Fréttablaðið - 09.02.2009, Síða 26
18 9. febrúar 2009 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
27. feb. – 1. mars
27. feb. – 1. mars
Verð á mann í tvíbýli:
65.900kr.
69.900kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum
greiðslum, miði á leikinn og hótelgisting
með morgunverði í 2 nætur.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum
greiðslum, miði á leikinn og hótelgisting
með morgunverði í 2 nætur.
Nánar á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
West Ham
Man. City
Man. Utd.
Portsmouth
Verð á mann í tvíbýli:
Boltinn er hjá okkur!
Eimskipsbikar karla
Valur-FH 29-25 (18-13)
Mörk Vals: Arnór Þór Gunnarsson 7/4 (10/4),
Heimir Örn Árnason 7 (13), Sigurður Eggertsson
5 (8), Baldvin Þorsteinsson 4 (7), Sigfús Sigurðs-
son 2 (4), Elvar Friðriksson 2 (9), Ingvar Árnason
1 (1), Hjalti Þór Pálmason 1 (7), Sigfús Páll
Sigfússon (1), Hjalti Gylfason (1)
Varin skot: Pálmar Pétursson 10 (27 37%),
Ólafur Gíslason 6 (14/1 42,9%)
Mörk FH: Guðmundur Pedersen 6/1 (8/1),
Ásbjörn Friðriksson 5 (12), Bjarni Fritzson 4 (7),
Sigurður Ágústsson 3 (4), Aron Pálmarsson 3
(12), Sigursteinn Arndal 2 (3), Hjörtur Hinriksson
2 (5)
Varin skot: Magnús Sigmundsson 24 (52/3
46,2%), Hilmar Þór Guðmundsson (1/1 0%)
Iceland Express karla
Snæfell-Breiðablik 99-73 (54-27)
Stig Snæfells: Jón Ólafur Jónsson 21, Hlynur
Bæringsson 16 (6 frák., 6 stoðs.), Lucious
Wagner 16, Atli Rafn Hreinsson 13, Sigurður
Þorvaldsson 10, Slobodan Subasic 7, Magni
Hafsteinsson 6,
Gunnlaugur Smárason 4, Arnór Hermundarson
4, Egill Egilsson 1, Daníel Kazmi 1.
Stig Breiðabliks: Emil Jóhannsson 24, Þorsteinn
Gunnlaugsson 18, Nemanja Sovic 15, Daníel
Guðmundsson 7, Halldór Halldórsson 4, Rúnar
Ingi Erlingsson 3, Hjalti Vilhjálmsson 2.
Stjarnan-Þór Ak. 110-96 (53-51)
Stig Stjörnunnar: Justin Shouse 31 (8 stoðs.),
Guðjón Hrafn Lárusson 20, Jovan Zdravevski 19,
Kjartan Kjartansson 14, Hjörleifur Sumarliðason
13, Ólafur Sigurðsson 5.
Stig Þórs: Konrad Tota 25, Guðmundur Jónsson
19, Bjarki Ármann Oddsson 17, Daniel Bandy
15, Óðinn Ásgeirsson 11, Jón Orri Kristjánsson 5,
Baldur Ingi Jónasson 3.
Njarðvík-Skallagrímur 96-67 (53-41)
N1-deild kvenna í handbolta
Stjarnan-Haukar 27-30 (16-18)
Mörk Stjörnunnar: Alina Petrache 13/4,
Þorgerður Atladóttir 6, Kristín Clausen 4, Elísabet
Gunnarsdóttir 2, Harpa Sif Eyjólfsdóttir 2.
Mörk Hauka: Hanna Stefánsd. 10/3, Erna
Þráinsd. 6, Nína Arnfinnsd. 5, Ester Óskarsdóttir
4, Ramune Pekarskyte 4, Nína Björnsdóttir 1.
Fylkir-FH 33-30
Markahæstar: Sunna Jónsd. 8, Rebekka Skúlad.
