Tíminn - 20.04.1983, Blaðsíða 1
Ísland án atvinnuleysis x§
FJÖLBREYTTARA
OG BETRA BLAÐ!
Miðvikudagur 20. apríl 1983
89. tölublað - 67. árgangur.
„Þjóðhagsspáin sýnir að framsóknarmenn höfðu rétt fyrir sér”:
„VIÐ HOFIIM VERIÐ T1LBUNIR
TIL RD GERA RAOSTAFANIR”
,,lýsi ábyrgð á hendur þeim sem ekki féllust á breytingu á vísitölukerfinu”
segir Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins
■ „Það eru vissir hlutir í þess-
ari þjóðhagsspá Þjóðhagsstofn-
unar, sem eru heldur skárri en
spáð var, svo sem það að við-
skiptahallinn á árinu er talinn
verða minni, eða 4% en hafði
verið spáð að yrði 8 til 10 %! og
er það auðvitað jákvætt,“ sagði
Steingrímur Hermannsson,
formaður Framsóknarflokksins
er Tíminn ræddi við hann í gær
um þjóðhagsspá Þjóðhagsstofn-
unar sem kom út í fyrradag, og
var kynnt hér í blaðinu í gær.
„Sömuleiðis það, að þó að
eriendu skuldirnar séu alltof
háar, þá er þó greiðslubyrðin
talin vera heldur minni en Geir
hefur haldið fram og aðrir sjáif-
stæðismenn," sagði Steingrímur
jafnframt, „og það tel ég einnig
vera af því góða.“
„Hinsvegar er það náttúrlega
ískyggilegt að verðbólguhraðinn
stefni í 80%, og það sannar
náttúrlega það,“ sagði Stein-
grímur, „að það varð að grípa í
taumana fyrsta mars sl. Ég lýsi
ábyrgð á hendur þeim sem ekki
féllust á breytingu á vísitölukerf-
inu, sem hefði dregið talsvert úr
þessari holskeflu núna.“
Steingrímur sagði að þetta
sannaði það, að það hefði verið
misráðið af Alþýðubandalaginu
að þora ekki að halda áfram
niðurtalningunni á árinu 1982.
Þá hefði Alþýðubandalagið
brostið kjark, og svo hefði
stjórnarandstaðan og Alþýðu-
bandalagið brugðist er breyta
þurfti vísitölukerfinu nú fyrir 1.
mars sl. Steingrímur sagði að
þessi spá sýndi svo ekki yrði um
villst, að framsóknarmenn hefðu
haft rétt fyrir sér í því, að halda
hefði þurft niðurtalningunni
áfram.
„Við framsóknarmenn höfum
verið tilbúnir núna," sagði
Steingrímur, „til að grípa til
ráðstafana, sem hefðu það í för
með sér að lögbundnar yrðu
aðgerðir út þetta ár, þannig að
þær hækkanir sem framundan
eru væru takmarkaðar, auk þess
sem kaupmáttur lægri launa væri
verndaður, og ég er sannfærður
um að forsætisráðherra er á
sömu skoðun."
Steingrímur sagði að það væri
ljóst, að ef ekki yrði gripið til
slíkra ráðstafana, nú fyrir kosning-
ar, þá þyrfti að mynda ríkisstjórn
strax að loknum kosningum, sem
tæki á þessum málum þegar í
stað, ella myndu hækkanir á
opinberri þjónustu og mörgu
fleira dynja yfir, strax um mán-
aðamótin. „Það verður náttúr-
lega spennandi að vita,“ sagði
Steingrímur, „hvort Geir Hall-
grímsson og Svavar Gestsson,
ætla sér að fara að semja um
aðrar kosningar, eða híta sér
þetta að kenningu verða.“
Er Steingrímur var spurður
álits á þeirri spá Þjóðhagsstofn-
unar, að þjóðartckjur og þjóð-
arframleiðsla minnki um 4.5 til
5.5% sagði hann:
„Þessi spá er mjög í þeim dúr,
sem við höfðum séð fyrir, og í
ljósi minnkandi afla, óttast ég að
það geti orðið ennþá verra, því
miður.“ _ ab
Olafur Jóhannesson um
Flugstööina íbeinni
útsendingu:
„SKAPAR
100-150
ATVINNU-
TÆKIFÆRI”
. - pil í&Mglp vJw .jmt U
|Ít \'i ■ #1
■ „Ég hef farið með utanrík-
ismál og það hefur gengið áfalla-
iítið af því að ég hef haft þann
háttinn á að láta Alþýðubanda-
lagsmenn engin áhrif hafa á þaú.
