Fréttablaðið - 09.02.2009, Page 27
MÁNUDAGUR 9. febrúar 2009
Þegar áfallið dynur yfir!
Morgunverðarráðstefna um áfallastjórnun og fyrstu viðbrögð þegar „hið óhugsanlega gerist“
verður haldin miðvikudaginn 11. febrúar næstkomandi, frá klukkan 8:00 til 10:15, í Gullteigi B á
Grand Hótel.
Undanfarnar vikur og mánuði hefur röð alvarlegra áfalla dunið yfir fjölda íslenskra fyrirtækja og stofnana. Góður
orðstír og traust ímynd, sem tekið hefur langan tíma að byggja upp, getur hrunið á svipstundu. Sömuleiðis
getur áfall og langvarandi streita í kjölfarið haft skaðleg áhrif á heilsu starfsfólks og vinnugetu og þá um leið á
afkomu fyrirtækis. Því er það mjög mikilvægt að stjórnendur kunni að bregðast strax við til að lágmarka
mögulegan skaða og geti skapað nýjar lausnir til framtíðar.
8:00 Skráning og morgunverðarhlaðborð.
8:15 Fundarstjóri, Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Landspítala háskólasjúkrahúss, setur ráðstefnuna.
8:30 Þegar DV hringir… Jón Hákon Magnússon, framkvæmdastjóri KOM almannatengsla ehf.,
ræðir um áfallastjórnun, hrun ímyndar og viðbrögð við vondri frétt.
8:45 Í auga stormsins! Þórdís Jóna Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Ráðgjafahússins ehf.,
ræðir um áfallaviðbrögð og miðlar af reynslu sinni.
9:00 Þetta þarftu að vita. Högni Óskarsson, geðlæknir og eigandi Humus,
ræðir langtímaáhrif áfalla á andlega og líkamlega heilsu og á vinnufærni og afkomu fyrirtækja.
9:15 Hvað getum við gert? Magnús Böðvarsson, læknir og stjórnarformaður Vinnuverndar ehf.,
ræðir um fyrirbyggjandi aðgerðir á vinnustað.
9:30 Pallborðsumræður – spurningar og svör. Svali Björgvinsson, starfsmannastjóri Kaupþings, stýrir
umræðum. Þátttakendur: Frummælendur og stjórnandi.
10:15 Ráðstefnulok.
Þátttökugjald er kr. 2.500. Vinsamlegast skráið þátttöku á kom@kom.is eða hringið í síma 540 8800.
S T O F N A Ð 1 9 8 6
K
O
M
A
LM
A
N
N
A
TE
N
G
S
L
/ S
VA
R
TH
VÍ
TT
HROGN LIFUR
OG KÚTTMAGI
SPARNAÐARRÁÐ
Kaupið ferskt fi skfars og
steikið á pönnu. Frysti ð
svo bollurnar. Bollurnar
bragðast eins og nýjar
þegar þær eru hitaðar í
ofni. ATH. Bolludagurinn
nálgast, hvað er betra en
að eiga glænýjar bollur í
frysti kistunni.
20 ára gömul uppskrift
20 ára gamalt verðHANDBOLTI Haukakonur eru komn-ar aftur í toppsæti N1 deildar
kvenna eftir 27-30 sigur á Stjörn-
unni í toppslag deildarinnar í
Mýrinni á laugardaginn.
Haukaliðið kann greinilega vel
við sig á heimavelli Stjörnunnar
þar sem liðið er búið að vinna
báða leiki sína í vetur en liðið
fór einnig á toppinn eftir sigur-
inn í fyrri leiknum. Stjarnan er
aftur á móti búin að vinna hina
tvo sem fóru fram á Ásvöllum og
í Laugardalshöllinni.
Haukar höfðu frumkvæðið
nánast allan leikinn, voru 18-16
yfir í hálfleik og náðu mest sex
marka forskoti í seinni hálfleikn-
um.
Haukaliðið komst yfir það að
missa stórskyttuna Ramune Pek-
arskyte útaf með rautt spjald á
35. mínútu leiksins en hún fékk
það fyrir sóknarbrot þar sem
hún var talin hafa gefið Alinu
Petrache olnbogaskot. Alina var
allt í öllu í sókn Stjörnunnar og
skoraði 13 mörk.
Díana Guðjónsdóttir, þjálf-
ari Hauka, segist ætla að áfrýja
rauða spjaldinu í viðtali á heima-
síðu Hauka en standi rauða
spjaldið verður Ramune vænt-
anlega í leikbanni í undanúrslita-
leik bikarkeppninnar þar sem
Haukar taka á móti Stjörnunni á
Ásvöllum næsta laugardag. - óój
Haukakonur aftur á toppinn eftir sigur í Mýrinni:
Ramune í banni í
undanúrslitunum?
LEIKBANN Ramune Pekarskyte fékk
umdeilt og hugsanlega dýrkeypt rautt
spjald. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Enska úrvalsdeildin
BLACKBURN-ASTON VILLA 0-2
0-1 James Milner (26.), 0-2 Gabriel
Agbonlahor
(89.), 0-2 Gabriel Agbonlahor (90.).
