Fréttablaðið - 09.02.2009, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 09.02.2009, Blaðsíða 6
6 9. febrúar 2009 MÁNUDAGUR Minna kólesteról www.ms.is Benecol er náttúrulegur mjólkurdrykkur sem lækkar kólesteról í blóði. Mikilvægt er að halda kólesterólgildum innan eðlilegra marka því of hátt kólesteról í blóði er einn helsti áhættuþáttur kransæðasjúkdóma. Ein flaska á dag dugar til að ná hámarksvirkni. SVISS, AP Með afgerandi meirihluta atkvæða, 59,6 prósent, samþykktu kjósendur í Sviss í gær samkomu- lag við Evrópusambandið um að frjáls för launafólks milli ESB- landa og Sviss skuli líka gilda fyrir borgara Rúmeníu og Búlgar- íu, nýjustu aðildarríkja ESB. Hefði niðurstaðan orðið á hinn veginn hefði það getað sett alla tvíhliða samninga Sviss við ESB í uppnám, en þar sem Sviss er ekki aðili að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið eins og hin EFTA-ríkin Ísland, Noregur og Liechtenstein hafa Svisslend- ingar þess í stað gert röð tvíhliða samninga um aðgang að innri markaði Evrópu. - aa Þjóðaratkvæðagreiðsla í Sviss: Samþykkja frjálsa för fólks STJÓRNMÁL Þórlindur Kjartans- son, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, og Erla Ósk Ásgeirsdóttir, fyrrverandi for- maður Heimdalls, gefa bæði kost á sér í sameiginlegu prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavíkur- kjördæmunum tveimur, sem haldið verður um miðjan mars. Þórlindur sækist eftir fjórða sæti og Erla því fimmta. Þá hefur forritarinn Jóhannes Birgir Jensen lýst yfir fram- boði til formennsku í Sjálfstæð- isflokknum, en kosið verður um nýjan formann á landsfundi 26. til 29. mars. - sh Prófkjör Sjálfstæðisflokksins: Þórlindur og Erla Ósk fram VIÐSKIPTI „Ég er með tuttugu þús- und pund á ári fyrir stjórnarsetu í Iceland en ekki með aðgang að bíl og þyrlu. Annað er þvæla,“ segir Jón Ásgeir Jóhannesson, starfandi stjórnarformaður Baugs. Hann segir fréttir breskra fjöl- miðla frá í gær um sérstök fríðindi vegna stjórnarsetu í fyrirtækj- um sem hann sitji í ásamt Gunn- ari Sigurðssyni, forstjóra Baugs, fráleitar. Jón Ásgeir er stjórnarformað- ur matvörukeðjunnar Iceland og stjórnarmaður í House of Fraser, leikfangaversluninni Hamleys og skartgripakeðjunni Aurum, sem skilanefnd Landsbankans gekk að veði í í síðustu viku. Fyrir stjórn- arformennskuna fær hann tuttugu þúsund pund, jafnvirði 3,3 milljóna króna, á ári. Fríðindi eru engin. „Ég hef ekki verið beðinn um að hætta í stjórnum þeirra,“ segir hann og vísar til tilkynningar skilanefndar Landsbankans frá í síðustu viku að Baugur hafi skuld- bundið sig til að vinna með bank- anum og hámarka virði eignanna. „Við eigum að forða þeim frá frek- ari slysum,“ segir Jón Ásgeir. Að öðru leyti vísaði hann til þess að tilsjónarmenn PricewaterhouseC- oopers ráði stjórnarsetum hans í félögum tengdum BG Holding, dótturfélags Baugs í Bretlandi, í dag. Auk aðgerða skilanefndar Lands- bankans tók Straumur yfir eignir Baugs í Danmörku á fimmtudag. Það eru verslanirnar Magasin du Nord, Illum og Day Mikkelsen. Samkvæmt breska dagblaðinu Observers er Kaupþing að íhuga að taka fataverslanakeðjuna Mosaic Fashions upp í skuldir, sem nema 400 milljörðum króna. Steinar Þór Guðgeirs- son, formað- ur skilanefnd- ar Kaupþings, segir svo ekki vera. Unnið sé með félaginu að endurskipulagn- ingu skulda. Breska dag- blaðið Guardian hafði í gær upp úr skýrslu PricewaterhouseCoo- pers, sem unnin var fyrir