Fréttablaðið - 30.01.2009, Blaðsíða 38
22 30. janúar 2009 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Tónleikar hljómsveitar-
innar For a Minor Reflect-
ion, sem hitaði upp fyrir
Sigur Rós á síðasta ári,
þóttu hápunktur Euros-
onic-hátíðarinnar að mati
breska tímaritsins Music
Week. „Þeir voru hápunkt-
ur Eurosonic-hátíðarinn-
ar í þessum mánuði. Þessi
íslenska hljómsveit býr til
náttúrulega og melódíska
tónlist með alþjóðlegu
yfirbragði,“ sagði gagn-
rýnandi tímaritsins.
Troðfullt var á tónleik-
um hljómsveitarinnar, sem
fóru fram í þrjú hundruð
manna tjaldi. Þrír tónleika-
bókarar hafa nú sýnt sveit-
inni áhuga og til stendur að
hún fari í þriggja vikna tón-
leikaferð í lok maí.
Fram undan hjá hljóm-
sveitarmeðlimum er að
klára skólagöngu og undir-
búa upptöku nýrrar plötu.
Síðan er stefnt á tónleika-
hald í Evrópu í vor og
sumar.
Eurosonic laðar að sér
fulltrúa allra ríkisútvarpa
í Evrópu um leið og hún er
ein helsta hátíð tónleika-
bókara og -haldara. Meg-
intilgangur hennar er að
koma ungum hljómsveitum
og listamönnum á framfæri
við tónlistarhátíðir og tón-
leikahaldara í Evrópu.
Hápunktur Eurosonic-hátíðar
Rapparinn Mike Skinner, betur þekktur sem The Streets, þurfti
á læknisaðstoð að halda eftir sviðsdýfu sem hann tók á tónleik-
um í Cambridge. Hann segist hafa verið sleginn af einhverjum
aðdáendum og vaknaði morguninn eftir með mikla verki.
„Ég hef aldrei upplifað annan eins sársauka en þegar ég var
yngri handleggsbrotnaði ég á báðum höndum og fann varla
fyrir því,“ skrifaði Skinner á bloggsíðu sinni. Sviðsdýfa hans
var með óvenjulegra móti því í stað þess að stökkva ofan af
sviðinu hljóp hann aftast í salinn og lét áhorfendur bera sig upp
á svið.
Meiddist í sviðsdýfu
FOR A MINOR REFLECTION
Hljómsveitin efnilega þótti
standa sig best allra á Euro-
sonic að mati Music Week.
THE STREETS
Mike Skinner
þurfti á læknis-
aðstoð að halda
eftir óvenjulega
sviðsdýfu í
Cambridge.
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/G
ETTY
> ÁNÆGÐ OG GRÖNN
Söngkonan Lily Allen segist
hafa misst nokkur aukakíló
vegna þess að henni líði svo
vel um þessar mundir. Núna
láti hún frönsku kartöflurn-
ar alveg í friði. „Eina ástæðan
fyrir því að ég hef grennst er
að ég borða mikið þegar
mér líður ekki vel,“
sagði Allen.
Virtir fjölmiðlar á borð við
Reuters og AP hafa fjallað
mikið um skipan Jóhönnu
Sigurðardóttur í forsætis-
ráðherrastólinn. Stjörnur á
borð við Conan O‘Brien og
Perez Hilton hafa heldur
ekki látið sitt eftir liggja.
„Íslendingar hafa tilkynnt hver
verður næsti forsætisráðherra;
hún er lesbía og flugfreyja … eða
var mig að dreyma þetta?“ var
ein af skrýtlum kvöldsins hjá
bandaríska spjallþáttastjórnand-
anum Conan O‘Brien. Áhorfendur
í sal sprungu úr hlátri. Jóhanna
er sennilega sá íslenski forsætis-
ráðherra sem fengið hefur hvað
mestu athyglina í heimspressunni,
ef undanskilinn er Geir H. Haarde
fyrstu dagana eftir að bankarnir
hrundu. Og hún er kannski ekki
skrýtin, athyglin sem Jóhanna fær.
