Tíminn - 19.01.1983, Side 12

Tíminn - 19.01.1983, Side 12
16 &mmm MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 1983 iiciiii iiibiiiii inri 1 Ulái SJOIIS UaSta ■ Sleðinn er svo léttur, að það er hægðarleikur að renna honum fram og aftur með annarri hendi. í kjöltu stúlkunnar sjást ýms sýnishorn af því, sem prjónað hefur veriö í vélinni. (Tímantynd Ella) Prjónavélin sem prjónar úr lopa ■ I versluninni ALLT í Fellagörðum í Breiðholti er til sölu nýstárleg prjónavél, sem fyrst var kynnt hér á landi á síðustu Heimilissýningu. Síðan hefur hún selst vel hér á landi, en eini útsölustaðurinn' mun, cnn sem komið er, vera fyrrncfnd verslun. Vélin er ensk að uppruna og bcr nafnið Bond. Meðal nýjunga, sem hún býður upp á, er að hægt er að prjóna úr lopa meö henni. Þar að auki er hún mjög einföld að gerö og í notkun, svo að segja má, að hvert barn geti unnið við hana. Við báðunt Hönnu Jónsdóttur unt að segja okkur nánar frá vélinni og þcim tækifærum, sem hún býður upp á, en Hanna leiðbeinir væntanlegum kaup- enduni um notkun og meðferð vélarinn- ar. Hægt að prjóna allt í vélinni, sem hægt er að prjóna í höndunum - Allt það, sem maður getur prjónað í höndunum, getur maður prjónað með vélinni, og það er miklu fljótlegra, segir Hanna. -Þessi vél er mjög frábrugðin öðrum prjónavélum, þar sem á henni eru engir takkar, þannig að krakki getur prjónað á hana. Hún er einföld að gerð og í notkun, en það þarf að „hjálpa" henni nokkuð. Þetta er ekki tölva og vclin gcrir ekki allt sjálf. Það vcrður ýmislegt að gera með höndunum, taka af nál og setja á aðra o.s.frv. Það þarf að sitja við hana og hrcyfa sleðann frant og tilbaka, cn það er ekkert þungt. Sem fyrr scgir, má prjóna allt þaö, sem liægt er að prjóna í höndunum, með vélinní, en það tékur hins vegar mun skemmri tíma. Hún cr handhæg, þegar t.d. þarf að stækka prjónaflík, sem barn hefur stækkaö upp úr. Þá má rekja upp gantlar prjónaflíkur og nota garnið að nýju. Og skv. auglýsingu framleiðanda tekur aðeins 2-4 klst. aö prjóna peysu í fullorðinsstærð! Vélin er fyrirferðarlítil Prjónavélin sjálf er fyrirfcrðarlítil, vegur tæp tvö kíló og er tæpur einn metri á lengd og 13 cm á breidd. Það má fá framlengingu á hana. Hún er sjálfsmyrj- andi og höggþolin. Nálar eru úr nikkel- húðuðu stáli. Varahlutir, ef með þarf, eru fáanlegir í versluninni, en að sögn Hönnu er lítið um hluti í vélinni, sem geta skemmst eða bilað, það væri þá helst hætta á ferðum, þar sem lóðin eru fest í, en festingarnar eru úr plasti og sá möguleiki er fyrir hendi, að þær rifnuðu, ef klippt yrði frá of nærri. En þá er ekkert mál fyrir eigandann að skipta sjálfur um festingar. Þar sem vélin er svona lítil, þarf hún ekki að eiga sitt sérstaka pláss í íbúðinni. Þegar hún er ekki í notkun, má stinga henni inn í skáp, en á meðan verið er að nota hana, getur hún staðið á hvaða borði, sem er, því aðeins það sé ekki kringlótt. Vélin er bara skrúfuð á borðplötuna, eins og hakkavélarnar voru í gamla daga, með skrúfum undir -íborðbrúnina. Æfingin skapar meistarann Eins og fyrr segir er vélin einföld að gerð. Því fylgir sá kostur, að aðeins fylgir henni ein nálarstærð, þó að hún geti prjónað úr hvaða garngrófleika, sem vera skal. Aftur á móti fylgja henni 4 smápiastspjöld, sem skipt er um eftir því, hvað garnið er gróft. Þá þarf að bæta við lóðum, ef verið er að prjóna úr grófu garni, og fækka þeim þá að sama skapi, ef prjónað er úr fínu garni. Aukalóð er hægt að fá, svo og aukanálar. Þá er það kostur, að ekki þarf að vinda upp garnið áður en prjónaskapurinn hefst. Það er bara rakið innan úr dokkunni, sent liggur laus á borðinu. Upplýsingabæklingar, myndskreyttir og með enskum texta, fylgja hverri vél, þannig að fólk getur prófað sig_ áfram sjálft. En þar að auki fylgir kennsla vélunum og er fólk útskrifað eftir aðeins ‘A-l klst. tilsögn! En þá tekur æfingin við og má segja, að hún skipti sköpum, því að gamalt og gilt orðtæki segir: Æfingin skapar meistarann. Verð á vélinni miðað við greiðslu á borðið er nú 3.998 kr., en sé greitt að hluta nteð víxlum, 'fer verðið upp í 4.162.40. Framlengingin, sent áður er nefnd, kostar um 1.000 kr. húsráð Er þröngt á mat- borðinu? ■ Þegar margir sitja til borðs í einu, eða ef gest- irnir eru svo margir, að hentugara þykir að hafa standandi borð, þar sem hver og einn sækir sér á diskinn, vill oft verða þröngt á borðinu, ef borið er fram á mörgum fötum og öðrum ílátum. Ráð- snjöll kona hefur fundið lausn á þessum vanda. Hún hefur keypt sér grindur, sem ætlaðar eru til að sauma lampaskerma á, og hefur þær sem standa undir sum ílátin. Hún bendir réttilega á, að nauðsynlegt sé að gæta þess, að grindurnar séu traustar! Þurr og hörð húð á alnbogunum ■ Húðinni á alnbogunum hættir til að verða hörð og þurr. Reynið að mýkja hana upp í volgri olífuolíu.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.