Fréttablaðið - 02.02.2009, Síða 2
2 2. febrúar 2009 MÁNUDAGUR
VINNUMARKAÐUR Hundruð manna
urðu atvinnulaus nú um helgina
þegar uppsagnarfrestur tók gildi
hjá stórum hópi fólks. Um þrettán
þúsund manns eru nú á atvinnu-
leysisskrá og fer þeim hraðfjölg-
andi. Sigurbjörg Pétursdóttir inn-
anhússarkitekt er ein af þeim sem
hafa verið atvinnulausir lengi.
Sigurbjörg hafði verið í viku í
vinnu hjá Bauhaus síðasta haust
þegar bankarnir hrundu. Tugum
manna var þá sagt upp, þar á
meðal henni. Sigurbjörg var aðeins
með viku uppsagnarfrest og hefur
verið atvinnulaus síðan. „Ég fékk
sjokk,“ segir hún.
Uppsögnin kom þétt í kjölfarið á
bankahruninu. Áfallið var gríðar-
legt og Sigurbjörg segist hafa orðið
þunglynd. „Fótunum var kippt
undan mér. Ég var fertug þegar
ég seldi allar eigur mínar og fór
utan í nám. Ég hef alla tíð unnið
fyrir mér og unnið mikið. Ég hef
nú unnið sem innanhússarkitekt
í tólf ár og allt í einu var grund-
völlur tilverunnar brostinn. Mér
fannst ég ein í heiminum.“
Sigurbjörg hefur sótt um fjöl-
mörg störf og boðist eitt verslun-
arstarf í Kringlunni en þar voru
mánaðarlaunin ekki hærri en
atvinnuleysisbæturnar þannig að
hún sá sér ekki fært að taka því.
Sigurbjörg telur virðingarleysi að
fá ekki svar við atvinnuumsókn-
um, ekki einu sinni afsvar, eins og
er alltof algengt og segir það nið-
urbrjótandi. „Þetta fer rosalega
illa með fólk.“
Sigurbjörg segist hafa verið
„komin með kvíðahnút og ótta.
Fyrst eftir að ég varð atvinnulaus
var ég bara að átta mig á þessu,
fór að kíkja í kringum mig eftir
starfi og velta fyrir mér hvað ég
gæti gert. Svo fór atvinnuástand-
ið hríðversnandi og alltaf var verið
að segja upp fólki í mínum geira
og að lokum datt ég alveg niður og
komst ekki fram úr rúmi,“ segir
hún.
„Ég fór til læknis og leitaði síðan
til VR sem er frábært félag. Ég hef
fengið hálfgildings áfallahjálp hjá
þeim, farið í viðtöl hálfsmánaðar-
lega og það hefur gefið mér mikinn
stuðning. Svo hef ég nýtt mér þjón-
ustu VR, til dæmis Hlutverkasetr-
ið,“ segir hún og telur miklu skipta
að hafa rútínu og halda sér félags-
lega virkum.
Sigurbjörg er 53 ára og eina fyr-
irvinnan á heimilinu. Ein dóttir
býr heima. Sigurbjörg segist reyna
að þrauka. Hún hafi húsnæðislán
hjá Íbúðalánasjóði og myntkörfu-
lán á bílnum og fengið frystingu í
eitt ár. Hún veit ekkert hvað tekur
við eftir það. ghs@frettabladid.is
Nýttu þér framúrskarandi þekkingu
og þjónustu ásamt úrvalinu á stærsta
varahlutalager landsins fyrir allar
tegundir bíla.
Gerðu vel við bílinn þinn!
100.000
vörunúmer.
1 símanúmer.
N1.ISN1 440 1000
Á B Y R G Ð
V A R A H L U T I R
3 ÁRA
Þráinn, þýðir þetta nýtt líf
fyrir Framsóknarflokkinn?
„Já, það er kominn tími til að rifja
upp nýtt og betra líf.“
Þráinn Bertelsson rithöfundur stefnir á
efsta sæti á lista Framsóknar í öðru hvoru
Reykjavíkurkjördæmanna í komandi
alþingiskosningum, en hann sagði sig úr
flokknum vegna stuðnings við Íraksstríðið
árið 2003. Þráinn leikstýrði hinni ógleym-
anlegu kvikmynd „Nýtt líf“ árið 1983.
KENÝA Eitt skæðasta slys í Afríku
síðastliðin ár varð í Molo í Kenía
þegar eldur braust út í olíuflutn-
ingabíl aðfaranótt sunnudags.
Bíllinn varð skyndilega alelda
þegar fólk reyndi að ná sér í olíu
úr bílnum sem valt. Yfir 100
manns létust og um 200 slösuð-
ust í eldhafinu sem orsakaðist
líklega af sígarettuglóð.
Stjórnvöld í Kenía hafa nýlega
verið gagnrýnd fyrir lélegar
öryggisreglur en um 30 manns
létu lífið síðastliðinn miðvikudag
þegar eldsvoði braust út í stór-
markaði í miðbæ Naíróbí. - hs
Olíuflutningabíll alelda:
Yfir 100 látnir
eftir eldsvoða
ÍSRAEL Forsætisráðherra Ísraels,
Ehud Olmert, hét því í gær að
brugðist yrði harðlega við fleiri
loftskeytaárásum á Ísrael frá
Gasasvæðinu.
