Fréttablaðið - 23.01.2009, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 23.01.2009, Blaðsíða 25
23. janúar föstudagur 5 „Við gerðum þetta fyrst þegar við vorum báðir að leika á Akureyri í fyrra og spiluðum þá eingöngu músík úr leikritum og söngleikjum,“ segir Hall- grímur Ólafsson leikari um fyrirhug- aða leikhústónleika hans og Guðjóns Davíðs Karlssonar, betur þekktum sem Góa. „Við verðum á Græna hattinum á Akureyri annað kvöld, en planið er svo að vera með þetta á dagskránni í Borgarleikhúsinu. Þetta var bara eina kvöldið sem við áttum frí í mánuðin- um svo við ákváðum að skella okkur norður,“ útskýrir Hallgrímur og segir þá félaga taka lög úr öllum áttum. „Við komum fram með hljómsveit, skiptumst á að syngja og röddum hjá hvor öðrum. Svo spjöllum við auðvitað inn á milli laga og erum með eitthvert grín og glens,“ segir Hallgrímur um dagskrána sem inniheldur meðal ann- ars lög úr söngleikjunum Hárinu, Jesus Christ Superstar og Fólkinu í blokk- inni. „Við ætlum líka að vera með veg- legt happdrætti svo fólk eigi möguleika á glaðningi í kreppunni, til dæmis gjafa- korti í leikhús hjá LA og fleira spenn- andi,“ bætir hann við. - ag Úr leiklist yfir í söng Flottur dúett Halli og Gói troða upp á Græna hattinum á Akureyri annað kvöld, en stefna á að halda leikhústónleika í Borgarleikhúsinu á næstunni. „Þetta er ekki endurbættur Rex heldur algjörlega nýtt „concept“,“ segir Jón Atli Helgason, einn af skipuleggjendum opnunarpartís Jacobsen í Austurstræti sem var opnaður í gærkvöldi, þar sem skemmtistaðurinn Rex var áður til húsa. Staðurinn heitir eftir dönsku Jacobsen-fjölskyldunni sem rak vefnaðarvöruverslun í húsnæðinu forðum daga. „Nú er ekkert „dresscode“ svo allt snobb er strokað út og andrúmsloftið er afslappað,“ bætir hann við, en um helgina verða tvö einkasam- kvæmi áður en staðurinn verður opnaður almenningi í næstu viku. „Á sunnudagskvöldum verðum við með vöfflukvöld þar sem fólk getur borgað í bauk eftir vild, annars fær það fríar vöfflur og innan skamms byrjum við að selja franskar crepes-pönnukök- ur á mjög góðu verði,“ segir Loftur Loftsson, rekstrarstjóri Jacobsen. - ag Jacobsen opnaður þar sem Rex var áður: Snobbið þurrkað út „Nýtt „concept“ Loftur segir Jacobsen ekki vera neitt í líkingu við skemmtistað- inn Rex sem var í sama húsnæði. ASHTANGA JÓGA Ingibjörg Stefánsdóttir ÁHRIFA- valdurinn „Það er svo ótrúlega margt sem hefur haft sterk áhrif á líf mitt, en það er ein ákvörðun sem ég tók í lífinu sem hafði mjög mikil áhrif á mig. Ég tók þá ákvörðun að fara í leiklistarnám í New York. Í skólanum notaði einn af mínum danskennurum ashtanga jóga til að hita okkur upp og ég kolféll fyrir því um leið. Síðan þá hefur þetta jóga leitt til þess að ég hef margsinnis ferðast til Indlands og þar kynntist ég ashtanga jóga-gúrúnum, Sri K. Pattabhi Jois, sem er 93 ára í dag. Núna rek ég mína eigin jógastöð með yndislegum kennurum og elska það að sjá fólk fara út úr tíma með bros á vör. Það er svo frábært hvað lífið hefur að færa manni, eitthvað sem er óvænt, eitthvað sem maður sá ekki fyrir. Þá er svo mikilvægt að vera opinn fyrir ein- hverju nýju og prófa sig áfram í lífinu.“ 50% afsláttur af öllum vörum Í fyrsta skipti í sögu Herra Hafnarfjarðar er 50% afsláttur af Bertoni jakkafötum. Gallabuxur frá 4.900 kr. Opið til kl. 18.00 laugardag 50 afslá ttur % Íþróttatreyjur frá 2.000 kr. Skyrtur frá 2.000 kr. Stakir jak kar frá 4.900 kr.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.