Tíminn - 10.11.1982, Blaðsíða 6

Tíminn - 10.11.1982, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1982. Athugasemd vegna umdeildu skreiðarpressunnar: „SKEMMA EKKIEF ÞÆR ERU RÉTT NOTAÐAR” ■ Að gefnu tilefni vill TRAUST h.f. taka fram að nú eru í notkun 33 skreiðarpressur frá fyrirtækinu hériendis, í Nor- egi, Svíþjóð og Alaska. Press- urnar hafa verið notaðar nú í nær 3 ár tii að pressa skreið og hausa jöfnum höndum. Pressurnar þjóna sínu hlutverki og skemma ekki skreiðina ef þær eru rétt notaðar. Hægt er að pressa skreiðina mismikið og auðvelt er að setja skreiðina í mismunandi stóra poka að vild hvers fram- leiðanda Til þess að skreiðarpressan skemmi ekki skreiðina þarf að sjálfsögðu að hafa réttar stillingar á útmötunartjakk og pressutjakk. Nota þarf rétta stærð af stút miðað við þau kíló af skreið sem pakka á. Bent skal á að fleiri fyrirtæki hérlendis hafa notað sér einkaleyfisverndaða hug- mynd TRAUST h.f. varðandi skreiðar- pressur og þær eftirlíkingar gefa ekki möguleika á að setja skreiðina í misstóra poka og eru ekki eins sjálfvirkar. Auk þess skal bent á að skreið á Ítalíumarkað hefur verið pökkuð í pressum frá TRAUST h.f. frá því þær komu á markað fyrir nær 3 árum án þess kvartanir kæmu fram. ■ Leikendur og aðstoðarfólk við sýningu Leikfélags Selfoss á Dagbók Önnu Frank. Hvert sæti skipað á frumsýningu ÁRNESSÝSLA: Hvert sæti var skipað í Selfossbíói á frumsýningu leikfélags Selfoss á sjónleiknum „Dagbók Önnu Frank“ s.l. sunnu- dagskvöld og var leikstjóra og leik- endum lengi og innilega fagnað í leikslok. Sérstaka athygli vakti frammistaða Guðrúnar Kristmannsdóttur, en hún fer með hlutverk Önnu Frank. Guðrún er aðeins 14 ára, nýliði á leiksviði, en tókst á eftirminnilegan hátt að túlka örlög þessarar ungu gyðingastúlku, sem ásamt foreldrum sínum, systur og fleira fólki varð að leynast í lélegri og þröngri íbúð á háalofti yfir vöruhúsi einu í Amster- dam í meira en tvö ár meðan heimsstyrjöldin geisaði og Holland var hernumið af nasistum. í heild var sýningin áhrifamikil og túlkun leikendanna á þessu sérstæða verki eftirminnilcg. Foreldra Önnu Frank leika þau Sigurður Hilmar Friðþjófsson og Sigríður Karlsdóttir. Þau eru bæði kunn á sviðinu af fyrri sýningum Leikfélags Selfoss og skiluðu vel sínum hlutverkum. Sama er að segja um flesta aðra leikara. Þeir eru: Þuríður Helgadóttir, Gunn- ar Kristjánsson, Björn Mýrdal, Hall- dór Páll Halldórsson, Rúnar Lund, Pétur Pétursson, Kristín Steinþórs- dóttir. Frumsýningin bar með sér að leikstjórinn Stefán Baldursson hefur lagt mikla alúð í þetta verk, eftir þeim undirtektum sem frumsýningin hlaut hjá áhorfendum verður ekki annað sagt en að vel hafi til tekist. Það er lofsvert framtak hjá Leikfélagi Selfoss að gefa fólki kost á að sjá þetta eftirminnilega leikhúsverk, samsögulegan örlagaþátt örfárra af öllum þeim fjölda fólks sem var ofurseldur ógnum heimsstyrjaldar- innar síðari - nú á síðustu og verstu tímum þegar oss er tjáð að eyðing- armáttur kjarnorkuveldanna hafi milljónfaldast frá þvi helsprengjun- um var varpað á Hirosíma og Nagasaki árið 1945. Næstu sýningar verða sem hér segir: f Félagsheimili Kópavogs mán- udagskvöld 8. nóvember kl. 20.30, að Flúðum föstudagskvöldið 12. nóvember. Báðar síðast nefndu sýn- ingarnar hefjast kl. 21.00. -Stjas. 