Fréttablaðið - 02.02.2009, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 02.02.2009, Blaðsíða 12
12 2. febrúar 2009 MÁNUDAGUR timamot@frettabladid.is LEIKKONAN FARRAH FAWCETT ER 62 ÁRA Í DAG. „Guð skapaði karlmanninn sem sterkara kynið, en ekki endi- lega það greindara. Hann gaf konunni innsæi og kvenleika og með réttri notkun hefur sú blanda frá fyrstu tíð ruglað í ríminu hvern einasta karlmann sem ég hef hitt.“ Farrah Fawcett var uppgötvuð vegna fegurðar sinnar á 7. ára- tugnum. Hún öðlaðist heimsfrægð sem ein af englum Charlies í samnefndum sjónvarpsþáttum 1976 til 1980. MERKISATBURÐIR 1883 Sex manns farast þegar snjóflóð fellur á bæinn Stekk í Njarðvík við Borg- arfjörð eystra. 1906 Páfi mótmælir heilshugar aðskilnaði ríkis og kirkju. 1932 Mafíuforinginn Al Capone fangelsaður. 1982 David Letterman byrj- ar með sjónvarpsþátt- inn Late Night with David Letterman á NBC-sjón- varpsstöðinni. 1983 Alþingi samþykkir með 29 atkvæðum gegn 28 að mótmæla ekki hvalveiði- banni Alþjóðahvalveiði- ráðsins. 1988 Hjarta og lungu grædd í Halldór Halldórsson, fyrst- an Íslendinga. 1990 Þjóðarsátt undirrituð. „Góð vísa er aldrei of oft kveðin, og mik- ilvægt að fá fólk til að hugsa um eigin ábyrgð í tannverndun með daglegri burstun og notkun tannþráðar, sem við sjáum því miður ekki nógu marga nota, en víst að við gætum bætt tannheilsu landsmanna enn betur ef allir aldurs- hópar notuðu tannþráð,“ segir Hólm- fríður Guðmundsdóttir, tannlæknir hjá Lýðheilsustöð, í upphafi tannverndar- vikunnar 2009, þar sem sérstök áhersla er á tannþráðinn og kjörorðið: Taktu upp þráðinn! „Þegar tennur fara að snertast, og allar barnatennur komnar upp, þarf að vakta tannbil barna niður í þriggja ára, en noti foreldrar ekki tannþráð á sínar tennur er ólíklegt að þeir noti hann á tennur barna sinna. Í rannsókn Lýðheilsustöðvar á heilsu og líðan Ís- lendinga 2007 kemur fram að aðeins 12 prósent fullorðinna karla og 24 pró- sent kvenna nota tannþráð hvern dag. Því er ljóst að allur hópurinn þarf að herða sig í notkun tannþráðar því tann- skemmdir og tannholdsvandamál skrif- ast að stórum hluta á þá staðreynd að við hreinsum tennur okkar ekki nógu vel né notum tannþráð daglega,“ segir Hólm- fríður, sem hvetur landsmenn til að taka ábyrgð á eigin tannheilsu og vinna samkvæmt ábendingum tannlækna og nýta sér fræðsluefni á heimasíðu Lýð- heilsustöðvar. „Því orsakir tannsjúk- dóma þekkjum við vel og vitum að góð munnhirða hefur þar úrslitaáhrif. Með einföldum ráðum, eins og að borða holl- an mat, bursta tennur tvisvar á dag með flúortannkremi, nota tannþráð og fara í tanneftirlit getum við haldið tönnum okkar ævina út.“ Hólmfríður segir slæmar neyslu- venjur einn helsta óvin tannanna, þar sem margir þættir valda tannskemmd- um og glerungseyðingu. „Drykkir sem fólk velur sér í dag eyða glerungi tann- anna hratt og þá er ekki aðeins átt við gosdrykki, heldur einnig orkudrykki, íþróttadrykki og ávaxtasafa. Í munn- vatni okkar felst náttúruleg vörn fyrir tennur, en til að þjóna hlutverki sínu þarf munnurinn hlé frá neyslu. Margir sötra þessa drykki allan daginn og taka sopa á korters fresti, en þá fær munn- urinn ekki næði til að vinna sína vinnu. Því er mikilvægt að drekka slíka drykki á ákveðnum tímum.“ Í rannsókn Lýðheilsustöðvar kemur fram að tannheilsa Íslendinga hefur batnað undanfarna tvo áratugi. „Við 45 ára aldur eru nú 77% Íslendinga með allar eigin tennur, samanborið við 52% 1990, en eftir það fara tennurnar að týna tölunni og af Íslendingum 65 ára og eldri eru einungis 7% með allar tennur sínar, en voru 3% árið 1990,“ segir Hólmfríður, sem bendir á að þrátt fyrir bætta tann- heilsu sé tíðni tannskemmda íslenskra barna áhyggjuefni. „Íslensk börn búa við verstu tannheilsu á Norðurlöndum og má gera ráð fyrir að efnahagsþreng- ingar geti leitt til enn verri tannheilsu. Það er því full ástæða að hafa áhyggjur og vekjum við sérstaka athygli á því að öllum 3ja, 6 og 12 ára börnum stendur til boða ókeypis eftirlit hjá tannlæknum sem vinna í umboði Sjúkratrygginga Ís- lands.