skila- nefnd Landsbankans, að 150 millj- ónir punda, jafnvirði 25 milljarða króna, fáist fyrir eignir Baugs yrðu þær seldar í dag. Þetta jafngild- ir um einum sjöunda af skuldum Baugs gagnvart íslensku bönkun- um sem nema um einum milljarði punda. Lánadrottnar félagsins hafa lýst því yfir að eignir verði ekki seldar í því árferði sem nú ríki á fjármálamörkuðum enda fengist lítið fyrir þær. Jón Ásgeir segir mikilvægt að niðurstaða fáist í greiðslustöðvun Baugs í Bretlandi svo hægt verði að halda áfram þeirri vinnu sem lagt hafi verið upp með og skýra stöðuna. Öllu starfsfólki Baugs hér á landi var sagt upp fyrir rúmri viku og tæpum helmingi í höfuðstöðvun- um í Lundúnum í Bretlandi. Sextán starfa þar nú og hafa öll leitað fyrir sér á öðrum vettvangi. „Óvissan er algjör,“ segir Jón Ásgeir. Hann segir ljóst að saga Baugs sé öll þótt hremmingarnar ytra ættu ekki að hafa áhrif á félög tengd Gaumi, félagi fjölskyldu hans hér. Sjálfur viti hann ekki hvað bíði sín. jonab@frettabladid.is JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON DANSKA VERSLUNIN ILLUM Starfandi stjórnarformaður Baugs situr í stjórnum þeirra félaga sem skilanefnd Landsbankans gekk að veðum í í síðustu viku til að forða þeim frá frekari slysum. Eignirnar duga fyrir einum sjötta skulda Yrðu eignir Baugs í Bretlandi seldar nú fengjust 25 milljarðar króna fyrir þær. Sögu félagsins er lokið. Jón Ásgeir Jóhannesson segist óviss um framtíðina. EFNAHAGSMÁL Viðskiptaráðuneyt- ið reynir nú að semja við eigendur jöklabréfa, og hluta af erlendum aðiljum sem eiga 550 milljarða hér á landi. Þetta staðfestir Þorfinnur Ómarsson, upplýsingafulltrúi við- skiptaráðuneytisins. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins kemur meðal annars til greina að færa eignirnar í lang- tíma ríkisskuldabréf, eða að líf- eyrissjóðir eða aðrir kaupi þær með afslætti. Einnig kemur til greina að bjóða fjármagnseigend- unum að afskrifa hluta upphæð- arinnar gegn því að losna með það sem eftir stendur úr landi. Þorfinnur staðfestir að þetta séu meðal þeirra leiða sem hafi verið nefndar. Erlendir aðilar eiga um 550 milljarða króna hér á landi, sem eru fastir vegna gjaldeyrishafta. Um 250 milljarðar liggja í jökla- bréfum, 150 milljarðar í ríkis- skuldabréfum og önnur eins upp- hæð í innstæðum í íslenskum krónum, samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum. Hagfræð- ingar hafa lýst áhyggjum af því að hverfi þessir erlendu fjárfest- ar með fé sitt úr landi geti gengi krónunnar fallið. Þorfinnur segir markmiðið með því að hafa samband við erlenda aðila sem eigi eignir í krónum að koma í veg fyrir að gengið falli vegna þeirra þegar gjaldeyris- höftum verður aflétt. - bj Viðskiptaráðherra vill losa erlenda aðila við krónur án þess að gengið falli: Reynir að semja við eigendur SRÍ LANKA, AP Fleiri en fimmtán þúsund óbreyttir borgarar á átakasvæði stjórnarhersins og Tamílatígranna nyrst á Srí Lanka hafa lagst á flótta undanfarna daga, að því er talsmaður stjórn- valda í höfuðborginni Colombo greindi frá. Svo virðist sem stjórnarherinn sé í þann mund að hrekja vopn- aða liðsmenn Tamílatígra frá síðustu vígjum sínum. Að sögn hersins var að minnsta kosti 21 skæruliði felldur um helgina. Stjórnarherinn sakar skæru- liða um að beita óbreyttum borg- urum fyrir sig sem „mannlegum skjöldum“. Því neita talsmenn Tamílatígra. - aa Borgarastríðið á Srí Lanka: 15.000 óbreyttir Tamílar á flótta