102 vidur- kenndir öruggir ökumenn ÁRNESSÝSLA: Alls hlutu 102 ökumenn viðurkenningu fyrir örugg- an akstur og tjónalausa tryggingu í 5 - 10 - 20 - 30 ár á umferðamálafundi á vegum Klúbbsins „Öruggur akstur“ í Árnessýslu, sem haldinn var á Selfossi s.l. fimmtudagskvöld. Sem kunnugt er fá þeir þá 11., 21. og 31. tryggingaárið frítt. Fundinn sóttu 80 ökumenn og stóðu umræður framyfir miðnætti. Fram kom að sífellt sígur á ógæfu- hliðina varðandi umferðarslysin. Ölvun við akstur virðist fara vaxandi og búfé á fjölförnum ökuleiðum er uggvænleg hætta í umferðinni. Fundurinn varaði við miklum öku- hraða í gegnum Selfoss og skoraði á lögregluyfirvöld að taka þar í taum- ana hið fyrsta. Skorað var á ráðamenn vegamála að sinna betur merkingu malarvega í dreifbýli en gert hefur verið til þessa. Formaður klúbbsins er Sigurð- ur Ingimundarson. -Stjas. ekki lengur vísað til fornra afreka“, segir m.a. í frétt frá formanni Hvatar félags sjálfstæðiskvenna - Bessí Jóhannsdóttur - í tilefni þess að félagið hefur gefið út afmælisrit vegna 45 ára afmælis Hvatar. Bókin „Frjáls hugsun - frelsi þjóðar" skiptist í tvo meginkafla: „í félags- og stjórnmálastarfi" og „Menntun og vinnumarkaður". Níu konur rita efni bókarinnar. - HEI „Hlutur kvenna í stjórnmálum of lítiii” Reykjavík: „Hlutur kvenna í stjórn- málum á íslandi er of lítill. T.d. má benda á að í þingflokki sjálfstæðis- manna er aðeins ein kona. Megin áhersla í starfi félagsins er nú að hlutur kvenna verði bættur í raun, en Sambýli þroskaheftra fyrirhugað að Löngumýri Norðurland: Félagið Þroskahjálp á Norðurlandi vestra, sem stofnað var í septemberbyrjun s.l., hefur þegar haldið nokkra stjórnarfundi og stefn- ir nú að því að koma á fót tilraunasambýli þroskaheftra að Löngumýri í Skagafirði síðla vetrar. Tilgangur félagsins er - eins og segir í lögum þess - að berjast fyrir réttindum og vinna að málefnum þroskaheftra og tryggja þeim fulla jafnréttisstöðu á við aðra þjóðfélags- þegna. Allir þeir sem áhuga hafa á málefnum þroskaheftra geta orðið félagar í Þroskahjálp. Þroskahjálp á Norðurlandi vestra skiptist í 4 deildir, sem hver hefur sinn fulltrúa í stjórn þess: Siglufjarð- ardeild, Halldóra Ragnarsdóttir, Skagafjarðardeild, Eymundur Þórar- insson í Saurbæ, A-Húnavatnsdeild, Sigríður Höskuldsdóttir á Kagaðar- hóli og V-Húnavatnsdeild og Bæjar- hreppur, Kristján ísfeld á Syðra Jaðri. Formaður Þroskahjálpar á Norðurlandi vestraerJónDýrfjörð. - HEI ■ Sendinefndin frá Fleetwood. Lengst til vinstri er Neal Williams, fulltrúi heraosstjomar Lancashire, en Helgi H. Zoega er þriðji frá vinstri við borðið. Aðal talsmaður sendinefndarinnar, Owen Oyston er hins vegar annar frá hægri á myndinni, en ailir sendinefndarmennimir eru fulltrúar fyrirtækisins Enterprises Ltd. sem héraðsstjómvöld í Lancashire settu á laggimar tU að rétta við efnahagslífið í héraðinu