Fréttablaðið - 02.02.2009, Page 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
MÁNUDAGUR
2. febrúar 2009 — 29. tölublað — 9. árgangur
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Mér þykir óskaplega vænt um þessa lágmynd af Jóni Sigurðs-syni. Hún var í eigu ömmu minn-ar og afa og alltaf á áberandi stað í stofu þeirra enda mikil virðing borin fyrir Jóni á því heimili semog öðrum ísl k
hálsbrotnaði styttan og lenti uppi á háalofti, þar sem hún fannst á unglingsárum mínum, en þá átti að henda henni. Ég gat ekki hugs-að mér að sjá á eftir h
runalega var Jón gulbrúnn á lit, sem mér hugnaðist ekki,“ segir Óðinn Bolli og veltir fy ihvort k
Silfurpoppuð þjóðhetja
Jón forseti Sigurðsson var í virðingarsessi íslenskra stássstofa hjá eldri kynslóðum síðustu aldar, þar
sem traustur vangasvipur hans veitti staðfestu og ábyrgð í hátíðlegu heimilishaldi þjóðar í nýju lýðveldi.
Lágmyndinni af Jóni Sigurðssyni svipar mjög til þeirrar sem prýðir legstein þjóðhetjunnar í Hólavallakirkjugarði og gæti verið
eftirmynd hennar, en sú var gerð af norska myndhöggvaranum Brynjúlfi Bergslien.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FALLEG LÝSING skapar notalega stemningu. Þetta skemmtilega
ljós heitir Stjörnubjartur og er hannað af Hildi Héðinsdóttur og Troels
Jörgensen. Það fæst í Kraum og kostar 37.000 krónur.
Næsta
námskeið
hefst
6 feb k
VEÐRIÐ Í DAG
ÓÐINN BOLLI BJÖRGVINSSON
Lágmyndin af Jóni
höfð á öndvegisstað
• heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
Taktu upp
þráðinn
Tannverndarvikan
2009 er hafin.
TÍMAMÓT 12
2. FEBRÚAR 2009
Fasteignamarkaðurinn ehf. er með til sölu neðri sérhæð ásamt bílskúr í Kópavogi.
Í búðin er 134,3 fermetra og fimm herbergja, staðsett á neðri hæð tveggja hæða hús-næðis ásamt 25,1 fermetra bílskúr við Andarhvarf 11E í Kópavogi.Íbúðin skiptist í flísalagða for-stofu með fataskápum. Parketlagt hol. Flísalagða gestasnyrtingu með glugga. Flísalagða geymslu með skápum á heilum vegg. Inn af geymslu er síðan þvottaher-bergi með glugga og vinnuborði með vaski.
Parketlagða borðstofu, sem er opin við eldhús. Eldhúsið er með innréttingu úr hnotu með hvítu sprautulakki og graníti á borð-um; uppþvottavél er innfelld í inn-réttingu. Rúmgóða, parketlagða stofu með útgangi á verönd til suðausturs. Tvö rúmgóð, parket-lögð barnaherbergi með fataskáp-um. Baðherbergi sem er flísalagt á gólfum og veggjum, með inn-réttingu og baðkari með sturtuað-stöðu; Handklæðaofn er í baðher-
bergi. Stórt, parketlagt hjónaher-bergi með fataskápum.Bílskúr er rúmgóður, með raf-magnsopnara og rennandi heitu
og köldu vatni. Epoxy er á gólfi bílskúrs.
Opið hús verður í dag á milli klukkan 17 og 19.
Fallegur útsýnisstaður
Íbúðin er staðsett á neðri hæð þessa húsnæðis. Hún er fimm herbergja og henni
fylgir rúmgóður bílskúr,
Sími: 586 8080 • Kjarna • Þverholti 2 • 207 Mosfellsbær • www.fastmos.is
10 ár
í MosfellsbæMosfellsbæ Einar Páll Kjærnested,lögg. fasteignasali
Fálkahöfði - Mjög fallegt 148 fm endaraðhús á einni hæð, með inn-byggðum bílskúr V 3
Lágholt 2 - Einbýli
heimili@heimili.is
Sími 530 6500
Erum með fjölda eigna á skrá þar sem fólk er tilbúið að skoða ýmis skipti.Hafðu samband við okkur og kannaðu möguleika á eign í makaskiptum. Þú gætir verið komin í hentugri eign áður en þú veist af.
Búmenn hsfHúsnæðisfélag
Klettháls 1110 ReykjavíkSími 552 5644Fax 552 5944bumenn@bumenn.iswww.bumenn.is
BÚMENN AUGLÝSA ÍBÚÐIR
Bæði félagsmenn og utanfélagsmenn geta gefið tilboð í búsetu-
réttinn.
Réttur til kaupa miðast við 50 ára og eldri.
