Fréttablaðið - 02.02.2009, Blaðsíða 26
18 2. febrúar 2009 MÁNUDAGUR
sport@frettabla-
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
20. – 22. febrúar
20. – 22. febrúar
Verð á mann:
49.900 kr.
39.900 kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum
greiðslum og miði á leik.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum
greiðslum og miði á leik.
Nánar á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
Man. Utd.
Blackburn
Arsenal
Sunderland
Verð á mann:
TILBOÐ!
TILBOÐ!
Enska úrvalsdeildin:
Liverpool-Chelsea 2-0
1-0 Fernando Torres (89.), 2-0 Fernando Torres
(90.).
Newcastle-Sunderland 1-1
0-1 Djibril Cisse (32.), 1-1 Shola Ameobi, víti (68.)
Stoke-Man. City 1-0
1-0 James Beattie (45.).
Arsenal-West Ham 0-0
Aston Villa-Wigan 0-0
Bolton-Tottenham 3-2
1-0 Sebastian Puygrenier (31.), 2-0 Kevin Davies
(87.), 2-1 Darren Bent (73.), 2-2 Darren Bent
(75.), 3-2 Kevin Davies (87.).
Fulham-Portsmouth 3-1
1-0 Andy Johnson (14.), 2-0 Erik Nevland (71.),
3-0 Erik Nevland (80.), 3-1 David Nugent (84.).
Hull City-WBA 2-2
1-0 Bernard Mendy (44.), 1-1 Jay Simpson (53.),
2-1 Craig Fagan (69.), 2-2 Chris Brunt, víti (73.).
Middlesbrough-Blackburn 0-0
Man. Utd-Everton 1-0
1-0 Cristiano Ronaldo, víti (44.).
STAÐA EFSTU LIÐA:
Man. Utd 23 16 5 2 40-10 53
Liverpool 24 14 9 1 39-15 51
Chelsea 24 14 6 4 44-15 48
Aston Villa 24 14 6 3 38-24 48
Arsenal 24 12 7 5 38-25 43
HM í handbolta:
1. sætið: Króatía-Frakkland 19-24 (12-11)
Markah. hjá Kró: Ivan Cupic 6/4, Blazenko Lack-
ovic 4, Goran Sprem 3, Igor Vori 2.
Markah. hjá Fra: Michael Guigou 10/7, Daniel
Narcisse 6, N. Karabatic 2, J. Fernandez 2.
3. sætið: Danmörk-Pólland 23-31
Markah. hjá Dan.: Mikkel Hansen 10, Lars Christi-
ansen 7, Hans Lindberg 2, Thomas Mogensen 2.
Markah. hjá Pól.: Karol Bielecki 10, Tomasz
Tluczynski 5, Kryzstof Lijewski 4.
N1-deild kvenna:
Fram-FH 34-29
Stjarnan-Fylkir 33-25
Mörk Stjörnunnar: Alina Petrache 10, Kristín
Clausen 6, Hildur Harðardóttir 5, Aðalheiður
Hreinsdóttir 3, Þorgerður Atladóttir 3, Þórhildur
Gunnarsdóttir 2, Esther Ragnarsdóttir 1, Harpa Sif
Eyjólfsdóttir 1, Sólveig Lára Kjærnested 1.
Mörk Fylkis: Sunna Jónsdóttir 8, Rebekka Rut
Skúladóttir 4, Hanna Sigurjónsdóttir 4, Nataly
Valencio 4, Ásdís Guðmundsdóttir 2.
Valur-HK 39-26
Mörk Vals: Eva Barna 9, Hildigunnur Einarsdóttir
8, Drífa Skúladóttir 4, Hrafnhildur Skúladóttir 4,
Íris Ásta Pétursdóttir 4, Ágústa Edda Björnsdóttir
4, Dagný Skúladóttir 2, Berglind Íris Hansdóttir 1.
Mörk HK: Arna Sif Pálsdóttir 9, Pavla Plaminkova
4, Elísa Ósk Viðarsdóttir 4, Brynja Magnúsdóttir 4,
Elva Björg Arnarsdóttir 3, Tinna Rögnvaldsdóttir 1.
Knattspyrnumaðurinn Óli Stefán Flóventsson segist bjartsýnn á að
komast að hjá norska 2. deildarliðinu Flöy en hann fór og æfði með
liðinu á dögunum.