Þar er ein undantekning sem er
Flugstöðin. Þar hafa þeir neitun-
arvald og þeir hafa hindrað það
að
150 atvinnutækifæri, á þeim
árum sem byggingin stendur
1982-86.
IngviHrafn stjórnandi þáttar-
ins beindi spumingu til Ólafs um
niðurtalninguna sem samstarfs-
aðilar í ríkisstjóm gáfust upp á.
„Það er engin önnur leið til en
Málin rædd áður en gengið var inn í sjónvarpssal.
Tímamynd Róbert
14 VIIM STJÖRNA RÁS-2
byrjuð” sagði Ólafur Jóhannes- son utanríkisráðherra m.a. í beinni útsendingu sjónvarpsins með fulltrúum flokkanna í Reykjavík. Hann bætti svo við að nú hefði hann undirbúið það mál og það væri tilbúið þannig að þegar eftirmaður hans settist í stólinn væri hægt að byrja framkvæmdir í þessu máli en byggingin myndi skapa ein 100- ur þetta um lögfestingu, að af- nema eigi allan samningsrétt. Það er fjarri öllu sanni. En til þess að koma þeim ráðstöfunum fram, sem eru nauðsynlegar, til þess að hægt sé að koma þessum þrepum í framkvæmd þarf breyt- ingar á löggjöf, vegna þess að . enginn aðili er til í þjóðfélaginu sem hefur umboð til að semja um sum þau atriði.“ -FRI ■ Fjórtán sóttu um stöðu for- stöðumanns Rásar-2 hjáRíkisút- varpinú sem ráðgert er að hefji útsendingar 1. október næst komandi. Fjórir umsækjendur óskuðu nafnleyndar, en aðrir eru: Frosti Fífill Jóhannsson, þjóðháttafræðingur, Geir Viðar Vilhjálmsson, sálfræöingur, Guðmundur Sæmundsson, cand. mag., Hallgrímur Thorsteins- son, fréttamaður, Helgi Péturs- son, fréttamaður, ÓskarEyvind- ur Arason, kvikmyndatökumað- ur hjá sjónvarpinu, Steinþór Ólafsson, fjölmiðlafræðingur, Sveinn Kristinsson, Þorgeir Ást- valdsson, iandafræðingur og Ævar Kjartansson, varadag- skrárstjóri Ríkisútvarpsins. Nafnalistinn var lagður fyrir fund útvarpsráðs síðdegis í gær, en búist er við að ráðið taki afstöðu til umsóknanna á fundi að viku liðinni. Menntamálaráð- herra veitir stöðuna. Að sögn Harðar Vilhjálms- sonar, framkvæmdastjóra hljóð- varpsins, hefur dagskrárstefna Rásar-2 enn ekki verið full- mótuð. Þó sagði hann að nú væri reiknað með að sent yrði út 12 klukkustundir á dag og uppistað- an í dagskránni yrði létt efni og tónlist. Hörður sagði að ráðgert væri að fréttir og ýmislegt fleira efni af Rás-1 yrði væntanlega fléttað inn í dagskrá Rásar-2. Þá sagði hann að sennilega yrði útvarpað frá Rás-2 til klukkan 1 á nótt- unni. - Sjó