Tíminn - 10.11.1982, Blaðsíða 10

Tíminn - 10.11.1982, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1982. 10 heimilistiminn umsjón: B.St. og K.L. TIMI KOMINN TIL AÐ HUGA AÐ JÖLAPÚSTINUM T1L UTIANDA JOLAPOSTURINN TIL ÚTMUUUL ’J 'JfZ »H >• ■ Á öllum póststöðvum eru til sölu þessar sérhönnuðu umbúðir fyrir póstsendingar. Það er mjög mikilvægt, að búið sé um póstsendingar skv. reglum. Annars fást engar bætur, ef eitthvað kemur fyrir. UMBUÐIR FYRIR PÓSTSENDINGAR ■ „Bráðum koma blessuð jólin“ eru upphafsorð smápésa frá Póst- og síma- málastofnuninni, sem borinn er inn á hvert heimili snemma í nóvember til að minna fólk á að hafa vaðið fyrir neðan sig í sambandi við sendingu jólapósts til útlanda. Þessi árvissa ábending er ein fyrsta vísbendingin um, að jólin séu í nánd. Á bakhlið pésans eru tilgreindar þær dagsetningar, sem öruggara er fyrir fólk að miða við, vilji það vera þess fullvisst, að pósturinn komist í áfangastað í tæka tíð. Þar eð það má búast við, að drjúgan tfma taki að koma bögglum áleiðis í sjópósti, er fólki ráðið til að skila bögglum í póst með nægum fyrirvara. Má þar nefna t.d., að póstur, sem á að fara til vesturfylkja Bandaríkjanna og Kanada hefði átt að vera kominn í póst eigi síðar en 28. okt. sl., til austurríkja Bandaríkjanna 4. nóv., en enn er tæki- færi til að senda póst til Evrópu og Norð- urlandanna. Lengri skilafrestur er á flugpósti, en þar sem hann er talsvert dýrari, kjósa margir sjópóst frekar. En íslendingar eru þekktari að öðru en að standa skil á pósti með góðum fyrirvara og því lék okkur forvitni á að vita, hvort menn hefðu rokið upp til handa og fóta og væru þegar búnir að senda frá sér jólapóstinn til fjarlægra heimshorna. „Ágætt að ýta við fólki“ Haukur Gunnarsson verslunarstjóri Rammagerðarinnar tjáði okkur, að að- eins hefði komið hreyfing á um mánaða- mótin, en reynslan væri sú, að það væri ekki fyrr en upp úr miðjum nóvember, sem fólk tæki virkilega við sér. En fólk er þegar farið að kynna sér, hvaða vörur eru á boðstólum og velta því fyrir sér, hvað til greina komi að senda vinum og vandamönnum á erlendri grund. „Og það er ágætt að ýta aðeins við fólki,“ sagði Haukur. Spurningunni um það, hvað fólk sendi helst héðan til útlanda, svaraði Haukur á þá leið, að værðarvoðir héldu alltaf vinsældum sínum. Gæruskinn eru líka vinsæl. Þá má nefna keramik, t.d. hraunkeramik frá Gliti. Haukur sagði, að fólk hefði verið hrætt við að senda hana, þar sem hún er mjög brothætt, en Rammagerðin hefur margra ára reynslu í að pakka inn keramikmunum til sendingar og ábyrgist að þeir komist heilir í höfn. Þá má nefna ullarvörur margs konar, s.s. húfur, trefla og peysur. Þó sagði Haukur ekki þar aðallega um iopapeysur að ræða, þar sem íslendingar virtust „prjóna hver á annan", eins og hann orðaði það. Þá nefndi hann handofin hálsbindi frá vefstofu Guðrúnar Vigfúsdóttur á ísa- firði. Hann vildi leggja áherslu á, að úrvalið í þessum varningi sé orðið mjög gott. Rammagerðin skilar daglega af sér í pósthús þeim sendingum, sem fyrir liggja og eiga síðan eftir að fara til allra heimshorna. „Kanada eina landið sem við ábyrgjumst ekki að varan komist til“ Hilmar Svavarsson verslunarstjóri hjá Kjötverslun Tómasar tjáði okkur, að fólk væri lítið farið að senda matvæli til útlanda í tilefni jólanna. Svo virðist, sem fólk kippi við sér um miðjan nóvember í þeim efnum. En algengan jólamat, s.s. hangikjöt, harðfisk og reyktan lax sagði Hilmar óhætt að senda