Fréttablaðið - 30.01.2009, Qupperneq 26
8 föstudagur 30. janúar
✽ út með öll kemísk efni
útlit
MARTA MARÍA JÓNASDÓTTIR martamaria@365.is
G amla apótekið byggir fram-leiðslu sína á gömlum upp-
skriftum sem hafa verið þróaðar í
samstarfi við lækna og lyfjafræð-
inga. Vörurnar innihalda gæða
hráefni, lágmarks rotvarnarefni og
eru algjörlega lausar við öll ilm-
og litarefni,“ segir Ólafur Kristins-
son lyfjafræðingur um húðvörur
Gamla apóteksins sem hafa verið
framleiddar frá 1953 og henta
jafnt börnum sem fullorðnum.
„Vörurnar eru framleiddar sam-
kvæmt ströngustu gæðakröfum,
undir handleiðslu lyfjafræðings.
Þær eru upplagðar fyrir þá sem
hafa þurra húð og þá sem þurfa
góð, mýkjandi og rakagefandi
krem samhliða húðlyfjameðferð.
Gamla apótekið býður líka upp á
úrval vara til varnar og meðhöndl-
unar á harðri húð, kælandi, kláða-
stillandi- og sótthreinsandi vörur,
svo eitthvað sé nefnt. Vörurnar
henta fyrir alla sem kjósa vand-
aðar húðvörur, ekki síst fyrir þá
sem þola illa aukefni í kremum,“
bætir hann við, en vörur Gamla
apóteksins fást í flestum apótek-
um um land allt. - ag
Gæðavörur frá Gamla apótekinu:
HÚÐVÖRUR SEM ERU
ÁN ALLRA AUKEFNA
Einfalt Ólafur segir umbúð-
irnar undirstrika einfaldleik-
an varanna sem innihalda
hvorki ilm- né litarefni.
LA BASE FRÁ LANCÔME Til að fá sem fallegasta áferð á húðina skaltu bera á þig
La base frá Lancôme. Þetta undragel sléttar húðina og gerir hana silkimjúka og dásamlega.
Þetta er sérstaklega gott fyrir húðina í frosti og kulda.
Giorgio Armani hefur nú sent frá
sér „Intense“ útgáfu af Empor-
io Armani Diamonds ilmvatninu.
Spennandi kvenlegur blómailmur-
inn sem samanstendur af rósum,
rifsberjum, patchouli og vanillu.
Ómótstæðileg og tælandi blanda.
Unlimited-útgáfan af Fuel for
life frá Diesel er spennandi
nýr ilmur. Gullinn ávaxtailmur
mætir krydduðum blómailmi
með vott af viði og ferskjum.
Ilmvatnið er ekki síður flott
gjöf því glasið er ekki síður
flott, klætt heklaðri hlíf og gull-
keðju. Fáguð lykt sem passar
vel við öll tækifæri.
SLÍPAÐU DEMANT-
INN Í MYRKRINU
Á dögunum var ég stödd hjá vinafólki mínu
þegar líkamsrækt og aðrar mannbætandi at-
hafnir bárust í tal. Vinur minn tilkynnti að
hann væri svo sannarlega ekki í átaki, hann
væri bara aðeins að slípa demantinn.
GERÐU LÍFIÐ SKEMMTILEGRA Þetta fannst mér
alveg frábær frasi enda hlýtur að vera mun
skemmtilegra að hlaupa af sér spikið þegar litið er á fellingar og
aukakíló sem eitthvað dásamlegt en ekki lýti á eigin útliti. Það
að hugsa um heilsuna á þar fyrir utan ekki að vera í „leiðinlega
flokknum“ í lífi okkar heldur eitthvað dásamlega skemmtilegt og
eftirsóknarvert.
VELDU RÉTTAN KLÆÐNAÐ Það er þó hægt að „slípa demantinn“
í fleiri liðum en með líkamsrækt. Það að velja sér réttan klæðnað
hefur ótrúlega mikið að segja og oft er hægt að klípa af sér mörg
kíló með réttu fötunum. Þegar við erum í rétt samsettum fatnaði
sem klæðir okkur vel þá gefum við frá okkur svo góða og jákvæða
strauma að líf okkar verður mun betra fyrir vikið.
VELDU RÉTTA FATASTÆRÐ Það er mjög mikilvægt að velja sér
fatnað í réttri stærð. Of lítil föt gera ekkert fyrir okkur nema skapa
óþægindi. Buxur sem eru of þröngar í strenginn láta okkur líta út
fyrir að vera breiðari um okkur miðjar en við erum í raun og veru.
Of þröngir bolir gera brjóstahaldarafarið enn þá meira áberandi
en það er í raun og veru. Í sjónvarpinu sést langbest þegar fólk er
í of þröngum jökkum, þá ýtast herðapúðarnir upp og fólk verður
ólögulegt í laginu.
BREYTTU OG BÆTTU Á tímum sem þessum þar sem nægjusemi
er dyggð er afar mikilvægt að yfirfara fataskápinn sinn. Best er
að taka allt út úr honum, máta hverja flík áður en hún er sett inn
aftur. Svo er ekki úr vegi að reyna að sjá ljósið í gömlu fötunum
og finna nýjar og spennandi samsetningar án þess að bæta nýju í
skápinn. Ekki gleyma því heldur að það er yfirleitt hægt að breyta
fötum og bæta ef þau passa ekki alveg inn í okkar nýju tilveru.
PRÓFAÐU BARA Þótt ný föt framkalli oft mikla gleði og hamingju
þá er hægt að upplifa slíkt hið sama þegar við röðum gömlu fötun-
um okkar rétt saman. Prófiði bara …
L‘Occitane hefur valið f i m m m i s m u n -
andi afrísk blóm fyrir
nýtt Ultra Rich Body
krem sem kemur að-
eins út í takmörkuðu
upplagi. Kremið er
gefið út í tilefni af 20
ára afmæli Shea but-
ter línu L‘Occitane, en
Shea butter hefur ein-
staklega mýkjandi eigin-
leika. Nýju Ultra Rich Body
kremin innihalda öll 25 prósent
Shea Butter og fást með ilmi af
Acaciu Robinia frá Túnis, rósailm
frá Marokkó og vanillu, Frangipani
og Ylang Ylang frá Madagaskar.
Kremin eru mjög rakagefandi
og henta því sérstaklega vel fyrir
þurra og viðkvæma húð. Þau skilja
ekki eftir olíukennda áferð held-
ur smjúga fljótt inn í húðina og
veita raka í allt að sólarhring eftir
að þau eru borin á líkamann.
Dekraðu við þig í vetrarkuldan-
um með þessu nærandi kremi frá
L‘Occitane á meðan náttúrulegur
blómailmur Afríku leikur um þig.
Nýtt frá L‘Occitane:
Afbragðskrem með
afrískum blómum
Takmarkað upplag Ultra Rich Body
kremin koma aðeins í takmörkuðu upp-
lagi með afrískum blómailmi og fást í
fimm mismunandi tegundum.
ILMAÐU Á ÞORRANUM
Notorious-ilmvatnið frá Ralph
Lauren er bæði djarft og kyn-
þokkafullt. Kryddaður ilmur-
inn endist lengi og hentar vel
í vetur, en hann ber vott af
súkkulaði-, kanil- og mosku-
slykt. Notorious er ilmvatn fyrir
sjálfsöruggar konur sem vilja
vekja athygli.