Fréttablaðið - 23.01.2009, Blaðsíða 4
4 23. janúar 2009 FÖSTUDAGUR
FYRIR UTAN KJALLARANN Meðan menn ræddu málin á félagsfundi Samfylkingarinnar í Þjóðleikhúskjallaranum loguðu blys og bál fyrir utan og var fundarmönnum inni
blásinn byltingarandi í brjóst. Það virtist hafa skilað sér, alltént var dansað og sungið þegar ljóst var hvers konar ályktun komið var með af fundinum.
Guðríður Arnardóttir, oddviti
Samfylkingarinnar í Kópa-
vogi, hafnar því að Kópavogs-
félagið í heild standi á bak við
stuðnings-
yfirlýsingu
við reyk-
víska flokks-
bræður sem
krefjast
stjórnar-
slita. Þetta
kemur fram
í bréfi sem
Guðríð-
ur sendi til
nokkurra samfylkingarmanna
í Kópavogi.
Ályktun reykvískra sam-
fylkingarmanna var þess
efnis að skora á þingflokk
Samfylkingarinnar að beita
sér fyrir því að ríkisstjórnar-
samstarfinu verði umsvifa-
laust slitið, og mynduð verði
stjórn sem starfi fram að
kosningum sem fram fari eigi
síðar en í maí 2009.
Guðríður telur að landið
verði stjórnlaust verði ríkis-
stjórn slitið og mynduð verði
minnihlutastjórn Samfylking-
ar og Vinstri grænna.
- shá
Skipholti 50b • 105 Reykjavík
®
Mótmælin halda áfram
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
20°
6°
10°
4°
3°
6°
5°
3°
2°
3°
19°
6°
8°
21°
-1°
9°
12°
1°
2
2 2
4
3
5
4
5
3
3
0
22
10 8
10
13
18
10
9
8
18
15
23
1
Á MORGUN
5-13 m/s, hvassast á Vest-
fjörðum.
SUNNUDAGUR
5-13 m/s, hvassast á
Vestfjörðum.
3 4
5
55
0
1
22
ÞORRI MEÐ LÆTI
Þorrinn heilsar af
krafti þennan daginn.
Í dag má búast við
stormi vestast á Vest-
fjörðum og Snæfells-
nesi og einnig sunnan
Vatnajökuls. Þá
verður mjög hvasst á
fjallvegum á þessum
slóðum. Í fyrramálið
verður ennþá mjög
hvasst á Vestfjörð-
um en þegar líður á
daginn dregur þar úr
vindi. Annars staðar
verður vindurinn mun
hægari á morgun.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
UMFJÖLLUN UM MÓTMÆLI
Xinhua-fréttastofan
„Sjálfstæðisflokkurinn, sem
fer fyrir ríkisstjórn Íslands,
sagðist á fimmtudag eiga
von á að kosningar verði haldnar
í ár vegna fjármálakreppunn-
ar … Mótmælendur hafa safnast
saman fyrir utan þinghúsið í
höfuðborginni og krafist afsagnar
ríkisstjórnarflokksins vegna efna-
hagshrunsins í landinu.“
AlJazeera.net
„Lögregla beitti táragasi
gegn mótmælendum
þegar óeirðir brutust út
aðfaranótt fimmtudags, að sögn
talsmanns. Hann bætti við að tveir
lögreglumenn hefðu verið lagðir
inn á sjúkrahús eftir að hafa orðið
fyrir grjótkasti. Mótmæli gegn ríkis-
stjórninni hafa orðið daglegt brauð
í borginni eftir að fjármálakerfi
landsins hrundi í október vegna
milljarða dollara erlendra skulda
sem bankar stofnuðu til.“
Frankfurter
Rund-schau
„Þið eruð reknir!“ hrópa reiðir
Íslendingar að ráðherrum sín-
um … og virðast hafa rétt fyrir
sér. Eftir hrinu nýrra og nú síðast
ofbeldisfullra mótmæla vegna
hörmungarafleiðinga fjármála-
kreppunnar í höfuðborginni Reykja-
vík virðist það svo gott sem öruggt
að Geir Haarde forsætisráðherra
víki, leysi upp samsteypustjórn-
ina og mæti kjósendum í nýjum
kosningum.“
Politiken.dk
„Örvæntingin vegna efna-
hagskreppunnar vex dag frá degi
meðal almennings á Íslandi, og
óánægjan með sitjandi ríkisstjórn
hefur leitt til ítrekaðra átaka milli
lögreglu og mótmælenda.“
Aftenposten.no
„Ótal mótmæli hafa verið haldin
gegn íslensku ríkisstjórn-
inni og seðlabankastjór-
anum síðan efnahagskerfi
Íslands hrundi í október. Fólk krefst
afsagnar ríkisstjórnarinnar og seðla-
bankastjórans og að kosningar
verði boðaðar.“
Sydney Morning
Herald
„Óeirðalögregla bjargaði
forsætisráðherranum, Geir
Haarde, úr embættisbifreið sinni
eftir að hún var umkringd af mót-
mælendum. Mótmælendur, reiðir
yfir tökum ríkisstjórnarinnar á fjár-
málakreppunni, slógu í bílinn með
könnum og hentu í hann eggjum.
