Tíminn - 10.02.1983, Síða 20

Tíminn - 10.02.1983, Síða 20
Opið virka daga 9-19. Laugardaga 10-16 H HEDD Skemmuvegi 20 Kopavogi Simar (91)7 75 51 & 7-80 30 Varahlutir Mikið úrval Sendum um land allt Ábyrgð á öllu Kaupum nýlega bíla til niðurrifs Gagnkvæmt tryggingaféJag „ÞAÐ ERU AKVEÐNIR HLUTIR SEM VIÐ GETUM SAMÞYKKF — segir Ragnar Arnalds fjármálarádherra, um til- lögurnar f vísitölumálinu ■ „Við hufuin in<clt mcð ákveðnum breytingum á vísi- tölukerfinu, en það eru ákveð- in atriði sem ágrciningur hefur verið um. Bæði höfum við tekið vel í að tekinn verði upp nvr vísitölugrundvöllur og einnig að vísitölutímabilin verði lengd í 4 mánuði. En við höfum ekki fallist á þá tillögu sem við höfum staöið frammi fyrir, að núverandi vísitölutímabil endi ckki fyrr en 1. april, þ.e. að greiðslu vísitölubóta verði frestað frá 1. mars til 1. apríl n.k., enda um seinan. Það er búið að reiknn út vísitöluna fyrir 1. mars ug hefur raunar aldrei komið til greina að breyting yrði á"þessu tímabili“, sagði Ragnar Arnalds, fjármálaráðhcrra. Breytingar á Vísitölukerfinu voru aðalmál ríkisstjórnar- fundar í fyrradag og aftur í gær, án þess að niðurstaða fengist, að sögn Ragnars, scm bjóst við að málið yrði rætt þar áfram. „Ég vil undirstrika að ég tcl ekki mikið hafa borið á milli stjórnaraðila. Við höfum haft náin samráð við okkar menn í verkalýðshreyfingunni um þessi mál og það eru ákveðnir hlutir sent vjð gctum samþykkt og aðrir sem við getum ekki samþykkt. Ég tel að það hafi bara allt of lengi verið lögð' áhersla á það að fá okkur til að samþykkja hlúti sem við getum ekki samþykkt", sagði Ragnar. Auk dagsctningarinnar sagði hann hafa verið ágreining um frádráttarliði sem gert er ráð fyrir í nýju vísitölunni. HEI ELDSVOÐI I ULLAR- ÞVOTTAHÚSI ÁLAFOSS ■ Eldur kom upp í útbyggingu við vérksmiðjuhúsin á Álafossi í gærmorgun. Áfast við útbygg- inguna, sem notuð hefur verið til ullarþvottar, var gamalt ketilhús og var eldurinn í skilvegg á milli þeirra. Slökkviliðið í Reykjavík var kvatt út kl. 10.25 og er á staðinn kom var eldur kominn upp undir þak á húsunum. Varð að rjúfa þakið til þess að komast að eldinum, sem tókst að slökkva á klukkustund og gekk slökkvi- starfið greiðlega. Talið er að kviknað hafi í út frá rafmagni. Nokkurt tjón varð í brunanum og settu slökkviliðsmenn vakt við húsin til kl. 14 í gærdag. AM Tímamynd G.E. Eldur í rusli á Hrafn- istu ■ Slökkviliðjð var kvatt að Hrafnistu í gærmorgun, þar sem eldur hafði komið upp í rusli í einu herbergja vist- rnanna. Þegarslökkviliðið kóm á staðinn hafði starfsfólki hins vcgar tekist að ráða niður- lögum eldsins upp á eigin spýtur. Engin slys hlutust af og tjón varð lítið. ■ Slökkviliðsmenn urðu að rjúfa þakið við byggingarnar, til þess að komast að eldinum. — segir Tómas Árnason, viðskiptarádherra ■ „Á ríkisstjórnarfundinum voru rædd efnahagsmál almennt og viðhorfin í þeim málum og í. sambandi við það sérstaklega vísitölumálin. Það hefur komið í Ijós að það er fullt samkomulag