Tíminn - 08.03.1983, Síða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 8. MARS 1983
íslenskum hestum
sæma best
íslensk reiðtygi
Hnakkur með öllu.
Verð frá kr. 7.500.-
Vönduð vinargjöf
Allt til reiðbúnaðar
Þorvaldijr mapsa
Guöjonsson hnakkaR
Söðlasmíðameistari, Einholti 2 - inngangur frá
Stórholti - sími 24180.
Raflagnir
Fyrsta flokks
þjónusta
Ef þú þarft að endurnýja, gera við, bæta við
eða breyta raflögnum, minnir Samvirki
á þjónustu sína með harðsnúnu liði rafvirkja,
sem ávallt eru tilbúnir til hjálpar.
samvirki
SKEMMUVEGI 30 - KÓPAVOGI - SÍMI 44(5 66
Staða varðstjóra
Staða lögregluvarðstjóra í Snæfells- og Hnappa
dalssýslu, með aðsetri í Grundarfirði, er laus til
umsóknar. Umsóknarfrestur er til 31. mars n.k..
Laun samkvæmt kjarasamningum ríkisstarfs-
manna.
Sýslumaður Snæfells- og Hnappadalssýslu,
28. febrúar 1983.
Jóhannes Árnason.
ÍSSKAPA- OG FRYSTIKISTU
VIÐGERÐIR
Breytum gömlum ísskápum
i frystiskápa.
Góð þjónusta.
'aslvBfh
REYKJAVIKURVEGI 25 Hálnarfirði sími 50473
útibú að Mjölnisholti 14 Reykjavfk.
fréttir
Vírnet h.f. f Borgarnesi byrjar
framleiðslu á klæðningarstáli:
„Tekst vonandi ad
þrauka yf ir þetta
þrengingatímabir’
— segir
Páll Gud-
bjartsson
BORGARNES: „Já það er meiningin
hjá okkur að fara að framleiða litað
akrílhúðað klæðningarstál - erum
raunar byrjaðir á því. En það er
auðvitað tæpást um neina sölu að ræða
eins og er fremur en almennt í bygging-
arvörum - þetta er svo dauður árs-
tími“, sagði Páll Guðbjartsson, fram-
kvæmdastjóri Vírnet h.f. íBorgarnesi.
En Tíminn hafði haft spurnir af því að
nú á þessum síðustu og verstu tímum
þegar mest heyrist um samdrátt á
flestum sviðum, þá sé Vírnet búið að
byggja við og kaupa nýjar vélar.
„Við fórum út í þetta í bjartsýni á
s.l. vori, áður en við gerðum okkur
grein fyrir því að hverju stefndi. Þá var
tekin ákvörðun um að byggja við og
hefja þessa nýju framleiðslu. Eg dreg
hins vegar í efa að sú ákvörðun hefði
verið tekin við núverandi aðstæður.
Árið 1981 var gott ár hjá okkur, en
síðasta ár nokkuð erfiðara, sérstaklega
þó vegna þróunar á verði erlendra
gjaldmiðla. Við flytjum allt hráefni inn
á 6 mánaða gjaldfresti og erum þess
vegna oftast búnir að selja það þegar
kemdur að greiðslu. í fyrra urðum við
■ Páll Guðbjartsson, framkvæmda-
stjóri
Mynd M.Ó.
yfirleitt að greiða efnið með mun fleiri
krónum en reiknað var með við verð-
útreikninga. . En maður verður bara
að vona að okkur takist að þrauka yfir
þetta þrengingatímabil", sagði Páll.
Til stálframleiðslunnar voru keyptar
tvær nýjar vélar, önnur til að valsa
stálið og hina sem getur beygt valsaðar
plötur þvert á bárurnar, sem Páll segir
nýjung hér á landi. Þetta geti verið
þægilegt t.d. ef menn vilji brjóta
plöturnar niður á þakskegg á húsum,
þegar klætt er niður vegg og út á
útbyggingu þannig að það sé samfast
og í ýmsum öðrum tilvikum. Einnig
kvaðst Páll álíta að þessi vél geti opnað
möguleika á að nota klæðningarstál í
ýmiskonr framleiðslu þar sem slíkt stál
kom ekki til greina áður. Meginmálið
sé því að hafa hugkvæmni til að nýta
möguleikana og finna markaði fyrir þá.
Til þessa hefur framleiðsla Vírnets
h.f. verið gamla góða bárujárnið, nagl-
ar og mótavír. Sagði Páll nokkurn
samdrátt hafa verið í sölu á þakjárninu
í fyrra, en hins vegar heldur aukningu
í naglasölunni. Um 18 manns vinna í
Vírnet, bæði konur og karlar. Elsti
starfsmaður fyrirtækisins, og jafnframt
elsti starfandi maðurinn í Borgarnesi
að því Páll veit best, er nú 87 ára
gamall og búinn að vinna í fyrirtækinu
frá upphafi - um 27 ár.
