Tíminn - 20.04.1983, Side 4
4
MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1983
Eigum fyrirliggjandi
CAV 12 volta startari:
Bedford M. Ferguson
Perkins Zetor
L. RoverD. Ursusofl.
CAV 24 volta startari:
Perkings
Scania
JCB o.fl.
Lucas 12 volta startari:
M. Ferguson
Ford Tractor ofl.
CAV 24 volta alternator:
35 amper einangruð jörð
65 amper einangruð jörð
Butec 24 volta alternator:
55 ampers einangruð jörð
Einnig startarar og alternatorar fyrir aliar
gerðir af japönskum og enskum bifreiðum.
Þyrill s.f.
Hverfisgötu 84
101 Reykjavík
Sími 29080
XVII Norðurlandaþing
um málefni vangefinna
verður haldið í Stavanger í Noregi 10.-12. ágúst n.k.
Umsóknarfrestur er til 1. maí.
Dagskrá þingsins og umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Styrktar-
félags vangefinna, Háteigsvegi 6 og hjá Landssamtökunum Þroska-
hjálp, Nóatúni 17. Þar eru einnig gefnar nánari upplýsingar, svo og
hjá Sigríði Ingimarsdóttur í síma 34941.
Landssamtökin Þroskahjálp,
Styrktarfélag vangefinna
tD
mroskahjálp
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
móðursystur minnar
Oddfríðar Hákonardóttur Sætre
Flókagötu 12, Reykjavfk
Gróa Salvars og aðrir aðstandendur.
Öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug, samúð og vináttu við andlát og
jarðarför elskulegs sonar okkar, bróður og mágs,
Hjalta Ingvarssonar,
Reykjahlíö,
Skelðum
færum við innilegar þakkir.
Sveinf ríður Sveinsdóttir Ingvar Þórðarson
Sveinn Ingvarsson Steinnun Ingvarsdóttir
Guðrún Ingvarsdóttir Magnús Gunnarsson
Erna Ingvarsdóttir Þorsteinn Hjartarson
Útför móður minnar,
Kristínar Gunnlaugsdóttur,
fer fram frá Hrunakirkju föstudaginn 22. þ.m. kl. 2 eftir hádegi.
Bílferð verður frá Bifreiðastöð íslands sama dag kl. 11 fyrir hádegi.
Gunnlaugur Arnórsson.
Sonur okkar og bróðir
Guðmundur Einarsson,
Skálholtsbraut S,
Þorlákshöfn
veröur jarðsunginn frá Þorlákskirkju, Þorlákshöfn, fimmtudaginn 21.
apríl kl. 2 e.h.
Einar Sigurðsson Helga Jónsdóttir
og systkini.
fréttiri
Full atvinna á Þórshöfn í vetur:
Gífurleg breyting
með komu togarans
- án hans hefði verið hér 5 mánaða atvinnuleysi,
sagði formaður Verkalýðsfélags Þórshafnar
ÞÓRSHÖFN: „Hér hefur verið af-
skaplega góð atvinna í vetur. Með
komu togarans hefur orðið alveg gífur-
leg breyting á atvinnuástandinu hér,
frá því sem áður var. Bátafiskiríið
hefur hins vegar verið frekar lélegt í
vetur, þannig að ljóst er að orðið hefði
um 5 mánaða atvinnuleysi hjá flest öllu
fóki sem vinnur við fiskverkun ef við
hefðum ekki togarann en hefðum þurft
að treysta á bátaaflann. Þetta eru um
40-50 manns í vetur gróflega áætlað,
en svo bætist auðvitað mikið við þegar
skólafólkið kernur", sagði Kristinn Jó-
hannesson, formaður Verkalýðsfélags
Þórshafnar, spurður um atvinnu-
ástandið á staðnum í vetur.
- Mér þykir gott hljóð í þér miðað
við það sem víða hefur heyrst frá
verstöðvum í vetur?
- Þegar maður hefur fulla vinnu þá
þarf ekkert að kvarta. Það er svo
margt sem það leysir að hafa fulla
vinnu að það er alveg ótrúlegt, sagði
Kristján. Hann kvað togarann afla vel.
Síðast hafi hann komið með um 150
tonn eftir 5 daga útivist. „Þetta er því
ágætis fiskirí hjá honum“, sagði
Kristján.
- HEI
■ Strákamirá Haukabergi eru búnir að draga um 500 tonn af fiski úr sjó í vetur,
þótt þeir hafi verið látnir vera tvo daga í landi vegna kappseminnar m.a.
Timamynd Ari Lieberman.
„Hafa mistalið sig
eitthvað smávegis”
— segir Hjálmar Gunnarsson
í Grundarfirði
GRUNDARFJÖRÐUR: “Þetta er
ekkert óalgengt - þeir hafa mistalið sig
eitthvað smávegis á netunum strákarn-
ir - eru orðnir kappsamir svona þegar
farið er að vora. En þeir hvfla sig bara
og verða enn brattari þegar þeir kom-
ast á sjó aftur, líklega á morgun eða
laugardag", sagði Hjálmar Gunnars-
son, útgerðarmaður í Grundafirði í
samtali við Tímann fyrir helgi. Starfs-
menn veiðieftirlits sjávarútvegsráðu-
neytisins fóru í róður með Haukaberg-
inu, bát sem Hjálmar á, og tóku af
skipstjóranum netaveiðileyfið í tvo
daga, vegna þess að hann hafði of
mörg nef í sjó.
