Tíminn - 10.02.1983, Qupperneq 18
FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1983.
Efnahagsumræðan
tafin með málþðfi
■ Málþóf Hjörleifs Gutturmssonar í
dag er ef til vill liður í að telja fyrir, -
koma í veg fyrir að frumvarpið um
cfnahagsaðgerðir nái afgreiðslu, sagði
Páll Pétursson formaður þingflokks
framsóknarmanna í gærkvöldi eftir að
framhaldsumræðu um bráðabirgðalögin
var enn frestað, en málið komst ekki á
dagskrá fyrr en á framhaldsfundi kl.
18.00, en utandagskrárumræða tók upp
allan fundartíma neðri deildar eftir
hádegi.
Sem kunnugt er krafðist þingflokkur
framsóknarmanna þess s.l. mánudag, að
bráðabirgðalögin yrðu tekin fyrir og
afgreidd í neðri deild ekki síðar en á
miðvikudag. En svona fór um sjóferð
þá. Páll Pétursson fór þess á leit við
deildarforseta að kvöldfundur yrði hald-
inn og umræðunni haldið áfram, en
þingflokksformenn allra hinna flokk-
anna mótmæltu því og varð Sverrir
Hermannsson forseti neðri deildar við
sameiginlegri ósk þeirra og var fundi
frestað eftir klukkustundar langar um-
ræður. En málið verður enn tekið upp
á föstudag, sem að öllu jöfnu er frídagur
á Alþingi.
Páll var spurður hvort hann byggist
við að atkvæðagreiðsla færi fram þá, en
hann vildi ekkert um það fullyrða. -
Menn hafa þvælt þessu máli á undan sér
og komið í veg fyrir afgreiðslu þess með
alls kyns útúrsnúningum og málþófi
hvað eftir annað.
Á föstudag má enn búast við löngum
umræðum og þófi. Þegar eru 9 manns á
mælendaskrá. Þeir eru: Jón Baldvin
Hannibalsson, Halldór Blöndal, Friðrik
Sophusson, Birgir ísleifur Gunnarsson,
Ólafur G. Einarsson, Matthías Á.
Mathiesen, Geir Hallgrímsson, Magnús
H. Magnússon og Sighvatur Björgvins-
son, allt hinir mælskustu menn og
langorðir þegar þeim liggur mikið á
hjarta.
í upphafi fundar neðri deildar í gær
var frumvarpið um efnahagsaðgerðir
fyrst á dagskrá, en forseti tilkynnti að
hann yrði að efna gamalt loforð um að
Karvel Pálmason fengi að bera fram
fyrirspurn um jöfnun raforkuverðs. Kar-
vel talaði í 15 mínútur og lagði spurningu
fyrir iðnaðarráðherra. Ekki þurfti að
hvetja Hjörleif til stórræðanna og ræddi
hann um verðlagningu á raforku í fullar
50 mínútur. Það tók Birgi ísleif mun
skemmri tíma að rífa niður röksemdir
iðnaðarráðherra og Karvel tók sér
góðan tíma til að þakka svör ráðherrans,
en hafði á orði að þau væru ófullnægj-
andi ogvarlaþakkarverð. Hjörleifurtók
þetta óstinnt upp og sté enn í pontu.
Þegar hann hafði lokið máli sínu var
klukkan orðin 15.40 og aðeins 20
mínútur eftir af fundartíma. Deildar-
forseti frestaði nú málinu til að freista
þess að koma bráðabirgðalögunum á
dagskrá. Þá hófst annar umgangur en
þingmenn vildu ræða þingsköp. Halldór
Blöndal átaldi forseta harðlega fyrir að
ræna þingmenn málfrelsi eftir að vera
búinn að leyfa ráðherra að rausa í 50
mínútur, eins og það var orðið. Sverrir
sagðist engan mann hafa rænt málfrels-
inu, aðeins frestað umræðunni.
Friðrik Sophusson gerði næstur at-
hugasemd um fundarstjórn og sagði að
verið væri að þvinga fram umræðu um
mál hér á Alþingi um lög sem búin eru
að vera í gildi í 6 mánuði. Sagði hann
að hið nýja Pálsbréf, þ.e.a.s. samþykkt
framsóknarmanna um afgreiðslu bráða-
birgðalaganna, væri til komið vegna þess
að þeir neituðu að horfast í augu við að
samstaða sé að nást á Alþingi í
kjördæmamálinu, og væri það ástæðan
til að þeir vildu knýja á um afgreiðslu
bráðabirgðalaganna.
Árni Gunnarsson sagði að þingið væri
í pattstöðu og væri ekki hægt að koma
neinum málum um kring. Verið væri að
reyna að ná samkomulagi um kjördæma-
málið og gengi þar hvorki né ræki.
Meirihluti þingmapna tekur út að sitja
hér dag eftir dag og væri tilgangsleysið
algjört.
Alexander Stefánsson sagði þinginu
það til vansæmdar að hafa bráðabirgða-
lögin svo lengi óafgreidd. Hann átaldi
Friðrik Sophusson fyrir að halda fram
að þau lög skiptu litlu máli og Ólaf G.
Einarsson sömuleiðis fyrir að láta það
uppi opinberlega að þau væru smámál
sem ekki tæki að afgreiða. Annað var á
þeim að heyra fram eftir vetri, en nú er
blaðinu snúið við. Bað hann þingmennina
að gera grein fyrir því hvar þjóðarbúið
væri nú statt ef þau lög hefðu ekki verið
sett.
