Tíminn - 10.11.1982, Blaðsíða 5
* I I t * t #'♦ * HMIMH t »♦ « « « 4 * »» «4 « ‘ '■< »'« '
MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1982.
S|í£íl!flfí
fréttaskýring
Prófkjörsmál sjálfstædismanna í Reykjavík:
ÖSHflR GUNNAR ÞESS HELST AD
KJÖRNEFND SNIÐGANGI HANN?
■ Um fátt er meira talað þessa dagana,
en prófkjörsmál Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík. Hugleiða menn það nú ákaft
hvað það feli í sér, að Gunnar
Thoroddsen, forsætisráðherra tilkynnti
ekki þátttöku í prófkjöri flokksins. Eru
sumir þeirrar skoðunar að forsætisráð-
herra hyggist bíða þess að kjömefnd leiti
tii hans og bjóði honum, sem einum
þingmanni flokksins sæti á framboðs-
listanum eða kanni hvort hann hyggst
taka sæti, en aðrir telja að Gunnar vilji
helst að kjömefnd sniðgangi hann með
öllu og afli honum með þeirri framkomu
eins konar píslavottarnafnbótar. Þá
hugleiða menn einnig hvers vegna EUert
B. Schram, ristjóri DV hefur ekki
tilkynnt þátttöku í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins, og í því eins og öðm sýnist sitt
hverjum.
Tíminn hafði í gær og í fyrradag
samband við stjórnmálamenn úr hinum
ýmsu stjómmálaflokkum, bæði
þingmenn, kjömefndarmenn Sjálf-
stæðisflokksins og óbreytta og spurðu
þá álits á því hvernig staðan væri í
prófkjörsmálum Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík. Fer hér á eftir megininntakið
úr þeim samtölum, og eins og gengur og
gerist í viðtölum um svona viðkvæm
mál, þá eru svör einstakra manna sem
þess óskuðu birt, án þess að þessir sömu
menn séu nafngreindir, en annað er haft
eftir nafngreindum aðilum:
„Kjörnefnd siðferðislega
skuldbundin til þess að
bjóða Gunnari Thor-
oddsen sæti á framboðslist-
anum“
- Framámaður í Sjálfstæðisflokknum
úr röðum stjórnarandstöðunnar hafði
'þetta um prófkjörsmál Gunnars og
Ellerts að segja: „Það hefur verið
viðtekin venja í kjörnefndarstöfum inn-
an Sjálfstæðisflokksins, að leitað sé til
þeirra þingmanna flokksins sem fyrir
eru, og ef þeir hafa ekki gefið kost á sér
í prófkjór, þá heur verið kannað hvort
þeir vilji ekki gefa kost á sér í framboð.
Kjörnefnd mun því örugglega fara þess
á leit við Gunnar Thoroddsen, eða
a.m.k. kanna hvort hann vilji vera á
framboðslista flokksins.
Ég hygg að það hafi ekki komið
mönnum sem fylgst hafa með innan-
flokksmálum Sjálfstæðisflokksins, svo
mjög á óvart að Ellert tilkynnti ekki
þátttöku í prófkjörinu. Hann hafði
sjálfur gefið þaö í skyn að hann væri að
skoða þessi mál, og ég tel að eftir að
þeirri skoðun var lokið, þá hafi hann
komist að þeirri niðurstöðu að hann
hefði einfaldlega ekki nægt fylgi til þess
að fara út í prófkjör. Það er nefnilega
talsverður hópur manna í Vesturbænum,
eins og sjálfstæðismenn úr K.R. sem
unnu mikið fyrir Ellert á sínum tíma,
sem hefur ekki fyrirgefið Ellert að hann
skyldi afhenda Pétri Sigurðssyni sæti sitt
á silfurbakka, því þessir sömu menn
hafa takmarkað álit á Pétri, svo ekki sé
meira sagt. Þessir K.R.-ingar sögðu á
sínum tíma að þeir væru ekkert að -
hamast og slíta sér út fyrir einhvern
Ellert B. Schram, sem afhenti síðan
sætið sitt, án nokkurs samráðs við þá,
og þeir munu enn vera þeirrar skoðunar
að Ellert eigi stuðning þeirra ekki
skilinn, og því hefur Ellert tekið þá
ákvörðun að bíða og sjá hvað kjörnefnd
gerir, og menn leiða jafnvel að því
getum að Ellert vilji að kjörnefnd bjóði
honum sæti á listanum, en vilji síðan
hafna sætinu með reisn.“
„Málið í höndum kjör-
nefndar“ segir Ellert
- Tíminn spurði Ellert B. Schram í
gær hvers vegna hann tæki ekki þátt í
prófkjöri: „Það eina sem liggur fyrir er
það að ég hefur ekki tilkynnt framboð.
