Tíminn - 02.12.1982, Síða 1
Dregið í áskriftargetraunirmi í kvöld
TRAUSTOG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ
Fimmtudagur 2. desember 1982
275. tölublað - 66. árgangur
Gæðamálin draga dilk á eftir sér:
ISLENSKIR FISKMARKANR I
BANDARÍKIUNUM (SFÖRNÆTTU
fjErum ad verda fisklausir” segir Guðjón B. Ólafsson, forstjóri lceland Seafood Corporatlon
■ Gífurlcga alvarlegt ástand er nú að
skapast á íslenskum lisksölumörkuðum
í Bandaríkjunum. Lítil framleiðsla, sér-
staklega á þorskafurðum hér heima
hefur gert það að verkum að sölufyrir-
tækin í Banaríkjunum eru að verða
hráefnislaus og markaðimir þar af
leiðandi í stórhættu. Um leið og íslend-
ingar geta ekki staðið við skuldbindingar
sinar, er viðbúið að kaupendumir snúi
sér annað og er víst að Kanadamenn og
reyndar aðrar þjóðir era tilbúnar að
hlaupa í skarðið.
„Ástandið er orðið mjög alvarlegt,
enda erum við að verða gjörsamlega
físklausir," sagði Guðjón B. Ólafsson,
forstjóri Iceland Seafood Corporation,
dótturfyrirtækis Sambandsins í samtali
við Tímann.
„Skorturinn á þorski, sérstaklega
þorksblokk er orðinn mjög tilfinnan-
legur og þess verður ekki langt að bíða
að sama staða komi upp varðandi
þorskflökin. Framleiðslan á íslandi nú
er nánast engin og reyndar ekki nema
lítill hluti af okkar þörfum fyrir næstu
mánuði." sagði Guðjón B. Ólafsson.
Guðjón sagði að þetta væri ekki síst
alvarlegt fyrir þær sakir að á sama tíma
og þeir væru að verða freðfisklausir, þá
hengju allar þessar óseljanlegu skreiðar-
birgðir uppi á hjöllum á íslandi. Það væri
alvarlegt mál að menn skyldu ekki hafa
verið nægilega framsýnir til þess að
herða minna og frysta meira á sínum
tíma og sjá þannig burðarmörkuðum
sínum fyrir nægilegu hráefni.
„Nú segja menn e.t.v. að ekki hafi
verið hægt að sjá þetta fyrir og að
hráefnið hafi verið of slæmt í frystingu.
En ég held því stíft fram að það hafi
aldrei verið þörf á að gera hráefnið
svona slæmt. Þar stendur hnífurinn í
kúnni og það er Ijóst að í gæðamáiunum
verður að gera gífurlegt átak og það
strax. Það er ekki gott að segja hvað
gerist þegar við segjum viðskiptavinun-
um að við eigum ekki fisk til að standa
við pantanir,“ sagði Guðjón B. Ólafs-
son.
-ESE
Flugfélagið Ernir á ísafirdi:
MIKUR ERFIÐLEIKAR
■ Flugfélagið Ernir á ísafirði á við
mikla rekstrarerfiðleika að stríða um
þessar mundir. Félagið er skuldum
vafið og til að grynnka á skuldunum
hefur það haft eina af þremur flugvél-
um sínum á sölu í Bandaríkjunum
síðan í sumar. Enn hefur ekki tekist
að selja hana.
„Það er ekki komið að því að
fyrirtækið verði gjaldþrota þrátt fyrir
erfiða stöðu,“ sagði Hörður Guð-
mundsson, forstjóri félagsins í samtali
við Tímann í gær. „Skuldirnar eru alls
ekki miklar miðað við eignir félags-
ins,“ bætti hann við.
Flugfélagið hætti póstflugi milli
staða á Vestfjörðum 10. nóvembers.l.
„Það kom í sjálfu sér ekki á óvart,“
sagði Hörður. „Við sögðum því upp
með fimm mánaða fyrirvara. Við sáum
fram á það að án hækkunar á
flutningsgjöldum stæði flugið ekki
undir kostnaði. f því efni erum við alls
ekki einir á báti því Flugleiðir, Flugfé-
lag Norðurlands og Flugfélag Austur-
lands eru öll ósátt við þessi lágu
flutningsgjöld.“
Hörður sagði að margar leiðir hefðu
verið ræddar til þess að koma rekstri
félagsins á réttan kjöl. Til dæmis hefði
komið til tals að Flugleiðir keyptu í því
talsverðan hlut og jafnvel sveitarfélög-
in áVestfjörðum líka.
Einnig hefur verið rætt um að
félagið fengi verkefni við Landhelgis-
gæsluflug út af Vestfjörðum, en það er
verkefni sem landshlutaflugfélögin
vilja fá á sína könnu, hvert í sínum
fjórðungi.
-Sjó.
Nútíma
njésnir
— bls. 7
IIERÐKYNNING
Merðiagssidfnui
Verð eftir verslunum INNK
---- KP