Ísraelar og Hamas-samtök-
in lýstu yfir hvorir sínu vopna-
hléinu fyrir hálfum mánuði sem
bundu enda á þriggja vikna árás-
ir Ísraela á Gasasvæðið. Loft-
skeytum var hins vegar skotið á
Ísrael bæði í gær og í fyrradag
og lenti eitt þeirra á milli tveggja
leikskóla í Eshkol-héraði í Suður-
Ísrael í gær. Annað sprakk nálægt
borginni Ashkelon en engan sak-
aði.
„Við höfum sagt að ef loft-
skeytaárásum linnir ekki á suður-
hluta landsins þá munu viðbrögð
okkar verða í öfugu hlutfalli við
árásir á ísraelska borgara og
öryggissveitir landsins,“ sagði
Olmert og nefndi einnig að ekki
yrði samþykkt að taka aftur upp
gamlar leikreglur heldur yrði
leikið eftir nýjum reglum sem
tryggja myndu að Ísraelsmenn
yrðu ekki dregnir inn í endalaus-
ar gagnárásir sem standa í vegi
fyrir eðlilegu lífi í suðurhluta
landsins.
Um 1.300 Palestínumenn og
10 ísraelskir hermenn létu lífið í
þriggja vikna árás Ísraelsmanna
en 3 ísraelskir borgarar létust í
loftskeytaárásum.
-hs
Forsætisráðherra Ísraels heitir hörðum viðbrögðum við loftskeytaárásum:
Ísraelsstjórn heitir hefndum
Var komin með
kvíðahnút og ótta
Hundruð manna urðu atvinnulaus nú um mánaðamótin. Þrettán þúsund eru
án atvinnu. Sigurbjörg Pétursdóttir innanhússarkitekt var komin með kvíða-
hnút og ótta í atvinnuleysinu. Hún segir mestu skipta að halda rútínu og virkni.
Allt í einu var grundvöll-
ur tilverunnar brostinn.
SIGURBJÖRG PÉTURSDÓTTIR
INNANHÚSSARKITEKT
■ Halda rútínu
■ Hreyfa sig reglulega
■ Fara út á hverjum degi
■ Reyna að hitta fólk á hverj-
um degi
■ Leita aðstoðar, til dæmis hjá
stéttarfélagi
■ Nýta alla þjónustu í boði
■ Hugsa bara um einn dag í
einu
■ Halda áfram að leita að
vinnu
SIGURBJÖRG
RÁÐLEGGUR
FANNST ÉG VERA EIN Í HEIMINUM
„Allt í einu var grundvöllur
tilverunnar brostinn,“ segir Sigur-
björg Pétursdóttir innanhússarki-
tekt sem hefur verið atvinnulaus
frá því í haust. Hún er í hópi
þrettán þúsund manna sem eru
atvinnulausir á Íslandi í dag.FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
STJÓRNMÁL Framsóknarflokkur-
inn er nú með fimmtán prósenta
fylgi, samkvæmt þjóðarpúlsi
Gallup. Þetta er sjö prósentustiga
aukning frá því í desember. Á
sama tíma hefur fylgi Samfylk-
ingarinnar minnkað um sex pró-
sentustig og mælist 22 prósent.
Vinstri græn hafa mest fylgi
kjósenda, eða þrjátíu prósent.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist
með 24 prósenta fylgi. Frjáls-
lyndi flokkurinn og Íslandshreyf-
ingin mælast hvor um sig með
þriggja prósenta fylgi. Fjögur
prósent aðspurðra segjast ætla
að kjósa önnur framboð. - hhs
Vinsældir Framsóknar aukast:
Með fimmtán
prósenta fylgi
FORYSTA FRAMSÓKNAR Fylgi við Fram-
sóknarflokkinn jókst um sjö prósentu-
stig á milli desember og janúar.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
LÖGREGLUMÁL Hraðbanka var
stolið úr verslunarmiðstöðinni
Sunnumörk í Hveragerði aðfara-
nótt sunnudags.
Hraðbankinn var í anddyri
verslunarmiðstövarinnar og var
hann numinn á brott í heilu lagi.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi
er unnið að rannsókn málsins og
er verið að fara yfir upptökur úr
öryggismyndavélum. Líklegt er
að nokkrir hafi verið að verki þar
sem hraðbankar af þessu tagi
eru rúmlega 500 kíló að þyngd.
Man lögreglan aðeins eftir einu
öðru tilfelli þar sem hraðbanka
var stolið í heilu lagi á Íslandi.