Lífverðir reyndu að bægja þeim frá
uns lögregla kom á staðinn til að
ryðja bílnum braut.“
Varaformenn Samfylkingarinn-
ar og Framsóknarflokksins taka
ekki undir hugmyndir Steingríms
J. Sigfússonar, formanns Vinstri
grænna, um að til álita komi að
segja upp efnahagsáætluninni við
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS) og
afþakka lánafyrirgreiðslu úr þeirri
átt. Hagfræðingur við Háskóla
Íslands telur að slík ákvörðun væri
hreint glapræði.
Steingrímur sagði í Kastljóssvið-
tali á miðvikudagskvöld að þing-
flokkur Vinstri grænna væri þeirr-
ar skoðunar að æskilegast væri að
komast út úr samkomulaginu við
AGS og skila láni upp á tvo millj-
arða Bandaríkjadollara ef mögu-
legt væri. Þetta yrði til dæmis gert
til að „losna undan þvingunarskil-
málunum sem á okkur eru settir,
til dæmis um þennan sársauka-
fulla niðurskurð í heilbrigðiskerf-
inu“, eins og Steingrímur komst að
orði. Hann tók fram að slík ákvörð-
un yrði ekki tekin í fljótheitum og
í góðu samráði við AGS.
Gylfi Magnússon, dósent í við-
skiptafræðideild Háskóla Íslands,
telur það vera glapræði að segja
upp efnahagsáætlun AGS. Aðkoma
sjóðsins sé nánast aðgöngumiði
Íslands til að vera gjaldgengt í
alþjóðlegu viðskiptaumhverfi. Að
segja okkur frá samkomulaginu
væri yfirlýsing um að við ætluð-
um ekki að taka á okkar málum á
alþjóðavettvangi.“
Birkir J. Jónsson, varaformað-
ur Framsóknarflokksins, segist
í fljótu bragði ekki getað tekið
undir hugmynd Steingríms. „Það
þarf að fara yfir öll þessi mál en
staða Íslands er með þeim hætti að
við þurfum utanaðkomandi aðstoð
í þeim erfiðleikum sem við stönd-
um frammi fyrir.“ Birkir telur að
Steingrímur hafi ekki úttalað sig
um þær hugmyndir sem hann viðr-
aði í Kastljósinu enda hafi hann
sagt að þetta þyrfti nánari skoð-
unar við. Ef til kæmi þá yrði það
í samráði við þá flokka sem hefðu
meirihluta hverju sinni.
Árni Páll Árnason, þingmaður
Samfylkingarinnar, telur það ekki
raunhæfan kost að skila láni AGS.
Stjórnmálamenn verði að horfast í
augu við staðreyndir, og hún sé að
engin önnur leið komi til greina til
að endurreisa efnahagslífið en að
halda sig við áætlun AGS, og sækja
um aðild að Evrópusambandinu.
„Þetta er eitthvað það óábyrgasta
sem ég hef heyrt frá stjórnmála-
manni,“ segir Katrín Júlíusdóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar.
Það sé alveg ljóst að Samfylkingin
muni ekki taka þátt í því að skila
láni AGS.
Aðrir heimildarmenn Frétta-
blaðsins taka fram að þessi orð
Steingríms komi ekki í veg fyrir
einhvers konar samstarf fram að
kosningum í vor. Slíkt samstarf
yrði væntanlega að taka á fyrir-
fram ákveðnum málum, og það að
skila láni AGS verði væntanlega
ekki eitt af þeim.
svavar@frettabladid.is,
brjann@frettabladid.is
Vilja ekki segja upp
áætlun og láni AGS
Þingmenn Samfylkingarinnar og Framsóknarflokksins telja ekki koma til
greina að segja upp efnahagsáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
GUÐRÍÐUR
ARNARDÓTTIR
Oddviti Samfylkingar í Kóp.:
Harmar álykt-
un Reykvíkinga
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N