Fréttablaðið - 23.01.2009, Blaðsíða 2
2 23. janúar 2009 FÖSTUDAGUR
Jóhannes, verður þú með súra
brandara?
„Já, gallsúra og snafs með.“
Jóhannes Kristjánsson eftirherma verður
á útopnu að skemmta landsmönnum á
þorrablótum á næstunni.
SKOÐANAKÖNNUN Fylgi Framsókn-
arflokksins eykst verulega, sam-
kvæmt nýrri könnun MMR, sem
framkvæmd var 20.-21. janúar.
17,2 prósent segjast nú myndu
styðja flokkinn, en fylgið var 4,9
prósent í síðustu könnun MMR í
desember.
Vinstri græn eru áfram stærsti
stjórnmálaflokkurinn samkvæmt
könnuninni, með 28,5 prósent
fylgi. 24,3 prósent segjast myndu
kjósa Sjálfstæðisflokkinn, en
Samfylkingin fær 16,7 prósent
fylgi. Þá segjast 24,2 prósent
styðja ríkisstjórnina. 3,3 prósent
styður Frjálslynda flokkinn og
2,2 prósent Íslandshreyfinguna.
7,9 prósent segjast myndu kjósa
eitthvað annað. Könnunin var
síma- og netkönnun og svöruðu
1.749 einstaklingar. - ss
Könnun MMR um fylgi flokka:
Framsókn
rís hratt upp
SAMFÉLAGSVERÐLAUN Nú líður að því að tilnefninga-
frestur til Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins renni
út. Hildur Petersen, stjórnarformaður Kaffitárs og
Pfaff, situr nú í dómnefnd um Samfélagsverðlaunin
í þriðja sinn.
„Það hefur verið einstaklega skemmtilegt að vera
þátttakandi í þessu. Þarna er verið að vekja athygli
á þeirri fjölbreytni sem blómstrar í samfélaginu,“
segir Hildur.
„Ég held að vægi þessara verðlauna eigi eftir að
aukast nú þegar þjóðfélagsmynstrið er að breytast
og áherslurnar með. Þarna er verið að verðlauna
störf sem unnin eru af fórnfýsi, hógværð og lát-
leysi. Það getur verið um að ræða eitt hetjuverk eða
hugsjónastarf einstaklinga eða félaga í áratugi svo
verðlaunahafarnir spanna vítt svið. Verk sem bygg-
ist á því að vera góður við náungann dettur aldrei úr
tísku en vegur jafnvel þyngra nú en oft áður.“
Tilnefningum til Samfélagsverðlauna Frétta-
blaðsins má skila í gegnum hlekk Vísi, á netfang-
ið samfelagsverdlaun@frettabladid.is. Einnig má
senda tilnefningar með pósti. Skilafrestur rennur út
mánudaginn 26. janúar.
Dómnefndina að þessu sinni skipa, auk Hildar,
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum,
Guðjón Friðriksson sagnfræðingur, Katrín Jakobs-
dóttir alþingismaður og Steinunn Stefánsdóttir,
aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins. - jse
Hildur Petersen í dómnefnd um Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins í þriðja sinn:
Verðlaunin vega þyngra nú
HILDUR PETERSEN Góðverk detta aldrei úr tísku en eru jafnvel
betur metin nú en oft áður, segir Hildur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Þú getur alltaf treyst
á prinsinn
Hlíðasmára 8 • 201 Kópavogi • s: 554 7200
Reykjavíkurvegi 68 • 220 Hafnarfirði • s: 5557220
www.hafid.is
NÝTT
Helgi Hálf-
danarson,
bókmennta-
þýðandi,
kennari og
lyfjafræð-
ingur, and-
aðist á heim-
ili sínu 20.
janúar, 97
ára að aldri.
Helgi
fæddist 14. ágúst 1911. Hann
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1930 og
cand.pharm-prófi í lyfjafræði
1939. Í framhaldinu stofnaði
hann Húsavíkur Apótek, sem
hann rak í tvo áratugi en starf-
aði eftir það sem lyfjafræðing-
ur og við kennslu í Reykjavík.
