Fréttablaðið - 02.02.2009, Page 30
22 2. febrúar 2009 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
HVAÐ SEGIR MAMMA?
LÁRÉTT
2. eyja í Asíu, 6. óhreinindi, 8.
húðsepi milli táa, 9. gogg, 11. tveir
eins, 12. botnfall, 14. safna saman,
16. karlkyn, 17. ferð, 18. blundur, 20.
grískur bókstafur, 21. fyrirhöfn.
LÓÐRÉTT
1. löggjafarsamkoma, 3. frá, 4.
hrörnun, 5. sigað, 7. raf, 10. óðagot,
13. útdeildi, 15. einsöngur, 16. nögl,
19. guð.
LAUSN
LÁRÉTT:
2. Java, 6. im, 8. fit, 9. nef, 11. tt, 12.
grugg, 14. smala, 16. kk, 17. för, 18.
lúr, 20. pí, 21. ómak.
LÓÐRÉTT:
1. þing, 3. af, 4. vitglöp, 5. att, 7.
merskúm, 10. fum, 13. gaf, 15. aría,
16. kló, 19. ra.
„Hann er ljúfur og góður
drengur, bara mjög duglegur og
hæfileikaríkur. Hann var voða-
lega mikið sem unglingur úti í
Árseli sem plötusnúður. Hann
hefur alltaf haft voða gaman af
þessu.“
Karen Eberhardtsdóttir, móðir Ómars
Ómars sem hefur boðað breytta tíma
með viðburðafyrirtækinu TFA, eða Tími
fyrir aðgerðir.
„Þetta er æðislegt hús,“ segir söng-
konan Bryndís Jakobsdóttir, eða
Dísa, sem tók nýverið þátt í vígslu
nýrrar tónleikahallar danska ríkis-
útvarpsins í Kaupmannahöfn. Söng
hún fyrir framan um 1.500 gesti í
45 mínútur ásamt danska tónlistar-
manninum Mads Mouritz og skáld-
konunni Hørslev. Var þetta fyrsta
tónlistaratriðið á dagskrá og því
má segja að Dísa hafi vígt þessa
glæsilegu höll með hljómfagurri
rödd sinni.
„Ég rétt náði út af sviðinu því
ég skalf svo í hnjánum. Þetta var
rosalega skemmtilegt og það er
líka gaman að gera önnur verkefni
en bara mitt,“ segir Dísa og á þar
við samstarfið við Mads. „Hann er
að gera nýja plötu og bað mig um
að syngja með sér.“
Höllin tekur 1.800 manns í sæti og
hönnuður var franski arkitektinn
Jean Nouvel. Í henni er að finna
glæsilegt hollenskt orgel með sex
hundruð pípum auk þess sem sætin
eiga að laga sig að líkamanum og
þykja sérlega þægileg. Kostuðu
herlegheitin þrjá milljarða danskra
króna, eða um 60 milljarða.
Dísa flutti til Danmerkur síð-
asta haust þar sem hún hefur ein-
beitt sér að lagasmíðum. „Ég hef
verið að semja mikið með fólki og
tók þátt í verkefni þar sem fimm
manns voru saman í hóp. Svo spil-
uðum við á þremur stöðum í Dan-
mörku,“ segir hún. „Svo er ég að
æfa mig að semja og aðallega
hlusta á nýja tónlist.“
Þrátt fyrir að hafa það ágætt í
Danmörku saknar hún þess að geta
ekki verið heima á Íslandi. „Mér
finnst leiðinlegt að ég sé ekkert
heima á meðan þessar hörmungar
eru og að geta ekkert gert hér. En
maður fer með bænir,“ segir hún.
