Tíminn - 08.01.1983, Síða 5
LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1983
5
fréttir
Fyrsta fjárhagsáætlun Davíds Oddssonar samþykkt í borgarstjórn:
„flLUR GJALDSTOFNAR UTflN
TVEIR NÝTTIR TIL FULLS”
— sagði Kristján Benediktsson — Þjónustugjöld borgarinnar hækkuð um
50 milljónir kr. , en fasteignaskattar lækkaðir um 20 millj. kr.
■ „Ekki ber á því aö létta eigi gjöldum af borgarbúum þrátt
fyrir fjálglegar yfirlýsingar þar um fyrir kosningarnar sl. vor.
Allir gjaldstofnar utan tveir eru nýttir til fulls. Enda hækkar
þessi fjárhagsáætlun meira en dæmi fmnst um áöur, - 83%
frá síðustu áætlun", sagði Kristján Benediktsson, annar
borgarfulltrúi Famsóknarflokksins, á fundi borgarstjórnar sl.
finimtudagskvcld, en þá var til lokaafgreiðslu fyrsta fjárhags-
áætlun hins nýja meirihluta í borgarstjórn undir forystu
Davíðs Oddssonar, borgarstjóra. Kom fram í umræðum á
fundinum að á sama tíma cg ákveðið er að lækka
fasteignaálögur á borgarbúum urn 20 milljónir krónaþá hækkar
núverandi meirihluti þjónustugjöid af ýmsu tagi um allt að 50
milljónir króna, og er þá 50% hækkun á fargjöldum SVR
ekki meðtalin.
Kristján Benediktsson borgarfulltrúi
sagði að hin gífurlega hækkun fasteigna-
matsins um 78% frá fyrra ári gerði það
að verkum að þrátt fyrir 15 8% lækkun,
sem samþykkt hefði verið á síðaota fundi
borgarstjórnar, hækkaði fasteigna-
skatturinn um 60% milli ára, eða
jafmikið og milli næstu ára á undan. „T>á
hækkun fordæmdu sjálfstæðismenn
harðlega hér í borgarstjórn á sínum tíma
og töldu það bera vott um að þáverandi
meirihluti vildi koma öllum Reykvíking-
um í leiguhúsnæði. Talsmaður þeirra þá,
núverandi borgarstjóri, fór mörgum
orðum um þá ógn og skelfingu sem svo
hár fasteignaskattur mundi leiða yfir
borgarbúa."
Fjárhagsáætluninni lokað með
stórfelldum lántökum
■ Kristján
Benediktsson
I öðru lagi væri fjárhagsáætluninni
lokað með stórfelldum lántökum. Auk
þess sem gert væri ráð fyrir lántöku eða
tekjuauka að upphæð rúmar 57 milljónir
króna, væri gert ráð fyrir fyrirframtöku
gatnagerðargjalda að upphæð tæplega
54 milljóna króna „sem er í raun bein
lántaka", sagði Sigurjón. „Fjárvöntunin
í áætluninni er því um 111 milljónir
króna. Rétt er að benda á að einn
aðaltekjustofn þessarar áætlunar.gatna-
gerðargjöldin, byggir á lóðaúthlutun á
svæði sem ekki hefur verið skipulagt og
ekki er í eigu borgarinnar og engir
samningar hafa tekist um.‘‘
Davíð Odds-
■ Sigurjón Pét-
ursson
■ Guðrún
Jónsdóttir
■ Sigurður E.
Guðmundsson
í þriðja lagi benti Sigurjón á að á
meðan fasteignagjöld væru lækkuð um
20 milljónir króna, sem kæmi stóreigna-
mönnum fyrst og fremst til góða, þá
væru þjónustugjöld borgarinnar hækkuð
sem nemur tæpum 50 milljónum króna.
Hafa ekki efni á að kaupa skó á
börnin sín en aka um á dýrustu
gerð af Volvo
Guðrún Jónsdóttir, annar borgarfull-
trúi Kvennaframboðsins. sagði að fjár-
hagsáætlun borgarinnar fyrir árið 1983
bæri það glöggt með scr að vcra
meðvituð aðgerð til að bæta hag þeirra,
sem standa sterkir fyrir. Hvergi sæjust
þess hins vegar merki að gert sé átak til
að jafna aðstæður eða lífskjör borgar-
búa, t.d. með því að fjölga lciguíbúðum
í eigu borgarinnar. Né heldur sjáist þcss
merki. að mcirihlutinn búi yfir raunveru-
legum vilja til úrbóta í jafnréttismálum,
t.d. með því að veita stórauknu fé til
framkvæmda við dagvistarstofnanir.
Þvert á nióti.