Enn hefur ekki verið gefið upp
hve miklir peningar voru í bank-
anum. - hs
Stálu hraðbanka í Hveragerði:
Burt í heilu lagi
LOFTSKEYTAÁRÁSIR HAFNAR AÐ NÝJU
Loftskeytum hefur verið skotið á Ísrael
frá Gaza svæðinu síðustu daga og heita
Ísraelar hörðum viðbrögðum. Hér sjást
Palestínumenn gera við smyglgöng sem
eyðilögðust í árás Ísraela. MYND/AFP
ELDUR Í KENÍA Um 200 slasaðir leituðu
sér aðstoðar á sjúkrahúsi. MYND/AP
DÓMSMÁL Lögmenn Hafnarfjarðar-
bæjar ætla að kalla hluta stjórn-
enda Orkuveitu Reykjavíkur (OR)
og Bjarna Ármannsson, fyrrver-
andi stjórnarformann Reykjavik
Energy Invest (REI), sem vitni í
dómsmáli vegna sölu á hlut í Hita-
veitu Suðurnesja (HS).
Til stendur að kalla fyrir dóm
níu vitni sem bera eiga um samn-
ingsgerð milli Hafnarfjarðar og
OR vegna sölu á hlut bæjarins í
HS, segir Stefán Geir Þórisson,
lögmaður Hafnarfjarðarbæjar.
Til stóð að kalla til átján vitni
en vegna mótmæla lögmanns OR
hefur þeim verið fækkað. Vitnin
eiga meðal annars að bera um það
hvað bjó að baki þegar samið var
um kaupin, sem getur skipt máli
fyrir túlkun á samningnum segir
Stefán.
Hafnarfjarðarbær krefst þess
að OR standi við samning um kaup
á 15,4 prósenta hlut bæjarins í HS
á samtals 7,6 milljarða króna. Nær
öruggt má telja að verðmætið er
mun minna í dag.
OR vill að samningurinn við
Hafnarfjarðarbæ gangi til baka,
þar sem samkeppnisyfirvöld hafi
komist að þeirri niðurstöðu að
hann brjóti í bága við lög, segir
Þórunn Guðmundsdóttir, lögmað-
ur OR í málinu. Hún segir engan
ágreining um málsatvik, og því í
raun óþarft að kalla til vitni.
- bj
Hafnarfjarðarbær krefst 7,6 milljarða frá OR fyrir hlutinn í Hitaveitu Suðurnesja:
Stjórnendur kallaðir til vitnis
Vitnalisti Hafnarfjarðarbæjar:
■ Bjarni Ármannsson, fyrrverandi
stjórnarformaður REI.
■ Guðmundur Þóroddsson, fyrrver-
andi forstjóri OR og REI.
■ Haukur Leósson, fyrrverandi
stjórnarformaður OR.
■ Hjörleifur Kvaran, forstjóri OR.
■ Bryndís Hlöðversdóttir, fyrrver-
andi stjórnarformaður OR.
■ Gunnar Svavarsson, fyrrverandi
formaður bæjarráðs Hafnarfjarð-
ar.
■ Haraldur Þór Ólason, bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði.
■ Guðmundur Benediktsson, bæj-
arlögmaður Hafnarfjarðar.
■ Árni Árnason lögmaður.
Aðrir sem hætt hefur verið við að
kalla í vitnastúkuna:
■ Björn Ingi Hrafnsson, fyrrverandi
borgarfulltrúi Framsóknarflokks-
ins.
■ Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrr-
verandi borgarstjóri.
■ Ásgeir Margeirsson, forstjóri Geys-
is Green Energy.
BJARNI ÁRMANNSSON Á VITNALISTANUM
ORKUMÁL Umhverfisráðuneytið
hefur staðfest úrskurð Skipulags-
stofnunar um að fyrirhuguð sex
megavatta virkjun í Brúará í Blá-
skógabyggð skuli sæta umhverf-
ismati. Ráðuneytið segir fram-
kvæmdina geta haft verulega
neikvæð og varanleg umhverfis-
áhrif á sérstöðu svæðisins, meðal
annars á náttúrufyrirbæri sem
njóti verndar náttúruverndar-
laga. Árfarvegur gæti þornað
upp á um 700 metra kafla í Brú-
ará. „Sjónræn áhrif vegna stíflu,
vegagerðar og frárennslisgerðar
geta orðið varanleg á svæði sem
telja verður að miklu leyti órask-
að,“ segir í úrskurði umhverfis-
ráðuneytisins. - gar
Ráðuneyti um áform í Brúará:
Virkjun fari í
umhverfismat
STJÓRNMÁL Fyrrum forsætisráð-
herra, Geir H. Haarde, flaug til
Hollands í gær til að leita sér
læknismeðferðar við illkynja
æxli sem hann greindist með í
vélinda í síðasta mánuði.
Núverandi forsætisráðherra,
Jóhanna Sigurðardóttir, sagði að
sér þætti vænt um Geir og kvað
hann gæddan mörgum mannkost-
um þegar hún tók við lyklum að
forsætisráðuneytinu úr höndum
Þorgerðar Katrínar Gunnarsdótt-
ur í gær. Hún þakkaði Þorgerði
sömuleiðis fyrir samstarfið. - hs
Þorgerður afhenti lyklana:
Geir flaug til
Hollands í gær
SPURNING DAGSINS