„Þeir koma alltaf annað slagið og
telja, enda er það eins og það á að
vera. Þetta var eitthvert slys, en ekkert
við því að gera annað en að vera bara
góði drengurinn. Það er auðvitað sjálf-
Hjálmar.
En hvernig hefur vertíðin gengið í
vetur hjá ykkur?
- Bara vel. Haukabergið er komið
með um 500 tonn og er lang hæsti
báturinn hér í vetur, þótt hann hafi
lent í þessu. Skipstjórinn, Garðar
Gunnarsson hefur líka verið aflakóng-
ur hér í mörg ár og þeir gætu annað
miklu fleiri netum ef það væri leyft.
Togarinn okkar Sigurfari II var líka að
landa hér 170 tonnum í dag og er búinn
að fá um 1100 tonn yfir vertíðina.
Vertíðin er því ekkert verri í vetur hjá
okkur en verið hefur, nema hvað það
mætti vera meiri þorskur í togaraaflan-
um. En það er ekki um það að ræða -
hann virðist ekki fáanlegur, sagði
Hjálmar. Og er þetta sannarlega frem-
ur óvenjulegt hljóð í útgerðarmanni
þessa síðustu og verstu tíma.
Hitaveita
Rangæinga:
Dælubilanir
en ekki
holubilun
RANGÁRÞING: Mælingar á borhol-
unni að Laugalandi í Holtum eftir að
dæling stöðvaðist þann 24. febrúar s.l.
og upplýsingar, sem safnast hafa sam-
an síðan dæling hófst á ný með nýrri
dælu þann 11. mars s.l. hafa leitt í ljós
að engin ástæða er til að ætla að
nokkrar breytingar hafi orðið á hol-
unni eða innrennslinu í hana. Allar
hugmyndir um hrun holunnar eða
lokun vatnsæða hafa því reynst mark-
lausar. Vatnsleysi Hitaveitu Rang-
æinga stafaði af biluðum djúpdælum
og orsakir þeirra bilana er ekki hægt
að rekja tii holunnar eða innrennslis í
hana. Þetta kemur fram í ágripi af
skýrslu er starfsmenn Orkustofnunar
hafa gert um vatnsvinnslu Hitaveitu
Rangæinga að Laugalandi.
Bilanir á tveim dælum, 22. og 24.
febúar s.l. segja menn Orkustofnunar
tæknilegs eðlis og þar sem Orkustofn-
un hafi ekki séð um eftirlit með
djúpdælu HVR fjalli starfsmenn henn-
ar ekki ýtarlega um orsakir þeirra.
Orkustofnun mælir hins vegar með
að fylgst verði náið með vatnsvinnslu
úr holunni á næstu mánuðum til að
hægt verði að gera trausta spá um áhrif
langtímavatnsvinnslu á svæðinu, svo
og að ný vinnsluhola verið boruð sem
fyrst til að auka rekstraröryggi Hita-
veitu Rangæinga.
Nú hefur 22-25 sekúndulítrum verið
dælt úr holunni í um 4 vikur án
nokkurra vandræða og er vatnsborð
hennar á 80 m. dýpi. Þetta vatnsmagn
er sagt fullnægja núverandi þörfum
sagt að passa upp á þetta“, sagði
HR.
HEI
- HEI
Þing Alþýðusambands Suðurlands:
Adeins tókst ad
skapafáatugi starfa
af þeim 1.460 sem þurfti á árunum 1979-1983
SUÐURLAND: “Á árunum 1979-
1983 hefði þurft að skapa 1.460 störf
tengd iðnaði á Suðurlandi og af þeim
860 störf í iðnaðinum sjálfum. Skýrslur
sýna að á þessum tíma hefur aðeins
tekist að skapa fáa tugi atvinnutæki-
færa. Afleiðing þessa er m.a.s. sú að
árið 1981 fluttu 230 Sunnlendingar
brott umfram aðflutta en á því ári
fjölgaði Sunnlendingum aðeins um 28
íbúa, eða 0,14% en íbúum landsins í
heild um 1,23%“, segir m.a. í ályktun
7. þings Alþýðusambands Suðurlands
sem haldið var nýlega.
Með hliðsjón af þessu telur ASS
óhjákvæmilegt að gerðar séu raunhæf-
ar tímasettar áætlanir varðandi
atvinnuuppbyggingu á Suðurlandi þar
sem m.a. sé tekið tillit itl eftirfarandi
þátta:
Stóraukin áhersla verði lögð á upp-
byggingu hvers konar iðnaðar er hag-
nýti orkulindir og hráefni þessa lands-
hluta.
Aukin áhersla verði lögð á að stjórn-
völd standi við fyrirheit um byggingu
brúar á Ölfusárós.
Tryggja beri næga raforku til húshit-
unar í þeim sveitarfélögum er ekki
hafa jarðvarma og verð hennar miðað
við kjör á hitaveitusvæðum.
Skorað er á þingmenn, sveitarstjórn-
armenn og stjórnendur áhugamanna
félaga að kanna grundvöll fyrir full-
vinnslu byggingarefna á Suðurlandi í
byggingareiningar til útflutnings.
Vakin er athygli á þeirri óheillaþró-
un er átt hefur sér stað varðandi
fullvinnslu landbúnaðarafurða á Suður-
landi, þar sem meginhluti úrvinnslu-
stöðva sunnlenskra landbúnaðar-
afurða er í öðrum landshlutum.
Þá telur þingið að auka þurfi veru-
lega framkvæmdir við vegakerfi á
Suðurlandi, enda hafi íbúar þar ekki
að öðrum samgöngum að hverfa.
- HEI