Tíminn - 28.04.1983, Page 4
4
FIMMTUDAGUR 28. APRIL 1983
Roccoco - sófasett
Stakir stólar og sófaborð. Úrval af gjafavörum.
Reyr-húsgögn og málverk. Fermingargjafir í úrvali.
Verslunin Reyr
Laugavegi 27, sími 19380
7
i’v
V.
GLUGGAR
0G HURÐIR
Vönduð vinna á hagstœðu verði
Leitið tilboða.
ÚTIHURÐIR
Dalshrauni 9. Hf. *
S. 54595. Æ,
Meltaway
Snjóbræðslukerfi
í bílastæði, tröppur, götur, gangstíga
torg og íþróttavelli.
Síminn er:
77400
Þú nærð sambandi
hvort sem er
að nóttu eða degi.
PÍPULAGNIR sf.
Smiðjuvegur 28 — BOX 116
202 Kópavogur
ÍSSKAPA- OG FRYSTIKISTU
VIOGERÐIR
Breytum gömlum ísskápum
i frystiskápa.
Góð þjónusta.
REYKJAVIKURVEGI 25 Há'fnarfirði sími 50473
útibú að Mjölnisholti 14 Reykjavík.
Kjarnaborun
Tökum úr steyptum veggjum fyrir hurðir, loftræstingu, giugga,
og ýmisskonar lagnir, 2", 3", 4", 5", 6” og 7" borar.
HLJOÐLÁTT OG RYKLAUST. Fjarlægum múrbrotið, önnumst
ísetningar hurða og glugga ef óskað er. Hvert á land sem er.
Skjót og góð þjónusta.
Kjarnaborun sf.
Símar 38203-33882
fréttir
Engin er rós án þyrna:
Fjordungs fjölgun
árekstra í Borgarnesi
— eftir að
fjarðar-
brúin
kom
BORGARNES: Engin er rós án
þyrna, segir einhversstaðar og svipað
mætti segja um Borgarfjarðarbrúna.
Frá árinu 1981 fjölgaði umferðar-
óhöppum í Borgarnesi um fjórðung
frá næstu árum á undan, samkvæmt
könnun sem gerð var af lögreglunni í
Borgarnesi.
„Ut af fyrir sig þykir tnér nú nokkuð
mikið sagt að þessi fjölgun umferðar-
óhappa sé einungis vcgna tilkomu
brúarinnar, cn auðvitað hefur umferð
hérna aukist verulega með tilkomu
hennar. Einnig hefur orðið hér mikil
fjölgun íbúa og þar með auðvitað
fjölgun bíla um leið. í þriðja lagi
fjölgar sumarhúsum hér í héraðinu
stöðugt, sem einnig eykur mikið um-
ferðina hér á staðnum. Ég held því að
skýringanna sé víðar að leita en til
brúarinnar", sagði RúnarGuðjónsson,
sýslumaður í Borgarnesi.
I samantekt yfirlögregluþjónsins í
Borgarnesi á umferðaslysum þar á
árunum I978 til 1982, að báðum árun-
um meðtöldum kom í Ijós að árið 1978
voru þau 51 og árið 1979 alls 53, árið
I980 samtals 57. Árið I98l fer talan
upp í 71 og árið 1982 vcrða óhöppin
73. Rúnar tók fram að í flestum
tilvikum væru þetta smá árekstrar með
litlu eignatjóni og nær engum slysum.
„Fyrst og fremst er þetta vegna
þess að það vantar meira svigrúm. Við
höfum hér ákveðna erfiða hnúta",
sagði Rúnar. Af þeim stöðum nefndi
hann t.d. bílaplanið við Essó-bensín-
stöðina, úti í cyju þar sem bílastæði
séu illa skipulögð og við Hótelið -
andspænis Kaupfélaginu. Fyrirframan
Hótclið hafi t.d. orðið 16 árekstrar á
þessu tímabili. Menn eru því hvattir til
að gæta vel að sér á þessum stöðum.
svo og á aðalbrautinni - Borgarbraut-
inni - sem gengur í gegn um plássið.
- HEI
Borgarfjarðarbrúin
Oddeyrarskóli 28 ára en þó ekki
fullbyggður:
Nemendur hópast í
leyfislausan leiktækjasal
— vegna skorts á félagsaðstöðu
AKUREYRI: „Unglinga á Oddeyri
bráðvantar félagsaðstöðu. Lausleg
könnun hetur leitt í Ijós að börn af
svæðinu leita í hópum í leiktækjasal
sem starfar án leyfis í miðbænum, því
ekki er í annað hús að venda", segir
m.a. í frétt frá Foreldra- og kennara-
félagi Oddeyrarskóla sem nýlega hélt
sinn fyrsta fund með fulltrúum úr
bekkjardeildum skólans, en félagið
var stofnað s.l. haust.
indriði Úlfsson, skólastjóri ræddi
m.a. um húsnæðisþrengsli Oddeyrar-
skólans, sem enn er ekki fullbyggður,
þótt 28 ár séu liðin síðan framkvæmdir
hófust við hann. Mörgum hafi þá þótt
það ofrausn að byggja fyrir 320 nem-
endur. Þeir hafi þó orðið 480 á 2.
starfsári skólans og séu 420 nú í vetur.