Þeir sem áhuga hafa er bent á að hafa samband við
skrifstofu félagsins að Kletthálsi 1 í síma 552 5644 milli 9-15,
eða senda tölvupóst á netfangið bumenn@bumenn.is
Akurgerði í VogumTil endurúthlutunar er búseturéttur í nýlegum eins herbergja íbúðum í raðhú-
salengju sem tengist þjónustumiðstöð fyrir eldriborgara í Vogum. Um er að ræða
um 46 fm og 53 fm íbúðir. Einnig er til endurúthlutunat 2ja herbergja íbúð um 67
fm. Íbúðirnar geta verið til afhendingar fl jótlega.Hvammsgata í VogumTil endurúthlutunar er búseturéttur í nýlegur parhúsi. Íbúðin er 3ja herbergja
ásamt bílskúr. Íbúðin er um 90 fm og bílskúrinn um 25 fm. Íbúðin getur verið til
afhendingar fl jótlega.
Kríuland í GarðiTil endurúthlutunar er búseturéttur í nýlegum parhúsum. Um er að ræða 3ja og
4ra herbergja íbúðir um 90 og 105 fm. Um 35 fm bílskúrar fylgja báðum íbúðum.
Íbúðirnar geta verið til afhendingar fl jótlega.Miðnestorg í SandgerðiTil endurúthlutunar er búseturéttur í 2ja herbergja íbúð. Íbúðin er um 74 fm á
þriðju hæð í þriggja hæða lyftuhúsi. Íbúðin getur verið til afhendingar strax.Víðigerði í GrindavíkTil sölu er búseturéttur í 2ja herbergja íbúð í parhúsi. Íbúðinni fylgir garðskáli og
bílskúr. Íbúð og garðskáli er um 91 fm og bílskúr um 28 fm. Íbúðin getur verið til
afhendingar fl jótlega.
Umsóknarfrestur er til 9. febrúar n.k.Hægt er að fá nánari upplýsingum á skrifstofu félagsins í síma 552-5644 milli kl. 9-15.
fasteignir FASTEIGNIR
Fallegur
útsýnisstaður
Sérblað um fasteignir
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Tónlistarmenn
bera vitni
Málsókn Jóhanns
Helgasonar gegn
lagahöfundinum Rolf
Løvland vindur
upp á sig.
FÓLK 22
ÁFRAM FROST Í dag verður hæg
austlæg eða breytileg átt. Víðast
bjart veður en þó hætt við stöku
éljum við suðausturströndina og
á annesjum vestan til. Frost 0-10
stig, kaldast til landsins.
VEÐUR 4
-3
-1
-4
-5
-4
ÓLÖGLEGT NIÐURHAL
Tómlegt í
plötubúðum
Vinsælar plötur ekki fáanlegar
FÓLK 16
Loksins-stjórnin
„Loksins er hér forsætisráðherra
með rætur í verkalýðshreyfing-
unni sem lítur á sig sem fulltrúa
íslenskrar alþýðu“, skrifar Guð-
mundur Andri Thorsson.
Í DAG 10
Á beinu brautina
Fernando Torres sá
um að afgreiða
Chelsea í
stórleik
gærdagsins á
Anfield.
ÍÞRÓTTIR 18
BRETLAND Djúpsjávarkafarar,
sem komust í feitt fyrir tveimur
árum þegar þeir náðu í gullmynt
úr spænskri galeiðu, segjast hafa
gert aðra merka uppgötvun er
þeir fundu sögufrægt breskt her-
skip í Ermarsundi.
Könnunarleiðangurinn, Odyss-
ey Marine Exploration, leitar enn
að um 4 tonnum gullmyntar sem
talið er að hafi verið um borð í
HMS Victory sem sökk í Ermar-
sundi árið 1744. Breska herskips-
flakið fannst í maí en það sökk
fyrir 264 árum síðan. Tekist hefur
að bjarga tveimur látúnsfallbyss-
um úr flakinu. Skipið var stærsta
og best vopnaða skip síns tíma. - hs
Skipsflak finnst í Ermarsundi:
Leita að fjórum
tonnum af gulli
STJÓRNMÁL „Þarna er verið að
styrkja sérfræðiþekkingu innan
ríkisstjórnarinnar, en þessar skip-
anir eru ekki mjög lýðræðisleg-
ar. Þessir nýju ráðherrar eru ekki
kosnir til þings og hafa því ekki
lýðræðislegt umboð þjóðarinnar.
Maður veltir því
fyrir sér hvort
stjórnarflokk-
arnir búi ekki
yfir nógu öflugu
fólki á þessum
sviðum til að
taka þessi ráð-
herraembætti
að sér,“ segir
Baldur Þórhalls-
son stjórnmála-
fræðiprófessor um skipun utan-
þingsráðherra í nýrri ríkisstjórn
sem kynnt var í gær.
