Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.02.2009, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 02.02.2009, Qupperneq 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Gerðar Kristnýjar Í dag er mánudagurinn 2. febrú- ar, 33. dagur ársins. 10.04 13.41 17.19 10.02 13.26 16.52 F í t o n / S Í A Njóttu lífsins í London eða Køben! með ánægju Hvernig væri að taka sér frí frá daglegu amstri og skella sér til London eða Kaupmannahafnar? Það er alltaf nóg um að vera í þessum skemmtilegu borgum, hvort sem þú vilt hasar eða huggulegheit. Bókaðu ferð á betra verði til London eða Kaupmannahafnar á www.icelandexpress.is – þú hefur gott af því að skreppa út! Gatwick! Frá og með 1. maí flytjum við okkur yfir á Gatwick-flugvöll í London Helgarferð til London 13.–15. mars Verð á mann í tvíbýli 58.900 kr. Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum og gisting á 4* hóteli með morgunverði. Helgarferð til Kaupmannahafnar 6.–8. mars Verð á mann í tvíbýli 59.900 kr. Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum og hótelgisting með morgunverði. Nánar á www.expressferdir.is og í síma 5 900 100 Lyfja Lágmúla Lyfja Smáratorgi OPIÐ 8-24 ALLA DAGA - Lifið heil Það gerist allt of sjaldan að bók heilli mann svo mikið að hún víkur ekki úr huganum löngu eftir að lestrinum er lokið. Nú fyrir jólin kom ein slík bók út, Dagbók Hélène Berr í þýðingu Ólafar Pétursdótt- ur. Hélène var frönsk gyðinga- stúlka, fædd árið 1921 í París og lagði stund á ensku við Sorbonne. Hélène hóf að skrifa dagbók árið 1942 og hélt því áfram til ársins 1944 en þá voru hún og foreldrar hennar flutt í þýskar fangabúðir. Í dagbókinni veitir Hélène dýrmæta innsýn í líf gyðinga í París á valda- tíma Þjóðverja. ÓTTINN varð fljótt heimavan- ur hjá fjölskyldu hennar þótt allir hafi gert sitt besta til að leiða hann hjá sér og halda sínu striki. Hélène vílaði ekki fyrir sér að stofna ólögleg samtök sem reyndu að bjarga gyðingabörnum og eru lýsingar hennar á ástandi sumra þeirra mjög átakanlegar. Fransk- ir gyðingar voru fangelsaðir hver á fætur öðrum og sögur tóku að berast um að börn væru notuð til að „fylla upp í“ lestarklefana sem notaðir voru til flutninganna til Þýskalands. Hélène velti því fyrir sér hvort hryllingssögurnar sem hún heyrði gætu verið sannar, hvort svo mikil grimmd gæti fyr- irfundist í heiminum og lesandinn stendur sig að því að kinka kolli. Hann veit betur en stúlkan þegar hún skrifaði bókina. SJÁLF sagði Hélène vinkonu sinni að líklega yrði hún í síðustu ofn- fyllinni og hafði næstum því rétt fyrir sér. Hún lést úr taugaveiki í Bergen-Belsen fáeinum dögum áður en bandamenn frelsuðu búð- irnar. Hélène átti því eftir að finna á eigin skinni að sögurnar voru sannar. Aðeins leið mánuður á milli andláts hennar og annars dagbóka- ritara, Önnu Frank, og báðar dóu þær í Bergen-Belsen. Það sem gerir Dagbók Hélène Berr jafn magnaða og raun ber vitni er hvað stíllinn er fallegur og frásagnar- gáfan lifandi. ÞÓTT verið sé að lýsa grimmd, sorg, nötrandi hræðslu og niðurlæg- ingunni yfir að þurfa að bera gulu gyðingastjörnuna skín ást Hélène til ungra skjólstæðinga sinna alltaf í gegn og fegurð heimaborgar henn- ar, Parísar. Fyrst og fremst lýsir dagbókin samt ótrúlegum kjarki ungrar konu sem afhenti vinnu- konunni skrifin sín með reglu- legu millibili ef vera skyldi að hún sjálf yrði handtekin næst. Hélène Berr fannst mikilvægara að koma vitnisburði sínum undan en sjálfri sér, vitnisburði sem fær fólk nú 50 árum síðar til að falla í stafi. Stjörnuprýdd saga

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.