Tíminn - 08.03.1983, Blaðsíða 1

Tíminn - 08.03.1983, Blaðsíða 1
Allt um Iþróttir helgarinnar. Sjá bls.11-14 FJÖLBREYTTARA OG BETRA BLAÐ! Þriðjudagur 8.mars. 1983 55. tölublað - 67. árgangur STUÐNINGSMENN HYGGJAST SAFNA UM 2000 ASKORUNVM Yfirlýsingar að vænta um framboðsmál Gunnars Thoroddsen eftir helgi: ■ Helstu stuðningsmenn dr Gunnars Thoroddsen, forsætis ráðherra fóru nú um helgina af stað með undirskriftarsöfnun, þeim tilgangi að skora á forsætis ráðherra að fara fram í sérfram boð í komandi alþingiskosning Bátur* inn full- búinn, en fær ekki að fara út! vegna deiki milli Fisk- veiðasjóðs og ■ Vélbáturinn Hafnarey SU 110, sem skipasmíðastöð Þor- geirs og Eilerts á Akranesi lauk nýlega við að smíða fyrir Hafnar- ey h/f á Breiðdalsvík, liggur enn bundinn við bryggju á Akranesi þrátt fyrir að hann sé tilbúinn til afhendingar og raunar fullbúinn að fara á sjó. Ástæðan er sú, að Fiskveiða- sjóður telur sig eiga að fá tuttugu af hundraði aflaverðmætis báts- ins en Byggðasjóður telur sig eiga rétt á 3% aflaverðmætis, en þau verði að vera af tuttugu prósentunum sem eiga að renna í Fiskveiðasjóð. „Byggðasjóður telur að út- gerðinni beri ekki að borga meira: en 20 prósent aflaverðmætis og vill þess vegna fá sín 3% af því sem Fiskveiðasjóður á að fá,“ sagði Guðjón Guðmundsson, skrifstofustjóri hjá Þorgeiri og Ellert á Akranesi í samtali við Tímann í gær. „Við getum ekki afhent bátinn fyrr en þetta liggur á ljósu því að byggðasjóður á eftir að greiða allt sitt framlag, sem er 10% af smíðaverði skipsins," sagði Guðjón. Hafnarey er fyrsta raðsmíða- vcrkefni af mörgum sem ráðgert er að smíða í skipasmíðastöðvum innan Félags dráttarbrauta og skipasmiðja. Sjó um. Samkvæmt heimildum Tím- ans eru 100 undirskríftarlistar í gangi nú, og er meiningin að 20 nöfn fáist á hvern lista. Ætla stuðningsmenn dr. Gunnars Thoroddsen að Ijúka söfnuninni í þessari viku, svo þeir geti afhent forsætisráðherra listana fyrir vikulok, og í beinu fram- haldi af því segja stuðnings- mennirnir að vænta megi yfirlýs- ingar frá forsætisráðherra um framboðsmál hans. Þessi undirskriftarsöfnun fer af stað fyrir frumkvæði stuðn- ingsmanna hans, en með fullri vitund og vilja forsætisráðherra, að því er heimildir Tímans herma. Listarnir liggja hvergi frammi, heldur eru þeir í vörslu stuðningsmanna dr. Gunnars, og nær undirskriítasöfnunin til allra stuðningsmanna forsætis- ráðherra burtséð frá því hvort þeir eru flokksbundnir sjálf-- stæðismenn eða ekki. -AB ■ Uni 400 manns tóku þátt í hópslysaæfingu sem haldin var fyrir ofan Hafnarfjörð á laugardagsmorgun. Fjórar þyrlur og margar björgunar- sveitir tóku þátt í æfingunni, en þama var „bjargað“ 54 slösuðum farþegum úr flugvél, sem brotlent hafði fyrr um morguninn. Sjá frásögn og myndir á bls. 2. Tímamynd Árni Sænskur prófessor vill gera samanburð á áhrifum tannkremstegunda: „TURAUNIR” A 800 ÍS- LENSKUM BÖRNUM í 3 ÁR? ■ Sænskur prófessor í barna- tannlækningum, Göran