7, Nataly Valencia 7 - Hildur Þorgeirsd. 10, Gunn-
ur Sveinsd. 9, Ragnhildur Guðmundsd. 7.
ÚRSLITIN Í GÆR
Iceland Express kvenna
Haukar-Keflavík 82-67 (53-30)
Stig Hauka: Slavica Dimovska 31 (9 frák., 8
stoðs., 5 stolnir), Guðbjörg Sverrisdóttir 14,
Kristrún Sigurjónsdóttir 12, Ragna Margrét Brynj-
arsdóttir 11 (10 frák.), Moneka Knight 7 (9 stoðs,
3 stolnir), Helena Hólm 5, Sara Pálmadóttir 2
Stig Keflavíkur: Pálína Gunnlaugsdóttir 15 (12
frák., 5 stoðs.), Bryndís Guðmundsdóttir 13
(11 frák.), Marín Rós Karlsdóttir 10, Svava Ósk
Stefánsdóttir 9 (7 frák., 5 stoðs.), Hrönn Þor-
grímsdóttir 6, Rannveig Randversdóttir 5, Birna
Valgarðsdóttir 4, Lóa Dís Másdóttir 3, Halldóra
Andrésdóttir 2.
Hamar-KR 76-79 (37-36)
Stigahæstar: Lakiste Barkus 27 (10 frák., 6
stoðs.), Julia Demirer 24 (15 frák., 6 varin),
Fanney Lind Guðmundsd. 11, Sóley Guðgeirsd.
9 - Margrét Kara Sturlud. 21 (9 frák., 6 stoðs.),
Sigrún Ámundad. 17 (13 frák.), Hildur Sigurðard.
14 ( 5 stoðs.), Guðrún Gróa Þorsteinsd. 10.
Snæfell-Fjölnir 77-44 (41-24)
Stigahæstar: Kristen Green 26 (13 stolnir), Berg-
lind Gunnarsd. 10, Björg Einarsd. 7 (6 stoðs.),
Gunnhildur Gunnarsdóttir 7, María Björnsd. 7 -
Birna Eiríksdóttir 13, Hrund Jóhannsd. 12 (8 frák.)
Stigin í efri hluta: Haukar 32, Keflavik 24, KR 20,
Hamar 18. Stigin í neðri hluta: Valur 18, Grinda-
vík 12, Snæfell 8, Fjölnir 2.
Bandaríska háskólakarfan
TCU-Colorado State 71-59 (40-25)
Helena Sverrisdóttir var stigahæst á vellinum
með 19 stig á 27 mínútum fyrir TCU auk þess að
taka 7 fráköst og gefa 4 stoðsendingar. Helena
nýtti öll 4 vítin sín og hefur hitt úr 31 víti í röð.
ÚRSLITIN Í GÆR
> Arndís Ýr sigursælust
Fjölniskonan Arndís Ýr Hafþórsdóttir vann flest gull
á Meistaramóti Íslands í frjálsun en hún vann 800,
1500 og 3000 metra hlaup. Arndís vann yfirburðasigur
í 3000 metra hlaupinu innan við klukkutíma eftir að
hún vann 800 metrana. Sex náðu tveimur gullum.
Linda Björk Lárusdóttir úr Breiðabliki
vann 60 metra hlaup og 60 metra
grindahlaup, Jóhanna Ingadóttir úr
ÍR og Kristinn Torfason úr FH
unnu bæði langstökk og þrí-
stökk, Trausti Stefánsson úr
FH og Hafdís Sigurðardóttir
úr FH unnu bæði 200 og
400 metra hlaup og Björn
Margeirsson vann bæði 800
og 1500 metra hlaup.
FH-ingurinn Kristinn Torfason setti glæsilegt Íslandsmet í þrístökki á
Meistaramóti Íslands í frjálsum um helgina. Gamla metið var búið að
standa í 30 ár en það átti Friðrik Þór Óskarsson (sjá mynd) sem stökk
14,92 metra árið 1979. Kristinn stökk 15,05 metra, bætti metið um 13
sentimetra og sinn besta árangur um 72 sentimetra.
