Tíminn - 08.03.1983, Page 12
I »1
r •» T
ÞRIÐJUDAGUR 8. MARS 1983
umsjón: B.St. og K.L.
■ Hér eru falleg, röndótt prjónavesti,
bæði fyrir móður og dóttur. Fyrri upp-
skriftin er ætluð dótturinni á ýmsum
aldri, en sú síðari mömmunni.
Stærð: 2/4 (6/8) 10/12 (14) ára
Garn: 2 (2) 3 (3) hnotur í lit 563 4-1
hnota 506 og 519 Mayflower
Prjónar: nr. 3 og 416
Prjónafesta: 21 I. = lOcm í sléttu prjóni
á prjóna nr. 4'/2. í munstrið má dcila
með 10 4- 7 1.
Prjónað úr tvöföldu garni
1. prjónn: rétt
2. prjónn: og allir prjónar með jafnri
tölu: brugðnir
3. prjónn: 7 (7) 2 (7) rctt x sláið upp á,
3 r. snúnar saman, sláið upp á, 7 r x
endurtakið frá x til x prjóninn út og
endið eins og þið byrjuðuð.
8. prjónn: brugðið
Prjónið 4 fyrstu prjónana einu sinni
aftur, 4 prjóna garðaprjón, skiptið yfir í
lit 506 og prjónið 6 prjóna garöaprjón,
skiptið yfir í lit 519 og prjónið 6 prjóna
garðaprjón.
Allir þessir prjónar mynda munstur-
umferð og eru endurteknir sí og æ.
Bakið: Fitjið upp á prjóna nr. 416 með
lit 563 57 (67) 72 (77) lykkjur og prjónið
5 garða. Prjónið nú 8 prjónana, sem
mynda munstrið, 2 (2) (2) (3) sinnum,
prjónið einn prjón réttan og 1 prjón
brugðinn. Prjónið nú gataprjón sem hér
segir: x 1 l.r, sláið upp á, 2 r saman x.
Endurtakið frá x til x prjóninn út.
Prjónið I prjón brugðinn og síðan
munstur þar til stykkið er orðið u.þ.b.
24 (28) 32 (35) cm. Fcllið nú af fyrir
handvegi báðum megin 5 1., og þegar
handvegurinn cr orðinn 12 (14) 15 (18)
cm. fellið þið af fyrir öxlunum báðum
megin, tvisvar sinnum sex (tvisvar sinn-
um sex) tvisvar sinnum sjö (tvisvar
sinnum sjö) lykkjur. Lykkjurnar, scm
eftir cru, cru scttar í geymslu.
Framstykki: Prjónað eins og bak-
stykkið þar til handvegsúrtaka hefst.
Skiptið nú stykkinu um miðju og setjið
miðjulykkjuna á nælu (ekki þó á stærð
10/12 ára) og prjónið hvort stykki fyrir
sig. Prjónið 2 I. saman tvær lykkur frá
hálsmálskantinum á fjórða hverjum
Indverskur
fiskréttur
■ Hcr kemur uppskrift aö
gómsætum fiskrctti. scm er eink-
ar heppilegur fyrir þá, sem gæta
vilja línanna. I hann þarl' fyrir
fjóra:
750 g fiskflak
salt
1 sítrónu
240 g lauk, skorinn uiöur í
teninga
2 dl fisksoö (1 teningur í tvo dl
afvatni)
3 tsk. karrý
2 tsk. sinnepsduft
1 dós stcrkan tómatkraft
(puré)
1/2 dl edik
2 lárviöarlauf
graslauk, fínt klipptan
Stilliö ofninn á 225°. Leggið
hrcinsuð fiskllökin í ofnfast fat
og kryddið þau meö ofurlitlu
salti. Hcllið safanum úr einni
sítrónu yfir.
Sjóðiö lauktcningana í nokkr-
ar mínútur í fisksoði. Setjið
karrý, sinncpsduft, tómatkraft og
edik saman við.
Hellið blöndunni yfir fiskflökin
og leggið lárviðarlaufin hjá.
Látið fatið vera í 225° heitum
ofninum í u.þ.b. 25 mínútur.
Stráið ffnt klipptum graslauk
yfir áður en borið er fram.
prjóni, alls 7 sinnum, og síðan á öðrum
hverjum prjóni þar til eftir eru 12 (12)
14 (14) lykkjur. Þegar handvegurinn er
orðinn jafnlangur og á bakstykkinu, er
fellt af fyrir öxlunum eins og á bakstykk-
inu. Hin hliðin er prjónuð sem spegil-
mynd þessarar.