„Það stefnir allt í að ég fari út en það er ekkert fast í hendi enn
sem komið er. Ég er engu síður bjartsýnn á að þetta muni ganga
upp. Hugurinn stefnir út og vonandi komumst við út. Ef þetta gengur
upp er það hið besta mál enda er allt stórfínt þarna úti,“ sagði Óli
Stefán sem er samningsbundinn Fjölni. „Ég er búinn að ræða við þá
og hef mætt miklum skilningi. Á því ekki von á að það verði neitt
vandamál.“
Óli Stefán mun ekki fara í fulla atvinnumennsku í Noregi heldur
mun hann vinna með fótboltanum. Norska félagið er því að skoða
atvinnumöguleika fyrir Óla og konuna hans en Óli er sjúkraliði og
konan hans deildarstjóri á leikskóla. Þau vilja eðlilega vinna í svipuðu
umhverfi og þau hafa verið að gera hér heima.
„Ég vil vinna sem sjúkraliði eða skoða tengt nám jafnvel. Ef ég færi
að vinna þá gæti ég verið að vinna á öldrunarstofnunum, sjúkrahús-
um og geðdeildum sem er mjög spennandi dæmi. Svo langar mig
mikið að skoða slökkviliðið og sjúkrabílinn. Það skoða ég þegar ferli
lýkur enda ganga þær vaktir ekkert sérstaklega
vel með fótboltanum,“ sagði Óli Stefán sem
segir umhverfið hér heima hafa mikið með
þá ákvörðun að gera að þau vilja flytja.
„Þetta eru ekki spennandi tímar hér heima
á Íslandi núna. Auðvitað er samt gaman í
Fjölni og því sem við erum að gera þar en
ég held að maður verði að hugsa um sjálfan
sig til tilbreytingar núna,“ sagði Óli en hann
ber bænum Kristianstad vel söguna en
þangað myndi hann flytja ef af yrði.
„Þetta er fáránlega flottur staður.
Þarna búa um 100 þúsund
manns og er algjör sumarparad-
ís. Bærinn er syðst í Noregi og
veðurfar því fínt. Svo skemmir
ekki fyrir að systir mín er nýflutt
þangað,“ sagði Óli Stefán
jákvæður og bjartsýnn.
ÓLI STEFÁN FLÓVENTSSON: BJARTSÝNN Á AÐ KOMAST AÐ HJÁ NORSKA LIÐINU FLÖY
Ekki spennandi tímar til að búa á Íslandi
FÓTBOLTI Þrátt fyrir ótrúlegt
gengi Man. Utd þessa dagana er
stjóri liðsins, Sir Alex Ferguson,
ekkert að missa sig og einbeitir
sér að því að halda sínum mönn-
um á jörðinni.
United vann enn og aftur á
laugardaginn, 1-0 gegn Everton,
og hélt þess utan hreinu í tólfta
deildarleiknum í röð.
„Við höfum forskot en ekkert
rosalegt forskot þegar það eru
sextán leikir eftir,“ sagði Fergu-
son. „Fram undan eru erfiðir
leikir og lið munu tapa stigum.
Það er alltaf best að vera á toppn-
um. Ég vona bara að við töpum
færri stigum en hin toppliðin.“
United hefur ekki fengið á sig
mark í ensku deildinni síðan 8.
nóvember í fyrra er Samir Nasri
skoraði fram hjá Edwin van der
Sar.
„Þetta er ótrúlegt. Ég trúði
varla því sem stóð þegar ég las að
við hefðum síðast fengið á okkur
mark í nóvember. Það er lygi-
legt,“ sagði Ferguson. - hbg
Sir Alex Ferguson:
Heldur mönn-
um á jörðinni
HANDBOLTI Frakkar urðu heims-
meistarar í þriðja skipti þegar
þeir lögðu heimamenn frá Króa-
tíu, 24-19. í mögnuðum úrslita-
leik í gær. Áður höfðu Frakkar
orðið heimsmeistarar árið 1995
á Íslandi og 2001 í Frakklandi.
Úrslitaleikurinn var mögnuð
skemmtun. Leikurinn hnífjafn,
stemningin í höllinni í Zagreb
rosaleg og átökin mikil. Heima-
menn höfðu undirtökin lengi
framan af en aldrei munaði
meiru en einu til tveimur mörk-
um á liðunum. Það var svo undir
lokin sem Frakkar tóku öll völd
á vellinum, vörnin hrökk held-
ur betur í gírinn og sóknarleikur
Króatanna alls ekki nógu beitt-
ur.
Frakkar því heims- og Ólymp-
íumeistarar og geta náð þrenn-
unni eftirsóttu í Austurríki næsta
janúar þegar EM fer fram. - hbg
Frakkar urðu heimsmeistarar í handbolta í gær:
Þriðji titill Frakka
MEISTARAR Jerome Fernandez hampar
hér sigurverðlaunum í Zagreb í gær.
