Tíminn - 10.11.1982, Síða 8
8
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Gísli Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason.
Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson
Ritstjórar: hórarinn Þórarinsson, Elías Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur
V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrímsson. Umsjónarmaður Helgar-Tímans: Atli
Magnúcson. Blaöamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Eiríkur St.
Eiríksson, Friðrik Indriðason, Heiður Helgadóttir, Siguröur Helgason.(íþróttir), Jónas
Guömundsson, Kristín Leifsdóttir, Skafti Jónsson. Útlitsteiknun: Gunnar Trausti
Guðbjörnsson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Elín
Eilertsdóttir. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir. Prófarkir: Flosi Kristjánsson, Kristín ,
Þorbjarnardóttir, María Anna Þorsteinsdóttir. Ritstjórn, skrifstofur og auglýsingar:
Síðumúla 15, Reykjavík. Sími: 86300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: 86387 og
86392.
Verð í lausasölu 9.00, en 12.00 um helgar. Áskrift á mánuði: kr. 130.00.
Setning: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent hf.
Endurreisn Reykhotts
■ Þingmenn Vesturlands hafa nýlega lagt fram á Alþingi
tillögu um endurreisn Reykholts. Fyrsti flutningsmaður
er Alexander Stefánsson.
Þetta er þörf tillaga. Reykholtsstaður er í niðurníðslu.
Slíkt er ekki viðunandi, þar sem „Reykholt er í hugum
fólks, jafnt íslendinga sem annarra þjóða manna, helgur
staður vegna þeirra andans stórvirkja, sem.þar voru
unnin,“ eins og segir í greinargerð tillögu.
í greinargerðinni segir ennfremur:
„Um margra ára skeið hafa mannvirki í Reykholti verið
í niðurníðslu vegna skorts á fjármagni til viðhalds - til
vansæmdar héraðinu og landinu öllu. Þrátt fyrir sögufrægð
staðarins, sem dregur erlenda og innlenda ferðamenn að
staðnum, héraðsskólann sem starfað hefur fullsetinn yfir
50 ár, náttúrufegurð, jarðhita o.fl. hefur ekki tekist að fá
fram samræmdar aðgerðir og fjármagn til að endurbyggja
staðinn og gera Reykholt að glæsilegu menningar- og
menntasetri þjóðarinnar, sem flestir eru þó sammála um,
og mundi tvímælalaust auka hróður íslands meðal annarra
þjóða, slík er frægð staðarins. Hér þarf til að koma
stefnubreyting, framkvæmdir í stað kyrrstöðu.
Eitt brýnasta verkefnið er að Ijúka uppbyggingu
skólahúsnæðis í Reykholti. Forgangsverk er að koma upp
svokallaðri A-álmu, þar sem á að vera mötuneytis- og
félagsaðstaða skólans, sem er algjörlega ófullnægjandi í
dag og stendur öllu skólastarfi fyrir þrifum og mundi
stórbæta aðstöðu fyrir ferðamannaþjónustu yfir sumartím-
ann.
Koma þarf upp viðunandi aðstöðu frir bókasafn skólans
og vinnuaðstöðu við safnið. Einnig þarf að koma upp safni
er hefur fræðilegt gildi vegna rannsókna á störfum Snorra
Sturlusonar og áhrifum hans. Stórauka þarf viðhald og
endurnýjun húsbúnaðar og tækja skólans. Gera þarf
heildarskipulag fyrir staðinn, leggja bundið slitlag á
heimakstursbraut og bifreiðastæði.
Snorragarð þarf að fegra með meiri uppgræðslu og
skógrækt.
Skapa þarf aðstöðu í Reykholti fyrir norræna fræðimenn
til dvalar og fræðiiðkana, þar sem staðurinn mun í vaxandi
mæli verða samnorrænn staður. Æskilegt væri að komið
verði upp sérstakri Snorrastofu og minjasafni í Reyk-
holti.“
Vonandi fær þessi tilllaga góðar undirtektir á Alþingi.
Snúum bökum saman
Alexander Stefánsson talaði af hálfu Framóknarflokks-
ins við 1. umræðu um fjárlagafrumvarpið. í ræðulokin
sagði hann m.a.:
„Ljóst er, að mörg og stór vandamál eru óleyst í þessu
fjárlagafrumvarpi. Eg nefni sem dæmi málefni Háskóla
Islands, Námsgagnastofnunar, rekstur heilbrigðisstofn-
ana, dreifikerfi rafmagns í sveitum og margt fleira, en allt
eru þetta í raun smámál miðað við það sem skiptir mestu,
að ná samstöðu um, að hamla gegn verðbólgu og tryggja
afkomu atvinnuveganna og um leið atvinnuöryggið í
landinu. Við þurfum að auka sparnað og draga úr
ríkisútgjöldum, við þurfum að draga úr óþarfa innflutn-
ingi, auka kaup á innlendum vörum og framleiðslu. Við
þurfum að vinna markvisst að því, að auka og efla
útflutningsframleiðslu okkar og þar með útflutningstekjur
þjóðarinnar. Það fær engin þjóð staðist, sem eykur
innflutning um 6% á sama tíma og útflutningur dregst
saman um 17%.
Þjóðin ætlast til þess, að ríkisstjórnin og alþingismenn
geri ráðstafanir, sem tryggi lífskjörin í landinu. Þegar
alvarleg efnahagskreppa kveður dyra eiga ráðamenn
þjóðarinnar að snúa bökum saman til lausnar vandans.