“ thordis@frettabladid.is KJÖRORÐ TANNVERNDARVIKUNNAR 2009: TAKTU UPP ÞRÁÐINN! Eigin tannábyrgð mikilvægust Bandaríski tónlistarmaðurinn Buddy Holly kom fram í síðasta sinn fyrir áheyrendur þennan febrúardag fyrir hálfri öld síðan. Buddy var á hljómleikaferðalagi með Dion and the Belmonts, Ritchie Valens og J.P. „Big Bopper“ Richard- son þegar listamennirnir stigu á svið í Clear Lake í Iowa-ríki að kvöldi 2. febrúar. Eftir tónleikana ákvað Buddy að taka flugvél til Fargo í Norður-Da- kóta þaðan sem hann ætlaði til tón- leikahalds í Minnesota. Big Bopper fékk far í fjögurra sæta vélinni, ásamt Ritchie Val- ens, sem hafði kastað upp smápeningi um flug- sætið við hljóðfæraleikara úr hljómsveit Budd- ys. Um miðnætti fór flugvélin í loftið í snjóbyl og hrapaði skömmu síðar. Flakið fannst fáeinum klukkustundum seinna um þrettán kílómetra frá flugvellinum. Buddy, Ritchie og Big Bopper létust samstundist, ásamt flugmanninum, en þessi örlaga- ríki dagur hefur síðan verið kallaður „dagurinn sem tónlistin dó“. Buddy Holly var jarðsettur 7. febrúar 1959. Eiginkona hans var ekki við útförina, en hún var orðin ekkja aðeins sex mánuðum eftir hjónaband þeirra og missti fóstur við tíðindin. Þótt ferill Buddy Holly hafi aðeins varað í hálft annað ár hafa áhrif hans á þróun rokktónlistar verið skráð í sögubækurn- ar og lög hans flutt af öðrum listamönnum, svo sem Bítlunum og Rolling Stones. Árið 2004 valdi Rolling Stone-tímaritið Buddy Holly í 13. sæti lista yfir hundrað merkustu lista- menn sögunnar. ÞETTA GERÐIST: 2. FEBRÚAR 1959 Buddy Holly syngur sitt síðasta lag HREINAR TENNUR SKEMMAST EKKI Hólmfríður Guðmundsdóttir tann- læknir segir mikilvægt að takmarka neyslu gos-, orku-, íþrótta- og ávaxta- drykkja við ákveðinn tíma dagsins, til verndar glerungi tannanna og nota tannþráð reglulega til að forðast tann- skemmdir og glerungseyðingu. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /PJETU R Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýnt hafa okkur vináttu og hlýhug vegna andláts okkar ástkæra, Friðfinns Kristjánssonar blómaskreytingamanns, Flókagötu 63. Sérstaklega þökkum við starfsfólki Landspítalans. Þórunn Ólafsdóttir Margrét Eyjólfsdóttir Sigurjón Kristinsson Jóhanna Eyjólfsdóttir Jón Ólafur Magnússon Anna Karen Friðfinnsdóttir Atli Viðar Thorstensen Fanney S. Friðfinnsdóttir Jóhann Örn Bjarnason Jana Friðfinnsdóttir Einar Þór Bogason Birna Friðfinnsdóttir Andri Már Ólafsson og barnabörn. Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, Birgit M. Johansson Hörðukór 1, Kópavogi, lést á Hrafnistu í Reykjavík, þriðjudaginn 13. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir færum við Pétri Thorsteinssyni lækni og starfsfólki á H-2 fyrir frábæra umönnun. Margrét Tryggvadóttir Guðmundur Borgþórsson Tryggvi Andersen Halldóra Guðmundsdóttir Kamilla og Daniel Hugheilar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð vegna andláts og útfarar elsku móður okkar, tengdamóður og ömmu, Ásbjargar Guðgeirsdóttur. Sérstakar þakkir til starfsfólks að Roðasölum 1 fyrir alúð og umhyggju. Hildisif Björgvinsdóttir Sigurður Ólafsson Kjartan Björgvinsson Björgvin Sigurðsson Daníel Sigurðsson Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og langafi, Andrés Guðjónsson fyrrv. skólameistari Vélskóla Íslands, Mánatúni 2, Reykjavík, sem lést fimmtudaginn 22. janúar, verður jarðsunginn frá Grensáskirkju þriðjudaginn 3. febrúar kl. 15.00. Ellen M. Guðjónsson Jens Andrésson Kristín Þorsteinsdóttir Grímur Andrésson María Friðriksdóttir barnabörn og barnabarnabarn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför systur minnar og frænku, Bergljótar Eddu Alexandersdóttur hjúkrunarfræðings, Lautasmára 10, áður Grettisgötu 26. Ólafur Alexandersson Guðmundur Kristjánsson Helga Zoëga Útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Jakobs Björgvins Þorsteinssonar Sléttuvegi 13, Reykjavík, fer fram frá Bústaðakirkju, miðvikudaginn 4. febrúar kl. 11.00. Þóra Jakobsdóttir Friðrik Sveinn Kristinsson Þorsteinn Þröstur Jakobsson Guðrún Óðinsdóttir Óskar Matthías Jakobsson Angela Jakobsson Halldór Jakobsson barnabörn og barnabarnabörn. Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.