Fréttablaðið - 02.02.2009, Page 4

Fréttablaðið - 02.02.2009, Page 4
4 2. febrúar 2009 MÁNUDAGUR I. Aukið lýðræði, jöfnuður og upplýsingar ■ Virk upplýsingagjöf til þjóðarinnar. ■ Nýjar siðareglur fyrir ráðherra og æðstu embættismenn. ■ Eftirlaunalögin verða afnumin. ■ Nýjar reglur um skipan dómara. ■ Lög um ráðherraábyrgð endur- skoðuð. ■ Breytingar á stjórnarskrá lýðveld- isins: a) Kveðið verður á um auðlindir í þjóðareign. b) Sett verður ákvæði um þjóðar- atkvæðagreiðslur. c) Aðferð við breytingar á stjórn- arskrá með sérstakri þjóðarat- kvæðagreiðslu. ■ Lög um skipan og verkefni stjórn- lagaþings. ■ Opnað fyrir möguleika á persónu- kjöri í kosningum til Alþingis. II. Endurreisn efnahagslífsins ■ Leitað leiða til að lækka vexti eins fljótt og kostur er. ■ Tímasett áætlun gerð um rýmkun hafta. ■ Staðinn vörður um velferðarkerfið og grunnþjónustu samfélagsins. III. Endurskipulagning í stjórnsýslu ■ Skipt um yfirstjórn Seðlabankans. ■ Skipaður einn seðlabankastjóri ráðinn á faglegum forsendum. ■ Hafin verður endurskoðun á pen- ingamálastefnu Seðlabankans. ■ Ný yfirstjórn Fjármálaeftirlitsins. ■ Breytingar á yfirstjórn einstakra ráðuneyta. ■ Erlendir sérfræðingar fengnir til liðsinnis Fjármálaeftirlitinu. ■ Kannað hvort unnt sé að kyrrsetja eignir. IV. Aðgerðir í þágu heimila ■ Aðgerðir til að bregðast við fjár- hagslegum vanda heimila. ■ Sett verður á fót velferðarvakt. ■ Lög um greiðsluaðlögun og greiðslujöfnun gengistryggðra lána. ■ Lög um frestun nauðungarupp- boða vegna íbúðarhúsnæðis. ■ Gjaldþrotalögum breytt þannig að staða skuldara verði bætt. ■ Húsnæðislán færð til Íbúðalána- sjóðs. ■ Tryggt að greiðsluvandaúrræði Íbúðalánasjóðs verði að fullu virk. ■ Áætlun um hvernig skuldavanda heimilanna verði frekar mætt. ■ Lög um séreignarsparnað sem veita sjóðfélögum tímabundna heimild til fyrirframgreiðslu. V. Aðgerðir í þágu atvinnulífs ■ Kynnt áætlun um opinberar fram- kvæmdir og útboð á árinu. ■ Engin ný áform um álver verða á dagskrá ríkisstjórnarinnar. ■ Átaksverkefni með öflugum vinnu- markaðsaðgerðum til að vinna gegn atvinnuleysi. ■ Leitað leiða til þess að örva fjárfestingu innlendra og erlendra aðila og sköpun nýrra starfa á almennum vinnumarkaði. ■ Aðlaga þarf lánareglur LÍN breyttu efnahagsumhverfi. ■ Útlánageta Byggðastofnunar efld. ■ Meta áhrif efnahagsástandsins á stöðu kynjanna. ■ Við endurreisn efnahagslífs og uppbyggingu faglegra stjórnunar- hátta verði jafnrétti kynjanna haft að leiðarljósi. VI. Aðgerðir til að byggja upp fjármála- kerfið og greiða úr vanda fyrirtækja. ■ Greitt verður úr vanda lífvænlegra fyrirtækja á grundvelli gegnsærra og alþjóðlega viðurkenndra reglna. ■ Hugað sérstaklega að því að við- halda virkri samkeppni. ■ Verðmati á eignum nýju ríkisbank- anna verður lokið hið allra fyrsta. ■ Ljúka á endurfjármögnun ríkis- bankanna. ■ Ríkisbönkum sett útlánamarkmið fyrir árið til að örva hagkerfið. VII. Alþjóðasamningar og Evrópusamstarf ■ Tekið saman yfirlit um lántökur og heildarskuldbindingar þjóðarbús- ins og kynnt almenningi. ■ Alþjóðlegir sérfræðingar ráðnir til að veita aðstoð við samninga á alþjóðavettvangi vegna skulda þjóðarbúsins. ■ Úttekt á viðhorfum hagsmunaaðila til Evrópusambandsins. ■ Mat lagt á framtíðarhorfur í gjald- miðlamálum. ■ Aðild að Evrópusambandinu verði aldrei ákveðin nema í þjóðarat- kvæðagreiðslu. PUNKTAR ÚR VERKEFNASKRÁ STJÓRNMÁL Verkefnaskrá og ráð- herralisti nýrrar ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna var kynntur á blaðamannafundi á Hótel Borg rúmlega fjögur í gær. Meðal aðgerða sem ný ríkis- stjórn boðar er að setja lög um greiðsluaðlögun, greiðslujöfnun gengistryggðra lána og frestun nauðungaruppboða vegna íbúð- arhúsnæðis í allt að sex mánuði. Einnig að breyta gjaldþrotalög- um til að bæta stöðu skuldara. Íbúðalánasjóður mun, samkvæmt verkefnaskránni, taka við lánum gömlu viðskiptabankanna eða þá tryggja með öðrum hætti að úrræði hans verði notuð til að koma til móts við fólk í greiðslu- vanda. Einnig verður sjóðsfélögum sem eiga í brýnum fjárhagsvanda gert kleift með nýrri lagasetningu að fá fyrirframgreiðslu úr séreigna- sjóði sínum um ákveðinn tíma. Von er á enn frekari aðgerðum því gerð verður langtímaáætlun um hvernig