Fréttablaðið - 23.01.2009, Blaðsíða 22
2 föstudagur 23. janúar
núna
✽ í Pollýönnuleik
þetta
HELST
FLOTT Á FRUMSÝNINGU Jenni-
fer Aniston og Owen Wilson eru ekki
nýjasta Hollywood-parið, en þau
voru vægast sagt innileg við frum-
sýningu myndarinnar Marley & Me
sem er væntanleg til landsins í mars.
E f ríkisstjórnin fer að greiða úr sínum flækj-um tek ég Ísland í make-over,“ segir Karl
Berndsen, hárgreiðslu- og förðunarfræðingur,
um sjónvarpsþáttinn Nýtt útlit sem er væntan-
legur á Skjáeinum um miðjan mars. Í þættinum
fær fólk útlitsbreytingu, allt frá förðun til fata,
auk þess sem Karl mun gefa áhorfendum góð
ráð. „Hugsunin er að hafa þetta mjög fræðslu-
tengt svo manneskjan sem situr heima og horf-
ir læri eitthvað, hvort sem hún er fimmtán ára
eða níræð. Þetta verður því hálfgert námskeið
í leiðinni,“ segir Karl um þáttinn sem verður sá
fyrsti sinnar tegundar á Íslandi, en álíka þætt-
ir á borð við Gok‘s fashion fix og How to look
good naked hafa slegið í gegn í Bretlandi.
„Við förum í förðun og allt sem tengist
hári frá a til ö. Skemmtilegasti parturinn er
samt að við tökum venjulegt fólk í stjörn-
uyfirhalningu og gerum það eins glæsilegt
og mögulegt er, auk þess sem við ætlum að
endurskapa gömul „style icon“ í íslenskri feg-
urð,“ segir Karl sem á og rekur hárgreiðslustof-
una Beauty-barinn í Kópavogi. „Við byrjum að
taka upp um leið og það liggur ljóst fyrir hvort
frumvarp verði samþykkt um að umsvif Ríkis-
útvarpsins á auglýsingamarkaði verði takmörk-
uð, en það er til umfjöllunar á Alþingi núna. Ef
frumvarpið verður ekki samþykkt fær Ísland
aldrei sitt „make-over“, segir Karl og hlær. „Mér
finnst þessi þáttur sýna að Skjáreinn þorir frek-
ar en aðrar sjónvarpsstöðvar, því þetta er eitt-
hvað nýtt og spennandi. Ég er alveg sannfærð-
ur um að þessi þáttur fær gott áhorf, en ég verð
auðvitað að haga mér eins og maður og mun
leggja allan minn metnað í þetta,“ segir Karl að
lokum. - ag
Karl Berndsen með nýjan sjónvarpsþátt á Skjá einum:
TEKUR ÍSLENDINGA
Í STJÖRNUYFIRHALNINGU
„Make-over“ Karl Bernd-
sen mun gefa Íslendingum
stjörnuyfirhalningu, en hann
hefur unnið með stjörnum á
borð við Naomi Campbell,
Stellu McCartney, John Galliano
og hljómsveitinni Sugababes.
Styðja Íslendinga í neyð
Danska hljómsveitin D-A-D, eða
Disneyland After Dark, spilar á
Nasa annað kvöld, en hún hefur
notið mikilla vinsælda þar í landi.
Félagsskapurinn sem stendur að
komu D-A-D til Íslands heitir Be-
cause We Care og spratt upp í
kringum neyð Íslendinga í Dan-
mörku eftir bankahrunið. Danski
tónlistarmaðurinn og Íslands-
vinurinn Poul Krebs kynnt-
ist hremmingum íslenskra
námsmanna í Árósum, en
í kjölfarið var hleypt af stað
söfnun og nú þegar hafa
safnast átta milljónir króna
sem runnið hafa til námsmanna og
lífeyrisþega í vanda í Danmörku.
Rokkþyrstir Íslendingar munu því
ekki einungis greiða fyrir tónlist-
arflutninginn annað kvöld held-
ur styðja við bakið á samlöndum
sínum í leiðinni.
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Ritstjóri Marta
María Jónasdóttir martamaria@365.is Penni
Alma Guðmundsdóttir alma@frettabladid.
is Forsíðumynd Anton Brink Útlitshönnun
Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður
Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is
sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík, sími 512 5000
augnablikið
PATTRA SRIYANONGE
„í kvöld er ég að fara að kíkja á Dúndurball vöku á Domo, kosningar og her-
legheit í gangi. Á morgun er svokallaður Gúffhittingur hjá okkur vinkonunum,
við hittumst reglulega og hver og ein kemur með eitthvað gott að borða,
oftast MJÖG óhollt, og við gúffum í okkur þangað til við springum. Ætli ég
kíki svo ekki í bíó á sunnudaginn.“
REYKJAVIK STORE
LAUGAVEGUR 86 -94, S: 511-2007
OPERATED BY V8 EHF
Opið Föstudag 11-18:30
laugardag 11-17:00
útsöluvörur á
50% afslætti
helgin
MÍN