Tíminn - 08.03.1983, Qupperneq 6

Tíminn - 08.03.1983, Qupperneq 6
ÞRIÐJUDAGUR 8. MARS 1983 r spegli tímans Brigitte Bardot segir frá lífi sínu í sjónvarpsþáttum: ÉGVAR EINS OG DVR í GULLNU BÚRI Dýr og dýravernd eru líf og yndi Brigitte. Hún hefur tekið að sér húsbóndalausa hunda og ketti, og jafnvel asna og geitur! Að undanförnu, tæpum 10 árum eftir að Brigitte Bardot tók þá endanlegu ákvörðun að segja skilið við kvikmyndirnar og þá ímynd, sem henni hafði verið sköpuð þar, hafa franskir sjónvarpsáhorfendur fengið að sjá hennar eigin útgáfu á lífsferli hennar. Sýningin var í þrem þáttum og hlaut mjög góðar undirtektir. Það hefur komið löndum hennar á óvart að sjá ekki einu sinni ávæning af kyntákninu Brigitte Bardot, sem á sínum tíma var í efsta sæti á útflutn- ingsvöruiista Frakklands. í staðinn kemur hún til dyranna, eins og hún er klædd, orðin 48 ára og ber það með sér. Hún þykir mjög hreinskilin, þegar hún lýsir hömlulausu og ó- tryggu lífi sínu á „velmektar“ árunum. - Eg sat í gullnu búri og þjáðist eins og dýr. Ég var ofsótt af Ijómyndurum og að- dáendum, aldrei fékk ég frið. Fyrir frægðina sveik ég sjálfa mig segir hún. Brigitte var ekki nema 14 ára, þegar hún varð á vegi leikstjórans Rogers Vadim. Hann þóttist strax sjá, að eitthvað sérstak byggi í þessari ungu stúlku, tók hana upp á arma sína, gerði úr henni kvik- myndastjörnu og giftist henni. Ekki voru allir jafn sáttir við þessa ráðabreytni í upphafi og Brigitte segir frá því í sjón- varpsþáttunum, að faðir henn- ar hafl ógnað Roger með byssu og krafist þess, að þau svæfu ekki saman, fyrr en kirkju- brúðkaup, hefði farið fram. Sú varúðarráðstöfun dugði þó ekki til þess, að hjónaband- ið entist. Ekki varð þó þessi reynsla til þess, að Brigitte gæfist upp. Hún giftist öðru sinni, nú leikaranum Jacques Charrier, og eignaðist með honum soninn Nicolas. En nú hafði hún tekist meira á hendur en hún var manneskja til að standa í. - Ég var einfaldlcga ekki fær um að sjá um barnið mitt, segir Brigitte. - Ég þurfti sjálf á móður að halda. Hjóna- bandið fór því út um þúfur og Nicolas ólst upp hjá föður sínum. Síðustu ár hefur þó samband hans og móður hans farið batnandi. Sjálfsmorðstilraun - þrjú tonn af rauðum rósum Brigitte, sem á þessum árum var einfaldlega kölluð BB, gerði nú sjálfsmorðstilraun, sem varð að heimsfrétt, vegna þess hver átti í hlut. Þegar hún átti að heita hafa jafnað sig eftir hana, hellti hún sér að nýju út í hið Ijúfa líf og ekki leið á löngu uns enn einn draumaprinsinn varð á vegi hennar. Það var þýski glaumgosinn Gunter Sachs. BB fannst hann ómótstæði- legur. Hún segir frá því, að dag einn hafi hann ieigt þyrlu til að dreifa þrem tonnum af rauðum rósum yfir hús hennar og garð. Hún var heilan dag að tína þær saman. Slíka aðdáun stenst engin kona og BB lét til leiðast að giftast Gunter. Það hjónaband varð þó enn skammvinnara en hin fyrri og lífið varð enn villtara. Ekki leið svo kvöld, ■ - Það er ekki margt fólk, sem ég kærimigumað umgangast nú orðið, segir Brigitte. En hún telur ekki eftir sér að elda sjálf dýrindismat ofan í vini sína. viðtal dagsins Komið við í eldhúsi Alþingis: „ÞETTA ER EINS 0G GOn STÖRT HEIMIU” segir ráðskona þingmannanna, Þórdís Valdimarsdóttir, sem hefur séð þeim fyrir kaffibrauði í bráðum 18 ár ■ „Jú, blessuð vertu. Þetta eru allt indælismenn - ég vil ekki gera upp á milli þeirra, þeir eru allir jafn ágætir,“ segir hún Þórdís Valdimarsdóttir, ráðs- konan í eldhúsi Alþingishússins, þegar blaðamaður Tímans leit inn hjá henni til þess að forvitn- ast örlítið um matarvenjur þingmanna og fleira, en að sjálf- sögðu eru þeir indælismennirnir sem Þórdís nefndi. - Hvað ert þú búin að starfa lengi hérna Þórdís? „Ég byrjaði hérna 1965, þann- ig að þetta er mitt átjánda ár. Til að byrja með var ég í framleiðsl- unni, en þá var Margrét Valdi- marsdóttir með eidhúsið, en síð- an varð ég arftaki hennar." - Hvernig er svo nábýlið við þingmennina? „Það er mjög gott. Þetta er eins og gott, stórt heimili. Flestir

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.