Hún er fyrsta konan sem gegn-
ir þessu embætti í sögu Íslands,
landið hefur verið nánast stans-
laust í kastljósi fjölmiðlanna und-
anfarna hundrað daga, auk þess
sem Jóhanna er samkynhneigð,
hefur verið í sambúð með Jónínu
Leósdóttur, leikskáldi og rithöf-
undi frá árinu 2002.
Á það hefur verið bent í erlend-
um fjölmiðlum að Íslendingar
setja hjónabandsstöðu og viðtekn-
ar venjur í sambúð ekki fyrir sig,
ólíkt því sem gerist í öðrum vest-
rænum löndum. Þar þurfa stjórn-
málamenn yfirleitt að hafa óflekk-
að mannorð í þeim málum, helst
að vera hvítir, gagnkynhneigðir
karlmenn með tvö börn og eigin-
konu. Íslendingum sé slétt sama
um einkahagi fólks; þeir hafi til
að mynda kosið einstæða móður
í embætti forseta Íslands. Sem
þóttu mikil tíðindi meðal siða-
vandra borgara hins vestræna
heims.
En aftur að Jóhönnu. Bloggar-
inn Perez Hilton, einhver sá þekkt-
asti í bransanum, óskar Íslend-
ingum til hamingju. Hann hefur
fylgst grannt með gangi mála á
Íslandi, skrifað nokkrar færslur
um íslenska efnahagshrunið og
saup eiginlega hveljur þegar rík-
isstjórn Íslands féll með hvelli.
Perez óskar Jóhönnu góðs gengis
og allrar lukku. „Enda veitir henni
ekki af,“ skrifar Perez á bloggsíðu
sína.
The Sun fer ekki eins og köttur
í kringum heitan graut þegar það
segir frá ráðningu Jóhönnu. „Ice-
land´s new PM is a lesbian,“ er
fyrirsögn á frétt breska blaðsins.
Og þar er síðan rætt við Þórunni
Sveinbjarnardóttur, umhverfis-
ráðherra. „Jóhanna hefur lengst-
an þingferil og Íslendingar elska
hana,“ segir Þórunn við The Sun.
Geir H. Haarde tekur undir það
að einhverju leyti en bætir við að
Jóhanna sé eyðslusamur ráðherra.
freyrgigja@frettabladid.is
Jóhanna í kastljós-
inu um allan heim
Meg White, trommari rokkdúetts-
ins The White Stripes, ætlar að
setja eitt af trommusettum sínum
á uppboð. Með uppátækinu vill hún
koma vini sínum Jim Shaw, sem er
þekktur úr rokksenunni vestan-
hafs, til aðstoðar en hann glímir
nú við krabbamein.
Trommusettið var notað við
tökur á myndbandinu við lagið
The Hardest Button to Button árið
2003. Settið fer á uppboð sjöunda
febrúar ásamt fleiri munum tón-
listarmanna. Meðal annars verða
boðnar upp sjaldséðar ljósmynd-
ir af hljómsveitinni Iggy and the
Stoogies.
Trommusett á uppboð
MEG WHITE Trommari rokkdúettsins
The White Stripes ætlar að bjóða upp
trommusettið sitt.
FJALLAÐ UM JÓHÖNNU
Bæði Perez Hilton og Conan O‘Brien gerðu
skipan Jóhönnu að umtalsefni hjá sér. Conan fékk
salinn til að hlæja þegar hann sagði að nýr for-
sætisráðherra Íslands væri lesbía og flugfreyja. The
Sun fór hins vegar beint af augum í nálgun sinni.
Veljum íslenskt
í Bónus
HEILSUFÆÐI
Það fara fimm kíló af ferskum roðlausum og beinlausum
ýsuflökum í að búa til eitt kíló af Gullfiski. Gullfiskur notar kælda
framleiðsluaðferð, sem tryggir að ferskleiki og næringargildi
vörunnar heldur sér þótt vatnið sé dregið úr henni.
Langhollasti þorramaturinn
VELJUM
ÍSLENSKT