með góðum fyrirvara. „Það er aðeins eitt land, sem við höfum ekki tekið ábyrgð á að pakkarnir komist til skila. Það er Kanada. Þeir eru strangir með kjöt- rneti," sagði Hilmar. Heilbrigðisvottorð fylgja öllum mat- vælasendingum frá Kjötverslun Tómasar til útlanda og sagði Hilmar verslunina útvega þau. Viðskiptavinirnir þurfa ekki að gera annað en að ganga inn í verslunina, velja þær vörutegundir, sem þeir óska eftir að fari í pakkann, og leggja fram nafn og heimilisfang viðtak- anda. Og svo náttúrlega greiða fyrir þjónustuna. „Réttur frágangur á bögglapósti mikilvægur“ „Það er mikilvægt, að rétt sé búið um póstsendingar og rétt burðargjald greitt, annars fæst ekkert bætt, ef eitthvað skemmist,“ segir Rósa Oddsdóttir full- trúi hjá Pósti og síma. Hún benti á, að ef sendingar eru brothættar, verði ekki eingöngu að sjá til þess, að þeim sé pakkað vel inn, heldur þurfi einnig að gæta þess, að þær séu fluttar „laust“, þ.e. séu ekki sendar í póstpokum, sem oft verði fyrir óhæfilega miklu hnjaski og gjarna sé hvolft úr. Þessi sendingar- máti krefst aukins burðargjalds, en sé rétt búið um pakkann og komi eitthvað fyrir, tryggir hann bætur að vissu marki, sem ákveðið er skv. burðargjaldskránni, eða skv. verðmæti þess, sem í pakkanum er, ef upphæð er lægri. í títtnefndum pésa Póst- og símamál- astjórnarinnar er einmitt vakin athygli á sérhönnuðum umbúðum fyrir póstsend- ingar. Pappakassar í þrem stærðum fást á öllum póststöðvum og hafa gert undanfarin ár. Rósa sagði okkur, að þessar umbúðir hefðu líkað afskaplega vel og sé notkun þeirra alltaf að aukast. Sem dæmi nefndi hún, að fyrirtæki notuðu þær í sívaxandi mæli. Aðspurð um það, hvort þegar hefði orðið vart við aukningu á pósti vegna jólanna, svaraði Rósa, að það væri síður en svo enn sem komið er, enda góður tími til stefnu. ' V s c- V 0 0 • • 0 0 • 0 0 0 0 z / V V \ \ • 0 0 0 0 0 • • 0 0 • 0 0 0 • 0 0 0 0 0 0 • • 0 t s X X X • 0 0 0 0 0 0 • • 9 X X • 0 0 0 0 0 0 • 0 0 X X • 0 X •' X x 0 X X X X X x > * i' .. # + .■ i X X X X X í t .* t t h X X K X X > .. .• • • X tð X X .* .* .* • • .* .* • • X X X X .* ,j .* • • X X ð X 5< • • • • 2j X í X • • 0 • • x X X X w X X X X • 0 0 • • • • 0 • X X X X X X. • • 0 0 • 0 • 0 • 0 X X X X X • • • 0 0 • • • • 0 • 0 • x X X X x' X X • • • • 0 0 • • 0 • • 0 • 0 • 0 X X X X X X X • • • • 0 0 • 0 • • 0 • 0 • 0 X X X X1 • • • • • 0 0 • 0 • 0 • 0 0 • 0 0 x X X X X p X, X • • • • • 10 0 • 0 • • 0 • 1 • 0 0 0 X X X X X • • • • 0 0 • 0 0 • • 0 • • 0 0 X X X X X X y X • • • 0 0 0 0 • • 0 • 0 0 X X X X X X X • • • • 0 0 0 0 • 0 • • 0 0 X X X X X X • • • 0 0 9 0 • • 0 • • 0 0 X X X X X X X • • • 0 0 0 0 • • 0 0 0 X X] X X X X • • • 0 0 0 0 • 0 0 • 0 0 X X X X X X |X & • • • 0 0 0 • 0 • 0 X X X rx X X x • • 0 0 0 0 • 0 0 • X X X ;* X X X X X X 9 0 0 0 0 0 • • 0 0 K X x^ X X 0 0 0 0 0 • • 0 0 ■ Einn jólasveinn er í hverri munnþurrku D M C GARN (725 gult - 1 þráður 1972 gult - 1 þráður * 906 grænt * 666 rautt •• 353 bleikt 0 798 blátt * 435 brúnt ■ Úr hvítum java má búa til fallegar borðservíettur og munnþurrkur, auð- vitað má hafa efnið í öðrum lit, en við rauða jólasveinana og græn tré með gulri stjörnu í toppinn fer best hvíti liturinn í grunninn. Garnið er áætlað DMC-garn í eftirfarandi litum: ■ Jólalegar borðservíettur með jólasveinum og grenitrjám Borðser- víettur með jóla- sveinum og litlar þurrkur f stfl við ■ Munstur í borðservíettuna

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.