Tíminn - 05.02.1983, Blaðsíða 1
„Samningaleidin er lokuð,”
■ „Einhliða aðgerðir íslenskra stjórnvalda, gagnvart Alusuisse eru
dauðadæmdar frá upphafi,“ sagði Steingrímur Hermannsson,
sjávarútvegsráðherra m.a. í viðtali við Tímann í gær, er Tíminn ræddi
við hann um hans sjónarmið í álmálinu og tillögur hans sem hann
fiutti í ríkisstjóminni í fyrradag, gegn tillögum Hjörleifs Guttorms-
sonar, iðnaðarráðherra um einhliða hækkun raforkuverðsins, með
lagasetningu.
segir Hjörleifur Guttormsson, iðnadarráðherra
Steingrímur sagðist telja að
vinnubrögð Hjörleifs í álviðræð-
unum hefðu verið klaufaleg og
að hann gefði haldið á málum á
vafasaman og vonlausan hátt.
Sagðist Steingrímur a.m. leggja
til að ný álviðræðunefnd og
ráðherranefnd tæki til starfa,
gömul ágreiningsefni yrðu lögð í
ger, Alusuisse hækkaði þegar í
stað raforkugreiðslur sínar að
einhverju leyti, en síðar yrði
samið um meiri hækkun. Hann
sagðist telja að einhliða aðgerð-
ir, gætu haft stórskaðleg áhrif,
næði slíkt fram að ganga, en
hann kvaðst ekki sjá nokkurn
möguleika á, að slíkt yrði sam-
þykkt á Alþingi. Steingrímur
sagði að framsóknarmenn óttuð-
.ust, að ef gripið yrði til einhliða
aðgerða, ss. með því að ákveða
einhliða hækkun á raforkunni til
Alusuisse, þá gæti fyrirtækið, og
það með nokkrum rétti, neitað
að kaupa orku, og lokað álver-
inu. „Eg er ekki reiðubúinn til
þess að axla ábyrgðina sem því
fylgir að gera 700 manns atvinnu-
lausa,“ sagði Steingrímur, og
kvaðst ekki telja röksemd iðnað-
arráðherra um að ef sú staða
komi upp, þá yfirtækju íslend-
ingar reksturinn, í skjóli neyðar-
réttar, vera þess eðlis að hún
væri framkvæmanleg, slíkt tap
væri á álrekstri í heiminum í dag,
og auk þess ætti ísland ekki
trygga markaði fyrir ál, ef út í
það færi, eins og Alusuisse ætti.
Þegar Tíminn ræddi við Hjör-
leif Guttormsson, iðnaðarráð-
herra um þetta mál í gær, sagði
hann m.a.: „Ég tel að það hafi
gerst mikil og alvarleg tíðindi á
þessum ríkisstjórnarfundi, þar
sem ráðherrar framsóknar-
manna höfnuðu tillögum mínum
um einhliða aðgerðir.
Ég hélt að það væri öllum
Ijóst, að samningaleiðin er
lokuð. Á það er búið að reyna
til þrautar."
Hjörleifur sagðist hafa áskilið
sér allan rétt til þess að færa
málið inn á vettvang Alþingis,
og sagðist hann gera ráð fyrir því
að gera svo innan tíðar.
-AB
Sjá viðtöl við Steingrím Her-
mannsson og Hjörleifi Gutt-
ormsson á bls. 3.
„VAR KOMINN
SNJÖFLÓD VIÐ PATRÓ
■ í óveðrinu sem geysaði á
Vestfjörðum féll snjófióð á þjóð-
veginn hjá Patreksfirði, í svo-
nefndum Geirseyrarmúla sem er
í innan við 1 km. fjarlægð frá
bænum. Annað snjóflóð féll svo
um 6 km. innar í firðinum og
vegna þessara flóða var ekki
hægt að hreinsa veginn inn
fjörðinn eins og áætlað var í gær.
„Hérna fennti allt í kaf, allar
götur lokuðust og allt hreinsun-
arstarf okkar mun tefjast vegna
veðursins" sagði Úlfar Thor-
oddsen sveitarstjóri á Patreks-
firði í samtali við Tímann.