Baldur segir nýju stjórnina
veika. „Stjórnin hefur ekki stuðn-
ing nema 27 þingmanna. Stjórn-
arandstaðan hefur á að skipa 29
þingmönnum og því þarf stjórnin
á stuðningi Framsóknar að halda
í hverju einasta frumvarpi sem
hún leggur fram. Stjórnin hefur
líka afar skamman tíma til stefnu
því þingið mun að öllum líkindum
fara í frí nokkrum vikum fyrir
kosningar hinn 25. apríl.“ - kg
Prófessor í stjórnmálafræði:
Ólýðræðisleg
skipun ráðherra
BALDUR
ÞÓRHALLSSON
STJÓRNMÁL Nýmynduð ríkisstjórn
Samfylkingar og Vinstri grænna
hyggst setja lög um séreignar-
sparnað svo sjóðsfélagar sem
komnir eru í fjárhagskröggur geti
fengið fyrirgreiðslu úr honum
tímabundið til þess að borga skuld-
ir sínar.
Í verkefnaskrá hennar sem
kynnt var í gær segir: „Sett verða
lög um séreignarsparnað sem veita
sjóðsfélögum tímabundna heimild
til fyrirframgreiðslu úr séreignar-
sjóðum til að mæta brýnum fjár-
hagsvanda.“
„Það hringdi í mig kona norð-
an úr landi, atvinnulaus með þrjú
börn, sem á talsverða peninga
inni á svona reikningi en á í mikl-
um erfiðleikum með að ná endum
saman í dag. Orð hennar duga mér
eiginlega sem rök, því hún sagð-
ist heldur vilja að börnin sín fái að
borða í vetur en að hún eigi ein-
hvern sparnað þegar hún kemst
á elliárin. Það er kannski ein-
falda röksemdafærslan í þessu,“
segir Steingrímur J. Sigfússon,
nýr fjármála-, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra. Hann segir
ekki tímabært að lýsa mögulegum
framkvæmdaleiðum nákvæmlega.
„Hugsanlegar leiðir verða að sjálf-
sögðu ræddar við sjóðina áður en
endanleg ákvörðun verður tekin.
Ætlunin er ekki að galopna þessa
sjóði heldur að skoða hvernig þetta
geti orðið fólki í knýjandi þörf til
bjargar. Bæði er hægt að hugsa
sér að þetta verði almennar regl-
ur með tilteknum takmörkunum og
líka að staða fólks verði skilgreind
í þessu tilliti,“ segir Steingrímur.
„Ég var með frumvarp í smíðum
sem kvað á um það sama og hefði
verið kynnt fyrir ríkisstjórninni á
þriðjudag í síðustu viku hefði hún
fundað þá,“ segir Árni Mathie-
sen, fráfarandi fjármálaráðherra.
Hann segir þó ákveðna hættu geta
falist í þessari leið. „Sérstaklega
fyrir minni sjóðina sem ekki hafa
mikið lausafé,“ útskýrir hann.
„Þeir gætu þá hugsanlega þurft að
selja það sem er auðseljanlegast úr
skuldabréfasafninu til að greiða út
og þá sætu eftir bréf sem eru ekki
jafn mikils virði. Þá gætu þeir sem
ættu eftir í sjóðnum setið uppi með
slakari eign.“
Hann segist ekki sjá á verk-
efnaskrá nýrrar ríkisstjórnar af
hverju Samfylkingin hefði þurft að
slíta samstarfinu við Sjálfstæðis-
flokkinn því á skránni séu meira
og minna sömu mál og sami andi
og unnið var eftir í síðustu ríkis-
stjórn. - jse,kg / sjá síður 4 og 6.
Fólk í kröggum fær
sparnað greiddan út
Ný ríkisstjórn vill opna séreignarsparnað tímabundið fyrir þá sem eru í fjár-
hagskröggum. Frumvarp um þetta hefði verið kynnt í síðustu viku ef ekki hefði
komið til stjórnarslita, segir Árni M. Mathiesen fyrrverandi fjármálaráðherra.
VAKTASKIPTI Í FORSÆTISRÁÐUNEYTINU Jóhanna Sigurðardóttir, nýr forsætisráðherra Íslendinga, tók við lyklunum úr hendi Þor-
gerðar Katrínar Gunnarsdóttur, fráfarandi menntamálaráðherra, í gær. Þorgerður leysti Geir Haarde, fráfarandi forsætisráðherra, af
við þetta tilefni, en hann flaug til Hollands í gær í aðgerð vegna illkynja æxlis í vélinda. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Á GÖMLUM VOLVO Steingrímur mætti á
Bessastaði á forláta sænskri bifreið.