Tíminn - 10.11.1982, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1982,
fréttir
BRADABIRGÐALOGIN LOGÐ
FRAM í ÞESSARI VIKU?
■ „Við erum ekki tilbúnir til þess að
sæta einhverjum afarkostum frá krötum.
Við erum búnir að bjóða upp á viðræður
um framgang mála, og erum sjálfir að
athuga hvenær við leggjum fram bráða-
birgðalögin og fleira, þannig að það er
furðulegt hjá Alþýðuflokknum að vera
að tala um skilyrði og úrslitakosti,“
sagði Steingrimur Hermannsson, sjávar-
útvegsráðherra í viðtali við Tímann,
þegar hann var spurður um fund
ráðherranefndar ríkisstjómarinnar í
gærmorgun, með Kjartani Jóhannssyni,
formanni Alþýðuflokksins, en Kjartan
■ Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri Tímans og Þorbjöm Guðmundsson, fulltrúi
ritstjóra Morgunblaðsins vora heiðraðir fyrir áratuga störf að blaðamennsku á
samkomu sem Blaðamannafélag íslands hélt s.l. laugardagskvöld í tilefni 85 ára
afmælis félagsins. Þórarinn, sem er handhafl blaðamannaskírteinis númer 1, hóf
störf á Tímanum vorið 1933 og á því 49 ára starf að blaðamennsku að baki. Þorbjörn,
handhafl blaðamannaskírteinis númer 2, hefur starfað í 40 ár að blaðamennsku.
Á myndinni má sjá hvar Ómar Valdimarsson, formaður Blaðamannafélags Islands,
sæmir Þórarin merki félagins. Mynd: Sveinn
Borgarrád verður við erindi
Bréfdúfufélagsins:
Bræðrapartur gerd-
ur að „dúfnahöll”
■ Bréfdúfufélaginu hafa verið heimil-
uð afnot af húsinu Bræðraparti við
Engjasel undir starfsemi sína. Akvörðun
um þetta var tekin á fundi borgarráðs í
gær, en húsið er eign borgarinnar.
Sem kunnugt er skemmdist húsið mikið
í eldsvoða fyrir skömmu. Hústryggingar
Reykjavíkur komust að þeirri niðurstöðu
að heppilegast væri að rífa húsið eftir
brunann og um tíma stóð til að gera það,
eða fá slökkviliðinu það til æfinga. Barst
þá umsókn frá Bréfdúfufélaginu um að
fá húsið undir dúfur og samþykkti
borgarráð á fundi sínum í gær að verða
við umsókninni.
„Petta mun vera félagsskapur, ég veit
■ „Okkur þótti rétt að biðja um
sérstök gögn eftir að okkur hafði borist
ábending frá ábyrgum aðila um hvað
þarna fór fram,“ sagði Hjalti Zophonías-
son, deildarstjóri í dómsmálaráðuneyt-
inu þegar Tíminn spurði hann hvað hefði
orðið til þess að lögreglan í Kópavogi
var beðin um að skUa sérstakri skýrslu
vegna umferðarslyssins sem varð á
Nýbýlavegi á föstudagskvöld, en sem
kunnugt er lést þá 15 ára gömul stúlka.
Hjalti sagði að sér hefði borist skýrsla
um málið síðdegis í gær og í fljótu bragði
virtist sér að allt hefði verið með felldu
hvað varðar eftirför lögreglunnar að
bílnum sem stúlkan var farþegi í.
Annars sagði Hjalti að hann væri ekki
almennilega búinn að fara yfir skýrsluna.
„Það er alrangt að lögreglan hafi farið
á eftir þessum bíl með sérstökum
látum," sagði Valdimar Jónsson, að-
stoðaryfirlögregluþjónn í Kópavogi við
Tímann í gær. „Hins vegar hefur Hjalti
með yfirlýsingum sínum í blöð kastað
upp bolta og því tel ég það í hans
verkahring að svara fyrir þetta mál,“
sagði Valdimar.
- Sjó.
kynnti ráðherranefndinni þar sam-
þykktir þings Alþýðuflokksins um skil-
yrði fyrir áframhaldandi viðræðum um
samvinnu um framgang þingmála.
„Við erum með þessa málaleitan
formanns Alþýðuflokksins í athugun, og
gerum ráð fyrir því að hitta hann aftur
á fundi eftir næstu helgi,“ sagði Stein-
grímur.
„Formaður Alþýðuflokksins greindi
ráðherranefndinni frá samþykktum
þings Alþýðuflokksins, varðandi áfram-
hald viðræðna, og við ntunum nú athuga
þessi skilyrði þeirra nánar,“ sagði Gunn-
ar Thoroddsen, forsætisráðherra, þegar
blaðamaður Tímans spurði hann frétta
af áðurnefndum fundi.