NORDIC PHOTOS/AFPHM Í HANDBOLTA
Lið mótsins:
Markv.: Thierry Omeyer, Fra.
Lína: Igor Vori, Króatía
v. horn: Michael Guigou, Fra.
v. skytta: Blazenko Lackovic, Kró.
Miðja: Nikola Karabatic, Fra.
h. skytta: Marcin Lijewski, Pól.
h. horn: Ivan Cupic, Króatía
Besti leikmaður mótsins:
Igor Vori Króatía
FÓTBOLTI Liverpool komst aftur á
beinu brautina í gær er það lagði
Chelsea, 2-0, í uppgjöri liðanna í
öðru sæti deildarinnar. Það var
Spánverjinn Fernando Torres sem
skoraði bæði mörk leiksins á loka-
mínútunum.
Frank Lampard fékk að fjúka
af velli á 60. mínútu með beint
rautt spjald en það þótti nokkuð
umdeildur dómur. Að sama skapi
þótti mjög umdeilt að Mike Riley
dómari skyldi ekki henda Bosing-
wa af velli þegar hann sparkaði í
bak leikmanns Liverpool við horn-
fánann. Atvikið átti sér stað fyrir
framan nefið á aðstoðardómaran-
um sem brást illilega þar.
Liverpool var beittara liðið lung-
ann af leiknum en Petr Cech varði
oft ágætlega. Hann var aftur á
móti algjörlega úti á túni í fyrra
marki Chelsea. Þá skallaði Torr es
á nærstöng eftir fyrirgjöf og Cech
var hrikalega illa staðsettur og
átti aldrei möguleika í skallann.
Ashley Cole gaf síðan síðara mark-
ið. Lét Benayoun hrifsa af sér bolt-
ann sem endaði síðan hjá Torres
sem var ekki í vandræðum með
að skora.
„Við vissum að við yrðum að
vinna þennan leik og það verður að
játast að það er meira sjálfstraust
í liðinu eftir þennan leik,“ sagði
Torres sem var að skora sín fyrstu
deildarmörk síðan í október.
„Að skora fyrstu mörkin eftir
meiðslin á heimavelli sem og gegn
Chelsea er auðvitað æðislegt. Við
vissum að Chelsea yrði að verjast
eftir að Lampard fór af velli. Jafn-
tefli hefði hentað þeim vel en við
urðum að vinna,“ sagði Torres.
Luiz Felipe Scolari, stjóri Chel-
sea, var afar ósáttur við rauða
spjaldið sem Lampard fékk og vill
að Riley skoði það betur.
„Úrslitin eru eðlileg eftir það
sem gerðist fyrir Lampard. Þá var
Liverpool betra liðið og meira með
boltann en það var ekki þannig
fram að því. Ég vil að dómarinn
skoði þetta spjald í sjónvarpi og
vonandi dragi spjaldið til baka.
Mér fannst þetta vera brot á hinn
leikmanninn,“ sagði Scolari en
hann vill ekki missa Lampard í
bann. Brasilíumaðurinn gat þó
ekki varið Bosingwa.
„Ef Bosingwa hefði verið rek-
inn af velli hefði ég ekki kvartað.
Það er hægt að sætta sig við rautt
spjald fyrir þannig hegðun en ekki
fyrir það sem Lampard gerði,“
sagði Scolari.
henry@frettabladid.is
Gjafmildir Lundúnabúar
Chelsea færði Liverpool tvö mörk á silfurfati á Anfield í gær. Sigur Liverpool
engu síður verðskuldaður. Frank Lampard fékk að líta rauða spjaldið sem þótti
umdeildur dómur. Jose Bosingwa var stálheppinn að sleppa við rautt.
MÆTTUR AFTUR Fernando Torres skoraði í gær sín fyrstu deildarmörk fyrir Liverpool
síðan í október. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
> Messi bjargaði Barcelona
Argentínski snillingurinn Lionel Messi sá til þess í gær að
Barcelona heldur tólf stiga forystu í spænsku deildinni.
Þá lagði Barcelona lið Racing Santander, 2-1. Santander
komst yfir í leiknum og gekk vel að halda aftur af Bör-
sungum allt þar til Messi kom af bekknum á 60. mínútu.
Messi jafnaði leikinn á 65. mínútu og
skoraði svo sigurmarkið einum tíu
mínútum fyrir leikslok. Eiður Smári
Guðjohnsen var einnig á varamanna-
bekk Barcelona en fékk að spila
síðustu sjö mínúturnar.