Á FLÓTTA Tamílar á flótta frá átaka- svæðinu með föggur sínar við bæinn Vavuniya í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Vinstri græn halda forval Vinstrihreyfingin - grænt framboð hefur ákveðið að efna til forvals fyrir komandi alþingiskosningar í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur. Kjörstjórn leggur til að forvalið fari fram 6. mars og framboðsfrestur sé til 19. febrúar. STJÓRNMÁL JAFNRÉTTISMÁL Félagasamtök sem sinna forvarnaverkefnum gegn kynbundnu ofbeldi og kynferð- islegu ofbeldi gagnvart börn- um eða veita þolendum stuðning fengu tæpar 8,5 milljónir króna í styrki frá félags- og trygginga- málaráðherra á árinu 2008. Meðal styrkþega eru Samtök um kvennaathvarf, Stígamót og Sólstafir, kvennaathvarf á Vest- fjörðum. Þá fengu Blátt áfram og Þekkingarsetur styrktarfélagsins Áss einnig styrk. - ovd Hálf níunda milljón í styrki: Gegn kyn- bundnu ofbeldi KAUPHÖLLIN Erlendir aðilar eiga um 550 milljarða króna hér á landi sem eru fastir vegna gjaldeyrishafta. Finnst þér ný ríkisstjórn fara vel af stað? Já 62% Nei 38% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ertu búin(n) að lesa bréf Davíðs Oddssonar til Jóhönnu Sigurðardóttur? Segðu skoðun þína á visir.is. HEILBRIGÐISMÁL „Niðurskurður í heilbrigðiskerfinu er lögþvingaður. Honum verður ekki breytt nema fjárlög verði tekin upp á ný. Þetta er ekki ljúft verk en við eigum ekki annarra kosta völ en að draga saman seglin,“ segir Ögmundur Jónasson heilbrigðis ráðherra. Fyrirhugaður er 6,7 milljarða króna niðurskurð- ur í heilbrigðisgeiranum á árinu. Ögmundur segir nauðsynlegt að finna leiðir til sparnaðar, svo sem með lækkun lyfjakostnaðar ásamt skipulags- breytingum í stjórnsýslunni og tilhögun vinnu í heilbrigðisgeiranum. Reynt verði eftir megni að láta niðurskurðinn ekki bitna á starfsfólki auk þess sem reynt verði að hlífa því starfsfólki sem hafi lágar tekjur á kostnað hinna. „Ég hef sett fram þau pólitísku markmið sem eiga að tryggja heilbrigðisþjónustuna og aðgengi að henni. Þegar kemur að launakostnaði verður það gert með kjarajöfnun að leiðarljósi,“ segir Ögmundur og vonast eftir samstöðu um markmiðin. Reynt verði að fá sem flesta að samningaborðinu til að ná markmiðunum fram. Þá verði horft til aðstæðna hverju sinni. „Það er sárt til þess að hugsa að heilbrigðisgeirinn hafi ætíð setið á hakanum og nú þurfi að skera þar niður,“ segir heilbrigðisráðherra. - jab HJARTARITI SKOÐAÐUR Stefnt er að því að skera niður kostnað í heilbrigðiskerfinu um 6,7 milljarða króna í ár. Ekki ljúft verk, segir heilbrigðisráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Heilbrigðisráðherra segir erfiðan niðurskurð fyrirhugaðan í heilbrigðisþjónustu: Eigum ekki annarra kosta völ ÍSRAEL, AP Benjamin Netanyahu, leiðtogi Likudflokksins sem flest bendir til að vinni þingkosning- arnar sem fram fara í Ísrael í vikunni, lýsti því yfir í gær að ríkisstjórn undir sinni forystu myndi ekki taka í mál að skila Sýrlandi Gólanhæðum til að liðka fyrir friðarsamningum. Ísraelar hafa haldið hæðunum hernumd- um síðan í stríðinu 1967. Kosningabaráttan hefur verið tíðindalítil allt frá því kosning- arnar voru boðaðar í nóvember, þar til nú að Netanyahu grípur til þessa ráðs til að freista þess að halda í hægrijaðarfylgi sem nýr harðlínuflokkur höfðar til. - aa Kosningabarátta í Ísrael: Mun ekki skila Gólanhæðum KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.