CHELSEA-HULL 0-0
EVERTON-BOLTON 3-0
1-0 Mikel Arteta (39.), 2-0 Jo (48.), 3-0 Jo (90.).
MAN. CITY-MIDDLESBROUGH 1-0
1-0 Craig Bellamy (51.).
PORTSMOUTH-LIVERPOOL 2-3
1-0 David Nugent (61.), 1-1 Fa¡bio Aurelio (68.),
2-1 Hermann Hreiðarsson (77.), 2-2 Dirk Kuyt
(84.), 2-3 Fernando Torres (90.).
SUNDERLAND-STOKE 2-0
1-0 Kenwyne Jones (77.), 2-0 David Healy (90.).
WEST BROMWICH-NEWCASTLE 2-3
0-1 Damien Duff (1.), 1-1 Marc-Antoine Fortune
(3.), 1-2 Peter Lövenkrands (8.), 1-3 Steven
Taylor (40.), 2-3 Marc-Antoine Fortune (72.)
WIGAN-FULHAM 0-0
TOTTENHAM-ARSENAL 0-0
WEST HAM-MAN.UNITED 0-1
0-1 Ryan Giggs (62.)
STAÐA EFSTU LIÐA
Man. United 24 17 5 2 41-10 56
Liverpool 25 15 9 1 42-17 54
Aston Villa 25 15 6 4 40-24 51
Chelsea 25 14 7 4 44-15 49
Arsenal 25 12 8 5 38-25 44
Everton 25 11 7 7 34-28 40
ENSKI BOLTINN
FÓTBOLTI Manchester United endur-
heimti toppsætið í ensku úrvals-
deildinni með 1-0 sigri á West
Ham en tæpum sólarhring áður
hafði Liverpool komist í efsta
sætið eftir dramatískan 3-2 sigur
á Portsmouth.
Ryan Giggs tryggði Manchester
United áttunda 1-0 sigurinn í síð-
ustu ellefu leikjum með glæsilegu
einstaklingsframtaki á vinstri
vængnum. Þetta var fyrsta mark-
ið hans í úrvalsdeildinni í vetur.
Edwin van der Sar hélt hreinu
13. deildarleikinn í röð og hefur
nú haldið hreinu í 1.212 mínútur í
ensku úrvalsdeildinni.
Hermann Hreiðarsson virtist
ætla að hafa mikil áhrif í titilbar-
áttu Liverpool og Manchester Unit-
ed þegar hann kom Portsmouth í
2-1 tólf mínútum fyrir leikslok en
Fernando Torres átti eftir að segja
sitt síðasta orð, fyrst lagði hann
upp mark fyrir Dirk Kuyt og svo
skoraði hann sjálfur sigurmarkið
með skalla í uppbótartíma.
Bæði Kuyt og Torres höfðu
komið inn á sem varamenn í leikn-
um. „Læknar liðsins sögðu mér
að Torres, Alonso og
Kuyt væru þreyttir
og töldu
það best
að hvíla
þá,“ sagði
Rafael
Ben-
ítez, stjóri Liverpool og bætti við.
„Allir sigrar eru mikilvægir og
sérstaklega þar sem við þurfum
að vinna eiginlega alla leiki. Við
gáfum þeim tvö mörk en við áttum
skilið að vinna,” sagði Benitez.
Afleitt gengi Chelsea á heima-
velli hélt áfram með markalausu
jafntefli við Hull og 2-0 útisigur
Aston Villa á Blackburn þýðir að
Chelsea er komið niður í fjórða
sætið sjö stigum á eftir toppliði
United. „Það verður mjög erfitt
að ná Manchester United eins og
þeir eru að spila núna,“ sagði Ray
Wilkins, aðstoðarstjóri Chelsea,
eftir leikinn.
Everton ætlar heldur ekki að
gefa neitt eftir og nýi maðurinn Jo
skoraði tvö mörk í 3-0 sigri á Grét-
ari Rafni Steinssyni og félögum í
Bolton.
Kaup Manchester City á Craig
Bellamy eru þegar farin að borga
sig því hann skoraði sigurmarkið
liðsins öðru sinni í þremur leikjum
þegar City vann Middlesbrough 1-
0. City er því farið að skríða upp
töfluna þökk sé Bellamy.
Tíu leikmenn Arsenal náðu
markalausu jafntefli á útivelli
gegn erkifjendunum í Tot-
tenham en Emmanuel Eboue
var rekinn útaf á 37. mínútu
leiksins fyrir heimskulegt
brot. Andrei Arshavin var á
bekknum en kom ekki við sögu
í leiknum. - óój
Manchester United tók toppsætið aftur af Liverpool:
Meistaramark Giggs
FRÁBÆRT SIGURMARK Ryan Giggs
fagnar með Cristiano Ronaldo.
NORDICPHOTOS/AFP