skuldavanda heimil- anna verði mætt og á slík áætlun að líta dagsins ljós í næsta mán- uði. Til að örva atvinnulíf hyggst ný stjórn endurskoða framkvæmda- áform opinberra aðila og knýja á um að verkefnin verði þjóð- hagslega arðbær og krefjist mik- ils vinnuafls. Þó verða engin ný áform um álver lögð fram. Eins eru engar breytingar fyrirhugað- ar á samstarfinu við Alþjóðagjald- eyrissjóðinn. Ný stjórn hyggst einnig boða endurbætur á stjórnsýslunni með það fyrir augum að auka lýðræði og skerpa á heiðarleika í samfélag- inu. Eftirlaunalögin verða afnum- in og þingmenn og ráðherrar mun lúta almennum reglum um lífeyr- iskjör opinberra starfsmanna. Skipt verður um yfirstjórn Seðla- bankans en ekki er enn búið að útfæra hvernig það verður gert. Eins verður skipuð ný yfirstjórn Fjármálaeftirlitsins og erlendir sérfræðingar fengnir til liðsinn- is þar. Eins og fram hefur komið í fjöl- miðlum verður stjórnlagaþing sett á laggirnar til að gera breytingar á stjórnarskrá en ekki kom fram hvenær það verður. Ráðgert er að breyta kosningalögum og þannig að ekki verði loku fyrir það skot- ið að hægt verði að kjósa persónur í stað flokka. Kosningar eru fyr- irhugaðar 25. apríl næstkomandi og því hefur stjórnin 80 daga til verkanna. Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir, formaður Samfylkingarinnar, tekur ekki sæti í nýrri ríkisstjórn en hún tók það skýrt fram á blaða- mannafundinum að það þýddi hreint ekki að hennar afskiptum af stjórnmálum væri lokið. „Ég ætla að einbeita mér að sjálfri mér og svo að flokknum þegar ég er búin að safna kröftum,“ sagði hún. Ekki er nóg með að Jóhanna Sigurðardóttir sé fyrsta konan til þess að verða forsætisráð- herra heldur er þetta fyrsta rík- isstjórnin með jafnt kynjahlutfall ráðherra. jse@frettabladid.is Stjórnin boðar björg- un og hreingerningar Ný ríkisstjórn vill opna aðgang fólks að séreignasparnaði. Setja á lög um greiðsluaðlögun og frestun nauðungaruppboða. Ný vinnubrögð og skipan í stjórnsýslukerfinu boðuð. Nýjar stjórnir í Seðlabanka og Fjármálaeftirliti. FRÁ BLAÐAMANNAFUNDINUM Á HÓTEL BORG Afmælisbarn gærdagsins og nýskipaður menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, situr hér lengst til hægri. Við hlið hennar er Steingrímur J. Sigfússon, fjármála-, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Kristján Þór Júlíusson um nýja ríkisstjórn: Verkefnaskrá ábótavant STJÓRNMÁL „Ég óska þessu fólki velfarnaðar í sínum störfum og vonandi geta þær aðgerðir sem það grípur til orðið þjóðinni til góðs. En áður en hægt er að leggja mat á þessar aðgerðir verður maður fyrst að fá betri upplýs- ingar um útfærslur á hugmyndum þeirra. En þær hljóta að koma fram fljótlega, ég trúi ekki öðru,“ segir Kristján Þór Júlíusson, þingmað- ur Sjálfstæðisflokks, um nýja ríkisstjórn sem kynnt var gær. Kristján segir verk- efnaskrá stjórnarinnar vera ábótavant. „Sjálfsagt má ýmsu breyta í lýð- ræðismálum en afkoma heimila og fyrirtækja er brýnasta málið. Þær hug- myndir sem nefndar eru hafa legið fyrir í fjárlaga- frumvarpinu. Ég bíð spenntur að sjá hvað gerist.“ - kg KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍUSSON Ný ríkisstjórn tekur við völdum VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 17° 3° 6° 1° 1° 4° 6° 6° 1° 1° 20° 4° 6° 18° -2° 5° 14° -1° Á MORGUN Hæg austlæg eða breytileg átt MIÐVIKUDAGUR 8-15 m/s við austur- ströndina annars mun hægari 3 3 3 2 3 1 5 2 5 3 4 1 -3 -2 -1 -5 -4 -3 -5 0 -4 -9 -4 -4 -3 -5 -5 -4 -5 -7 -7-6 KALT EN BJART, EINKUM SYÐRA Í dag verður í raun fínasta veður á landinu þótt kalt sé á landinu. Ekki að sjá neinar breytingar á því nú alveg í bráð. Á hinn bóginn verður heldur þungbúnara norðan til og austan á morgun og hinn frá því sem er í dag. Það verður yfi rleitt úrkomulítið en um miðja vikuna er heldur eindregnari éljagangur á landinu norðanverðu. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur flugfelag.is Fundarfriður Markvissir fundir í friði og ró Upplýsingar: Sími 570 3075 hopadeild@flugfelag.is REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR FÆREYJARVESTMANNAEYJAR ÍSAFJÖRÐUR GRÆNLAND VOPNAFJÖRÐUR ÞÓRSHÖFN GRÍMSEY NARSARSSUAQ KULUSUK CONSTABLE POINT NUUK

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.