„Það er mjög gaman að hafa náð að bæta
þetta met. Ég vissi af þessu meti, var búinn að
sjá það um jólin að ég ætti að geta tekið það
og var búinn að stefna á það síðan,“ sagði
Kristinn sem ætlar þó ekki að velja þrístökk-
ið fram yfir sína aðalgrein. „Langstökk
hefur alltaf verið mín aðalgrein og
ég held ég haldi því áfram,“ sagði
Kristinn en hann vann einnig gull í
langstökki þar sem tvö bestu stökkin
hans komu í lokin. „Maður var svolítið
lengi að komast í gang eftir 200 metr-
ana,” segir Kristinn sem varð naumlega
í 2. sæti á eftir Trausta Stefánssyni í
200 metra hlaupinu. Þrátt fyrir frábæran árangur Kristins þá þurftu
FH-ingar að horfa á eftir sigri í heildarstigakeppni félaganna til ÍR. „Við í
FH erum mjög ánægðir með uppskeru helgarinnar. Það er samt frekar
fúlt að missa af heildarstigakeppninni en við tókum karlabikarinn að
sjálfsögðu og unnum níu af þrettán greinum þar,“ sagði Kristinn sem
er búinn að stimpla sig vel inn á nýjan leik eftir að hafa
verið í fríi í nokkur ár. „Ég tók mér frí þegar ég byrjaði
í háskólanámi og byrjaði síðan aftur eftir að ég lauk
BS-námi,“ sagði Kristinn sem er búinn með BS-próf í
eðlisfræði og er nú í mastersnámi sem hann klárar í
vor. „Það tók smá tíma að koma sér af stað því
maður var orðin svolítið þungur en það kom
samt mjög fljótt. Ég held áfram og stefni
bara á að fara ennþá lengra og slá fleiri
met,“ segir Kristinn sem er kominn með
eitt met í sigtið, „Íslandsmetið í langstökki
innanhúss er 7,82 metrar og það mætti
taka það eftir svona eitt til tvö ár,“ sagði
Kristinn að lokum.
KRISTINN TORFASON Í FH: KOMINN TIL BAKA EFTIR LANGT FRÍ OG BÆTTI 30 ÁRA ÍSLANDSMET Í ÞRÍSTÖKKI
Stefni á að fara ennþá lengra og slá fleiri met
HANDBOLTI Valsmenn mæta Gróttu
í úrslitum Eimskipsbikars karla
eftir sigur á FH, 29-25, á Hlíðar-
enda í gær.
Eftir jafnar upphafsmínútur
náðu Valsmenn sjö marka for-
ystu í fyrri hálfleik sem FH náði
að minnka í fimm mörk fyrir leik-
hlé, 18-13.
Með mikilli baráttu, góðri vörn
og markvörslu komust FH-ingar
inn í leikinn og náðu að minnka
muninn í eitt mark, 20-19, eftir tíu
mínútna leik í seinni hálfleik en
of mikill kraftur fór í að minnka
muninn og með breiddina að
vopni náði Valur að sigla fram úr
og vinna að lokum öruggan fimm
marka sigur, 29-25.
„Við leikum illa í einhverj-
ar fimmtán mínútur í fyrri hálf-
leik og það er erfitt að saxa á
þá. Við náum aðeins taktinum í
seinni hálfleik en þetta er erfitt
gegn þeim. Þeir eru skynsamir í
sóknarleiknum og með góða vörn
og markvörslu,“ sagði svekktur
Magnús Sigmundsson markvörður
FH í leikslok.
„Það er engin skömm að tapa
fyrir þessu liði, þeir áttu þetta
meira en skilið í dag og voru
betri.“
„Ég vil meina að við höfum tekið
þetta á breiddinni. Það eru forrétt-
indi að fá að vera með þennan hóp
leikmanna,“ sagði Óskar Bjarni
Óskarsson þjálfari Vals í leiks-
lok.
