Tíminn - 06.11.1982, Side 11
LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1982.
11
krossgáta
myndasöguri
/ 2 3 W [?"“
zíéisli
EilEISi
15
3953.
Lárétt
1) Innheimtumann. 6) Frostbit. 7) Sjó.
9) Tvíhljóði. 10) Bykkjur. 11) Hreyfing.
12) Eins bókstafir. 13) Ellegar. 15)
Kambar.
Lóðrétt
1) Þrif. 2) Eins. 3) Rannsakaði. 4)
Nafar. 5) Framleiðsluvörur. 8) Sturluð.
9) Tóm. 13) Tveir eins. 14) Nafnháttar-
merki.
Ráðning á gátu no. 3952.
Lárétt
1) Prammar. 6) Leó. 7) CI. 9) AT. 19)
Kjóanna. 11) Ak. 12) Ið. 13) Tin. 15)
Dauðrar.
Lóðrétt
1) Packard. 2) Al. 3) Meðalið. 4) Mó.
5) Ritaðir. 8) IJK. 9) Ani. 13) TU. 14)
Nr.
bridgei
■ Báðir norðurspilararnir bjuggust við
mikilli veislu í þessu spili frá leik
íslensku sveitarinnar við ítalska sveit á
Heimsmeistaramótinu í Biarritz.
Norður. S. D86 H. K10976 T. K82 L.K8 N/NS
Vestur. Austur.
S.A S.K53
H. ADG852 H.43
T. G973 T. AD1065
L. 74 Suður. S. G109742 H.- T. 4 L. DG10652 L.A93
í lokaða salnum byrjaði Jakob á að
passa í norður og austur opnaði á tígli.
Það er kannski réttast að þegja með
suðurspilin en Guðmundur sagði samt 1
spaða. Vestur doblaði til úttektar og
Jakob sagði 2 spaða. Austur passaði og
Guðmundur hækkaði í 3 spaða. Nú
sagði vestur 4 hjörtu sem Jakob var
fljótur að dobla. Með góðan 5-lit í
trompi, 2 kónga í viðbót og félaga sem
kom inná á hættunni var vandséð annað
en þetta spil færi a.m.k. 34 niður.
En nú fór samviskan að naga
Guðmund. Hann átti ekki einn einasta
varnarslag og hann þorði ekki að treysta
á að Jakob, sem var passaður, ætti 4
slagi, þó hann ætti 5-lit í hjarta.
Guðmundur var svo heppinn að rétt við
borðið var sjónvarpstæki sem sýndi
tímann sem eftir var, og hann gat horft
á það á meðan hann sagði 4 spaða,
annars væri hann líklega nú í sömu
sporum og Grettir forðum.
Vestur doblaði og spilaði út tígli og
blindur var svosem engin hughreysting.
Guðmundur endaði síðan 2 niður og
Ítalía fékk 500.
Við hitt borðið opnaði Hermann á 1
tígli og suður sagði 1 spaða. Nú stökk
Ólafur í 4 hjörtu og norður doblaði. Pá
gat suður ekki tekið út því hann hafði
enga tryggingu fyrir spaðasamlegunni.
Því miður fyrir norður var veislukost-
urinn hálf fátæklegur og einu slagimir
sem hann fékk voru 3 á hjarta. Hann
var svo yfirkominn eftir spilið að hann
breiddi úr spilunum sínum á borðið og
kallaði menn að borðinu tilað sýna þeim
þetta óréttlæti. En ísland fékk semsagt
590 við þetta borð og græddi því 3 impa
á spilinu.
meö morgunkaffinu
- Þetta er nú mesta snillibragðið okkar
til þessa.
- Það getur verið, að þið kallið það að
grunnurinn hafi skekkst. Við segjum að
það gefi húsinu líf.