Fréttablaðið - 09.02.2009, Side 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Þórhildar Elínar
Elínardóttur
Í dag er mánudagurinn 9. febrúr-
ar, 40. dagur ársins.
9.42 13.42 17.43
9.37 13.27 17.17
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Berlín er
brilljant!
með ánægju
Þeir sem hafa heimsótt Berlín vita að þar finna sér
allir eitthvað við hæfi. Hvort sem þú vilt taka þér frí
frá íslenska vetrinum, auðga andann eða fara út á
lífið, þá skaltu taka stefnuna á Berlín.
Bókaðu núna á www.icelandexpress.is – þú hefur
gott af því að skella þér út!
Frábær ferð til Berlínar
6.–9. mars
Verð á mann í tvíbýli
69.900 kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, gisting á
4* hóteli með morgunverði og akstur til og frá flugvelli.
Páskaferð til Berlínar
Fararstjóri: Lilja Hilmarsdóttir
6.–13. apríl
Verð á mann í tvíbýli
119.900 kr.
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, gisting á
4* hóteli með morgunverði, akstur til og frá flugvelli og
íslensk fararstjórn.
Nánar á www.expressferdir.is og í síma 5 900 100
Opið sjö til tvö
Lyfja Lágmúla
- Lifið heil
www.lyfja.is
Af því nú er í blankheitunum hvarvetna talað um endurskoð-
un á gildum hlaut boðskapurinn
loks að síast svolítið inn. Samt ekki
fyrr en ég hafði á haustmánuðun-
um hræðilegu farið ofan í saum-
ana á heimilisbókhaldinu og íhug-
að ýmsar sparnaðarleiðir í daglega
lífinu. Fyrir einfalda sál með hóf-
leg umsvif var það fljótafgreitt og
þá var sumsé komið að umræddri
endurskoðun á gildum.
EFTIR að hafa gert úttekt á gæða-
stundum fjölskyldunnar, lagt
áherslu á innihald fremur en
umbúðir og hafið átak í persónu-
legu frumkvæði í félagslífinu
hefði tilveran átt að vera komin í
fínt form; heimilsbókhaldið þekkt
stærð og tilfinningalegar þarfir
uppfylltar massíft. Ennþá vantaði
samt eitthvað, dularfulla lífsfyll-
ingu sem næstum allir í kringum
mig nutu og ekki ég. Vinir og kunn-
ingjar voru búnir að uppgötva nýja
vídd í veröldinni og jafnvel mestu
félagsskítarnir gátu skyndilega
slengt fram alls kyns prívat upp-
lýsingum um framvindu lífsins
hjá fjölda fólks. Þótt ég þráaðist
við mánuðum saman endaði síð-
asta risaeðlan auðvitað eins og
allar hinar og loksins er ég komin
með rafræna útgáfu af sjálfri mér
á veraldarvefnum.
FRÁ fyrstu stund leið mér eins
og ég væri meðlimur í leynifélagi,
svo mikill var spenningurinn yfir
þessu skilgetna afkvæmi eirðar-
leysisins, fésbókinni. Auk þess að
vera ánetjandi eins og sum harðari
fíkniefni er hún í þokkabót ókeyp-
is. Fyrsti skammturinn frír. Sem
nýr neytandi er ég reyndar ósköp
aumingjaleg miðað við dugnaðar-
forkana sem hlaða daglega niður
haugum að vinum, myndum og
hnyttnum athugasemdum og eiga
aðdáun mína alla.
FÉSIÐ kallar á daglega athygli
og minnir að því leyti á japanska
tölvugæludýrið sem mörg börn
áttu einu sinni, litla kvikindið sem
gargaði á umönnun allan sólar-
hringinn og breytti heilu fjölskyld-
unum í sakbitnar taugahrúgur.
Munurinn er aðeins sá að óumflýj-
anleg vanræksla á japanska dýrinu
var prívat og útför þess fór fram í
kyrrþey. Viðstöðulaust ætlast fés-
bókin til að ég skrifi eitthvað næst-
um opinberlega um sjálfa mig í
þriðju persónu og hafi endalausar
skoðanir á því sem aðrir gera. Ég
er fljót að læra. Eftir aðeins eina
viku skilgreini ég hugsanir, gjörð-
ir og tilfinningar bara út frá því að
þær rúmist í aggalitlu textaboxi.
Leynifélagið
mikla