Frágangur: Saumið saman annan axla-
sauminn og takið upp með lit 563 á
prjóna nr. 3 ailar lykkjurnar í hálsmál-
inu, á stærðinni fyrir 10/12 ára er mið-
lykkjan tekin með. Prjónið nú 3 garða,
en takið 2 1. saman báðum megin við
miðlykkjuna á hverjum prjóni. Fellið af
með sléttu prjóni, Saumið nú hinn
axlasauminn saman og prjónið í hand-
vegina 3 garða með lit nr. 563. Saumið
hliðarsaumana. Búið nú til snúru og
dragið hana í gegnum gataumferðina í
mittinu.
NB. Hafið hugfast, að bómullargarn
gefur lit í nokkurfyrstu skiptin, sem það
lendir í þvotti.
Vesti móðurinnar
Stærðir: 36/38 (40/42) 44
Garn: 5 hnotur í lit nr. 550 4- 1 hnota í
lit 549 og 534 Mayflower nr. 8
Prjónar: nr. 3 og 4V5
Prjónafesta: 21 lykkja = 10 cm.
Prjónað er úr tvöföldu garni
í munstrið má deila með 10 4-7 1.
1. prjónn: rétt
2. prjónn: og allir prjónar með jafnri
tölu: brugðið
3. prjónn: x 7 réttar, sláið upp á, 3 r.
snúnar saman, sláið upp á x. Endurtakið
frá x til x prjóninn út og endið á 7 r.
5. prjónn: rétt
7. prjónn: 2 r. x sláið upp á, 3 r. snúnar
saman, sláið upp á, 7 r. x. Endurtakið
frá x til x prjóninn út. Endið á 2 r.
8. prjónn: brugðið
Prjónið nú aftur 4 fyrstu prjónana af
munstrinu, 4 prjónar garðaprjón, skiptið
yfir í dökkan andstæðan lit og prjónið 6
prjóna garðaprjón með grunnlitnum.
Það, sem hér er undantalið, myndar
munsturumferð og er endurtekið sí og æ,
Bakstykkið: Fitjið upp á prjóna nr. 4!h
með grunnlit 87 (97) 107 lykkjur og
prjónið 5 garða. Prjónið nú 8 munstur-
prjóna þrisvar. Nú gerið þið gataumferð
á eftirfarandi hátt: x 1 r, sláið upp á, 2 r
saman x Endurtakið frá x til x út
prjóninn. Nú prjónið þið einn prjón
brugðið og síðan munstur. Þegarstykkið
er orðið u.þ.b. 35 (37) 39 cm. eru felldar
af 8 (8) 10 I. í handveginn og þegar
stykkið er orðið 58 (62) 68 cm, er fellt af
fyrir axlirnar báðum megin tvisvar sinn-
um tíu lykkjur (tvisvar sinnum tólf
lykkjur) tvisvar sinnum þrettán lykkjur
og lykkjurnar, sem eftir eru, geymdar.
Framstykkið: Prjónist eins og bak-
stykkið upp að handvegi. Þá er stykkinu
skipt um miðju og hvor hluti prjónaður
fyrir sig. Setjið miðlykkjuna á nælu.
Prjónið 2 I. saman innan tvcggja lykkj-
anna hálsmálsmegin á 4. hverjum prjóni
þangað til eftir eru 20 (24) 26 lykkjur.
Þegar stykkið hefur náð sömu hæð og
bakstykkið, er fellt af á öxlunum eins og
á því. Hin hliðin prjónast sem spegil-
mynd.
Frágangur: Saumið saman annan axl-
asauminn og veiðið upp með prjónum
nr. 3 allar lykkjur í hálsmálinu og
prjónið 3 garða, en takið 2 1. saman
hvorum megin við miðlykkjuna. Fellið
af með réttu prjóni. Saumið hinn axla-
sauminn saman og prjónið í handveginn
eins og hálsmálið. Saumið saman hliðar-
saumana og gangið frá öllum endum.
NB. Hafið hugfast að bómullargarn
gefur lit í fyrstu skiptin, sem það er
þvegið.
Gerið snúru úr 8 þráðum af grunnlitn-
um og dragið hana í gegnum gataum-
ferðina í mittinu.
Mamma og
dóttir í stfl
Stendur þér stugg-
ur af tækninni?
■ Hagnýtirðu þér til fulls öll þau
þægindi, sem er að finna í eldhúsinu
þínu? Notfærirðu þér öll prógrömmin á
þvottavélinni þinni? Kanntu að stilla
vídeóupptökutækið þitt á sjálfvirkan
tíma? Tekurðu upp úr útvarpinu á
snældu? Hefurðu andstyggð á hugtakinu
„tækniótti"?