Guðrún sagöi:
„Á sama tíma er áætlað að vcita
stórauknu fé til gatna- og holræsafram-
kvæmda, að byggja rándýra bílageymslu
Sigurjón Pétursson.oddviti Alþýðu-
bandalagsins í borgarstjórn, sagði.að
við afgreiðslu þessarar fjárhagsáætlunar,
sem er fyrsta fjárhagsáætlun Sjálfstæðis-
flokksins eftir fjögurra ára meirihluta
vinstri manna í borgarstjórn kæmu mjög
greúlega í ljós einkenni hægri stjórnar
og dæmigerð íhaldsúrræði.
Sagði Sigurjón það einkum þrjú
meginatriði sem þessi fjárhagsáætlun
leiddi í Ijós. í fyrsta lagi væri mjög dregið
úr framkvæmdum á sviði félagsmála og
stefnt að samdrætti í byggingu dagvistar-
heimila og stöðvun frekari byggingar
leiguíbúða auk þess sem framlag borgar-
innar til byggingar dvalarheimila fyrir
aldraða væri nú aðeins um helmingur að
raungildi þess sem það hefur verið á
liðnum árum.
Davíd vill stjórna borginni einn:
Öllum breytingatillög-
um minnihlutans hafnad
■ Það vakti athygli við lokaafgreiðslu
fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar
fyrir þetta ár, að meirihluti Sjálfstæðis-
flokksins, með Davíð Oddsson, borgar-
stjóra, í fylkingarbrjósti, felldi allar
tölulegar breytingartillögur frá minni-
ihlutaflokkunum í borgarstjórn, við
atkvæðagreiðslur. Undanfarin ár hefur
það viðgengist að fallist hefur verið á
nokkrar breytingatillögur frá minnihlut-
anum sem greinilega hafa átt rétt á sér
og hafa horft til bóta, enda þá ekki stórar
fjárhæðir oft í húfi, en svo varð ekki að
þessu sinni.
Allir minnihlutaaðilarnir í borgar-
stjórn lögðu fram ítarlegar breytingatil-
lögur, þar sem gerð var grein fyrir
niðurskurði á tckjum, og hins vegar
hvernig auka mætti útgjöld á móti eftir
þeirra höfði. Á enga þeirra var fallist.
í tengslum við afgreiðslu fjárhagsáætl-
unarinnar var þó fallist á eina tillögu
borgarfulltrúa Framsóknarflokksins um
aö óskað verði viðræðna við samgöngu-
raðuneytiö, um að það með tilliti til
öryggis vegtarenda að vetrarlagi taki
þátt í kostnaði við áframhaldandi rekstur
Skíðaskálans j Hveradölum.
Þá var einni tillögu Framsóknarflokks-
ins um sérstaka úttekt á nýframkvæmd-
um borgarsjóðs undanfarin tuttugu ár
visað ti! borgarráðs, og tillaga Kvenna-
frambnðsinsam aðutanaðkomandi aðila
verði íaiiö að gera nákvæma úttekt á
kostnaði vegna greiðslna bifreiðastyrkja
og leigubifreiðakostnaður borgarinnar
hlaut sömu afgreiðslu.
-Kás
til að þjóna 13 bifreiðum, að leggja
gervigras fyrir tugi milljóna, sem einung-
is kemur fámennum hópi keppnismanna
í knattspyrnu til góða, að flytja ea. 20
milljónir króna frá öllum þorra borgar-
búa, t.d. börnum og þeim, sem ekkert
eiga, í vasa hinna, sem stærstar og
dýrastar eiga eignirnar, og svona mætti
lengi telja. Svo eitthvað sé nefnt, þá
minnir þetta búskaparlag meirihlutans
helst á búskaparlag fólks, sem ekki telur
sighafaefni á að kaupa skó á börnin sín,
en ekur um á dýrustu gerð af Volvo.
Ef íurið hefði verið að tillögu Kvenna-
framboðsins um álagningu fasteigna-
gjalda og jalnlramt hætt við fyrirhugaðar
framkvæmdir við bílastæðishús í Póst-
hússtræti, gervigras á Laugardalsvellin-
um og skíðalyftu í Bláfjöllum, hefði
borgarsjóður 42 milljónir króna til
skiptanna umfram það sem nú er. Til
samanburðar má geta þess, að það
samsvarar tæplcga þriðjungi þess fjár,
sem áætlað er til allra byggingafram-
kvæmda á vegum borgarsjóðs árið 1983.
