Tíminn - 10.11.1982, Blaðsíða 20
Opið virka daga
9-19.
Laugardaga 10-16
HEDDk
Skemmuvegi 20 Kopavogi
Simar (91)7-75 51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikiö úrval
Sendum um land allt
Ábyrgö á öHu
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
Gagnkvæmt
tryggingaféJag
^^Mabriel <Ó
HÖGGDEYFAR Tj
Givarahlutir ÍSl'&S
MIÐVIKUDAGUR
10. NÓVEMBER 1982.
■ Rannveig Vigfúsdóttir í íbúð sinni á hjúkrunardeild DAS í Hafnarfirði. Á innfelldu
myndinni afhenda synir Rannveigar, Vigfús og Einar Sigurjónssynir, Pétri
Sigurðssyni forstjóra DAS málverk af Sigurjóni Einarssyni. Einnig er á myndinni
Brynhildur Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur. Tímamynd GE.
„HANN HELGAM UF SITT
HAGSMUNAMAUIM SJdMANNA”
— segir Rannveig Vigfúsdóttir, fyrsti vistmaðurinn á hjúkrun-
ardeild DAS f Hafnarfirði, um mann sinn Sigurjón Einarsson
■ „Mér líst Ijómandi vel á mig hérna.
Húsakynnin eru lýsandi dæmi um þann
stórhug sem alltaf hefur verið ríkjandi
hjá DAS,“ sagði Rannveig Vigfúsdóttir,
fyrsti vistmaðurinn á sjúkradeild Dvalar-
heimilis aldraðra sjómanna í Hafnar-
firði, sem formlega var tekin i notkun í
gær. Rannveig er vel kunnug málum
Dvalarheimilis aldraðra sjónianna. Hún
var fyrsta húsfreyja á llrafnistu í
Reykjavík og maður hcnnar, Sigurjón
Einarsson skipstjóri, sem látinn er fyrir
nokkrum árum, var þar fyrsti for-
stjórinn, frá 1957 til 1965.
„Áður en Hrafnista í Reykjavík var
opnuð," sagði Rannveig, „fórunr við
hjónin og skoðuðum dvalarheimili fyrir
aldraða í þremur löndum, Danmörku,
Þýskalandi og Noregi og þá sáum við svo
ekki varð um villst að Hrafnista var í
flestu tilliti bctra dvalarheimili en þá
voru í þessum löndum. Ég held að enn
sé það sama uppi á teningnum; við
Islendingar erum skrefi á undan ná-
grannaþjóðunum í þessum efnum,“
sagði Rannveig.
„Fórum með potta og
pönnur“
„Þegar maðurinn minn tók við Hrafn-
istu fyrir cinunt tuttugu og fimm árum
vantaði margt þrátt fyrir glæsileg húsa-
kynni á þeirra tíma mælikvarða. Til
dæmis man ég eftir því að við tókum
með okkur potta og pönnur og ýmislegt
annað þegar við fluttum þangað. Það var
farið af stað af stórhug og bjartsýni þótt
ekki væri til mikið af peningum,“ sagði
Rannveig.
- Þið hjónin unnuð bæði mikið að
hagsmunamálum sjómanna?
„Við gerðum það bæði og þó aðallega
hann. Það var til dæmis fyrir tilverknað
Sigurjóns og Henrýs Hálfdánarsonar,
loftskeytamanns, að fyrsti sjómannadag-
urinn var haldinn í júní 1938. Þeir ræddu
það einhvern tíma sín á milli í talstöð
úti á sjó, að sjómenn þyrftu að eiga
almennan frídag eins og aðrar stéttir.
Síðan hittust þeir félagar í landi og varð
úr að ákveðið var að kanna undirtektir
sjómanna almennt. Þegar í Ijós kom að
þær voru góðar eftir að málin höfðu
verið rædd fram og aftur í talstöð úti á
miðnunum, var ákveðið að gera sjó-
mannadag að árlegum viðburði og hafá
hann fyrsta sunnudag í júní. Fyrst var
hann aðeins haldinn í Reykjavík og
Hafnarfirði, en nú er hann haldinn um
allt land.
Já það má eiginlega segja að maðurinn
minn hafi helgað hagsmunamálum sjó-
manna líf sitt. Hann tók til dæmis mjög
virkan þátt í starfi SVFÍ og það gerði ég
reyndar sjálf líka. Ég var í 23 ár
formaður kvennadeildar Slysavarnar-
félagsins í Hafnarfirði og í 22 ár sat ég
í stjórn aðalsamtakanna,“ sagði Rann-
veig.
Hjúkrunardeild DAS í Hafnarfirði er
á þremur hæðum og var aðeins sú neðsta
tekin í notkun í gær. Áætlað er að taka
hinar hæðirnar tvær í notkun fyrir
miðjan desember næstkomandi og mun
þá hjúkrunardeildin rúma 88 vistmenn.
