Tíminn - 09.12.1982, Page 11
FIMMTUDAGUR 9. DESEMBER 1982
27
IUAuMAR R.MKUMRX1A
ICELAND
ipur hiitrfs Ofrpfttatrr
svipur lands og þjóðar í máli og
myndum eftir Hjálmar R. Bárðarsoru
Bókin er 428 blaðsíður í vönduðu bandi.
í henni eru 20 kaflar, teikningar og kort.
Fæst hjá bóksölmn um land allt
Dreifing í síma
85088
; Norður
1 í svalann
Norður í svalann
■ Norður í svalann er nafn á viðtalsbók,
sem Bókaútgáfan Salt hf. sendir frá sér nú
fyrir þessi jól. Viðtölin skráir Sigurður
Pálsson námsstjóri, en þau eru við fimm
útlendinga sem sest hafa að hérlendis. Peir
eru:
Baltasar, myndlistarmaður frá Katalóníu
(Spáni), nú búsettur í Kópavogi, Rut
Magnúsdóttir, organisti og húsmóðir frá
Austurríki, búsett að Sólvangi í Flóa, Einar
Farestveit, stórkaupmaður frá Noregi, bú-
settur í Reykjavík, Ester Gunnarsson,
hjúkrunarfræðingur og húsmóðir í Reykja-
vík, en hún er fædd og uppalin í Bandaríkj-
unum og Carl Billich píanóleikari frá
Austurríki, en hann býr nú í Reykjavík.
Viðmælendur Sigurðar Pálssonar rekja ætt
sína og uppruna og greina frá hvernig þaö
bar til að þau rákust hingað til lands. Eru
ástæðurnar hinar margvíslegustu og lýsingar
í bókinni á ólíkum kjörum iðulega hinar
mögnuðustu. Oll gefa þau einnig nokkra
lýsingu á fyrstu viðbrögðum sínum á kynnunt j
sínum á íslendingum og hvernig þeim hefur
líkað dvölin í nýja landinu. /
Petta er fyrsta bók Sigurðar Pálssonar ef
frá eru taldar námsbækur, m.a. umferðar-
fræðsla og kennsluefni í kristnum fræðunt
fyrir börn. Hann hefur valið að láta
persónurnar segja sögu stna sjálfar, ótruflað-
ar af spurningum og innskotum sínum. Stíll
hans er gagnorður og gerir það atburðarásina
hraða og lifandi. Bókin er ríkulega mynd-
skreytt göntlum sem nýjunt myndum úr lífi
fólksins frá heimahögum nær og fjær, en hún
er á þriðja hundrað blaðsíður. Bókin er
unnin hjá Prentsmiöju Hafnarfjarðar.
Bo Balderson er dulnefni höfundarins.
Ymsir nafntogaðir Svíar hafa verið grunaðir
um að skýla sér á bak við þetta nafn og
böndin hafa sterklega borist að nýkjörnum
forsætisráðherra Svíþjóðar, Olof Palme.
Ráðherrann og dauðinn er 188 blaðsíður
að stærð. Prentrún annaðist setningu og
prentun, en Bókfell hf. sá um bókband.
GUNNAR M. MAGNÚSS
fiðla oö
jpleim fólk
Ingimundur fiðla og fleira fólk
■ Bókaforlagið Vaka hefur gefið út bókina
lngimundur fiðla og fleira fólk eftir Gunnar
M. Magnúss. Höfundurinn er löngu lands-
kunnur fyrir bækur sínar enda með langan
rithöfundarferil að baki. Ingimundur fiðla og
fleira fólk er 55. bókGunnarsM. Magnúss.
A bókarkápu scgir meðal annars, að í
bókinni sé að finna þjóðlegan fróðleik af
besta tagi sem íærður hafi verið í aðgengileg-
an búning með skáldlegu ívafi.
I bókinni birtast fimm heimildarþættir um
þjóðlíf og ntögnuð mannleg örlög. Byggt er
á raunverulegum atburöum frá öldinni sem
leið og úpphafi þessarar og greint er frá
forvitnilegu fólki og sérstæðum þáttum í
íslensku þjóðlífi.
Ráðherrann og dauðinn
■ Bókaforlagið Vaka hefur gefið út bókina
Káðherrann og dauðinn eftir Bo Balderson.
Bókin er fyrsta flokks spennusaga en er
jafnframt leiftrandi af fyndni og gamansemi.
Þessa nýstárlegu bókarblöndu kímna og
sakamálafrásagnar hefur Vaka að ráðum
sérfróðra manna nefnt „kínmikrimma"
A bókarkápu segir svo urn söguþráðinn:
Ekkja nóbelsskálds finnst myrt í sumar-
bústað sínum í sænska skerjagarðinum.
Innanríkisráðherrann er grunaður um
morðið, enda hefur hann enga haldgóða
fjarvistarsönnun.
lambamerki
ELTEX lambamerkin eru gerð úr þunnri álplötu, með
bognum járnpinna, sem stungið er í eyrað og lokað.
ELTEX merkin fást áletruð (2X4 stafir) með tölustöfum
og/eða bókstöfum.
Við höfum selt þessi merki við góðan orðstýr í mörg
undanfarin ár, og verðum með á lager merkjaraðir
1—1000. FÁST í LIT
Ef óskað er eftir sérstimpluðum merkjum, vinsamlega
leggið inn pantanir á varahlutalager okkar sem fyrst, og
ekki seinna en 15. janúar n.k.
$VÉIADillD
SAMBANDSIHS
Ármúla 3 Reykjavík S. 38 900
Tveir
metsöluhöfundar
ARFURINN
DESMOND BAGLEY þekkja allir. Frá því
fyrsta skáldsaga hans kom út 1963, hefur ver-
iö beðið eftir hverri nýrri bók frá hans hendi.
Nýjasta skáldsaga hans kom út í Bretlandi á
miðju þessu ári. Hún er þegar komin út hér á
landi og heitir ARFURINN. Sagan gerist að
mestu í Kenya og er hlaðin spennu og æsandi
atburðarás. „Bagley er bæði gáfaður og frum-
legur spennusagnahöfundur. Hann er meist-
ari í sinni grein“. Sunday Times. Slíkar um-
sagnir eru algengastar um bækur Desmond
Bagleys í öllum þekktustu blöðum heims.
HÆTTUSPIL
DICK FRANCIS, sem er breskur að þjóðerni
eins og Bagley, er þekktur og vinsæll höfund-
ur í enskumælandi löndum og seljast bækur
hans í milljónum eintaka. Hann hefur hlotið
lofsamlega dóma og fengið verðlaun úr ýms-
um sjóðum. í fyrra gaf SUÐRI út fyrstu skáld-
sögu Dick Francis á íslensku, ENGIN MISK-
UNN, og hlaut hún frábærar viðtökur eins og
vænta mátti. Nú er komin út ný skáldsaga eftir
Dick Francis, HÆTTUSPIL, og er ekki að efa
að þeir sem kunna að meta skemmtilega og
hraða atburðarás, muni falla hún vel í geð.
Desmond Bagley og Dick Francis eru höfundar sem standa fyrir sínu
SUÐRI
Afgreiðsla: Reynimel 60 . Símar 27714 og 36384.
Pósthólf1214 . 121 Reykjavík.