„Við vorum lélegir sóknarlega í
seinni hálfleik og skutum Magnús
í stuð. Svo náðum við að róa okkur
niður og gerðum einfaldari hluti.
Þetta small síðasta korterið og
þetta var öruggt og þægilegt.“
Í Gróttu mæta Valsmenn göml-
um félögum en með liðinu leika
Ægir Hrafn Jónsson og Atli Rúnar
Steinþórsson auk þess sem Ágúst
Þór Jóhannsson þjálfar liðið.
„Ágúst er einn af mínum betri
vinum og Ægir og Atli áttu frá-
bær ár hérna. Það verður hörku-
leikur. Þeir eru besta liðið í fyrstu
deildinni núna og eru mjög góðir.
Við getum aldrei vanmetið einn né
neinn. Við höfum átt í erfiðleik-
um með þessi svokölluðu minni
lið. Svo er bikarúrslitaleikur allt-
af bikarúrslitaleikur. Þá er bikar
kominn á borðið og það snýst um
hverjir vilja þetta.“ - gmi
Breiddin kom Val í úrslit
Valsmenn og Grótta leika til úrslita í Eimskipsbikarkeppni karla í handbolta
eftir fjögurra marka sigur Valsmanna á FH-ingum í Vodafone-höllinni í gær.
Í ÚRSLIT ANNAÐ ÁRIÐ Í RÖÐ Valsmaðurinn Sigurður Eggertsson fékk blóðnasir eftir
högg en það spillti ekki fyrir sigurgleði hans í leikslok. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
TIL HAMINGJU Friðrik
Þór Óskarsson og
Kristinn Torfason.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KÖRFUBOLTI Haukakonur eru deild-
armeistarar í Iceland Express-
deild kvenna eftir öruggan 15 stiga
sigur á Keflavík, 82-67, á Ásvöllum
í gær. Haukaliðið er þar með komið
með átta stiga forskot á Kefla-
vík þegar aðeins þrjár umferðir
eru eftir og verða því með heima-
vallarrétt út alla úrslitakeppnina.
Slavica Dimovska átti stórleik
hjá Haukum og var með 31 stig, 9
fráköst og 8 stoðsendingar og þá
átti Moneka Knight sinn besta leik
til þessa. Auk þess að skora 7 stig
og gefa 9 stoðsendingar þá átti hún
mikinn þátt í því að halda Birnu
Valgarðsdóttur í 4 stigum eða 19
stigum undir meðaltali sínu.
Haukar tóku völdin í öðrum leik-
hluta og gerðu nánast út um leik-
inn með því að skora 18 stig í röð
og breyta stöðunni úr 28-22 í 46-22.
Eftir það var þetta aðeins spurning
um hversu stór sigurinn yrði.
Auk þeirra Slavicu og Moneku
voru þær Guðbjörg Sverrisdóttir
og Ragna Margrét Brynjarsdótt-
ir góðar en fyrirliðinn Kristrún
Sigurjónsdóttir var í villuvand-
ræðum.
Bryndís Guðmundsdóttir var
besti maður Keflavíkur og Pálína
Gunnlaugsdóttir átti fínan seinni
hálfleik og mikinn þátt í því að
Keflavíkurliðið bjargaði andlitinu
eftir að hafa lent mest 32 stigum
undir í leiknum. Keflavík hefur
nú tapað tveimur leikjum í röð en
næst á dagskrá hjá liðinu er bikar-
úrslitaleikur gegn KR. - óój
Stórleikur Slavicu Dimovsku gegn Keflavík í gær:
Haukakonur deildar-
meistarar með stæl
ÓSTÖÐVANDI Haukakonan Slavica
Dimovska átti stórleik gegn Keflavík á
Ásvöllum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON