Tíminn - 10.11.1982, Blaðsíða 7

Tíminn - 10.11.1982, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER1982. erlent yfirlit PAÐ ER viðurkennt af Reagan forseta sjálfum, að hann muni þurfa að leita meira samráðs við þingið en áður vegna úrslitanna í þingkosningunum síðast- liðinn þriðjudag. Forsetinn mun einkum hafa haft efnahagsmál í huga, þegar hann sagði þetta. Þetta gildir þó ekki síður um utan- ríkismálin en innanríkismálin. Samhliða kosningunum fóru fram atkvæða- greiðslur í allmörgum fylkjum og stór- borgum um afstöðu kjósenda varðandi bann á framleiðslu kjarnorkuvopna. Niðurstaða þeirra gengur mjög í berhögg við þær tillögur, sem forsetinn hefur lagt fram í viðræðum" risaveldanna um takmörkun kjarnavopna. Spurningin, sem atkvæðagreiðslurnar snerust um, var nokkuð mismunandi hvað orðalag snerti, en kjarninn var alls staðar hinn sami. Hann var á þá leið, hvort kjósendur vildu hvetja stjórnvöld til samninga um gagnkvæma stöðvun á framleiðslu kjarnavopna og tilrauna með þau. Niðurstaðan var sú, að um 60% þeirra, sem þátt tóku í atkvæða- greiðslunni, svöruðu þessu játandi. Atkvæðagreiðsurnar náði til fylkja og borga, þar sem um fjórðungur banda- rískra kjósenda á kosningarétt. UMRÆDDAR atkvæðagreiðslur fóru fram í eftirgreindum fylkjum: Massa- ■ Edward Kennedy er í fylkingarbrjósti þeirra, sem vilja semja um stöðvun á framleiðslu kjarnavopna sem fyrsta áfanga afvopnunar. Verður f ram- leiðsla kjarna- vopna stöðvuð? Eindregin afstaða bandarískra kjósenda ■ Weinberger dugði ekki að vitna i Brésnjef. chusetts, Michigan, Montana, New Jers- ey, Norður-Dakota, Oregon, Rhode Island, Kaliforníu og Arkansas. { öllum þessum fylkjum svaraði mikill meirihluti kjósenda jákvætt, nema í Kaliforníu og Arkansas. í Kaliforníu svaraði naumur meirihluti jákvætt, en í Arkansas urðu þeir, sem svöruðu nei- kvætt, í meirihluta. Pá fóru atkvæðagreiðslur einnig fram í nokkrum stórborgum, eins og Chicago, Washington, Philadelphia, Denver, New Haven, og í nokkrum minni borgum og héruðum. Úrslitin urðu alls staðar þau á þessum stöðum, að meiri- hlutinn svaraði jákvætt. Af hálfu forsetans og fylgismanna hans var reynt að vinna gegn því, að spurningunni væri svarað jákvætt. Pví var ekki sízt haldið fram, að hún veikti þær tillögur, sem Bandaríkin höfðu lagt fram. í viðræðum við Rússa, en þær fela í sér, að báðir aðilar takmarki fjölda eldflauga og kjarnaodda. Fáum dögum áður en atkvæða- greiðslurnar fóru fram, notaði Weinber- ger varnarmálaráðherra sem tilefni ræðu, sem Brésnjef hafði flutt, þar sem hann átaldi Bandaríkin fyrir vígbúnaðar- áætlanir. Weinberger sagði, að þeir, sem svöruðu spurningunni jákvætt, væru að taka undir með Brésnjef og veikja samningsstöðu Bandaríkjanna. Meirihluti kjósenda lét sér þetta ekki nægja. Margir þeirra telja tillögur Reag- ans vera þannig, að útilokað sé að Rússar geti fallizt á þær, og þeir munu því aðeins leiða til langvinns samninga- þófs, en á meðan haldi vígbúnaðar- kapphlaupið áfram. Þess vegna verða viðræðurnar að snúast í upphafi um stöðvun á fram- leiðslu kjamavopna og tilrauna með þau. í framhaldi af því eigi svo að hefjast viðræður um takmörkun þeirra kjarna- vopna, sem nú eru fyrir hendi. Margir þeirra þingmanna, sem náðu kosningu í fyrsta sinn, lýstu sig því fylgjandi, að viðræður risaveldanna hæfust á því, að rætt yrði um stöðvun á framleiðslu kjarnavopna og tilrauna með þau. í vetur munaði litlu, að slík tillaga yrði samþykkt í fulltrúadeild Bandaríkja- þings. Verulegar líkur þykja nú til þess, að meirihluti hinnar nýkjörnu fulltrúa- deildar verði slíku banni fylgjandi. SENNILEGA hefur það haft meiri áhrif á afstöðu kjósenda í umræddum atkvæðagreiðslum en tilvitnun Weinber- gers í Brésnjefs, að sérstök biskupa- nefnd, sem starfar á vegum kaþólsku kirkjunnar í Bandaríkjunum, birti nokkrum dögum áður bréf eða boðskap, sem fjallaði um kjarnorkuvígbúnaðinn. í bréfinu lýsa biskupamir sig eindregið fylgjandi því, að samið verði um gagnkvæma stöðvun á framleiðslu kjama- vopna og tilrauna á þeim. Þeir lýsa sig einnig fylgjandi