Koeh að nafni, hefur óskað eftir því við fræðsluyfirvöld í Reykjavík að fá aö gera samanburðar- 'rannsókn á tannvemdar- áhrifum Ijögurra gerða tann- krems á skólahörnum í Reykjavík. Hyggst hann veija 800,10 og 11 ára börn í höfuðborginni, skipta þeim niður í fjóra 200 barna hópa og láta síðan hvem hóp nota sína tannkrcmsteg- und í 3 ár. Síðan er ætlun prófessorsins að láta skoða tcnnur barnanna á eins árs fresti og sjá með því hvaða tannkrem hefur best áhrif. Ástæðan fyrir því að prófess- orinn leitar til Reykjavíkur er sú, að í Svíþjoð munu tann- sketnmdir í skólabörnum vera nær óþekkt fyrirbrigði. En hér aftur á móti munu þær algeng- ari en á öllum hinum Norður- löndunum. Það er þýskt fyrirtæki sem framleiðir tannkrem sem mun kosta könnunina ef til kemur. Ætlun fyrirtækisins er, að nota við rannsóknina þrjár mest seldu - tannkremstegundirnar hér á landi og eina tegund sem það framleiðir sjálft að auki. Beiðnin verður tekin fyrir í heilbrigðisráði á næstunni, en það mun síðan skila umsögn til fræðsluráðí. - Sjó. Verda þrír listar sjálf- stædis- manna í Reykjavfk í vor? ■ Miklar untræður eru nú í gangi meðal þeirra sem stóðu að skoðanakönnuninni um kjördæmamálið á dögunum um sérstakt framboð við kosn- ingar til Alþingis í vor. Sam- kvæmt heimildum Tímans hyggjast aðstandendur þessa framboðs aðeins bjóða fram í Reykjavík. Þeir sem helst hafa verið nefndir í þessu sambandi eru Þorvarður Elíasson, skóla- stjóri Verslunarskóla íslands og* Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræðingur, sem báðir eru.sjálfstæðismenn. Hvorugur þeirra neitaði þessum mögu- leika þegar Tíminn átti við þá tal í gær. „Ég vil ekkert um þetta segja að svo stöddu," sagði Þorsteinn. Þorvarður sagðist hvorki játa þessu né neita. Ef af þessu framboði verður rná allt eins búast við að þrír listar sjálfstæðismanna í Reykjavík verði í kjöri í kom- andi þingkosningum; listiSjálf- stæðisflokksins, listi Gunn- arsmanna og hsti skoðana- könnunarmanna. -Sjó. Tékkamis- ferli eykst um 50% ■ Tékkamisfcrli hcfur aukist um hclming fyrstu tvo ntánuði þessa ársjniðað við sama tíma í fyrra samkvæmt upplýsingum frá RLR. Þannig voru kærð fyrstu tvo mánuði þessa árs 90 slík tilfelli til RLR miðað við 43 á sama tíma í fyrra. Upphæðir í þcssum málum hafa ejnnig aukist verulega. þannig námu þær um 40 þús. kr. fyrstu tvo mánuðina i fyrra en um 300 þús. kr., fyfstt^ tvo mánuði þessa árs. FRl Búnadar- þingi lauk í gær: 64 mál afgreidd alls ■ Einu stysta Búnaöarþingi sem haldið hefur verið var slitið í gær af forseta þcss Ásgeiri -Bjarna- syni. Þingið stóð aðeins í 15 daga. Fjöidi mála á þinginu hefur þó sjaldan verið meiri, að sögn Agnars Guðnasonar, blaðafull- trúa. Alls voru lögð frarn 70 mál en afgreiðslu hlutu 64 mál, Stjórn Búnaðarféíags íslands var endurkjörin, en hana skiþa: Ásgeir Bjarnason, Hjörtur E. 1 Þórarinsson og Steinþór Gestsson. HEI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.