Gefur auga leið, að með þessum
fjármunum hefði mátt gcra stórátak í
íélagslcgum framkvæmdum, s.s. í bygg-
ingu dagvistarstofnana, cn til þeirra er
einungis áætlað að verja 9 milljónum
króna árið 1983“
Horfíð frá stefnu félagshyggju
Sigurður E. Guðmundsson, borgar-
fulltrúi Alþýðuflokksins, sagði að fjár-
hagsáætlun sú sem nú lægi fyrir til
afgreiðslu bæri að sínum dómi glögg
einkenni þeirrar grundvallar stefn -
breytingar í borgarmálum, sem orðið
hefði með tilkomu Itins nýja borgar-
stjórnarmcirihluta. Horfið hefði verið
frá þeirri stefnu fclagshyggju er einkennt
hcfði í nokkrum mæli stefnu vinstri
mcirihlutans á síðasta kjörtímabili, og í
hennar stað tekin upp andfclagsleg
stefna, scm í megindráttum miðaði að
því að gera hlut mcðalefnaðra og
efnalítilla fjölskyldna lakari cn hann
hcfði verið, og hlut þcirra enn bctri scm
best eru settir í samfélaginu. „Slík stefna
er í algjöru ósamræmi við grundvallar-
stefnu- og lífsviðhorf okkar jafnaðar-
manna og við erum hcnni gjörsamlega
andvígir. Ég harma þessa þróun og lýsi
andstöðu minni við hana“, sagði Sigurð-
ur E. Guðmundsson. -Kás.
■ Sviðsmynd úr „Garðveislu“ eftir Guðmund Steinsson. Næsta sýning verksins er
í kvöld.
Aríu- og Ijóðatónleikar í
Austurbæjarbíói í dag
■ Ungur bandarískur söngvari Laurence
Albert kemur fram á fjórðu áskriftartón-
leikum Tónlistarfélags Reykjavíkur í dag kl.
14.30 í Austurbæjarbíói. Albert þykir með
efnilegustu söngvara vestanhafs og hefur
unnið til margra verðlauna, m.a. þrisvar til
Schubert verðlauna fyrir ljóðasöng í Austur-
ríki. Hann er bassasöngvari og hefur einkum
lagt fyrir sig Ijóðasöng en einnig sungið í
óperum og komst m.a. í úrslit í söngkeppni
á vegum Metropolitan óperunnar f New
York.
Undirleikari Alberts á tónleikunum verður
Mary Dibbern, hún er bandarísk en hefur
hlotið mestan sinn frama í Evrópu þar sem
hún hefur starfað með söngvurum á borð við
Gerard Souzay og Ely Ameling.
Á efnisskrá eru aríur eftir Hándel og
Vivaldi og sönglög og lagaflokkar eftir
Schubert, Wolf og Poulenc.
Um 100 þúsund leikhúsgestir í
Þjóðleikhúsi
■ Mikil umsvif eru nú hjá Þjóðleikhúsinu
og eru þar fimm leiksýningar í gangi þessa
stundina. Jólasýningin JÓMFRÚ RAGN-
HEIÐUR, eftir Guðmund Kamban, hefur
verið sýnd fimm sinnum og jafnan fyrir fullu
húsi og hafa þegar hátt á þriðja þúsund
áhorfendur séð verkið. Þá hefur nýju
sýningunni á Litla sviðinu ekki síður verið
vel tekið, en búið er að sýna SÚKKULAÐl
HANDA SILJU, eftir Nínu Björk Árnadótt-
ur, tvisvar sinnum fyrir fullu húsi. Báðar
þessar sýningar hafa fengið afar lofsamlega
dóma.
Þá hefjast í þessari viku að nýju eftir
jólahlé sýningar á þremur eldri verkefnum.
GARÐVEISLA Guðmundar Steinssonar
verður sýnd nokkrum sinnum ennþá og er
næsta sýning hennar í kvöld laugardagskvöld.
Þá eru einnig fyrirhugaðar nokkrar sýningar
á verðlaunaleikriti Tom Kempinskis, TVÍ-
LEIK, á Litla sviðinu og verður 25. sýning
þess á sunnudagskvöld, 9. janúar, kl. 20.30.
Ennfremur hefjast á ný sýningar á meistar-
averki Eugene 0‘Neill, DAGLEIÐIN
LANGA INN f NÓTT, og verður 8. sýning
þess nú á sunnudagskvöldið (9. janúar).
Auk þessara sýninga standa svo að
sjálfsögðu yfir æfingar á næstu verkefnum
Þjóðleikhússins, en næsta frumsýning verður
þann 22. janúar og hefjast þá sýningar á
bamaleikritinu LÍNA LANGSOKKUR, eft-
ir Astrid Lindgren. Þá eru hafnar æfingar á
ORESTEIU eftir Æskylos í þýðingu Helga
Hálfdánarson.