- HEI
Hafnarfjörður:
85 lóðum úthlutað í
Setbergslandi á næstunni
Tekjur Hafnar-
fjarðarbæjar
áætlaðar
262.2 millj.íár:
HAFNAFJÖRÐUR: Heildartekjur
bæjarsjóðs Hafnarfjarðar eru áætlaðar
rúmar 262,2 milljónir króna á þessu ári
samkvæmt fjárhagsáætlun er samþykkt
var á bæjarstjórnarfundi 15. febrúar
s.l., með 7 atkvæðum. en 4 sátu hjá.
Af þessari upphæð er gert ráð fyrir að
193.2 milljónir séu skattgjaldstekjur,
sem er 61% hækkun á þeim lið frá því
árið 1982.
Áætlaðar útsvarstekjur eru tæpar
104,1 millj. króna, en útsvarsprósenta
var ákveðin 11,88%. Fasteignagjöld eru
áætluð 31,1 millj. kr., aðstöðugjöld
11.3 millj. og framleiðslugjald af álver-
inu 12,2 millj. kr. í frétt frá Hafnar-
fjarðarbæ segir m.a. að ríkissjóður
hafi í engu sinnt kröfu bæjarins frá
1978 um cndurskoðun til hækkunar á
hlutdcild bæjarins af framleiðslugjald-
inu, þrátt fyrir skýr samningsákvæði
þar um, frá 1976.
Stærsti útgjaldaliður fjárhagsáætlun-
arinnar er til fjárfestingar og reksturs
við vcrklegar framkvæmdir, eða 57,8
millj. kr. Til fræðslumála er ráðstafað
49,8 millj., til félagsmála 48,8 millj.. til
æskulýðs og íþróttamála rúm 18,1
millj... til reksturs bæjarins um 17,6
millj. og til heilbrigðismála um 15,9
milljónir króna.
Af ráðstöfunarfé Hafnarfjarðarhæj-
ar er í ár áætlað að verja um 35% til
nýframkvæmda og fjárfestingar, en
það hlutfall var 32% á síðasta ári. að
því cr segir í frétt frá bæjarstjóra.
- HEI
HAFNARFJÖRÐUR: Nýlega var
byrjað á gatnagerð í nýju íbúðarhverfi,
sem rísa á við Setberg í Hafnarfirði og
verður úthlutað þar 85 lóöum á næst-
unni, aðallega fyrir einbýlishús, að því
er segir í frétt frá bæjarstjöra. Einnig
er unnið að gatnagerð í Norðurbæ. en
þar var úthlutað lóðurn fyrirskemmstu
og auk þess er áformuð gatnagerð í
iðnaðarhverfum.
Eftir átak við malbikun gatna og
gangstéttargerð segir bæjarstjóri þeim
áfanga hafa verið náð. að allar götur í
eldri bæjarhverfum hafi verið malbik-
aðar. í ár sé svo áformað að malbika
Lækjarhvamm, Fjóluhvamm, Fagra-
hvamm, Háahvamm og Hrauntungu,
auk gatna í iðnaðarhverfum.
Varðandi skólabyggingar er stærsta
vcrkefnið bygging 3. áfanga Öldutúns-
skóla, þar sem framkvæmdir hófust
-s.i. haust. Ennfremur er hugmyndin
að halda áfram endurhótum á gamla
Flensborgarskólanum, innréttingu raf-
iðnadeildar Iðnskólans og að ljúka við
íþróttahús Víðistaðaskóla. Þá er bygg-
ing nýs leikskóla við Suðurbraut í
undirbúningi og áætlað að taka hann í
notkun á hausti komanda.
Á sviði heilbrigðismála er áformað
að hefja framkvæmdir við viðbyggingu
við Sólvang fáist tilskilin leyfi heil-
brigðisráðuneytisins og jafnframt er
bygging heilsugæslu Hafnarfjarðar í
undlrbúningi. Þá hefur veriö ákveðið
að byggja við Sundhöllina og einnig er
bygging útisundlaugar í Suðurbæ í
undirbúningi. Ýmsar fleiri fram-
kvæmdir eru á döfinni í Hafnarfirði að
sögn bæjarstjóra. en að lokum verður
hér þó aðeins getið um að áætlað er að
koma öllu frárennsli frá bænum út fyrir
hafnargarða á árinu. Síðasti áfangi
þess verks er safnlögn meðfram Fjarð-
argötu.
- HEI