-Sjó.
fréttir
Vinnuverndar-
ráðstefna
■ Ráðstefna um vinnu-
vernd verður haldin á
Hótel Loftleiðum dagana
11. og 12. nóvember. Efni
hennar skiptist í þrjá
höfuðflokka.
Fyrsta efni á dagskrá
nefnist „Viðfangsefni
vinnuverndar" og verða
fluttir þar sex fyrirlestrar
um: Vinnuslys, atvinnu-
sjúkdóma, hávaða og
heyrnarskerðingu, varhug-
arverð efni í starfsum-
hverfi, hönnun vinnustaða
og tækniþróun og vinn-
uvernd.
Annað efni sem tekið
verður fyrir eru „Fram-
kvæmd vinnuverndar".
Fyrirlestrar verða fimm:
Löggjöf um vinnuvemd á
íslandi, skipulag og starf-
semi vinnueftirlits í land-
inu, áhættuþættir í starfs-
umhverfi, gildi fræðslu og
upplýsingastarfs og heilsu-
vernd starfsmanna.
Síðasta efnið ber yfir-
skriftina „Þjóðfélagslegt
gildi vinnuverndar“. Þar
flytur Eyjólfur Sæmunds-
son erindi er nefnist Vinnu-
vernd og efnahagur. Þá
fjalla tveir danskir gestir
sem boðið var að sitja
ráðstefnuna um viðhorf
manna þar í landi á þessu
sviði. Þeir eru Mogens
Falk skrifstofustjóri
danska Vinnuveitenda-
sambandsins og Jörgen Eli-
kofer, fulltrúi danska Al-
þýðusambandsins. Einnig
munu aðilar vinnumarkað-
arins hér á landi kynna
viðhorf sín, þ.e. frá: ASÍ,
VSÍ, BSRB, fjármálaráðu-
neytinu, og Vinnumála-
sambandinu. Að síðustu
flýtja fulltrúar þing-
flokkanna ávörp.
Það er starfshópur á
vegum fyrrnefndra aðila
vinnumarkaðarins ásamt
Vinnueftirlitinu sem undir-
búið hefur ráðstefnuna.
Skráðir þátttakendur eru
tæp 200 víðs vegar að af
landinu.
- HEI
dropar
Snúa Jón Baldvin
og Vilmundur
bökum saman?
■ Menn hafa gert sér mat úr
því þessa dagana að Jón Bald-
vin Hannibalssnn náði ekki
kjöri í framkvæmdastjórn Al-
þýðuflokksins á þingi flokksins
nú um helgina. Hafa andstæð-
ingar Jóns Baldvins cinkum
viljað meina að með þessu tapi
sínu hafi hann goldið mikið
aflirnð og einangrast innan
flokksins. Dropateljari hitti
Jón Baldvin að máli í hinu háa
Alþingi í gær og spurði hann
hvaða augum hann liti þetta
kosningatap sitt. Sagðist JBH
hafa boðið sig þarna fram í
ákveðnum tilgangi, þ.e. til
þess að kanna að hve miklu
leyti þarna væri um bundna
kosningu að ræða, þar sem
formcnn kvenfélaga, ungra
krata og landsfulltrúar ættu sín
ákveðnu sæti og að hve miklu
leyti hún væri óbundin. Hann
hefði komist að þeirri niður-
stöðu að hún væri með öllu
bundin. „Annars er ákaflega
gott til þess að vita,“ sagði Jón
Baldvin, „að við Vilmundur
höfum tapað sinni kosningunni
hvor. Það er bara spurningin
um það hvort við eigum ekki
að snúa bökum saman!“ Og
hér með koma Dropar þessum
orðum Jóns Baldvins á fram-
færi, í dálki þeim í blaðinu sem
Dropar hafa fyrir satt að skipi
fyrsta sæti á vinsældalista ViI-
mundar.
1750 kall
dagurinn
■ Laxveiðitímabilinu á þessu
ári er tiltölulega nýlokið. Þrátt
fyrir það hefur þegar verið
tekið til við skipulagningu
næsta tímabils, og á fundi
borgarráðs í gær var samþvkkt
gjaldskrá Elliðaáa fyrir næsta
ár. Samkvæmt henni mun hver'
laxveiðidagur verðleggjast á
1750 kr., þannig að menn geta
strax farið að safna fyrir veiði-
leyfinu.
40 frímerkja
umslagið
■ Það er ýmis glaðningur
sem berst í póstkassa dagblað-
anna. Sjaldgæft er þó að um-
búðirnar séu jafn glæsilegar og
skrautlegar eins og þetta um-
:> M ■ .
siag sem Tímanum barst frá
Iðntæknistofnun nýlega. Hvað
sem því veldur þá eru hvorki
fleiri né færri en fjörutíu frí-
merki á því. Ætla má að starf
frímerkjasleikjara sé verulegt
hjá stofnuninni.
Krummi ...
...skilur ekkert í Þjóðviljanum
í gær að vísa á fréttir af
Fiskiþingi á forsíðu sem ekki
fyrirfmnast í blaðinu.