Fréttablaðið - 30.01.2009, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 30.01.2009, Blaðsíða 2
2 30. janúar 2009 FÖSTUDAGUR Björn, ertu nokkuð að reisa þér hurðarás um öxl? „Ég hef gert það alla ævi, en maður verður að muna að þegar einar dyr lokast þá opnast alltaf aðrar.“ Björn Björnsson trésmiður lokaði fyrirtæki sínu, Útihurðum og gluggum, í góðærinu en hefur nú opnað það aftur. DÓMSTÓLAR Hæstiréttur hefur dæmt tvo karl- menn, Arnar Óla Bjarnason og Róbert Wayne Love til fangelsisvistar fyrir að ryðjast inn á heimili manns, svipta hann frelsi, beita hann ofbeldi og hótunum til að reyna að ræna frá honum verðmæt- um. Arnar Óli var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi. Róbert var dæmdur í tveggja ára fangelsi. Hæstiréttur þyngdi þar með dóm héraðsdóms yfir Arnari Óla um 12 mánuði. Mennirnir ruddust, ásamt stúlku, inn til manns- ins. Innrásarmennirnir þvinguðu hann til að setj- ast á stól. Stúlkan batt hann þar fastan með reipi og límbandi, keflaði hann með munnkúlu og setti leðurgrímu yfir höfuð hans. Mennirnir kýldu hann síðan og spörkuðu í hann. Arnar Óli hellti eldfim- um vökva yfir hann og hótaði honum limlestingum og lífláti. Róbert barði hann með járnstöng og fékk þannig lykla að bifreið hans. Mennirnir tveir söfn- uðu síðan saman munum úr íbúð mannsins, hlóðu í bifreið hans og óku heim til stúlkunnar. Þremenningarnir voru dæmdir til að greiða fórnarlambinu tæpa hálfa milljón króna í skaða- bætur. Stúlkan hafði áður verið dæmd í átján mánaða fangelsi í héraðsdómi. Þeim dómi var ekki áfrýjað til Hæstaréttar. Tveir menn dæmdir fyrir húsbrot, frelsissviptingu og rán: Áralangt fangelsi fyrir ofbeldi OFBELDISMÁL Tveir sakborninganna mæta til aðalmeðferðar í héraðsdómi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA BANDARÍKIN, AP Repúblikan- ar í fulltrúadeild Bandaríkja- þings greiddu ekki atkvæði með efnahagsráðstöfunum Baracks Obama. Frumvarpið var þó sam- þykkt, þar sem demókratar hafa nægan meirihluta í deildinni. Obama hafði hins vegar gert sér vonir um að þingmenn beggja flokka myndu samþykkja ráðstaf- anirnar. Hann vonast enn til að fá stuðning einhverra repúblikana í öldungadeildinni, þegar frum- varpið kemur til atkvæðagreiðslu þar. Robert Gibbs, blaðafulltrúi Hvíta hússins, sagði Obama átta sig á því að „það muni taka meira en nokkra daga að breyta starfs- háttum í Washington“. Efnahagsráðstafanirnar kosta ríkissjóð samtals 819 milljarða dala. Obama segir nauðsynlegt að þetta fé verði sem fyrst til reiðu svo bjarga megi Bandaríkjunum upp úr verstu efnahagslægð sem þekkst hefur síðan á fyrri hluta síðustu aldar. „Þessi endurreisnaráætlun mun skapa meira en þrjár milljónir nýrra starfa á næstu árum,“ sagði Obama. Reiknað er með að hann geti undirritað lögin um miðjan febrúar. Í gær undirritaði Obama síðan lög sem eiga að tryggja konum og körlum sömu laun fyrir sömu vinnu. - gb Efnahagsráðstafanir Baracks Obama samþykktar í fulltrúadeild: Repúblikanar voru á móti JAFNLAUNASTEFNA Obama undirritaði lög um að karlar og konur fengju sömu laun fyrir sömu vinnu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SVISS, AP Lögreglan í Sviss hefur upprætt umfangsmikla maríjú- anaframleiðslu eftir að lögreglu- menn fundu fyrir tilviljun stóran maríjúanaakur með loftmyndafor- ritinu Google Earth. Málið hefur leitt til handtöku samtals sextán manna. Lagt hefur verið hald á 1,2 tonn af maríjúana, og andvirði um 89 milljóna króna í reiðufé. Maríjúanaakurinn var um 7.500 fermetrar, og var inni í miðjum kornakri. Lögreglumenn notuðu Google Earth til að finna heim- ili bænda sem grunaðir voru um tengsl við glæpahring, og sáu akurinn strax. - bj Svissneskir lögreglumenn: Fundu eiturlyf með Google ÍRAK, AP Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna býst við því að um hálf milljón manna, sem hrakist hefur að heiman vegna stríðsástands síðustu ára, snúi aftur heim á þessu ári. Þetta er tvöföldun frá því í fyrra. Ástandið í Írak hefur skánað verulega undanfarið, segir Dani- el Endres, fulltrúi flóttamanna- stofnunarinnar í Bagdad. „Þótt öryggisástandið sé enn brothætt, þá hefur þetta skilað sér í því að í fyrra sneru margir heim,“ sagði hann. Á síðasta ári komust 220 þús- und manns aftur heim til sín. - gb Flóttafólk frá Írak snýr aftur: Hálf milljón heim á árinu VINNUMARKAÐUR Kjararáð und- irbýr nú að lækka opinbera emb- ættismenn í launum um fimm til fimmtán prósent. Guðrún Zoëga, formaður kjararáðs, segir að þeir hæst launuðu lækki