Það með hef ég ekkert sagt til um það
hvort ég ætla fram eða ekki. Það verður
bara að koma í ljós.
- Hverju muntu svara kjörnefnd ef
hún leitar til þín og býður þér sæti á
listanum: „Ég hef ekkert ákveðið um
það. Málið er í höndum kjörnefndar."
„Verður að koma í ljós“
segir forsætisráðherra
- Hvað segir svo Gunnar Thoroddsen,
sjálfur forsætisráðherrann um próf-
kjörsmál Sjálfstæðisflokksins: „Ég vil
ekkert um þau mál segja að svo komnu
máli.“ Aðspurður um það hvort þjóðin
mætti fljótlega vænta yfirlýsingar frá
hans hendi varðandi prófkjörsmálið og
áframhaldandi þátttöku hans í ís-
lenskum stjórnmálum, sagði forsætisráð-
herra: „Það verður bara að koma í ljós.“
- Ekki eru allir jafnþagmælskir um
ætlanir Gunnar Thoroddsen í stjórnmál-
unum. Hér fara á eftir, í styttri endur-
sögn, skoðun eins forystumanns fram-
sóknarmanna og eins forystumanns al-
þýðuflokksmanna um stefnu forsætis-
ráðherra í innanflokksmálum
Sjálfstæðisflokksins, en þótt undarlegt
megi virðast, þá hafa þessir tveir menn
mjög svipaðar skoðanir í þessu máli:
- Gunnar Thoroddsen ætlar sér ekki
að halda áfram þátttöku í stjórnmálum
að þessi þingi loknu, og þess vegna ætlar
hann ekki í framboð.
Að líkindum ætlar hann að bíða og
sjá hvort kjörnefnd býður honum sæti á
framboðslistanum. Það er þó ekki
einlæg ósk hans að honum verði boðið
sætið, því hann hyggst hvort sem er ekki
þiggja það. Hann vill fyrst og fremst að
kjörnefnd sniðgangi hann með öllu, því
á þann hátt aflar hann sér hvaö méstrar
samúðar og hvað mests fylgis. Ekki
fylgis sem hann hyggst nýta sér til þess
að ná kjöri í sérframboði, heldur fylgis,
sem hann hyggst hafa af andstæðingum
sínum innan Sjálfstæðisflokksins, Geirs-
liðinu, í næstu kosningum, og sýna þar
með fram á enn einu sinni, hversu mikils
fylgis hann persónulega nýtur. Þarna
gæti því orðið um sæta hefnd að ræða
hjá forsætisráðherra.
„Skipti mér ekki af
störfum kjörnefndar,,
- Hvaða skoðun hefur formaður
Sjálfstæðisflokksins á því hvort kjör-
nefnd beri að hafa samband við forsætis-
ráðherra og bjóða honum sæti á
framboðslista flokksins? Tíminn spurðu
Geir Hallgrímsson þeirrar spumingar í
gær.
„Ég skipti mér ekki af störfum kjör-
nefndar", sagði Geir, og þá sneri
blaðamaður sér til varaformanns flokks-
ins Friðriks Sophussonar og spurðu
sömu spurningar: „Hjá okkur er það
ekki siður að formenn flokksins eða
þingmenn skipti sér af störfum kjör-
nefndar." Friðrik var spurður í Ijósi
þeirrar hefðar sem skapast hefur í
Sjálfstæðisflokknum með afgreiðslu
svona mála, hvórt hann teldi ekki
eðlilegt að forsætisráðherra væri boðið
sæti á listanum: „Sé það svo að það sé
hefð að bjóða þingmönnum flokksins
sæti á listanum, þá verður vafalaust
einnig gert svo nú, því vinnubrögð innan
flokksins breytast ekki með tilkomu
nýrra manna."
