Fréttablaðið - 30.01.2009, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 30.01.2009, Blaðsíða 18
BRIDDSHÁTÍÐ stendur nú yfir á Hótel Loftleiðum en hún hófst í gær og stendur fram á sunnudag. Kepp- endurnir eru um þrjú hundruð talsins og hafa aldrei fleiri erlendir spilarar mætt til leiks en í ár. „Við erum að fara að sýna verk- ið Gibbla Yggdrasils sem er nýtt verk eftir okkur,“ segir Katla Þór- arinsdóttir sem er ein af þremur atvinnudönsurum í dansflokknum Darí Darí Dance Company. Verkið verður eitt af fjórum nýjum verkum í sýningaröðinni 108 Prototype. Sýningarnar verða tvær, önnur í kvöld klukkan 21 á Skúlagötu 26, og á sama tíma á laugardagskvöld. Auk Kötlu eru það Guðrún Ósk- arsdóttir og Inga Maren Rúnars- dóttir sem mynda Darí Darí-dans- flokkinn. Þær hafa dansað saman í eitt og hálft ár og voru með fyrstu sýninguna fyrir ári. „Við settum þá upp sýninguna Hoppala í Nor- ræna húsinu og seinna á listahátíð í Barcelona,“ útskýrir Katla en í allt haust unnu þær stöllur í sam- starfi við Íslenska dansflokkinn í danshöfundasmiðjunni. „Við sömd- um stutt dansverk og vorum með kennslu og fræðslu í grunnskólum í Reykjavík,“ segir Katla en verk þeirra Gibbla Yggdrasils byggir á þeim grunni. En hvaðan kemur heitið Gibb- la Yggdrasils? „Orðið gibbla þýðir einhvers konar vera. Okkur fannst það passa vel við okkur. Við þekkjum þessa veru ekki enn þá en kynnumst henni vonandi einn daginn,“ segir Katla glettin en innblásturinn í verkið fengu þær einnig frá aski Yggdrasils og þeirri þekkingu og visku sem trénu fylgir. Það er UglyDuck.Productions, flokkur sjálfstæðra atvinnudans- ara og danshöfunda, sem stend- ur fyrir sýningaröðinni 108 Proto type. Markmiðið með sýn- ingaröðinni sem fór af stað haustið 2006 var að skapa nýjan vettvang þar sem áherslan væri lögð á sköp- unarferlið, hugmyndir, áhættur og tilraunir í danssköpun. Aðrir dansarar í sýningaröð- inni eru Kama Jezierska sem sýnir sólóverkið Angusta, Steinunn Ket- ilsdóttir sem sýnir verk í vinnslu og Katrín Gunnarsdóttir sem sýnir sólóverk í vinnslu sem byggir á rannsóknum á ísbjörnum. solveig@frettabladid.is Dans um tré viskunnar Fjögur ný dansverk verða frumsýnd á sýningaröðinni 108 Prototype í kvöld og annað kvöld. Dansflokkur- inn Darí Darí Dance company er með eitt af fjórum atriðum á sýningunni sem fram fer á Skúlagötu 26. Dansflokkurinn Darí Darí dance company frumsýnir verkið Gibbla Yggdrasils. • Kjólar • Ermar • Leggings • Skart Laugaveg 54, sími: 552 5201 Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf Laugavegi 178 • Sími: 551 2070 Opið: mán - fös: 10 -18, lau 10 -14 www.misty.is VÍNLANDSLEIÐ 6 - S: 533 3109 TOPPSKÓR Á RUGLVERÐI 40-60% afsláttur af kvenstígvélum OPIÐ MÁN.-FÖS. 11 - 18 · LAU. 11 - 16 · SUN. 12 - 16 Ponny Sympate 68465005 & 68165003 Litir: Blár, Svart Style Grand SPR2803TX Litir: Rautt, Grænt, Blátt Barnaskór E-70452 52944 Litur: Marine blár 6.995 kr.- Verð áður: Verð nú: 3.995kr.- 10.995 kr.- Verð áður: 40% afsláttur: 6.597kr.- 6.995 kr.- Verð áður: Verð nú: 3.995kr.- Sérstakt tilboð 2.495kr.- Ecco Snowdrop E-78762 00809 7.995 kr.- Verð áður: Verð nú: 4.495kr.- Cruiser stígvél CRU508223 Litir: Svart, fjólublátt , beige 10.995 kr.- Verð áður: 40% afsláttur: 6.597kr.- Ecco Snowdrop E-7877 25105 3 gerðir

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.