og þá sérstaklega í Fleetwood. Tímamynd G.E. Sendinefnd frá Fleetwood í vidræðum vid íslenska útgerdarmenn: Bjóða ákveðið lágmarksverð — ef íslensk skip selja afla í Fleetwood ■ Undanfarna daga hefur átta manna sendinefnd frá útgerðarbænum Fleet- wood í Englandi og Lancashire-héraði verið hérlendis og átt viðræður við íslenska útgerðaraðila og stjómvöld, um möguleika á fiskkaupum frá íslandi. Hafa sendinefndarmenn sem flestir eru fulltrúar fiskkaupenda í Fleetwood boðið samninga um að íslenskum skipum yrði tryggt ákveðið lágmarks- verð og lækkun löndunarkostnaðar, gegn því að þau lönduðu reglulega í Fleetwood. Það sem af er þessu ári hefur höfnin í Fleetwood verið lokuð öðrum fleyjum en smábátum og starfa þetta af því að öll togarafyrirtæki bæjarins hættu rekstri fyrir u.þ.b. níu mánuðum síðan. Að sögn Helga H. Zoega, sem búsettur er í Fleetwood og var í sendinefnd fisk- kaupendanna, þá hefur héraðsstjórn Lancashire nú mikinn áhuga á að hefja Fleetwood-höfn til fyrri vegs og virðing- ar og verður höfnin opnuð aftur innan fárra daga. En ekki dugir að hafa höfnina opna ef enginn hefur áhuga á að selja afla í Fleetwood og því leituðu fiskkaupendurnir samninga við íslend- inga. - Hafnargjöld og löndunarkostnaður í Fleetwood verður nú hinn lægsti á Bretlandseyjum, sagði Helgi H. Zoega í samtali við Tímann og bætti því við að Fleetwood yrði jafnframt fyrsta höfnin í Bretlandi sem byði lágmarksverð, sem væri ótvíræður kostur fyrir fiskseljendur. Helgi sagði að sendinefndinni hefði alls staðar verið vel tekið hérlendis og m.a. hefðu þeir rætt við fulltrúa LÍÚ, fulltrúa viðskiptaráðuneytisins og ein- staka útgerðarmenn á Suðurnesjum og í Reykjavík. Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ sagði í samtali við Tímann að það væri rétt að sendinefndin hefði boðist til að tryggja íslenskum aðilum ákveðið lág- marksverð og lágmarkskostnað, ef þeim yrði tryggt ákveðið hráefnismagn. Sagði Kristján það út af fyrir sig jákvætt og LÍÚ myndi að sjálfsögðu koma þessum upplýsingum á framfæri við sína félags- menn. Á hitt bæri einnig að líta og það hefði verið rækilega undirstrikað í viðræðunum við sendinefndina, að LÍÚ væru frjáls félagasamtök og þau réðu engu um hvar útgerðarmenn seldu afla sinn. Kristján sagði að hann hefði heyrt að sendinefndin hefði rætt við einstaka útgerðaraðila, en taldi að árangur af þeim viðræðum hefði ekki verið mikill. -ESE YFIRTEKUR LANDS- VIRKIUN KRÖFUI? ■ „Að því hlýtur að koma fyrr eða síðar, að samið verði um það við Landsvirkjun að hún yfirtaki einnig þessa virkjun", sagði Hjörleifur Gutt- ormsson, iðnaðarráðherra m.a. á fundi Sambands ísl. rafveitna í gær. Stöðu gufuöflunar til Kröfluvirkjunar kvað hann þá að nú í lok borana ársins - þrjár holur sem skila um 15 MW - sé talin næg gufa til að fullnýta þá vélasamstæðu sem tengd er. Búast megi við að aflgeta virkjunarinnar geti numið 20-22 MW fyrir árslok 1982 og þá sé miðað við að hola 21, verði ekki tengd í ár. Sú hola gefi gufuafl sem samsvari 8 MW frá vél. -HEI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.