Helgi vann að þýðingum
meðfram daglegum störfum
og hafa fáir lagt jafn mikið til
íslenskra bókmennta og leik-
húsmenningar á 20. öld og
hann. Helgi þýddi öll leikrit
Shakespeares, gríska harm-
leiki eftir Æskýlos, Sófókles og
Evripídes auk sígildra ljóða-
leikja eftir aðra höfunda.
Helgi var kvæntur Láru Sig-
ríði Sigurðardóttur, fædd 16.
janúar 1914, dáin 21. júlí 1970.
Þau eignuðust þrjú börn.
Helgi
Hálfdanarson
látinn
HELGI
HÁLFDANARSON
FERÐALÖG „Þetta er draumur fyrir
hverja manneskju,“ segir Auður
Pálmadóttir, hjá Loftleiðum Ice-
landic, um lúxusferðir sem farnar
eru á þotu Icelandair með banda-
ríska auðkýfinga.
Að sögn Auðar hefur Boeing 757-
200 þota frá Icelandair verið leigð
til bandarísku
ferðarskrifstof-
unnar Aberc-
rombie & Kent
til að fara með
lítinn hóp far-
þega í nokkr-
ar lúxusferð-
ir um heiminn
á hverju ári.
Fyrstu verkefn-
in voru á árinu
2006. Önnur ferðin af þremur að
þessu sinni hófst í Los Angeles á
miðvikudag og lýkur ekki fyrr en
13. febrúar.
Þotan getur tekið yfir 200 far-
þega en skipt hefur verið um inn-
réttingu fyrir þetta verkefni og
komið fyrir 52 hægindastólum
auk sextán sæta setustofu þar sem
hægt er að vera með dúkuð borð
fyrir málsverði. Matseðlar eru fjöl-
breyttir og komið er til móts við
séróskir farþega um drykki.
Auður segir farþegana vera vell-
auðuga enda kosti ferðin á bilinu 80
til 100 þúsund dollara fyrir mann-
inn. Það svarar til 10-13 milljóna
króna. „Þarna á meðal er fólk sem
kemur á einkavélum inn á flug-
vellina til þess að fara í ferðirn-
ar,“ útskýrir Auður og bætir við
að sumir farþeganna hafi jafnvel
farið fleiri en eina ferð.
„Það verður farið til Chile,
Ástralíu, Taílands, Indlands,
Egyptalands og Spánar áður en
ferðinni lýkur aftur í Ameríku í
febrúar,“ segir Auður um heims-
reisuna sem nú er nýhafin. Tveim
dögum eftir að henni lýkur verður
lagt í þriggja vikna Afríkuferð sem
stendur fram í mars.
Mikill og flókinn undirbúningur
starfsmanna hér heima er að baki
hverri ferð og Auður segir sam-
starfið við Abercrombie & Kent
hafa gengið afar vel. „Þeir eru
sérstaklega ánægðir með okkur og
okkar áhafnir sem hafa staðið sig
með einstakri prýði,“ segir hún.
Allir í áhöfninni eru íslenskir.
Auk tveggja flugstjóra, flugmanns
og flugfreyja eru tveir kokkar um
borð og einn flugvirki. Auður segir
þessi störf afar eftirsótt. „Það er
mikil upplifun að fara í svona lang-
ar ferðir saman og það myndast ein-
stök samheldni hjá áhöfnunum.“
Eftir að ferðinni til Afríku lýkur
tekur við hlé fram á haust þegar ný
ævintýri taka við.
gar@frettabladid.is
Auðmenn í íslenskri
þotu um allan heim
Bandarísk ferðaskrifstofa leigir sérinnréttaða íslenska þotu undir heimsreisur
fyrir auðkýfinga. Farseðill kostar allt að 13 milljónir króna. Íslenskir flugliðar
keppast um að komast í ferðirnar sem lýst er sem ævintýri fyrir áhafnirnar.
ICELANDAIR Þota í nýjum búningi í Los
Angeles í gær.
AUÐUR
PÁLMADÓTTIR
DÚKUÐ BORÐ Farþegar í lúxusþotu Icelandair eiga þess kost að setjast að dúkuðum
borðum aftast í vélinni. MYND/LOFTLEIDIR ICELANDIC
SAMFÉLAGSMÁL Íslensk ræðis-
mannsskrifstofa verður opnuð í
Afríkuríkinu Tógó hinn 11. febrú-
ar. Kjörræðismaður verður Claude
Gbedey, fjármálastjóri barna-
þorps SPES frá stofnun þess. Emb-
ætti kjörræðismanns er ólaunað.
