Tíminn - 10.11.1982, Qupperneq 4
MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1982.
SENDUM I POSTKROFU
/ / / / / /
Þjóðvitjanum
fróðfegra greína,
vernjg vto erum.
'j auk frétta, fréttaskýringa
t iesefni tii afþreyingar
og skemmtunar. Pú kynnist ððrum viðhorfum en þeim
sem ráða ferðinni í htnum blððunum. Pú hefur oft litið í
f>jóðviljann -
því ekki að kaupa hann? Þjóðfélagið
fær óhoiia siagsíðu án vinstri dagblaðs.
BJÓDDU ÞJÓÐVILJANUM í BÆINN
wsmnnck-v.^co..
OMISSANDt I UMRÆDUNNt
Áskriftarsími 8Í333
fréttir
Mótsblað Jóhanns Þóris
vekur heimsathygli: r
HEIMSMET I
BIAÐAMENNSKU
■ Mótsblað það sem Jóhann Þórir
Jónsson sér um útgáfu á í Luzern meðan
á ólympíumótinu stendur hetur vakið
heimsathygli. Blaðið Vaterland sem
gefið er út í Luzern birti nýverið langa
grein um ísland og skáklíf þar, en það
sem vekur athygli blaðsins á þessu
verkefni er blað Jóhanns Þóris, sem
„Vaterland" telur vera meiri háttar
afrek, kallar það raunar heimsmet. í
greininni er talað um skákstyrk íslend-
inga sem mikið undur, íslendingar hafa
eignast fleiri stórmeistara og alþjóðlega
meistara, en sjálf Sovétríkin, ef notuð
er hin margfræga höfðatöluregla.
Blaðið Politiken í Kaupmannahöfn
fjallar um mótsútgáfuna í grein nýverið,
þar er Jóhann Þórir reyndar kynntur
fyrir lesendum blaðsins sem hugrakkur
Englendingur. Greinin hefst á því að
rætt er um stórmótin sem Politiken
gengst fyrir árlega, og vandkvæðin við
það að birta skákirnar nýjar og ferskar
eftir hverja umferð. En þar er vel að
merkja um að ræða 32 skákir, en á
ólympíumótinu í Luzern eru tefldar 276
skákir á dag. Þær birtast allar í
mótsblaðinu daginn eftir og sumar
skýrðar. Að auki birtast myndir frá
mótinu, greinar og viðtöl. Þetta verk-
efni, þessa Sisyfosarþraut, eins og blaðið
kallar það leysir „Englendingurinn hug-
rakki“ og starfslið hans þannig af hendi
að til afburða hlýtur að teljast að dómi
greinarhöfundar Politiken.
Starf Jóhanns Þóris hefur með öðrum
■ Jóhann Þórir Jónsson.
orðum tekist þannig að fjölmiðlar út um
heim veita því verulega eftirtekt og má
að lokum geta þess að Tass fréttastofan
hefur nýverið tekið langt og ítarlegt
viðtal við Jóhann. Verður starf hans
væntanlega haft til fyrirmyndar á næstu
ólympíumótum, en í Buenos Aires og á
Möltu þar sem síðustu ólympíumót voru
haldin fór útgáfa skákanna algerlega í
handaskolun og voru menn komnir á þá
skoðun að útgáfa mótsblaðs með þessum
hætti væri óvinnandi verk.
JGK
Útlit fyrir sama
skipulag veiðanna
■ Flest bendir til þess að fiskiþing, sem
nú stendur yfir muni samykkja tillögur
sem gera ráð fyrir svipaðri sókn og
stjórnun fiskveiða og samþykkt var fyrir
árið í ár. Fyrir þinginu liggja samþykktir
fjórður.gsdeilda Fiskifélagsins og fjögur
álit milliþinganefndar, sem fjalla átti um
hvort vilji væri fyrir að taka upp
kvótafyrirkomulag í stað þess kerfis sem
gilti í ár og er í þessum samþykktum og
álitum, að einu undanskildu lagt til að
sama skipulag verði á veiðunum og að
leyfilegt verði að veiða 450 þúsund tonn
af þorski.
Allar fiskifélagsdeildir fjórðunganna,
að Austfirðingum undanskildum vilja
450 þúsund tonna þorskafla, og sama
skipulag á veiðunum og samþykkt var
fyrir 1982. f samþykkt fiskideila Aust-
firðingafjórðungs er tillaga Hilmars
Bjarnason í milliþinganefnd tekin nær
óbreytt upp og lagt til að hámarksaflinn
á þorski fyrir árið 1983 verði 400 þúsund
tonn, heildarþorskafla verði skipt á milli
báta og togara og fyrir áramót verði
ákveðið aflahámark á ýsu, ufsa, karfa
og grálúðu, samkvæmt tillögum frá
fiskifræðingum.
Sem fyrr segir skilaði Hilmar Bjama-
son séráliti í milliþinganefndinni, en það
sama gerðu Ingólfur Stefánsson, sem
lagði fram og gerði grein fyrir hugmynd-
um FFSÍ og Marteinn Friðriksson. Þá
stóðu fjórir nefndarmenn saman að áliti,
en það voru Vilhelm Þorsteinsson,
Halldór Ibsen, Guðmundur Guðmunds-
son og Ágúst Einarsson. Aðrir nefndar-
menn tóku ekki þátt í nefndarálitum og
engin sameiginleg niðurstaða fékkst frá
nefndinni.
Mjög skýr vilji liggur einnig fyrir frá
fiskideildunum um selveiðar. Allar
deildimar í öllum fjórðungum, Vest-
mannaeyjum og í Reykjavík, Hafnar-
firði og nágrenni, styðja skoðun hring-
ormanefndar um að halda verði sela-
stofninum innan skynsamlegra marka og
meðal tillagna sem liggja fyrir fiskþingi
em tillaga frá Austfirðingum að tveir
bátar verði gerðir út í tilraunaskyni í
samráði við landeigendur. Vestfirðingar
leggja til að sel verði fækkað mjög við
landið og að löggiltir veiðimenn á vegum
ríkisins verði gerðir út á veiðarnar, líkt
og tíðkast á refaveiðum. Norðlendingar
taka í sama streng og vilja veiðiverðlaun
og aðrir taka mjög í sama streng.
- ESE
(fyNBt Ævintýraheimurinn
★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆☆★☆
Erutn með: VHS - og 2000 með ogántexta
VIDEO SPORT
Miðbæ Háaleitisbraut 58-60 Sími 33460.
Opiðalla daga
kl. 13.00-23.00