þeirri hugmynd, að Bandaríkin og bandalagsríki þeirra lýsi yfir því, að þau muni ekki nota kjarnavopn að fyrra bragði. Bréf biskupanna og atkvæða- greiðslurnar um kjarnavopnin virðast augljós merki þess, að friðarbaráttan sé að færast í vöxt í Bandartkjunum ekki síður en í Vestur-Evrópu. Þeim fjölgar í Bandaríkjunum, sem líta þannig á, að Reagan og félögum hans sé ekki næg alvara í viðræðunum við Sovétríkin. Þeir hafi lagt fram málamyndartillögur, sem séu svo hag- stæðar Bandaríkjunum, að Rússar telji sig með góðu móti geta hafnað þeim. Þess vegna sé nauðsynlegt að breyta um vinnuaðferðir og iáta Rússa horfast í augu við raunhæfar tillögur, eins og gagnkvæma stöðvun á framleiðslu kjarnavopna og tilrauna með þau, ásamt tilheyrandi eftirliti. Rússar taki nú slíkum tillögum líklega og þess vegna beri að ganga úr skugga um, hvort þeim sé alvara. Að öðrum kosti vinna þeir áróðursstríðið og víg- búnaðarkapphlaupið heldur áfram. Fleiri og fleiri óttast og það ekki að ástæðulausu, að slíkt muni leiða til tortímingar. Þórarinn Þórarinsson, P ritstjóri, skrifar Afganistan: Yf ir þúsund manns fórust ■ Vestrænir fréttamenn í Pakistan segja að yfir 1000 manns hafi látið lífið í Afganistan þegar sovéskur herflutningavagn lenti í árekstri við eldsneytisvagn í jarðgöngum í fjall- garði norðan við Kabúl. Gífurleg sprenging varð við áreksturinn sam- kvæmt þessum heimildum og þeir sem létust, sovéskir hermenn og óbreyttir afganskir borgarar köfn- uðu. Heimildirnar herma að allt að sjö hundruð hermenn hafi týnt lífi en tala óbreyttra afganskra borgara er nokkuð á reiki nefndar eru tölur allt frá 400-1200 manns. Eru þessar tölur hafðar eftir afgönskum skæruliðum. Sovéskir fjölmiðlar hafa ekki minnst einu orði á þennan atburð. Talið er að þetta slys hafi orðið fyrir u.þ.b. viku síðan. Þeir sem létust voru samkvæmt frásögn skæruliðanna lok- aðir inni í göngunum og köfnuðu af reyk eða brunnu inni eftir sprenging- Pólland: Loford og hót- anir stjórnvalda ■ í dag eru boðaðar aðgerðir í Póllandi til stuðnings hinum bönn- uðu verkalýðssamtökum, Samstöðu. Leiðtogar Samstöðu hafa hvatt fólk til að gera 8 klukkustunda verkfall í dag og að taka þátt í mótmælaað- gerðum að því loknu. Stjórnvöld í Póllandi hafa lýst því yfir að þau muni beita öllum hugsan- legum ráðum til að koma í veg fyrir mótmælaaðgerðirnar. Ekki er vitað til hvaða ráð þau hyggjast grípa en að undanförnu hafa þau reynt að kaupa velvilja eða hlutleysi almenn- ings með ýmsum Ioforðum, t.d. hafa verkamenn í Gdansk fengið launa- hækkun nýverið. Ef fortölur hafa ekki dugað hafa yfirvöld beitt hótunum og mörgum hefur verið vikið úr störfum sínum, ef yfirvöld hafa talið þá sér óholla. Þá hefur stjórnin í Varsjá reynt að nota fyrirhugaða heimsókn Jóhann- esar Páls páfa 6. á sumri komanda. Segja þau að ekki geti orðið af heimsókninni, ef ekki ríki friður og atvinna í landinu. Begin lýsir sig saklausan ■ Menachem Begin hefur borið fyrir rétti að • hann hafi frétt af fjöldamorðunum í Beirút eftir að þau voru afstaðin, nánar tiltekið í fréttatíma BBC útvarpsins. Einn af hershöfðingjum ísraels- hers, Rafael Eitan, hefur borið fyrir sama rétti að hann hafi varað forsætisráðherrann við því að falang- istar hygðust efna til blóðbaðs í flóttamannabúðum Palestínumanna í Beirút, og er viðvörun hershöfð- ingjans staðfest í fundargerð ríkis- stjórnar Israelsmanna sama dag og fjöldamorðin hófust. Fleiri hershöfð- ingjar úr ísraelsher hafa skýrt frá því að þeir hafi kviðið því að fjöldamorð væru í uppsiglingu þegar falangistar fóru inn í búðirnar. Begin sagði þegar dómarinn las fundargerðina frá ríkisstjórnarfund- inum að hann hefði haft svo mörgum hnöppum að hneppa meðan á fundinum stóð að hann hefði ekki tekið eftir viðvörunum hershöfðingja síns. Þess má geta að það hefur komið fram að íseraelskir skrið- drekahermenn hafi gert viðvart um fjöldamorðin þegar á fyrsta degi og stangast það á við framburð for- sætisráðherrans. ■ Begin tók ekki cftir aðvðrunum hershöfðingja síns.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.