Hann sagði að snjóflóðahætta
væri ekki til staðar í bænum
sjálfum vegna þess að svo hvasst
var í veðrinu að snjóinn náði
ekki að festa í fjallinu fyrir ofan
bæinn. Veðrið olli ýmsum öðrum
vandræðum og var skólinn því
lokaður vegna þess.
„Vegna hvassviðrisins náði
snjóinn ekki að festa nema þar
sem hlé var og þar safnaðist
hann saman í stóra skafla víða
um bæinn“ sagði Úlfar. Hann
sagði ennfremur að versta veðrið
hefði verið um morguninn en
uppúr hádegi hefði veður verið
orðið skaplegt en útlit fyrir að
það tæki sig upp á ný um kvöldið.
-FRI
JúdókappS
afvopnaði
hnífa-
manninn!
■ „Pað var nú bara þannig að
þessi maður reif upp hníf,
þegar minnst varði, nú ég hélt
honum og hann var rólegur og
sagði að nú væri þetta allt í
lagi, og þá sleppti ég honum og
var á leiðinni út, þegar ég leit
um öxl og sá þá blikandi
hnífsblað yfir höfði mér og
afvopnaði hann því,“ sagði
Viðar Guðjohnsen júdókappi,
sem rekur Gistiheimilið við
Brautarholt þegarTíminn innti
hann eftir því í gærkveldi með
hvaða hætti hann hefði afvopn-
að mann. sem gisti í gisti-
heimilinu, og réðst að honum
með hníf.
„Þessi maður var búinn að
vera nteð usla og óspektir hér
á gistiheimilinu og ég ætlaði
þess vegna að vísa honum al
gististaðnum, þegarhann greip
til hntfsins og reyndi að leggja
til mtn. Þctta korn eins og áfall
því að æskufélagi rninn, Óskar
Blómsterbcrg lét lífið eftir
satnskonar árás í síöasta mán-
uði, cn við vorum eins og
bræður og bjuggum saman,“
sagði Viðar. ■ Einar Björnsson á A-deild Borgarspitalans í gær. Hann hlaut handleggsbrot og fótbrot við slysið, auk
ýmissa minni meiðsla. (Tímamynd Ámi)
„EINHLIÐA AÐGERÐIR ERU
DAUÐADÆMDAR FRA UPPHAFI”
Á MIKIA FERÐ,
ÞEGARÉGSÁ
SNHIRODARANr
Dregið í áskrifendagetrauninni - og nýr seðill - bls. 2
Tvö
blöo
Helgin 5.-6. februar 1983
28. tölublað - 67. árgangur
Steingrímur Hermannsson, sjávarútvegsrádherra, um álmálið:
— segir Einar
son, 12 ára, sem lenti
í alvarlegu slysi á
skíðasvæðinu í
Bláfjöllum í fyrradag
■ „Ég var kominn á mikla
ferð, þegar ég sá snjótroðarann
beint fyrir framan mig. Ég
reyndi að beygja, en þá kom
snörp vindhviða svo mér tókst
það ekki. Ég skall á troðarann
og missti meðvitund í smátíma
og þegar ég vaknaði var verið að
hlúa aö mér og mér leið mjög
illa.“
Þannig fórust Einari
Björnssyni, 12 ára gömlum
dreng úr Reykjavík orð þegar
fréttamaður Tímans hitti hann
að máli á Borgarspítalanum í
gær, en Einar slasaðist alvarlega,
bæði handleggs og fótbrotnaði,
þegar hann varð fyrir snjótroð-
aia á skíðasvæðinu í Btáfjöllum
klukkan hálf sex í fyrradag.
Nokkrar tennur snjótroðarans
fóru yfir hann og auk brotanna
hlaut hann ýmsa minni áverka.
Að sögn Víðis Jónssonar,
verkstjóra í Bláfjöllum, varð
það Einari til lífs að ökumaður
snjótroðarans sá hvað verða
vildi og hafði drepið á tækinu
áður en drengurinn skall beint
framan á það, en hann hafði
fallið er hann reyndi að beygja
frá.
Einar kveðst hafa stundað
skíðamennsku undanfarin tvö ár
og skíðin sem hann var á hafði
hann fengið í jólagjöf. DuttU
þau af honum áður en hann lenti
á snjótroðaranum og eru þau
því óskemmd, sem eru honum
nokkur sárabót, þótt eflaust líði
talsverður tími áður en hann
getur spennt þau á sig að nýju.
-H.H.