Fréttablaðið - 02.02.2009, Blaðsíða 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Gerðar Kristnýjar
Í dag er mánudagurinn 2. febrú-
ar, 33. dagur ársins.
10.04 13.41 17.19
10.02 13.26 16.52
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Njóttu lífsins
í London eða
Køben!
með ánægju
Hvernig væri að taka sér frí frá daglegu amstri og skella sér til
London eða Kaupmannahafnar? Það er alltaf nóg um að vera í
þessum skemmtilegu borgum, hvort sem þú vilt hasar eða
huggulegheit.
Bókaðu ferð á betra verði til London eða
Kaupmannahafnar á www.icelandexpress.is
– þú hefur gott af því að skreppa út!
Gatwick!
Frá og með 1. maí
flytjum við okkur yfir á
Gatwick-flugvöll í London
Helgarferð til
London
13.–15. mars
Verð á mann í tvíbýli
58.900 kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum
og gisting á 4* hóteli með morgunverði.
Helgarferð til Kaupmannahafnar
6.–8. mars
Verð á mann í tvíbýli
59.900 kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum og
hótelgisting með morgunverði.
Nánar á www.expressferdir.is
og í síma 5 900 100
Lyfja Lágmúla
Lyfja Smáratorgi
OPIÐ 8-24 ALLA DAGA
- Lifið heil
Það gerist allt of sjaldan að bók heilli mann svo mikið að hún
víkur ekki úr huganum löngu eftir
að lestrinum er lokið. Nú fyrir jólin
kom ein slík bók út, Dagbók Hélène
Berr í þýðingu Ólafar Pétursdótt-
ur. Hélène var frönsk gyðinga-
stúlka, fædd árið 1921 í París og
lagði stund á ensku við Sorbonne.
Hélène hóf að skrifa dagbók árið
1942 og hélt því áfram til ársins
1944 en þá voru hún og foreldrar
hennar flutt í þýskar fangabúðir. Í
dagbókinni veitir Hélène dýrmæta
innsýn í líf gyðinga í París á valda-
tíma Þjóðverja.
ÓTTINN varð fljótt heimavan-
ur hjá fjölskyldu hennar þótt allir
hafi gert sitt besta til að leiða
hann hjá sér og halda sínu striki.
Hélène vílaði ekki fyrir sér að
stofna ólögleg samtök sem reyndu
að bjarga gyðingabörnum og eru
lýsingar hennar á ástandi sumra
þeirra mjög átakanlegar. Fransk-
ir gyðingar voru fangelsaðir hver
á fætur öðrum og sögur tóku að
berast um að börn væru notuð til
að „fylla upp í“ lestarklefana sem
notaðir voru til flutninganna til
Þýskalands. Hélène velti því fyrir
sér hvort hryllingssögurnar sem
hún heyrði gætu verið sannar,
hvort svo mikil grimmd gæti fyr-
irfundist í heiminum og lesandinn
stendur sig að því að kinka kolli.
Hann veit betur en stúlkan þegar
hún skrifaði bókina.
SJÁLF sagði Hélène vinkonu sinni
að líklega yrði hún í síðustu ofn-
fyllinni og hafði næstum því rétt
fyrir sér. Hún lést úr taugaveiki
í Bergen-Belsen fáeinum dögum
áður en bandamenn frelsuðu búð-
irnar. Hélène átti því eftir að finna
á eigin skinni að sögurnar voru
sannar. Aðeins leið mánuður á milli
andláts hennar og annars dagbóka-
ritara, Önnu Frank, og báðar dóu
þær í Bergen-Belsen. Það sem
gerir Dagbók Hélène Berr jafn
magnaða og raun ber vitni er hvað
stíllinn er fallegur og frásagnar-
gáfan lifandi.
ÞÓTT verið sé að lýsa grimmd,
sorg, nötrandi hræðslu og niðurlæg-
ingunni yfir að þurfa að bera gulu
gyðingastjörnuna skín ást Hélène
til ungra skjólstæðinga sinna alltaf
í gegn og fegurð heimaborgar henn-
ar, Parísar. Fyrst og fremst lýsir
dagbókin samt ótrúlegum kjarki
ungrar konu sem afhenti vinnu-
konunni skrifin sín með reglu-
legu millibili ef vera skyldi að hún
sjálf yrði handtekin næst. Hélène
Berr fannst mikilvægara að koma
vitnisburði sínum undan en sjálfri
sér, vitnisburði sem fær fólk nú 50
árum síðar til að falla í stafi.
Stjörnuprýdd
saga