Dísa gaf í maí í fyrra út sína
fyrstu plötu sem hlaut mjög góðar
viðtökur gagnrýnenda. Spurð hvort
ný plata sé á leiðinni segir hún að
það verði bara að koma í ljós. „Ég
er á fullu að æfa mig að semja. Ef
ég verð svo heppin að lög koma þá
auðvitað tek ég það upp og gef út.“
Hún hefur einnig sungið á
nokkrum tónlistarhátíðum að und-
anförnu, þar á meðal á Euroson-
ic í Hollandi, og hefur alls staðar
fengið mjög góð viðbrögð. Eru allir
sammála um að hún eigi framtíð-
ina fyrir sér í tónlistarbransanum.
freyr@frettabladid.is
BRYNDÍS JAKOBSDÓTTIR: LEIÐINLEGT AÐ VERA EKKI Á ÍSLANDI
Vígði danska tónleikahöll
SUNGU SAMAN Dísa söng með danska tónlistarmanninum Mads Mouritz og skáld-
konunni Hørslev í nýju höllinni.
Alþjóðlegt fótboltamót samkyn-
hneigðra, Iceland Express Cup,
verður haldið hér á landi um pásk-
ana á vegum íþróttafélags sam-
kynhneigðra karla, St. Styrmir.
Þegar hafa átta erlend lið skráð
sig, þar á meðal frá Danmörku,
Englandi, Þýskalandi og Banda-
ríkjunum. Einnig taka þátt tvö
til þrjú lið á vegum Styrmis, auk
nýstofnaðs íslensks lesbíuliðs, Lez
Jungle, sem mun keppa við erlent
lesbíulið.
„Við höfum verið að keppa
erlendis undanfarin ár. Við erum
búnir að byggja upp gott tengsla-
net við þessi lið, sérstaklega frá
London og Norðurlöndunum og
okkur datt í hug að það gæti verið
gaman að geta haldið svona mót
á Íslandi,“ segir Alfreð Hauks-
son, formaður Styrmis. „Eins og
aðstæður hafa þróast virðist þessi
tímasetning hafa hentað ágætlega.
Krónan er veik og það virðist vera
áhugi hjá ferðamönnum að koma
til landsins.“
Kristjana Guðrún Arnarsdótt-
ir hjá Lez Jungle segir að liðið
hafi verið stofnað síðasta sumar
í tengslum við samnefnda heima-
síðu, Lezjungle.com, sem hún
stofnaði ásamt kærustu sinni við
góðar undirtektir. Stefnir liðið á
að taka þátt í Ólympíuleikum sam-
kynhneigðra sem verða haldnir í
Danmörku næsta sumar.
Í tengslum við páskamótið verða
farnar kynnisferðir í Bláa lónið
og hugsanlega í rafting, köfun eða
hellaferðir. Ball verður síðan hald-
ið þar sem Páll Óskar verður lík-
lega plötusnúður.
Ekki er stefnt að því að halda
mótið hér á landi árlega, heldur
frekar annað eða þriðja hvert ár
og myndu hin Norðurlöndin halda
það þess á milli. Nánari upplýsing-
ar um mótið má finna á heimasíð-
unni Ststyrmir.is. - fb
Samkynhneigður páskabolti í Reykjavík
Tveir breskir lögfræðingar komu
hingað lands fyrir jól og ræddu
við þrjá íslenska tónlistarmenn
vegna málshöfðunar Jóhanns
Helgasonar gegn norska lagahöf-
undinum Rolf Løvland.
Líkast til munu tónlistarmenn-
irnir bera vitni í málinu, sem
Jóhann höfðaði vegna líkinda
lags hans Söknuður við lag Rolfs,
You Raise Me Up, sem Banda-
ríkjamaðurinn Josh Groban gerði
vinsælt. Búið er að meta líkind-
in með lögunum bæði hér heima
og erlendis. Hérna voru líkindin
metin 97% og úti var matið einn-
ig mjög jákvætt. „Þeir fóru yfir
málið og töluðu við nokkur vitni,“
segir Jóhann og vill sem stendur
ekki nefna þau á nafn. „Þetta er
dálítið stórt mál og þeir leggja
mikla áherslu á að vera með
allt inni áður en málið fer fyrir
rétt.“
Að sögn Jóhanns söfnuðu lög-
fræðingarnir, sem starfa á vegum
hins gamalgróna fyrirtækis Knight
& Sons, gögnum hér á landi sem
þykja sanna að Rolf hafi fengið
Söknuð í hendurnar á meðan hann
var staddur hér á síðasta áratug.