Fundi var nú frestað vegna þingflokks-
funda en kl. 18.00 hófst fundur að nýju.
Sverrir Hermannsson er oft snöggur upp
á lagið, en nú setti hann fund með slíku
snarræði að þingmenn voru ekki búnir
að átta sig, enda fæstir komnir í sæti sín
er hann var búinn að taka bráðabirgða-
lögin á dagskrá, og komið var að Karvel
Pálmasyni í framhaldsumræðunni og
sagðist vera á móti kjaraskerðingum.
Árni Gunnarsson var næstur á mælenda-
skrá og sagði hann menn þrástagast á
því sem engu máli skipti. Á meðan fjöldi
fyrirtækja er að fara á vonarvöl vildu
þingmcnn ekki tala um annað en
kjördæmamálið og virtist sér að sumir
þingmenn teldu að hægt væri að leysa
allan vanda þjóðarinnar með því að
breyta kjördæmaskipaninni.
Eftir klukkustundar umræður var
fundi frestað kl. 19.00 og ekki orðið við
ósk Páls Péturssonar um kvöldfund, en
bráðabirgðalögin verða enn á dagskrá á
morgun, föstudag.
Land-Rover 78
Til sölu er Land-Rover diesel árgerö 78 blár og
hvítur að lit. Góöur og fallegur jeppi. Til sýnis og
sölu hjá Bílasölunni Skeifan í dag og næstu daga
símar 91-35035 og 91-84848.
Norrænn styrkur til bókmennta
nágrannalandanna
Fyrsta úthlutun norrænu ráðherranefndarinnar (mennta- og menning-
armálaráðherrarnir) 1983 - á styrkjum til útgáfu á norrænum
bókmenntum í þýðingu á Norðurlöndunum - fer fram i maí.
Frestur til að skila umsóknum er 1. apríl 1983.
Eyðublöð ásamt leiðbeiningum fást hjá Menntamálaráðuneytinu í
Reykjavík.
Umsóknir sendist til:
Nordisk Ministerrad
Sekretariatet for-nordisk kulturelt samarbejde
Snaregade 10
DK-1205 Köbenhavn K
Sími: DK 01-114711 og þar má einnig fá allar nánari upplýsingar.
Rafsuðuvélar og vír
Haukur og Ólafur
Ármúla 32 - Sími 37700.
Kjarnaborun
Tökum ur steyptum veggjum fyrir hurðir, loftræstingu, glugga,
og ýmisskonar lagnir, 2", 3", 4", 5", 6" og 7" borar.
HLJÓÐLÁTT OG RYKLAUST. Fjarlægum múrbrotið, önnumst
fsetningar hurða og glugga ef óskað er. Hvert á land sem er.
Skjót og góð þjónusta.
Kjarnaborun sf.
. Sfmar 38203-33882
RAFSTRAUMUR SF.
Háaleitisbraut 66, Box 653 Reykjavík, island.
önnumst alla raflagnaþjónustu í nýtt og eldra
húsnæði. Leggjum Bríkur ^
aherslu a vandaða Ranrfv^ * 41054
vmnu og goða þionustu. Stefán s ggjgg
Árs ábyrgð á efni. Löggiltir meistarar.
Kvikmyndíi
Sun|
Salur 1
Meistarinn
iAMyp
r/T^BF^T
Meistarinn er ný spennumynd
með hinum frábæra Chuck Norris.
Hann kemur nú í hringinn og sýnir
enn hvað i honum býr. Norris fer
á kostum í þessari mynd.
Aöalhlutverk: Chuck Norris,
Jenniter O'Neill og Ron O'Neal.
Bönnuð börnum innan 14 ára.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
__________Salur 2
Fjórir Vinir
Ný trábær mynd gerð af snillingn-
um Arthur Penn en hann gerði
myndimar Litli Risinn og Bonnie
og Clyde. Myndin gerist á sjöunda
áratugnum og fjallar um fjóra vini
sem kynnast i menntaskóla og
verða óaðskiljanlegir .Arthur Penn
segir: Sjáið til svona var þetta i þá
daga.
Sýnd kl. 5, 7.05, 9.05 og 11.10.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
★★★ Tíminn
Helgar-
pósturínn
Salur 3
Litli lávarðurinn
Aðalhlutv: Alec Gulnness, Ricky
Schroder og Eric Porter. Leik-
stjóri: Jack Cold.
Sýnd kl. 5.
Flóttinn
Flóttinn er spennandi og jafnframt
fyndin mynd sem sýnir hvemig
J.R. Meade sleppur undan lög-
reglu og fylgisveinum hennar á
stórkostlegan hátt.
Sýnd ki. 7,9 og 11.
Hækkaó verð
Salur 4
Veiðiferðin
Islenska fjölskyldumyndin sem
sýnd var við miklar vinsældir 1980.
Fjöldi þekktra leikara.
Sýnd kl. 5.
Sá sigrar sem þorir
'Peir eru sérvaldir, ailir sjálfboðalið-
ar svifast einskis, og eru sérþjálf-
aðir. Þetta er umsðgn um hina
fraagu SAS (Special Air Service)
Þyriu-björgunarsveit. Ljðstyrkur
■ þeirra var það eina sem hægt var,
að treysta á.
Sýnd kl. 7.30 og 10.
Bönnuð börnum innan 14 ára.
HÆKKAÐ VERÐ
Salur 5
Being There
Sýnd kl. 9.
(12 sýningarmánuður).