Tíminn - 13.03.1983, Blaðsíða 6
SUNNUDAGUR 13. MARS 1983
listviðburdir helgarinnar
■ Atriði úr óperunni Míkadó sern frunisýnd var á föstudagskvöld. Önnur sýning er
á sunnudagskvöld.
■Við sjúkrabeð:Þóra Borg og Lilja Þórisdóttir í hlutverkum sínum.
Húsið-Trúnaðarmál, ný íslensk kvikmynd, framsýnd um helgina:
íslenska óperan sýnir Míkadó
eftir Gilbert og Sullivan:
Keisarasonur í
dulargervi lendir
í ævintýrum
■Á miðilsfundi í Húsinu: Bríet Héðinsdóttir, Helgi Skúlason, Þorsteinn Hannesson.
■ íslenska ópcran frumsýndi í gær-
kvöldi óperettu Gilberts og Sullivans
Míkadó. Önnur sýning verður á sunnu-
dagskvöld. Lcikstjóri er Francesca Zam-
bello frá Colorado í Bandaríkjunum og
sviðsmyndin cr cinnig í höndum Banda-
ríkjamanna, þcirra Michaels Deegan og
Söru Conly en þau starfa hjá Metropolti-
an óperunni í New York.
Alls taka 9 söngvarar þátt í sýningunni
auk kórs íslenskuóperunnaren þaueru:
Elísabet F. Eiríksdóttir, Hrönn Hafliða-
dóttir, Katrín Sigurðardóttir, Soffía
Bjarnleifsdóttir, Bessi Bjarnason,
Hjálmar Kjartansson, Júlíus Vífill Ing-
varsson, Kristinn Hallsson og Steinþór
Þráinsson. Sýningarstjóri er Guðný
Helgadóttir.
Söguþráður ópercttunnar er í stuttu
máli þessi: Nanki-Pú, sonur Míkadósins
(keisara Japans), flýr föðurhús til þess
að komast hjá því að giftast skassinu
Katishu, og kemur til bæjarins Titipú
dulbúinn scm hljóðfæralcikari. Þarfellir
hann hug til Nam-Nam, scm því miður
er heitbundin forráðamanni sínum, Kó-
Kó klæðskera. Fullur örvæntingar held-
ur Naki-Pú á braut og gerist farand-
söngvari.
Þegar hann fréttir að Kó-Kó hafi veriö
dæmdur til dauða hraðar Nanki-Pú sér
aftur til Titipú en kemst þá að raun um
að ekki einasta hefur Kó-Kó verið
náðaður heldur og verið gerður að
Há-yfir-böðli Titipú. Há-yfir-böðullinn
hyggst ganga í það hcilaga með Nam-
Nam svo Nanki-Pú finnst ráðlcgast að
stytta sér aldur.
Þetta fréttir Kó-Kó, sem er fallinn í
ónáð hjá Míkadónum vegna ódugnaðar
við aftökur, og telur hann Nanki-Pú á að
gangast undir opinbera aftöku að mán-
uði liðnum gegn því, að hann fái að njóta
Nam-Vam þar til að því komi. Þegar allt
er klappað og klárt fréttir Kó-Kó frá
Pú-Kó vini sínum, sem gegnir öllum
embættum í Titipú öðrum en Há-yfir-
böðuls, að sá böggull fylgi skammrifi, að
lögum samkvæmt skuli kona réttaðs
manns fylgja honum lifandi í gröfina.
Þar með fer brúðkaup Nanki-Pú í
vaskinn.
í þessu upplýsir Pú-Kó að Míkadóinn
ásamt Katishu og hirðfólki sé á næstu
grösum. í skelfingu sendir Kó-Kó þau
Nam-Nam og Nanki-Pú, og er hún
. reisu og scmur skýrslu þar scm segir af
opinberri aftöku Nanki-Pú, og er hún
vottfest af hverjum einasta embættis-
manni í Títipú, þ.c. Pú-Kó. Þegar Mík-
adóinn kemur upplýsist það fljótlega að
Nanki-Pú er erfingi krúnunnar, og viður-
lög við því að eiga þátt í dauða hans eru
suða í olíu við hægan hita - og skiptir
þar engu þótt glæpurinn sé framinn af
gáleysi.
Kó-Kó grátbiður nú Nanki-Pú, sem til
allrar hamingju var ekki lagður af stað í
brúðkaupsfcrðina, um að gefa sig fram.
En þar sem Nanki-Pú þckkir skapsmuni
Katishu þá harðneitar hann að gera það
svo lcngi sem hún pipri. Kó-Kó sem á
sér engrar undankomu auðið gerir hosur
sínar grænar fyrir Kastishu með góðum
árangri, og Nanki-Pú birtist mcð höfuðið
á sínum stað.
Kó-Kó tckst að klóra yfir hið falsaða
dánarvottorð og allt fær góðan endi.
■ Húsið-Trúnaðarmál, ný íslensk
kvikmynd, verður frumsýnd í Háskóla-
bíói í dag. Það eru fyrirtækin Saga-Film
og Hugmynd sem gera myndina og hafa
unnið að henni s.l. eitt og hálft ár.
Lcikstjóri er Egill Eðvarðsson. kvik-
myndatöku annaðist Snorri Þórisson,
höfundur leikmyndar er Björn
Björnsson, en handritið hafa þessir
gömlu samstarfsmenn úr sjónvarpinu
gert í sameiningu.
Lilja Þórisdóttir og Jóhann Sigurðsson
fara með aðalhlutverk, en auk þeirra
koma við sögu fjölmargir aðrir kunnir
leikarar, og eins fólk sem ekki hefur
áður fengist við lciklist. Myndin er tekin
í Reykjavík og Vínarborg og er 103
mínútur að lcngd í dolby-stereo.
Húsið-Trúnaðarmál fjallar um ungt
fólk sent flytur inn í gamalt hús í
Reykjavík. Hún cr kennari í heyrnleys-
ingjaskóla. en hann er tónlistarmaður.
Skömmu éftir að þau koma í húsið
verður stúlkan vör við eitthvað sem
angrar hana en hún veit ekki hvað er.
Um miðbik myndarinnar fcr sambýlis-
maður hennar utan til náms og þá færast
hinir dularfullu atburðir í aukana. Stúlk-
an heyrir raddir og verður m.a. vör við
að í húsinu eru haldnir miðilsfundir.
Hún einbeitir sér að því að reyna að
leysa ráðgátu hússins og kostar það
mikla og spennandi leit.
Lilja Þórisdóttir fer með aðalhlutverkið í kvikmyndinni.
IJl
Heimili óskast
Fósturforeldrar óskast á Stór-Fteykjavíkursvæð-
inu.
Allar nánari upplýsingar gefur félagsráðgjafi
Félagsmálastofnun Kópavogs sími 41570
ÍSSKAPA- OG FRYSTIKISTU
viðgerðir
Breytum gömlum ísskápum
i frystiskápa.
Góð þjónusta.
ŒfroslvarU
REYKJAVIKURVEGI 25 Há'fnarfirði sími 50473
útibú að Mjölnisholti 14 Reykjavík.
Dularfulllr atburð-
Ir í gömlu húsi