framhaldsskóla árið 1977. Enn sé þó langt í land að grunnskólinn hafi fengið sambærilegt húsnæði í staðinn, heldur sé aðstöðuleysinu mætt með stórskertri kennslu í ýmsum greinum. Þessi staðreynd hljóti að verða til þess að Vesturland fái mun ríflegri fjárveitingu til skóla- bygginga en clla, og er skorað á alþingismenn og fjárveitinganefnd að taka tillit til þessa við afgreiðslu næstu fjárlaga. - HEI fréttir ATVINNU- 06 ORYGGIS- MAUN (BRENNIDEPU — á 13. þingi Sjómannasambands íslands ■ - Aðalmál þessa þings voru at- vinnumál sjómanna og öryggismálin, en þessi mál hafa verið í brennidepli undanfarin ár, sagði Óskar Vigfússon, formaður Sjómannasambands Islands í samtaU við Tímann, en 13. þingi Sjó- mannasambandsins lauk nú um helgina. Óskar sagði að kjaramálin hefðu verið mest rædd á þinginu, en öryggismálin hefðu einnig mikið verið rædd. Þing Sjómannasambandsins sam- þykkti harðorða ályktun varðandi örygg- ismálin, þar sem lýst er yfir undrun á skilningsleysi stjórnvalda. - Við getum ekki verið annað en undrandi á því hvernig einum veiga- mestu hlekkjum í öryggismálum sjó- manna, Landhelgisgæslunni og Siglinga- málastofnun eru skammtaðir fjármunir. Þessar stofnanir eru í fjársvelti og þó að það sé erfitt að skipta réttlátlega á milli allra aðila, þá er það okkar skoðun að það eigi ekki að bitna á þessum mikilvægu stofnunum, sagði Óskar Vig- fússon. Alls áttu 64 fulltrúar rétt til setu á þingi Sjómannasambandsins, en 59 full- trúar mættu á þingið og sagði Óskar Vigfússon að allar umræður á þinginu hefðu verið mjög málefnalegar og þingið hefði heppnast mjög vel. -ESE ■ Steingrimur Hermannsson, sjávarútvegsráðherra ávarpar 13. þing Sjómannasambands íslands. Til hægri á myndinni eru fyrst Sigfinnur Karlsson frá Neskaupsstað sem var forseti þingsins að þessu sinni og Óskar Vigfússon, formaður Sjómannasambandsins. Við háborðið situr einnig Jón Kr. Olsen frá Keflavík, sem var ritari þingsins. Tímamynd G.E. Breytingar á viðskiptareglum Seðlabankans og innlánsstofnana „Yfirdráttur sé neydarúrræði’ ’ ■ „Yfirdráttur á viðskiptareikningum myndist aðeins í undantekingartilfellum og sé álitinn algert neyðarúrræði, enda getur peningakerfi þjóðarinnar ekki staðist það til lengdar, að innlansstofn- anir lendi í miklum og þrálátum lausa- skuldum við Seðlabankann,“ segir m.a. í fréft frá Seðlabanka íslands um nýjar reglur um viðskipti Seðlabankans og innlánsstofnana, sem taka gildi nú 1. nóvember. Eru reglur þessar settar til þess að veita aukið aðhald og hvetja innláns- stofnanir til þess að halda lausafjárstöðu sinni þolanlegri, og þurfi með því þegar til lengdar lætur minna á fyrirgreiðslu Seðlabankans að halda. ( fréttinni segir jafnframt: „Innláns- stofnunum sem eiga í erfiðleikum vegna lausafjárstöðu, sem þær geta ekki leyst með kvótavíxlum, verður geftnn kostur á að semja við Seðlabankann um bráðabirgðalán í stað yfirdráttar...“ Þá kemur fram að ákveðin hættumörk verða sett á yfirdrátt hverrar innláns- stofnunar, og úrbóta krafist ef farið er yfir mörkin. Refsivextir verða stighækk- andi, auk þess sem frekari viðurlögum verður beitt, ef þörf krefur. Mun Seðlabankinn jafnvel hætta fyrirgreiðslu ef til mikils og þráláts yfirdráttar kemur. -AB Arnarflug: Skipuleggur hópferðir til Kanaríeyja í vetur — í samvinnu við þrjár ferðaskrifstofur ■ Amarflug hefur nú í sam- vinnu við ferðaskrifstofurnar Atlantik, Ferðamiðstöðina og Sögu skipulagt hópferðir til Kan- aríeyja í vetur. Verður boðið uppá mislangar ferðir, 11 daga, 18 daga og 25 daga, og verður brottför alla þriðjudaga, en fyrsta Kanaríeyjaferðin verður farin 2. nóvember nk. Arnarflug býður nú upp á þau nýmæli í tengslum við þessar Kanaríeyjaferðir að þriggja daga dvöl í Amsterdam er inni í verðinu, sem að sögn þeirra Halldórs Sigurðssonar markaðsstjóra Arnarflugs og Stefáns Halldórssonar markaðsfulltrúa er mjög hagstætt, eða frá rúmum 11 þúsund krónum. Á Kanaríeyjum verður dvalist á hótelum, í íbúðum eða smáhýsum á Gran Canaría eyjunni. Verða þessar ferðir vikulega allt fram að páskum. Vetraráætlunin til Amsterdam vinsæl Amarflug flýgur nú í vetur til Amster- dam og þaðan til Keflavíkur alla þriðjudaga og föstudaga. Á frétta- mannafundinum sem Arnarflug hélt kom fram að fjöldi fólks hefur nú þegar notfært sér áætlunarflugið til stuttra Amsterdamferða í haust og hafa helgarf- erðirnar, frá föstudegi til þriðjudags reynst mjög vinsælar. Þá býður Arnarflug nú uppá sérstkt fargjald til Amsterdam fyrir fólk í viðskiptaerindum. í verði flugsins eru m.a. innifaldar tvær næturgistingar með morgunverði, auk þess sem farþegar geta hringt ú r flugvéllinni og sent skeyti sér að kostnaðarlausu. -AB Myndavíxl f Helgar-Tíma ■ Myndvíxl urðu á bls. 5 í síðasta Helgar-Tíma. Mynd af dr. Halldóri Guðjónssyni kennslustjóra Háskólans ' birtist með viðtali við dr. Halldór Inga Elíasson vararektor skólans, og mynd af vararcktor með viðtali við kennslustsjór- ann. Er beðist velvirðingar á þessum mis- tökum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.