Sagði skólastjóri vinnuskilyrði á marg-
an hátt bág vegna húsnæðisþrengsl-
anna.
Þá sagði skólastjóri því miður ekki
hafa tekist að öllu leyti að samræma
viðhorf og vilja starfsmanna skólans
annars vegar og skólanefndar, em-
bættismanna og hönnuða hins vegar í
sambandi við íþróttahús það sem nú
hilli undir við Oddeyrarskóla. M.a.
hafi skólafólkið mætt vissri andstöðu
við hugmyndir um félagsaðstöðu í
skóiahúsnæðinu.
Á fundinum var síðan samþykkt
áskorun á bæjaryfirvöld að hraða
undirbúningi og byggingu íþróttahúss-
ins sem mest, svo og stjórnunar- og
félagsaðstöðu við skólann. Tímabært
sé að fara að Ijúka við byggingu þessa
28 ára gamla skóla.
Jafnframt var samþykkti að fara
þess á leit að Félagsráð og stjórn
Foreldra- og kennarafélags Oddeyrar-
skóla fái að hafa fulltrúa með málfrelsi
og tillögurétti á þeim fundum skóla-
nefndar Akureyrarbæjar, þar sem
fjallað er um byggingamál skólans.
- HEI
Adalfundur Búnaðarfélags Rangárvallahrepps:
Vilja ekki rall
á
Fjallabaksleið
RANGÁRÞING: Búnaðarfélagið á
Rangárvöllum samþykkti nýlega ein-
róma að mótmæla því að erlendir
rallýkappar geystust um afréttarlönd
þeirra.
„Það var borin fram tillaga um þetta
á aðalfundi Búnaðarfélagsins og sam-
þykkt einróma. Tillagan var efnislega
að við mótmælum þessu fjallarallýi og
skorum á sýslumann að gera það sem
hann getur til að sporna við því", sagði
Þorsteinn Oddsson, bóndi á Heiði á
Rangárvöllum sem er formaður Bún-
aðarféJagsins. Fjallabaksleið syðri til-
heyrir afrétti þeirra Rangvellina. í
greinargerð með þessari samþykkt
sagði Þorsteinn koma fram að rallýið
yrði viðbót við aðra umferð um Fjalla-
baksleið, sem sé meiri en nóg fyrir.
Hann kvað það þó hafa minnkað, að
menn væru akandi þarna út um hvipp-
inn og hvappinn, en slíkt hafi verið
mikið unr á tímabili.
„Það er mjög veikur gróður þarna
og þolir umferð illa," sagði Þorsteinn.
Aðspúrður sagði hann hafa verið reynt
lítilsháttar að bera áburð á afréttinn,
en það virðist ekki koma að miklum
notum, vöxtur þar sé svo hægur.
Þorsteinn kvað nú aðeins orðna
örfáa menn sem reki fé sitt á afrétt á
sumrin, þannig að hann sé tæpast
ofbeittur.
Við spurðum Þorstein almennra tíð-
inda úr sveitinni. „Það er svo sem
ekkert sérstakt aó frétta. nema að
manni finnst tíðin köld ennþá. Hér á
ofanverðum Rangárvöilum hefur jörð
verið undir snjó núna síðustu daga, en
hann hefur nú töluvert gengið upp í
blíðunni sem verið hefur í dag, sem er
lang besti dagurinn ti! þessa".
Hann kvað hafa verið frost flesta
daga og upp í 8-10 gráður nær allar
nætur. Frost í jörðu telur Þorsteinn þó
ekki ýkja mikið á þessum slóðum.
þannig að jörð ætti að taka nokkuð
fijótt við sér er það snerist til hagstæð-
rar tíðar. „En þó yrði það heldur í
seinna lagi, því oft er nú farið að gróa
eitthvað á þessum tíma, sem er alls
ekki neitt núna”, sagði Þorsteinn.
Sauðburð sagði Þorsteinn væntan-
lega hefjast um 10. maí, en kannski
aðeins fyrr þær ær sem voru sæddar í
desember. En það sé ekki almennt.
- Eru bændur að minnka bústofn
sinn, eða kannski stækka hjá sér?
- Ég held að þetta hafi nú verið
svipað svona síðustu árin. í Gunnars-
holti er þó orðið mikið minna fjárbú
lieldur en var. Fénu þar varfargað að
mestu leyti s.l. haust, sagði Þorsteinn.
- HEI