Ef svarið er neitandi við meira en
einni af fyrstu spurningunum og játandi
við þeirri 5.. þjáist þú af tækniótta;
I crlendu blaði rákumst við á þessa
skilgreiningu á tækniótta. Þar er bent á,
að á tlestum heimilum er að finna
ógrynni alls konar hjálpartækja, og þeim
á eftir að fara fjölgandi í framtíðinni.
Hins vegar fer því fjarri, að fólk almennt
noti þessi tæki til fulls, enda eru þau oft
á tíðum flókin og geta leyst fjölþætt
verkcfni.
En hvernig stendur á því, að fólk
leggur ekki út í að kynna sér til fulls þá
möguleika, sem tæknin býður upp á í
þeim verkfærum, sem þegar eru til á
heimilinu? Margar ástæður liggja til
þess, segir í blaðinu. Þar er bent á, að
leiðarvísar, sem tækjunum fylgja, gegna
oft ekki hlutverki sínu. T.d. þykja þeir
oft vera á illskiljanlegu máli fyrir venju-
Iegt fólk og því borið við. að þeir, sem
þá skrifi, geri það frá allt öðru sjónarmiði
en notendurnir lesa þá. Fólk fletti þeim
með hraði og ætlist til að rekast á
mikilvægar upplýsingar. Þetta hafi það í
för mcð sér, að ýmsar upplýsingar og
aðvaranir fari fram hjá lesandanum.
Því er m.a.s. haidið fram, að þeir séu
fyrst og fremst skrifaðir fyrir karlmenn;
Úrbætur
Góð ráð eru gefin framleiðendum til
að ráða bót á þessu ófrcmdarástandi.
T.d. sé heppilegra að gefa þær upplýsing-
ar, sem mögulegt er, heldur með mynd-
máli en texta. Allur texti skuli vera á sem
einföldustu máli. Með stuttum millibil-
um skuli vitnað til atriða, sem áður hafa
komið fram. Það er nefnilega ekki hægt
að ætlast til að lesandinn hafi lagt öll þau
atriði, sem hann hefur lesið, á minnið.
Þá er lagt til, að hönnun tækjanna
verði stöðluð og inn í þau verði byggt
einhverskonar aðvörunarkerfi. svo að
notandinn geri sér strax Ijóst, 'ef hann
hefur gert eitthvað vitlaust.
Lásu leiðarvísana, en
samt.. ..
Sem dæmi um fólk. scm stendur
stuggur af tækninni. er í greininni sagt
frá 4 húsmæðrum. sem þátt tóku í tilraun
nokkurri. þar sem þær áttu að vinna með
tæki. sem þcim voru ókunnug. Sú fyrsta
átti að gera innkaupa pöntunarlista með
tölvu. Eftir 25 mínútna árangurslausar
tilraunir til að kveikja á skerminum,
gafst hún upp. Önnur var beöin að stilla
víedóupptökutæki á dagskrá, sem átti að
hefjast klukkustundu sfðar. Þrátt fyrir
að hún stæði í þeirri meiningu, að hún
hefði lesið leiðbeiningarnar vandlega,
fór það alveg framhjá henni, að hún
þurfti að stilla klukkuna á þann tíma,
sem hún var að stilla tækið. Sú þriðja
fékk það verkefni að láta tölvu setja
saman mataruppskrift. sem byggðist á
þeim matvælum. sem hún átti í búrinu.
Hún var órög að gefa tölvunni fyrirskipan-
ir. En ekkert fékk hún svarið. cnda hafði
henni láðst að leggja spurninguna fyrir
tölvuna. Sú fjórða ætlaði að baka köku
í örbylgjuofni, en þar sem fram hjá
henni fóru mikilvægar upplýsingar, þeg-
ar hún las sér til í leiðbeiningunum, varð
árangurinn ekki annar en hrá kaka.
Allar stóðu konurnar í þeirri mein-
ingu. að þær het'ðu lesið leiðarvísana vel
og vandlega áður cn þær hófust handa.
Þær höfðu aldrei áður hugleitt, að flókið
gæti verið að vinna með þau tæki, sem
finna má á mörgum heimilum. og því
síður að þeim stæði nokkur skelfing af
þeim. En þessi reynsla varð til þess, að
þær fóru að endurskoða þessa afstöðu
sína. Þær misstu kjarkinn ogsjálfstraust-
ið.