milli okkar framsóknarmanna og sjálfstæðismanna í ríkisstjórn spurður hvort miklu máli skipti að vísitölubætur væru greiddar eftir nýja grundvellinum 1. apríl í stað 1. mars. - Það breytir auðvitað tölu- verðu hvort fyrirtækin í landinu þurfa að greiða 13-14% kaup- hækkun frá næstu mánaða- mótum eða ekki, sagði Tómas. HEI um að standa að flutningi málsins á þingi, og ég er að vona að Alþýðubandalagið verði með í því,“ sagði Tómas Árnason, viðskiptaráðherra spurður hvað komið hefði út úr löngum fundum ríkisstjórnarinnar um Vísitölumálið, þ.e. nýjan vísi- tölugrundvöll, í gær. Þar sem ágreiningur alþýðu- bandalagsmanna og annarra ráð- herra í ríkisstjórninni snýst m.a. um dagsetningu var Tómas Vísitölumálið enn rætt í ríkisstjórninni f dag: „ÉG VONA AÐ ALÞYÐU- BANDAIAGIÐ VERÐI MEД dropar Atvinnumál á Keflavíkurflugvelli ■ Oft verða málin flókin, þegar rætt er um atvinnumál Suðurnesjamanna á Keflavík- urflugvelli og Víkurfréttir í Keflavík segja frá einu slíku máli: Fyrir skömmu var amerískri stúlku sem starfaði á vellinum sagt upp störfum vegna þess að hana skorti atvinnuleyfi, en hún er gift íslendingi. Margir hafa nú hríngt til blaðsins og talið að þarna væri um „prinsíp“ mál að ræða, vegna málafcrla sem Verslunar- mannafélagið er í út af ráðning- armálum hjá Varnarliðinu, en á undanförnum árum hefur mikið borið á því að amerískir makar hermanna fengju þarna vinnu án nokkurra atvinnu- leyfa. Töldu þeir sem hringdu það kaldhæðnislegt að láta þetta bitna á stúlku sem jú væri amerísk, en væri gift Islend- ingi. Því ætti annað að gilda um hana. í Ijós hefur komið að upp- sögn stúikunnar er byggð á misskilningi, þar sem stúlkan hafði flutt sig á milli fyrirtækja þar efra, en ekki gætt þess að útvega sér atvinnuleyfi er hún flutti. Munu því horfur á að greiðist úr þessu vandræða- máli. Fegurð í reið ■ Áhugi Islendinga á hross- um er mikill eins og kunnugt er. Eitt síðasta afrekið á því sviði er stofnun hestamanna- félags í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Eru félagar margir tugir. Ekkivantar andagiftina í nafnið hjá þeim menntskæling- um, því hestamannafélagið heitir hvorki rneira né minna en Asasleipnir hin litförótti. Það var tii tíðinda hjá Ása- sleipni hinum litförótta um daginn að haldið var fræðslu- kvöld. Mættu þar hinir kunnu hrossakumpánar Sigurbjöm Bárðarson með glóðvolga bók sína Á Fákspori og Guðlaugur Trvggvi Karlsson með kvik- mynd sína Landsmótsreiðina. Ymislegt hafði Sigurbjöm við reiðlag samborgara sinna að athuga og taldi það ekki allt björgulegt. Klikkti síðan út með því að, skildu félagsmenn ekki alveg hvað hann væri að fara, þá ættu þeir bara að fylgjast vel með félaga sínum í kvikmyndinni á eftir. Ekki þyrfti frekari vitnanna við. Krummi ... ...sá í Mogganum að fyrmm forsætisráðherra írlands sé kallaður „Houdini stjómmái- anna á írlandi“. Kannski Geir gjóti augunum til hliðstæðs titiis úr sjöunda sætinu? ■nBBDI HHBri

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.