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum
Tímans þá nálgast það nú mjög að
ríkisstjórnin leggi fram bráðabirgðalög
sín á Alþingi, jafnvel í þessari viku, en
enn er óvíst með hvaða hætti þau verða
lögð fram. Herma þessar sömu heimild-
ir, að framlagning bráðabirgðalaganna
sé á engan hátt í tengslum við skilyrði
Alþýðuflokksins, enda hafa alþýðu-
flokksmenn ekki enn fengist til þess að
ræða bráðabirgðalögin efnislega.
- AB
ekki hversu fjölmennur, sem er eitthvað
í dúfnatalningu,“ sagði Gunnar Eydal,
skrifstofustjóri borgarstjórnar þegar
Tíminn spurði hann hvað Bréfdúfufélag-
ið væri.
- Veistu hvaða starfsemi félagið
verður með í húsinu?
„Þeir ætla sér að geyma dúfur í
húsinu, gera það að nokkurs konar
dúfnahöll. Hversu margar dúfur verða
þar veit ég ekki.“
- Gerir félagið endurbætur á húsinu
eftir brunann?
„Nei ekki veit ég til þess nema kannski
að eitthvað þurfi að gera til að uppfylla
kröfur dúfnanna," sagði Gunnar,- Sjó.
Lögreglan krafin skýrslu vegna
slyssins í Kópavogi:
i
,Fengum ábendingu
frá ábyrgum adila”
— segir Hjalti Zophoníasson,
deildarstjóri í dómsmálaráðu-
neytinu
Stúlkurnar unnu 3:0
■ Islenska karlasveitin reið ekki sér-
lega feitum hesti frá viðureign sinni við
veika sveit Grikkja. Helgi og Jóhann
gerðu jafntefli við andstæðinga sína á
fyrsta og þriðja borði. Ingi R. Jó-
hannsson tapaði á fjórða borði, en
þegar blaðið fór í prentun virtist
Margeir öruggur um sigur á öðru borði
og því líkur fyrir jafntefli úr keppni
þjóðanna.
Stúlkurnar héldu hins vegar merki
íslands hátt á lofti og unnu austurrísku
sveitina 3:0, en í umferðinni í fyrradag
gerðu þær jafntefli við sterka sveit
Englendinga. Sovésku stúlkurnar eru
efstar en íslenska sveitin er á að giska
í S.-& sæti en staðan er óljós vegna
fjölda biðskáka.
Ógleymanleg viðureign
Kortsnoj og Kasparov í gær: “ Gmj
KASPAROV SIGRAÐI
I BARATTUSKAKINNI
— þegar Rússar lögdu Svisslendinga 4-0
á ólympíumótinu í Luzern
Frá Illuga Jökulssyni í Luzern
Eftir öraggan sigur Svisslendinga
yfir Ástralíumönnum á mánudaginn
var komið að því sem margir höfðu
beðið eftir með eftirvæntingu, Sviss-
lendingar skyldu mæta Sovétmönnum,
eða með öðram orðum erkiféndurnir
Karpov og Kortsnoj skyldu mætast við
skákborðið eina ferðina enn. En þegar
skiltin með nöfnum skákmanna birtust
kom í Ijós að Karpov var ekki með, í
hans stað tefldi Kasparov á fyrsta
borði.
Kortsnoj hefur að undanförnu gert
mikið til að vekja athygli á málum
annars sovésks skákmeistara, Boris
Gulkos, sem er í hungurverkfalli í
heimalandi sínu meðan ólympíumótið
stendur yfir. Þegar skákin var að
hefjast var múgur og margmenni
kringum borð meistaranna og hópur
manna í bolum sem á var letrað
GULKO skyggði á merki FIDE, Gens
una sumus, Við erum ein þjóð.
nefndri skák. Gífurleg spenna ríkti
þegar á leið skákina enda var hún
óhemju flókin og enginn áhorfenda
treysti sér til að kveða upp úr með það
hvor stóð betur. Báðir keppendur
lentu í æðisgengnu tímahraki og virtist
það taka öllu meir á Kasparov sem var
orðinn mjög taugaóstyrkur og æddi
um gólfið þegar andstæðingur hans átti
leik. En allt um það, eftir 36. leik
svarts stöðvaði Kortsnoj klukkuna,
undirritaði pappírana og strunsaöi út
án þess að yrða á hinn unga keppinaut
sinn, sem var greinilega mjög ham-
ingjusamur eftir sigurinn en jafnframt
algerlega úttaugaður eftir þessa æðis-
gengnu baráttuskák. Það verður ó-
gleymanlegt öllum viðstöddum að hafa
orðið vitni að þessum skákviðburði en
hér kemur skákin.
Hvítt: Viktor Kortsnoj
Svart: Garry Kasparov
Ben Oni byrjun.