Hlutverk hans er að gæta hags-
muna íslenskra ríkisborgara og
styðja við stjórnmála-, viðskipta-
og menningarsamstarf.
Hjálparsamtökin SPES reka
barnaþorp í borginni Lóme þar
sem 92 börn eiga heimili.
Hjónin Njörður P. Njarðvík og
Bera Þórisdóttir, sem voru meðal
stofnenda SPES, leggja af stað í
árlega ferð til Tógó í dag. Meðal
annars munu þau líta til með upp-
byggingu nýs þorps sem hafin
er. Þá munu þau heimsækja skól-
ann sem börnin í þorpinu ganga í,
en hann hafa samtökin stutt við
bakið á. „Þarna eru fáir kennar-
ar og léleg aðstaða. Við höfum
meðal annars byggt skólastofur
og látið leggja rafmagn, í sam-
starfi við foreldrafélag skólans,“
segir Bera.
Samtökin finna fyrir kreppunni
eins og aðrir. Bera segir þó fram-
tíð þeirra þó ekki í hættu. „Við
höfum tryggt okkur og eigum fé
til að reka heimilið um ákveð-
inn tíma. En þrátt fyrir allt hefur
almenningur haldið áfram að
styrkja okkur og margir hafa hald-
ið áfram að gefa ríkulega.“
- hhs
Njörður P. Njarðvík og Bera Þórisdóttir leggja af stað í árlega ferð til Tógó í dag:
Ísland fær ræðismann í Tógó
NJÖRÐUR OG BERA Hjónin Njörður P.
Njarðvík og Bera Þórisdóttir, stofnendur
SPES, með eitt af börnum í barnaþorp-
inu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANNA MARGRÉT
DÓMSMÁL Hæstiréttur felldi í gær
úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð
héraðsdóms yfir manni sem játað
hefur að hafa kveikt í íbúðarhúsi
við Tryggvagötu 14. janúar síð-
astliðinn.
Maðurinn hefur játað að hafa
hellt bensíni inn á stigagang,
tekið dagblöð og kveikt í. - bj
Kveikti í Tryggvagötu 14:
Brennuvargur
úr varðhaldi
DANMÖRK Anders Fogh Rasmus-
sen, forsætisráðherra Danmerk-
ur, stefnir að því að boða til
nýrrar atkvæða-
greiðslu um að
Danir falli frá
undanþágunni
frá þátttöku í
myntbandalag
ESB og hinum
undanþágun-
um þremur frá
ESB-samstarf-
inu sem samið
var um eftir
höfnun Dana á Maastricht-sátt-
málanum árið 1992.
Skilyrðið sem Fogh setur fyrir
nýrri atlögu að því að koma Dan-
mörku inn á evrusvæðið er að
Sósíalíski þjóðarflokkurinn fáist
til að styðja hana.
Rætt var um kosti og galla inn-
göngu í myntbandalagið á danska
þjóðþinginu í gær. - aa
Evrópumál í Danmörku:
Fogh undirbýr
evrukosningar
ANDERS FOGH
RASMUSSEN
FJÖLMIÐLAR Fimm starfsmönnum
fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis var
sagt upp í gær. Meðal þeirra sem,
misstu vinnuna eru þau Sigmund-
ur Ernir Rúnarsson fréttamaður,
Elín Sverrisdóttir útsendingar-
stjóri, og öll ritstjórn fréttaskýr-
ingaþáttarins Kompáss.
Óskar Hrafn Þorvaldsson,
fréttastjóri Stöðvar 2 og Vísis,
segir horft í hverja krónu á
tímum sem þessum. Uppsagnirn-
ar snúist um að spara sem mest
þannig að það komi sem minnst
niður á starfseminni. Því hafi
tvær yfirmannastöður verið lagð-
ar niður, sem og dýr fréttaskýr-
ingaþáttur. - bj
Fimm sagt upp á Stöð 2:
Niðurskurður í
erfiðu ástandi
SPURNING DAGSINS