Þetta ættu forráðamenn stjórnarandstöðunnar á íslandi
að taka til alvarlegrar athugunar þessa daga.“ Þ.Þ.
MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1982.
■Kjördæmisþingið sóttu 85 af þeim 90 fulltrúum sem seturétt eiga, auk fjöida gesta, sem ber vott um mikinn áhuga manna
á pólitíkinni um þessar mundir.
Kjördæmisþing
á Húnavöllum
■ Kjördæmisþing framsóknarmanna í
Norðurlandskjördæmi vestra, sem hald-
ið var á Húnavöllum, kaus 10 manna
uppstillingarnefnd sem gera skal tillögu
um uppstiilingu að framboðslista Fram-
sóknarflokksins við Alþingiskosningar
þær sem menn búa sig nú undir að geti
verið á næsta leiti. I nefndinni sitja:
Gunnar Oddsson, Albert Geirsson,
Ástvaldur Guðmundsson, Pálmi Sig-
hvatsson, Kristófer Kristjánsson, Val-
garður Hilmarsson, Halldór Jóhannes-
son, Eggert Garðarsson, Bogi Sigur-
björnsson og Ásgrímur Sigurbjörnsson.
Steíngrímur Hermannsson flutti á
þinginu yfirgripsmikið erindi um stjóm-
málaviðhorfið og á eftir fylgdu miklar
umræður. Guttormur Óskarsson var
endurkosinn formaður kjördæmisstjórn-
ar, en aðrir í stjórn eru: Grímur
Gíslason, Gunnlaugur Sigmarsson, Ei-'
ríkur Tryggvason, Sigurður Björnsson,
Stefán Gestsson, Magnús Rögnvalds-
son, Hermann Friðriksson og Svein-
björn Ottesen.
-HEI
■ Steingrímur ræddi ítariega um stjómmálaviðhorfið um þessar mundir og urðu
síðan miklar almennar umræður. Þingforsetar vom Magnús Ólafsson og Jón
Tryggvason, sem sjást við fundarstjóraborð ásamt Guttormi Óskarssyni.
Myndir Stefán Pedersen.
alþingi
VILJA AUKIN
FRAMLÖG TIL
NÁMSGAGNA-
STOFNUNAR
■ Námsgagnastofnun ríkisins kom til
umræðu utan dagskrár í neðri deild í
fyrradag. Árni Gunnarsson vakti um-
ræðuna og deildi hart á menntamálaráð-
herra og ráðuneyti hans fyrir að halda
stofnuninni í fjársvelti og beita sér ekki
fyrir að námsgagnastofnun gæti starfað
samkvæmt lögum, en langt væri frá að
svo væri vegna fjárskorts.
Sagði Árni að stofnunin sem sjá ætti
40 þús. nemendum í 215 skólum fyrir
námsgögnum gæti ekki sinnt skyldum
sínum samkvæmt lögum um útgáfu
námsefnis. Skuldaði stofnunin 1. millj.
kr. í prentsmiðjum, fyrir utan banka-
skuldir og væri ekki fær um að sjá
grunnskólunum fyrir lögbundnu náms-
efni. Kvaðst hann ekki sjá að samkvæmt
fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi yrði
bætt að ráði úr vandræðaástandinu.
ingvar Gíslason menntamálaráðherra
svaraði að það væri í mörg horn að líta
í þjóðfélaginu og væru margar ríkisstofn-
anir sem ekki fengju þau fjárframlög
sem þær færu fram á. En ljóst væri að
námsgagnastofnun ætti við vanda að etja
og fram úr honum yrði að ráða. Væri
ekkert nýtt á þessum tíma árs þegar
verið er að ganga frá fjárlögum, að
stofnanir teldu sig hafa þörf fyrir meira
fé en frumvarpið gerði ráð fyrir.
Menntamálaráðherra sagði Náms-
gagnastofnun unga að árum og ætti hún
eftir að eflast í framtíðinni en yrði að fá
að þróast eðlilega og vaxa með verkefnun-
um. Fjárhagsbeiðnir stofnunarinnar
hefðu verið skornar verulega niður í
fyrra og í ár. Það væri æskilegt að veitt
væri meira fé til hennar og vonaði hann
að fjárveitinganefndarmenn myndu sýna
hug sinn til stofnunarinnar við undirbún-
ing fjárlaganna. Hins vegar kvaðst hann
ekki hafa orðið var við að skólastjórar
gætu ekki hafið störf í skólum vegna
skorts á námsgögnum.
Sighvatur Björgvinsson tók undir orð
Árna og var stórorður í garð mennta-
málaráðherra.
Alexander Stefánsson sagði Náms-
gagnastofnun vera einhverja mikilvæg-
ustu stofnun skólakerfisins og benti á að
þegar málefni hennar koma til meðferð-
ar í fjárveitinganefnd ættu þingmenn
þess kost að sýna hug sinn til stofnunar-
innar og koma sínum athugasemdum
að. En hann kvaðst þeirrar skoðunar að
setja þyrfti ákveðinn ramma um starf-
semi stofnunarinnar.
Ólafur f>. Þórðarson sagði gagnrýni
þá sem fram hefði komið eiga við einhvér
rök að styðjast og sagðist hann fagna því
að það væri gott hljóð í þeim fjárveiting-
amefndarmönnum sem þátt tóku í
umræðunni um að hækka framlög til
Námsgagnastofnunarinnar.