Kasparov mætti á undan og virtist hinn 1. d4 Rf6
rólegasti, en Kortsnoj lét bíða eftir 2. c4 g6
sér. Það var ekki fyrr en eftir að klukka 3. g3 Bg7
Kortsnojs hafði verið sett af stað, sem 4. Bg2 c5
hann tróð sér í gegnum mannþröngina 5. d5 d6
að þessu sinni ekki klæddur bolnum 6. Rc3 0-0
með nafni Gulkos eins og áður. Hann 7. Rf3 e6
lét eins og hann sæi ekki andstæðing 8. 0-0 exd5
sinn sem beið þess að Kortsnoj rétti 9. c\d5 a6
fram höndina eins og siður er. Korts- 10. a4 He8
noj sem virtist taugaóstyrkur lék fyrsta 11. Rd2 Rbd7
leiknum, meðan Kasparov starði á 12. h3 Hb8
hann og beið. Kortsnoj stóð síðan 13. Rc4 ReS
umsvifalaust upp og tók að fylgjast 14. Ra3 Rh5
með fyrstu Ieikjum á næstu borðum. 15. e4 Hf8
Þá gafst Kasparov upp á að bíða eftir 16. Kh2 f5
handtaki andstæðings síns og sneri sér 17. f4 b5
að skákinni. Þess má geta að Kortsnoj 18. axb5 axb5
hefur oftar en einu sinni farið miklum 19. Ra\b5 fxe4
viðurkenningarorðum um tafl- 20. Bxe4 ...
mennsku Kasparovs. Alburt lék hér 19. Re2. Kortsnoj,
Ég spurði Roshal, kunnan sovéskan
skákfréttamann og mikinn vin
Karpovs, hvers vegna heimsmeistarinn
mætti ekki til leiks, en hann svaraði
því til að Karpov hefði samþykkt að
tefla við Kortsnoj, ef hann ynni
áskorendaeinvígið en þess utan vildi
hann ekkert af honum vita.
í fyrstu féll skákin í sama farveg og
skák Alburts og Helga Ólafssonar á
Reykjavíkurmótinu fyrr á þessu ári.
Kortsnoj var einmitt staddur hér þá og
skýrði skákina sem mörgum mun vera
minnisstæð. Það var ekki fyrr en í 19.
leik sem Kortsnoj breytti út af áður-
vill endurbæta taflmennsku hans þrátt
fyrir að Alburt hafi sigrað Helga í
umræddri skák.
31. R\d7 Rd3
32. Bh6 Dxd7
33. Ha8+ Kf7
34. Hh8 Kf6
35. KI3 Dh3
36. Gefið.
„Nú held ég að ég hætti að yrkja,“
varð Bjarna Thorarensen að orði
þegar hann las Gunnarshólma Jónasar
forðum. Mönnum var eitthvað svipað
innan brjósts í skáksalnum sumum
hverjum eftir að púðurreyknum létti á
taflborði þeirra Kortsnojs og Kaspa-
rovs. Alla vega heyrðist Jón L.
Árnason segja að nú gæti hann hætt
að tefla skák, hann væri búinn að sjá
allt.
Rússar með 4 v. forskot
■ Skák Kortsnojs ogKasparovs stal
algerlega senunni í skákssalnum í
Luzern í gær, en fleiri skákir voru að
sjálfsögðu tefldar og ber hæst að
Sovétmenn unnu Svisslendinga á öllum
borðum, 4:0 og má nú telja útilokað
annað en að þeir verði yfirburðasigur-
vegarar á þessu móti, þeir eru búnir
að leggja alla að velli sem búist var við
•að myndu geta veitt þeim keppni.
Baljavskí vann Hug á öðru borði. Tal
vann Wirtensohn og Yusupov sigraði
andstæðing sinn á Ijórða borði (nafn
hans komst ekki til skila í gegnum
símann).
Mikilvægustu úrslit önnur urðu
þessi:
Bandaríkin-Júgóslavía 2:2
V-Þýskaland-Ungverjaland llh\Wi
Tékkóslavak.Rúmenía Ph:Vi(2 biðsk)
Arentína-Kanada 2Vi:Vi(í biðskák)
England-Holland 4:0
Óvæntustu úrslit umferðarinnar.
Hollendingar hafa ekki teflt af þeim
styrkleika sem búist hafði verið við.
19. ... Bd7 Þá telst til tíðinda að Portish vann
20. De2 Db6 Hubner.
21. Ra3 Hbe8 Sovétríkin hafa nú náð Ijögurra
22. Bd2 Dxb2 vinninga forskoti, hafa 30 vinninga.
23. fxeS Bxe5 Annars er röðin þessi:
24. Rc4 Rxg3
25. Hxf8+ Hxf8 Bandaríkin 26
26. Del Rxe4+ Júgóslavía 25
27. Kg2 Dc2 Ungverjaland 25(1 biðskák)
28. Rxe5 Hf2+ Tékkóslóvakía 24(1 biðskák)
29. Dxf2 Rxf2 Rúmenía 23(1 biðskák)
30. Ha2 Df5 JGK/IJ Luzern