Á sl. ári var aðsókn mjög góð að
leikhúsinu og voru leikhúsgestir á árinu 1982
alls 99.599.
Tónjeikar í Hlégarði
■ Tónleikar verða haldnir í Hlégarði í
Mosfellssveit á vegum Tónlistarfélags Mos-
fellssveitarídagkl. 15. Sigrún Hjálmtýsdóttir
sópran syngur við undirleik Önnu Guðnýjar
Guðmundsdóttur píanóleikara. Efnisskráin
er fjölbreytt, m.a. em lög eftir: Hándel,
Schumann, Brahms, Schubert, Donnizetti,
Rossini o.fl.
íslenska óperan á árs afmæli
■ „Fyrir ári síðan, þ.e. 9. janúar 1982
læddust teppalagningarmenn, smiðir, málar-
ar og ræstingarfólk út um hliðardyr um hálf
átta leytið, en um leið tóku að streyma að
prúðbúnir frumsýningargestir í hátíðarskapi.
Ævintýrið var orðið að veruleika." Svo segir
í frétt frá íslensku óperunni, en á sunnudags-
kvöld 9. janúar verður afmælissýning á
Töfratlautunni, en þá verður liðið eitt ár frá
því aö íslenska óperan tók til starfa með
frumsýningu á Sígaunabaróninum.
„Á þessum tímamótum er aðstandendum
(slensku óperunnar efst í huga þakklæti til
allra þeirra er hafa gert þetta ævintýri að
raunveruleika og mun ekki á neinn hallað
þótt nefnd séu hjónin Helga Jónsdóttir og
Sigurliði Kristjánsson, sem með höfðinglegri
dánargjöf sinni skiptu sköpum í sögu
Islensku óperunnar," segir ennfremur í
fréttinni.
Síðan óperan hafði fyrstu sýningu fyrir ári
hafa u.þ.b. 47.000 manns séð þær þrjár
uppfærslur, sem hún hefur staðið fyrir. Það
þýðir að Vs hluti þjóðarinnar hefur farið í
óperuna á einu ári. Það er sjaldgæf aðsókn
að óperu.
(tilefni afmælis verður óperugestum boðið
upp á veitingar i hléi á afmælissýningunni á
sunnudagskvöld.
JGK
Kammersveit Reykjavíkur ræðst
í stórvirki
■ Kammersveit Reykjavíkur efnir til 2.
tónleika starfsársins í Gamla bíói á morgun
sunnudaginn 9. janúar klukkan 16.00. Stjórn-
andi verður Paul Zukofsky frá Bandaríkjun-
um sem lagt hefur mikið af mörkum til
íslensks tónlistarlífs á undanförnum árum,
meðal annars með sumarnámskeiðum í
tónlist sem við hann eru kennd og haldin eru
á vegum Tónlistarskólans í Reykjavtk.
Á þcssum tónleikum ræðst Kammersveit-
in í að flytja Kammersinfóníu Schönbergs,
sem er stórvirki á sínu sviði, en hún er fyrir
15 hljóðfæri og talin eitt af erfiðustu
kammerverkum sem samið hefur veirð. Þá
verður Dance Preludes fyrir 9 hljóðfæri eftir
pólska tónskáldið Lutoslawski á dagskránni
tónleikunum lýkur með tónverkinu. La
Création du Monde fyrir 17 hljóðfæri eftir
Milhaud.
Miðar á tónleikana verða seldir við
innganginn en fastir áskrifendur að tón-
leikum Kammersveitarinnar eru minntir á að
taka með sér áskriftarkort sín til að framvísa
þeim við dyravörð.
Tónleikar í Norræna húsinu
■ Á morgun, sunnudag, kl. 17 munu þær
Berglind Bjamadóttir sópran og Guðrún A.
Kristinsdóttir píanóleikari halda tónleika í
Norræna húsinu. Á efnisskránni eru verk
eftir norræn tónskáld. Berglind syngur úr
Ljóðakornum Atla Heimis Sveinssonar og
sænska sönglagabálkninn Gullebarns vagg-
sánger eftir Wilhelm Peterson-Berger. Auk
þess verða fluttir söngvar eftir Wilhelm
Stenhammar og Jean Sibelius.
Sýning Dagmar Rodius
■ 1 dag kl. 16.00 verður opnuð sýning á
verkum þýsku listakonunnar Dagmar Rodius
í Nýlistasafninu Vatnsstíg 3b. Dagmar sem
er fædd í Bæjaralandi árið 1945, hefur
stundað myndlistarnám bæði í Þýskalandi og
Hollandi, auk fjögurra ára listasögunáms.
Sýningin stendur fram á sunnudagskvöld 16.
janúar.