Kjörnefnd tvístígandi
Hvað segir svo kjörnefndin sjálf um
málið - hyggst hún bjóða forsætisráð-
herra sæti á listanum? Um það eru mjög
skiptar skoðanir á meðal viðmælenda
Tímans. Eru sumir þeirrar skoðunar að
þó það sé nefndinni mjög svo óljúft, þá
sé það enn verra afspurnar, að forsætis-
ráðherra hafi með öllu verið hunsaður og
slíkt geti orsakað geysilega sundrungu í
þegar mjög svo klofnum stjórnmála-
flokki. Geti það jafnvel orðið til þess að
kljúfa flokkinn endanlega, en Geirs-
menn eru að reyna að horfa í gegnum
fingur sér við Gunnars-menn um þessar
mundir, í þeirri von að Gunnar Thor-
oddsen hyggist hætta öllum stjórnmála-
afskiptum, og þegar hann sé ekki
lengur til staðar til þess að stjórna sínum
mönnum, þá verði hægara um vik með
allar sættir í flokknum.
„Þori ekki að fullyrða
hvort það er hefð eða
ekki“
Margrét S. Einarsdóttir, varaformað-
ur kjörnefndarinnar sagði í viðtali við
Tímann í fyrrakvöld, er hún var spurð
hver yrðu næstu skref nefndarinnar:
„Við munum setjast niður og spjalla
saman um fyrirhugaðan prófkjörslista.“
Margrét var að því spurð hvort ekki væri
befð fyrir því innan flokksins að leitað
væri til þingmanna og þeir spurðir hvort
þeir vildu vera á framboðslista, ef þeir
hefði ekki tilkynnt sig í prófkjör: „Það
er allur gangur á því, held ég,“ sagði
Margrét, „ég þori nú ekkert að fullyrða
um hvort það er hefð eða ekki, sko.“
Þá var Margrét að því spurð hvort það
hefði einhvern tíma gerst, að þingmanni
hefði ekki verið boðið sæti á lista hjá
■ Gunnar Thoroddsen, forsxtisráð-
herra er fáorður þegar hann er spurður
út í pólitísk áform sín.
Sjálfstæðisflokknum: „Ég man nú ekki
svo langt aftur í tímann - ég vérð nú að
segja það alveg eins og er,“ var svar
Margrétar.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til þess
að ná sambandi við formann kjörnefndar
Gunnar Helgason, í gærkveldi, tókst
það ekki, þannig að Tíminn getur ekki
greint frá hvað var ákveðið á fundi
nefndarinnar í gær, en gerir þess í stað
orð eins viðmælenda sinna, úr röðum
sjálfstæðismanna að niðurlagsorðum
þessar hugleiðingar: „Þegar hugleitt er
hvað kjörnefnd muni ákveða, þá ætti
það að liggja ljóst fyrir að hún mun
■ Ellert B. Schram segir málið vera í
höndum kjörnefndar.
ekki biðja forsætisráðherra um að taka
sæti á framboðslista, en hún mun að
öllum líkindum hafa samband við hann
sem þingmann og gefa honum kost á að
taka sæti á lista, sem er jú ekki sami
hlutur og að biðja hann um að fara í
framboð. Það sama verður að öllum
líkindum ofan á með Ellert."
Það er því engan veginn ljóst hver
niðurstaðan í þessu máli verður, og
verða lesendur Tímans sem og aðrir
landsmenn að bíða hennar til næsta
mánudags, en þá mun kjörnefnd greina
frá því hvernig prófkjörslistinn verður
skipaður. - AB
Verktakar - Bændur
Getum útvegað með stuttum fyrirvara Terra dekk og felgur
fyrir flestar gröfur og dráttarvélar.
Hagstætt verð og greiðslukjör.
Venjuleg
dekk
★ Mikið flotþol
★ Lítið slit
VBáECEC
Sundaborg 10 — Símar 8-66-55 & 8-66-80