mest en lægst launuðu minnst. Engir séu þó með lægri laun en 450-500 þúsund krónur á mánuði. Embættismennirnir, sem eru um sex hundruð talsins, hafa fengið bréf frá kjararáði þar sem launalækkunin er útskýrð og hafa andmælarétt til mánaða- móta. Ekki hefur verið ákveðið hvað gert verður varðandi launa- lækkun til handa hæstaréttar- dómurum og héraðsdómurum. - ghs Kjararáð undirbýr aðgerðir: Laun embættis- manna lækkuð LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höf- uðborgarsvæðinu stöðvaði mjög umfangsmikla kannabisrækt- un í húsi á Álftanesi í fyrradag. Við húsleit fundust tæplega 200 kannabisplöntur, flestar á loka- stigi ræktunar. Karlmaður á þrí- tugsaldri var handtekinn. Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lög- reglan á fíkniefnasímann 800- 5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsing- um um fíkniefnamál. -jss Lögregla stöðvar framleiðslu: Tvö hundruð plöntur gerðar upptækar GRÓSKUMIKIL RÆKTUN Plönturnar voru flestar á lokastigi ræktunar. HÁTÍÐ Brigdehátíð Hótel Loftleiða hófst í gær en keppendur eru um þrjú hundruð talsins. Að sögn Helgu Tryggvadóttur, fjölmiðla- fulltrúa keppninnar, hefur þátt- taka erlendra keppenda aldrei verið meiri. Forskot var tekið á sæluna í fyrradag en samkvæmt hefð er svokallaður stjörnutvímenning- ur haldinn daginn fyrir fyrsta keppnisdag. Meðal stjarna sem þá tóku í spil voru Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardóm- ari og Gunnar I. Birgisson bæjar- stjóri Kópavogs. - jse Bridgehátíð Hótel Loftleiða: 300 spilarar mættir til leiks Í ÞUNGUM ÞÖNKUM Jón Steinar situr hér með aðra hendi uppi á borði, gegnt honum er Þórarinn Sigþórsson. MYND/JÓN BJARNI SJÁVARÚTVEGUR Sjávarútvegsráðu- neytið hefur auglýst til umsókn- ar tæplega 50 tonna kvóta af blá- uggatúnfiski. Túnfiskur er einn dýrasti fisk- ur í heimi en Íslendingar hafa lítið veitt hann í gegnum tíðina. Fleiri en eitt fyrirtæki hafa þó sýnt áhuga að þessu sinni, að sögn Brynhildar Benediktsdóttur, sér- fræðings í sjávarútvegsráðuneyt- inu. Hæsta verð sem vitað er að greitt hafi verið fyrir einn fisk er um 100 þúsund dollarar, eða um 12,5 milljónir króna. Hver fisk- ur getur orðið allt að 100 kíló að þyngd. Sem strandríki á Ísland rétt á túnfiskkvóta en hann hefur sjald- an verið nýttur. Undantekning var þó í fyrra þegar Borg ehf. í Hrís- ey bauð í kvótann og fékk. Var frystitogarinn Eyborg þá sendur á túnfiskveiðar í Miðjarðarhafi. Í áhöfn á Eyborginni voru kafarar sem smöluðu túnfiskinum í nót til eldis í kvíum við Möltu. Birgir Sigurjónsson gerði Eyborgina út á túnfiskveiðarn- ar. Hann segir að veiðarnar hafi gengið ágætlega en ekki sé ljóst með verðmæti aflans. Um til- raunaveiðar hafi verið að ræða. Skipið hafi verið í Miðjarðar- hafinu og því hafi hann ákveðið að bjóða í kvótann í fyrra. Hefði skipið hins vegar verið hér við land hefði veiðin varla borgað sig þar sem sigla þarf 3.200 mílur aðra leiðina á miðin. „Fiskverð fer almennt lækk- andi,“ segir Birgir. „En þetta er mjög dýr fiskur, algjör munað- arvara,“ segir hann og bendir á að túnfiskurinn sem Íslendingar þekki úr blikkdósunum sé aðeins uppsópið, ruslið sem falli af borð- um. Birgir er þó ekki bjartsýnn á veiðarnar og segir að Grænfrið- ungar séu farnir að herja á tún- fiskveiðiskip eins og önnur skip. Túnfiskur er víðförull uppsjáv- arfiskur sem heldur sig í Mið- jarðarhafi og öllu Atlantshafi. Túnfiskurinn gengur í íslenska lögsögu en þó minna undanfarin ár þar sem stofninn hefur verið lítill. Brynhildur segir kvótann hafa verið minni undanfarið í því skyni að reyna að ná stofnin- um upp svo að hann fari að ganga meira í Atlantshafið eins og hann gerði áður. Erfitt er að segja nákvæm- lega hversu mikil verðmæti fel- ast í túnfiskskvóta Íslendinga því margir verðflokkar eru í gangi. Verðið fer meðal annars eftir því hvernig fiskur veiðist, hvort hann fer í eldi eða á markað og þá hvaða markað. ghs@frettabladid.is Nokkur fyrirtæki sýna túnfiski áhuga Íslendingar hafa lítið hirt um að veiða einn dýrasta fisk í heimi, túnfiskinn, sem gengur inn í íslenska lögsögu. Það gæti þó breyst. Íslendingar eiga tæplega 50 tonna kvóta sem nú er auglýstur. Fleiri en eitt fyrirtæki hafa sýnt áhuga. EINN DÝRASTI FISKUR Í HEIMI Túnfiskur er einn dýrasti fiskur heimi og Íslendingar geta veitt tæplega 50 tonn af honum í ár. Birgir Sigurjónsson útgerðarmaður gerði Eyborgina út á túnfisk í fyrra og segir það hafa gengið ágætlega SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.