Tók hann meðal annars upp plötu
hér með hljómsveit sinni Secret
Garden auk þess sem hann tók
upp jólalag með Siggu Beinteins.
„Það er nánast hægt að fullyrða
að hann hafi fengið kynningardisk
með íslenskri tónlist þar sem þetta
lag var. Það er dálítill plús í svona
málum að geta bent á svoleiðis,“
segir Jóhann.
Ekki hefur verið ákveðið hvenær
réttað verður í málinu en líklega
verður það í vor eða sumar. - fb
Tónlistarmenn bera vitni í máli Jóhanns
Sérstök dómnefnd tíma-
ritsins Nýs lífs valdi best
klæddu mennina
og konurnar í
nýjasta hefti
blaðsins. Þar
vekur sérstaka
athygli að
fréttamennirnir Sindri Sindrason og
Andri Ólafsson eru meðal efstu
manna en báðir starfa þeir hjá Stöð
2. Það sem gerir þessi úrslit enn
merkilegri er að sú lenska að setja
fréttamannsfötin í hreinsun fyrir
starfsmennina og mæta aftur með
þau stífpressuð á skrifborðið hefur
verið lögð af þar á bæ. Þeir Sindri
og Andri hafa ekki látið það á sig
fá og sjá bara til þess sjálfir að fötin
séu krumpufrí fyrir útsendingar.
Nýjasti ritstjóri Grapevine
og gítarleikari hljóm-
sveitarinnar Reykja-
víkur! er brottflutti
Vestfirðingurinn
Haukur S. Magn-
ússon. Hann er nú
búsettur í Norður-
mýrinni í íbúð sem sjálfur Gunnar
Þórðarson átti heima í um árabil.
Í forsíðuviðtali í nýjasta tölublaði
Bæjarins besta segir Haukur að
Gunnar hafi skilið eftir góðan anda í
íbúðinni sem lifi þar enn. Hann seg-
ist stundum vakna með andfælum
um miðja nótt með nýtt lag tilbúið
í hausnum og þurfi að hlaupa fram
og spila það á gítarinn. Hann segist
vona að Gunnar lögsæki sig ekki
fyrir lagastuld.
Aðalmeðferð í máli Eldars Ást-
þórssonar gegn hans gamla vinnu-
veitanda Hr. Örlygi ehf, sem rekið
hefur Iceland Airwaves hátíðina, átti
að fara fram á fimmtudaginn. Eldar
hafði kært Þorstein Stephensen og
Hr. Örlyg vegna ógreiddra launa. Á
tímabili stefndi í að í hart færi, en á
síðustu stundu féllst Þorsteinn á að
greiða útistandandi laun Eldars svo
málið var látið niður falla. Iceland
Airwaves hátíðin verður
haldin í ellefta skipti í
október. Sögur eru þó
uppi um rekstarörðug-
leika Hr. Örlygs og að
listamenn frá síðustu
hátíð eigi enn eftir að fá
greitt. - fgg, drg
FRÉTTIR AF FÓLKI
JÓHANN HELGASON Tveir breskir lögfræðingar komu hingað til lands á hans vegum
fyrir jól og ræddu við þrjá íslenska tónlistarmenn.
GLÆSILEG HÖLL Eins
og sjá má er nýja
tónleikahöllin afar
glæsileg og mega
Danir vera sérlega
stoltir af henni.
ST. STYRMIR
Strákanir í
St. Styrmi
keppa á
Iceland
Express
Cup, sem
verður
haldið hér-
lendis um
páskana.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Pétur Jóhann Sigfússon leikari.
2 Þær verða fimm.
3 Ologies.